Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í vísindum og fræðum velt- ur allt á aðferðinni sem beitt er til að rannsaka viðfangsefni. Það er m.ö.o. ekki efnið sjálft heldur hin vísindalega aðferð sem er í öndvegi. Hægt er að fylgja henni óháð tilfinningum, skoð- unum og persónum sem tengjast málum. Í uppeldi er það einnig aðferðin sem vegur þyngst. Mikilvægt er t.d. að foreldrar séu samkvæmir sjálfum sér, virði barnið og laði hæfileika þess fram en beiti það ekki kúgun og ofríki. Í blaðamennsku er það aðferð- in sem skiptir mestu, einnig í kennslu, viðskiptum, stjórn- málum og hvarvetna á vettvangi fag- mennsku. Lýðræði er aðferð til að fara með vald. Völd eru eftirsótt verðmæti. Vald er höfuðhugtak í mannkynssög- unni. Það birtist í öllum mann- legum samskiptum og kallar fram aðdáun, virðingu, ótta, öfund, hat- ur og ást. Valdinu er skipt í fram- kvæmdavald, löggjafarvald og dómsvald í lýðræðisríkjum. Vonin er svo að lýðræðið stuðli að jafn- gildi, virðingu og samábyrgð borgaranna. Samkvæmt niðurstöðu könn- unar Siðfræðistofnunar, Fé- lagsvísindastofnunar HÍ og Stað- ardagskrár 21 hjá Reykjavíkurborg um viðhorf Ís- lendinga til lýðræðis (og fleiri þátta, 2003) nýtur lýðræð- isskipulagið ótvíræðs (90%) stuðnings almennings. Íslend- ingar eru því lýðræðissinnar. Aft- ur á móti sögðust 49% þeirra sem afstöðu tóku frekar eða mjög óánægðir sem framkvæmd lýð- ræðis á Íslandi. Ennfremur reyndust 63% þeirra sem afstöðu tóku ósammála fullyrðingunni: „Íslandi er í megindráttum stjórnað í samræmi við vilja fólks- ins.“ (Óánægja, Mbl. 11.4. 04.) Það ætti því ekki að koma nein- um á óvart að greina megi fremur sterka óánægju hjá almenningi með þær aðferðir sem ráðherrar stundum beita í lýðræðissam- félaginu. Í könnun Siðfræðistofnunar kom einnig fram að 72% þeirra sem afstöðu tóku telja íslenska stjórnmálaflokka ekki vera í takt við kjósendur sína. Þá voru 86% þeirra sem afstöðu tóku, frekar eða mjög sammála fullyrðing- unni: „Fáir, valdamiklir ein- staklingar ráða of miklu í íslensk- um stjórnmálum.“ Íslendingar eru með öðrum orðum óánægðir lýðræðissinnar, sem vilja þroska samræðuna og gefa lýðræðinu meiri tíma. Góðar líkur eru því á því að þegar núver- andi (karla)valdakynslóð í ís- lenskum stjórnmálum dregur sig í hlé, að þá opnist möguleiki á samræðulýðræði. Vald er ekki fast hugtak, held- ur fljótandi. Líkja má valdi við jökulá sem sumir safna saman með því að steypa stíflur, lón og virkjun. Vald er sleipt; hált sem áll. Það rennur oft saman við önn- ur hugtök og tekur á sig ýmsar birtingarmyndir; hlutleysis, heið- arleika, þótt því sé beitt af geð- þótta og eftir sérhagsmunum. „Ég er ekki þrjótur,“ fullyrti Nix- on í varnarræðu sinni vegna Wat- ergate-málsins, en aðferðin sem hann notaði var ekki í anda lýð- ræðis. Þolimæði almennings gagnvart beitingu valds án umræðu er þverrandi á Íslandi, m.a. vegna þess að sú aðferð er á skakk og skjön við það sem kennt er í skól- um; jafnt í leikskólum sem há- skólum. Í aðalnámskrá grunn- skóla er lögð mikil áhersla í námi á helstu gildi lýðræðislegs sam- starfs: jafngildi, virðingu og sam- ábyrgð. Lýðræði tengist þekkingu, við- horfum, menntun og virkri þátt- töku hvers og eins, og að mati Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrv. forseta lýðveldisins, á skólastarf að vera uppeldi í lýðræði. Það „á að venja skólanemendur á um- ræðu, á að taka tillit til annarra, á að taka þátt í að mynda meiri- hluta og minnihluta, láta þá spila saman, á að velja einstaklinga í hlutverk sem tengjast hlut- verkum annarra, efla bæði sam- vinnu og samstillingu krafta,“ segir hún. (27.9. 02.) Vigdís var norrænn tengiliður á ráðstefum sem haldnar voru á vegum Nor- rænu ráðherranefndarinnar um lýðræði í skólastarfi 2001–2002. Aðferðafræðin sem notuð var við fjölmiðlafrumvarpið svokall- aða virðist fremur merkt aðferð ofríkis en lýðræðis, og því féll hún ekki í góðan jarðveg. Ef málið var heillavænlegt fyrir almenning, þá eyðilagði aðferðin það. Enginn vill gjafir sem gefnar eru með ólund, jafnvel þótt beðið hafi ver- ið eftir þeim. Ofríki opinberast þegar hvorki er lögð stund á sam- ræður né hlustað á aðra. Það eru ekki „málin“ sem gera Íslendinga að óánægðum lýðræð- issinnum, heldur er það aðferðin sem framkvæmdavaldið beitir við að koma málum sínum áfram. Veik umræðuhefð stjórn- málaflokkanna veldur einnig langtímaþreytu og óánægju al- mennings á þeim. Það er m.a. af þessum sökum sem almenningur hefur litið með velþóknun til þjóðaratkvæða- greiðslu. Í niðurstöðum könnunar Siðfræðistofnunar kom fram að tæp 73% þeirra sem afstöðu tóku voru fylgjandi því að þjóð- aratkvæðagreiðslur verði teknar upp í ríkari mæli hér á landi. Niðurstöður Siðfræðistofnunar knýja íslenska stjórnmálamenn til að líta í eigin barm og hlusta oftar en á fjögurra ára fresti á þjóðina. Það er brýnt hagsmunamál al- mennings að fá að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðigreiðslum, jafnvel þótt stjórnmálamönnum finnist það óþægilegt, og jafnvel þótt þeir vilji velja málin fyrir þjóðina sem kjósa á um. Þrátt fyrir usl- ann í kringum fjölmiðla- frumvarpið, gæti væntanleg þjóð- aratkvæðagreiðsla um það flýtt því um áratug eða svo að beinna og virkara lýðræði skapist á Ís- landi. Völd eru verðmæti Í könnun Siðfræðistofnunar kom fram að 72% þeirra sem afstöðu tóku telja ís- lenska stjórnmálaflokka ekki vera í takt við kjósendur sína. Íslendingar eru óánægðir með framkvæmd lýðræðis. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is ✝ Tryggvi Guð-mundsson var fæddur í Vestmanna- eyjum 1. okt. 1920. Hann lést 1. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Guðmund- ur Eyjólfsson, f. 27. okt. 1885, d. 16. des. 1924, og Áslaug Eyj- ólfsdóttir, f. 26. sept. 1880, d. 24. júlí 1952. Systkini Tryggva voru: Sigurjón, Björn, Rakel, Þórar- inn og Ásvaldur Ragnar, öll látin. Hinn 19. maí 1951 kvæntist Tryggvi eftirlifandi eiginkonu sinni, Svövu Alexandersdóttur, f. 15. sept. 1929. Þau eignuðust fjög- ur börn. Þau eru: 1) Gylfi, kvænt- ur Margréti Rósu Jóhannesdóttur og eiga þau þrjá syni. 2) Aldís, gift Vilhjálmi Vilhjálmssyni og eiga þau einn son. 3) Guðmundur Ás- valdur, kvæntur Auði Trausta- dóttur og eiga þau fjögur börn en fyrir átti Guðmundur einn son. Móðir hans er Lilja Richardsdóttir. 4) Sveinn Orri, kvæntur Steinunni Ósk Konráðsdóttur og eiga þau tvö börn. Tryggvi eignaðist áður dóttur, Soffíu Völu, sem gift er Vil- hjálmi Ólafssyni. Móðir hennar er Margrét Halldórs- dóttir sem er látin. Auk þess ól Tryggvi upp, ásamt móður sinni, Bylgju systurdóttur sína, sem er gift Ólafi Höskuldssyni og eiga þau fimm syni. Tryggvi var lengst af kaupmað- ur í Vestmannaeyjum og síðar í Hafnarfirði. Útför Tryggva verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Það er komið að leiðarlokum hjá Tryggva tengdapabba. Samkvæmt lögmálum lífsins verðum við að sætta okkur við að það kemur að kveðjustundinni hjá okkur öllum. Alvara lífsins kom snemma til Tryggva. Hann var barnungur drengur þegar móðir hans varð ekkja, með fjögur ung börn og eitt á leiðinni. Tryggvi varð stoð og stytta móður sinnar og vann hörðum hönd- um til að hjálpa til við lífsbjörgina. Margir muna eftir honum í Eyjum við afgreiðslu á Bjössabar, eins og verslun Björns Guðmundssonar var kölluð. Hann var stór og myndarleg- ur maður og hvers manns hugljúfi. Hann laðaði alla að sér með sínu glaðlega viðmóti og góðmennsku og það var aldrei lognmolla í kringum hann. Hjónaband Tryggva og Svövu var afar farsælt og barnalán mikið. Auk barnanna sem þau eignuðust saman átti hann áður dótturina Soffíu Völu og einnig gekk hann Bylgju syst- urdóttur sinni í föðurstað. Hann sagði alltaf: „Barnalán er betra en gull“. Hann var þakklátur maður og sagði oft við okkur: „Maður má ekki gleyma að þakka fyrir það sem lífið gefur“ . Það voru mörg heilræðin sem við fengum hjá honum og geym- um eins og gull. Margt breyttist í lífi fjölskyldunn- ar þegar hún varð að flýja undan eldgosi á Heimaey. Fallega húsið þeirra Tryggva og Svövu skemmdist mikið, þannig að þau sneru ekki aft- ur til Eyja. En þau létu ekki deigan síga, heldur héldu ótrauð áfram lífs- baráttunni. Eignuðust fallegt heimili og undu vel við sitt. Það er erfitt að ímynda sér Svövu án Tryggva. Það er eins og að ímynda sér Heimaey án Heima- kletts. Þau voru alltaf svo samrýnd og skemmtileg saman. Söngelsk og hress. Nú verðum við að skemmta okkur við minningarnar. Mamma (eins og Tryggvi kallaði Svövu alltaf) á marga góða að sem munu styðja hana og styrkja á komandi tímum. Hún hefur líka sýnt að hún er hetja þegar á reynir. Ég kveð elsku tengdapabba minn með miklum söknuði. En ég ætla ekki að gleyma að þakka allar góðu stundirnar. Þegar ég hugsa til hans á þessari stundu heyri ég fallegu bassaröddina hans og við syngjum saman „Sveinninn rjóða rósu sá“ og ég brosi í gegnum tárin. Margrét Rósa. Komið er að kveðjustund. Í dag verður ástkær tengdafaðir minn Tryggvi til moldar borinn. Tryggva kynntist ég fljótlega eftir að leiðir okkar Ása lágu saman. Það má segja að ég hafi kynnst Tryggva í seinni hálfleik í lífi hans. Ég kynntist þess- ari fjölskyldu „eftir gos“ eins og Vesmannaeyingar segja gjarnan. „Fyrir gos“ bjuggu þau í Vest- mannaeyjum og voru á hátindi lífs síns, áttu sitt glæsilega heimili, voru með sinn rekstur og höfðu allt til alls. Allt var eins gott og það gat verið en í einu vetfangi var fótunum kippt undan þeim eins og fjölda ann- arra Vestmannaeyinga. Það var ekki til í orðabók Tryggva að gefast upp. Þau réðust í það að kaupa kjörbúð í Hafnarfirði með Birni bróður Tryggva en þeir bræður störfuðu alltaf náið saman. Þessa matvöru- verslun ráku þau síðan í nokkur ár með miklum dugnaði. Það er margs að minnast og margt að þakka á þeim tæplega 30 árum sem við höfum átt samleið. Fallegar minningar renna í gegnum huga mér. Við fjölskyldan höfum ferðast saman bæði innanlands og utan. Einnig höfum við átt góðar stundir saman í Akóges en sá fé- lagsskapur var Tryggva mjög kær og þar starfaði hann í 50 ár, fyrst í Vestmannaeyjum og síðan í Reykja- vík. Matarboðin eru óteljandi og svona mætti lengi telja. Tryggvi kunni að gleðjast á góðum stundum. Þetta hefur verið dásamlegur tími þar sem hlýja og gleði hafa ráðið ríkjum. Tryggvi hafði mikinn áhuga á því sem börn hans og barnabörn voru að gera og studdi þau í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Hann var stoltur af sínu fólki og sagði oft: „Barnalán er betra en fé.“ Tryggvi og Svava voru mjög samhent hjón, nutu þess að vera saman og gera hlutina saman. Það má með sanni segja að Tryggvi hafi verið mjög skotin í Svövu fram á síðasta dag og hann bar hana á höndum sér þar til fyrir nokkrum misserum að hún tók stjórnina í sínar hendur þegar heilsu hans tók að hraka. Það var aðdáun- arvert hversu vel Svövu fórst úr hendi að hjúkra honum á heimili þeirra uns hann var lagður inn á Landakot um miðjan mars síðastlið- inn. Með þakklæti og virðingu kveð ég tengdaföður minn. Guð blessi minn- ingu hans. Auður Traustadóttir. Elsku afi. Þegar fram líða stundir munu ljúfar og fallegar minningar koma í stað sársaukans sem við finn- um nú fyrir. Við getum huggað okkur við það hve minningarnar um þig eru ynd- islegar. Við barnabörnin, börn Ása, erum á aldrinum 11–29 ára og eigum því misjafnar og mismiklar minning- ar um afa en allar eru þær ljúfar. Afi var þekktur fyrir sína miklu gjafmildi og oftar en einu sinni læddi hann að manni gjöf og sagði okkur að vera ekki að segja neinum frá. Það var vegna þess að hann vildi ekki bera góðmennsku sína á torg. Oft talaði afi um hvað hann væri ríkur, en þá var hann ekki að tala um veraldlegu gæðin, heldur hvað hann væri ríkur af góðu fólki í kring- um sig og alloft sagði hann: „Barna- lán er betra en fé.“ Þetta lýsir hon- um mjög vel því honum leið best með sínum nánustu og í góðra vina hópi. Afi hafði mikinn áhuga á öllu sem við systkinin tókum okkur fyrir hendur og fylgdist vel með okkur. Hann hafði mikla trú á þeim verk- efnum sem við tókum að okkur og stóð með okkur í þeim ákvörðunum sem við tókum hverju sinni. Hann lagði mikla áherslu á að okkur liði vel þegar við vorum í heimsókn hjá honum og ömmu, og eigum við öll góðar og skemmtilegar minningar frá Efstalundinum og síðar Arn- arsmáranum, sem við munum geyma í huga okkar um ókomna framtíð. Í þessu sambandi dettur okkur í hug tilvitnun í Spámanninn sem hljóðar svo: „Hann mælir okkur lofsamlega, hann sér ekkert nema gott í okkur, ég færi það aðeins í orð, sem þið vitið í hjörtum ykkar.“ Það eru til mjög margar góðar og skemmtilegar sögur af honum afa og tengjast margar þeirra knattspyrnu. Hann var mikill keppnismaður og þoldi illa að horfa á sitt lið í sjón- varpi eða á velli ef hann sá að það stefndi í óefni. Oft hringdi hann heim uppá Ljósaberg og spurði hvernig staðan væri í leiknum, því hann hafði verið að horfa á og hætt. Hann hafði ekki taugar í það. Þá vildi hann vita stöðuna og ætlaði að horfa á seinni hálfleik ef staðan væri betri. Afi var alltaf hrókur alls fagnaðar þegar hann var í fjölskylduboðum og öðrum boðum, alltaf fremstur í flokki í söng og gleði, oft stóð hann upp, söng einn og hafði mikla ánægju af. Sömuleiðis fólkið í kring- um hann. Elsku afi, núna ertu kominn á friðsamlegan stað, þar sem við vit- um að það verður tekið vel á móti þér, þegar tekið er mið af því sem þú hefur gefið af þér á ævi þinni. Afi, við komum til með að sakna sam- verustundanna með þér en við get- um huggað okkur við það hve minn- ingarnar um þig eru yndislegar. Elsku amma, guð styrki þig. Tryggvi, Elín Ósk, Trausti, Svava Dís og Bjarni. Elsku langafi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Afi, núna ert þú orðinn engill. Þín langafabörn, Agatha Alexandersdóttir, Guðmundur Andri Tryggvason, Tandri Snær Traustason. Sumir einstaklingar setja þann svip á umhverfi sitt að eftir er tekið, ekki einungis af góðum verkum heldur einnig sökum persónuein- kenna sinna, lífskrafts, glaðværðar og góðvildar. Slíkur maður var Tryggvi Guðmundsson föðurbróðir okkar sem kvaddi þennan heim í byrjun sumars. Á árstíma sem féll vel að skapgerð hans og einkennist af gróanda, birtu og yl. Langar okk- ur systkinin að kveðja kæran frænda með nokkrum orðum. Tryggvi var glæsimenni, hávaxinn og bjartur yfirlitum sem átti auðvelt með að laða fólk að sér og hrífa með lífsgleði sinni. Þegar horft er til baka rifjast upp ljúfar minningar um farsælan mann sem ávallt var reiðubúinn að veita aðstoð og gefa góð ráð þegar eitthvað bjátaði á. Það var gaman að vera í návist Tryggva. Lundin létt, bjartsýni ríkjandi og jafnan horft til þess góða í fari sam- ferðafólks. Þá var hann ætíð þakk- látur fyrir það sem lífið hafði gefið honum. Lífsförunautur Tryggva var Svava Alexandersdóttir og var sam- band þeirra svo náið og gott að nöfn þeirra eru jafnan nefnd í sömu andrá. Tryggvi var góður faðir og eiginmaður sem unni börnum sínum heitt og veitti þeim alla þá um- hyggju sem hann megnaði og þau búa nú að. Að leiðarlokum viljum við systk- inin þakka góða samfylgd og óska Tryggva blessunar á nýjum vegum. Ástvinum öllum sendum við hug- heilar samúðarkveðjur. Kristín, Áslaug og Guðmundur. TRYGGVI GUÐMUNDSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.