Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ JÓNATAN Þór Magn- ússon fyrirliði KA í handknattleik skrifaði í gær undir nýjan eins árs samning við bikarmeist- arana og þar með er ljóst að Jónatan gengur ekki til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Lugi. Til stóð að hann gerði samning við Lugi en Jónatan var við æfing- ar hjá liðinu fyrir skömmu og lék einn æfingaleik með því. Þetta eru ánægjuleg tíðindi fyrir KA-menn því liðið þarf að sjá á eftir þremur bestu leikmönnum sínum til Þýskalands í sumar. Línumaðurinn Andrius Stelmokas fer til Göpp- ingen, Arnór Atlason til Magdeburg og Einar Logi Friðjónsson í raðir Friesenheim. Þá eru KA-menn í viðræðum við Halldór Jóhann Sigfússon um að leika með liðinu á nýjan leik en Halldór hefur sagt skilið við Friesenheim í Þýska- landi sem hann hefur leikið með undanfarin ár. KA er ekki eina liðið sem er á höttunum eftir Halldóri því danskt úrvalsdeildarlið hefur spurst fyrir um hann samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Jónatan Magnússon áfram með KA Jónatan Magnús- son, fyrirliði KA. ÞORVALDUR Örlygsson, þjálfari KA, var ekki ánægður með leik sinna manna þrátt fyrir batamerki í leik liðsins í seinni hálfleik. „Leik- urinn í dag var lélegur. Það er ekki hægt að neita því. Við náðum hins vegar stigi þrátt fyrir það og hefð- um í raun átt að taka þau öll. Grind- víkingar áttu ekki mörg skot að marki þegar við fórum að sækja í seinni hálfleik en við sköpuðum okkur ekki nógu mörg færi,“ sagði Þorvaldur. „Við byrjuðum með aðra uppstill- ingu og þreifuðum okkur áfram í leiknum. Það var slæmt að missa Pálma út af eftir slæma tæklingu. Mér fannst við vera daprir í fyrri hálfleik en lögðum okkur fram og náðum í eitt stig og nú er bara að halda áfram,“ sagði Þorvaldur. Hrikalega óánægður Gömlu félagarnir úr Þór, Jóhann Þórhallsson og Óðinn Árnason, háðu harða baráttu í leiknum sem endaði með því að Óðni var vikið af leikvelli eftir að hafa fengið að líta tvö gul spjöld. „Ég er hrikalega óánægður með bæði spjöldin. Dóm- arinn hefði alveg getað sleppt þeim. Annars er alltaf gaman að kljást við Jóa. Þetta er í fyrsta sinn sem ég spila á móti honum og það er leið- inlegt að þetta skyldi enda svona. Ég á harma að hefna,“ sagði Óðinn. „Annars er gaman að koma á Ak- ureyrarvöll. Hérna á maður heima. Hins vegar hefðum við átt að vinna. Við vorum mun sterkari í fyrri hálf- leik og undir lokin fengum við dauðafærri þrátt fyrir að vera manni færri. Það er rýrt að fá bara eitt stig,“ sagði Óðinn sem fylgdist með lokakaflanum úr vallarhúsinu. Uppskrift að skemmtilegu móti Eggert Magnússon, formaður KSÍ, var meðal áhorfenda á leikn- um. „Mér fannst Grindvíkingar mun sterkari í fyrri hálfleik og þeir hefðu getað verið 2-3 mörkum yfir. Það var hins vegar öllu meiri bar- átta í KA í seinni hálfleik og hún skilaði þessu jöfnunarmarki, ég tel að úrslitin sanngjörn,“ sagði Egg- ert. Bæði lið voru jafn ósátt við jafntefli á Akureyrarvelli KA 1:1 Grindavík Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla, 5. umferð Akureyrarvöllur Mánudaginn 7. júní 2004 Aðstæður: Kjöraðstæður; skýjað og þurrt, logn og 11 stiga hiti. Völlurinn góður. Áhorfendur: 540 Dómari: Magnús Þórisson, Keflavík, 3 Aðstoðardómarar: Rúnar Steingrímsson, Guðmundur H. Jónsson Skot á mark: 8(6) - 8(4) Hornspyrnur: 2 - 4 Rangstöður: 4 - 0 Leikskipulag: 3-5-2 Sándor Matus M Steinn V. Gunnarsson Atli Sveinn Þórarinsson MM Ronni Hartvig M Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson Dean Martin M Kristján Elí Örnólfsson (Sigurður Skúli Eyjólfsson 46.) Pálmi Rafn Pálmason (Steingrímur Örn Eiðsson 7.) Örn Kató Hauksson Jóhann Þórhallsson Elmar Dan Sigþórsson M Albert Sævarsson M Orri Freyr Hjaltalín (Eyþór Atli Einarsson 25.) Gestur Gylfason (Óskar Örn Hauksson 71.) Óðinn Árnason M Guðmundur A. Bjarnason Óli Stefán Flóventsson M Eysteinn Húni Hauksson Paul McShane Ray Anthony Jónsson M Sinisa Valdimar Kekic M Grétar Ó. Hjartarson 0:1 (6.) Há sending kom að vítateig KA-manna. Þar stökk Sinisa Kekic hæst og skallaði knöttinn fyrir fætur Grétars Ólafs Hjartarsonar, sem sendi boltann viðstöðulaust með nákvæmu skoti í bláhornið. 1:1 (62.) KA fékk aukaspyrnu hægra megin fyrir utan vítateig. Sigurður Skúli Eyjólfsson renndi boltanum inn í teig og síðan barst hann til Atla Sveins Þórarinssonar, sem þrumaði honum í markið úr miðjum vítat- eignum. Gul spjöld: Jóhann Þórhallsson, KA (26.), fyrir brot.  Guðmundur A. Bjarnason, Grinda- vík (36.), fyrir brot.  Ray Anthony Jónsson, Grindavík (39.), fyrir brot.  Paul McShane, Grindavík (51.), fyrir mótmæli  Óðinn Árnason, Grindavík (61.), fyrir brot.  Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson, KA (78.), fyrir brot. Rauð spjöld: Óðinn Árnason, Grindavík (79.) FÓLK  HREFNA Huld Jóhannesdóttir lék allan tímann á miðjunni hjá Med- kila sem tapaði fyrir Trondheim Ørn, 3:1, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld. Medkila er án stiga eftir fjórar umferðir með markatöluna 19:2.  BRASILÍA og Chile skildu jöfn, 1:1, í S-Ameríkuriðli undankeppni HM í knattspyrnu í Chile í fyrrinótt. Luis Fabiano, sem lék í stað Ronald- inhos, kom heimsmeisturunum yfir á 16. mínútu en Reinaldo Navia jafn- aði fyrir heimamenn úr vítaspyrnu sem Chilemenn fengu á silfurfati frá argentínska dómaranum.  BRASILÍUMENN eru með for- ystu í riðlinum en þeir hafa 13 stig eftir sjö leiki, Argentína, sem varð að láta sér lynda markalaust jafntefli við Paragvæ, hefur 12 stig og Chile 11.  HOLLENSKI knattspyrnumaður- inn Philip Cocu sem leikið hefur með liðið Barcelona undanfarin sex ár gekk í gær til liðs við PSV Eindhov- en. Cocu, sem er 33 ára gamall miðjumaður, er ekki ókunnugur her- búðum PSV því hann lék með liðinu í þrjú ár áður en hann gekk í raðir Börsunga.  VICENTE de Bosque, fyrrum þjálfari Real Madrid, var í gær ráð- inn þjálfari tyrkneska liðsins Besikt- as til tveggja ára. Bosque hefur verið án atvinnu síðan hann var rekinn frá Real Madrid síðastliðið sumar en undir hans stjórn vann liðið í tvígang Meistaradeild Evrópu og varð spænskur meistari tvisvar sinnum. Gestirnir komu gríðarlegaákveðnir til leiks og léku ágæta knattspyrnu og KA-menn voru varla vaknaðir þegar þeir lentu undir eftir lið- lega fimm mínútna leik. Mark Grindvík- inga var nánast ljós- rit af fyrsta marki þeirra gegn Fram á dögunum, nema hvað Grétar Hjart- arson lagði boltann með nákvæmu skoti í bláhornið í þetta sinn, í stað þess að þruma honum upp í sam- skeytin. Og ekki vænkaðist hagur heimamanna þegar driffjöður þeirra á miðjunni, Pálmi Rafn Pálmason, þurfti að fara meiddur af leikvelli mínútu eftir markið. Áfram hélt Grindavík að sækja og herða tökin á leiknum. Liðinu gekk mun betur en KA að halda knettinum innan liðsins, láta boltann ganga sam- herja á milli og byggja upp sóknir. Á þeim bæ var miðjan í molum, hélt engum boltum og spyrnur allar tilvilj- anakenndar. Framlínumenn höfðu ekki úr neinu að moða en langbesti hluti liðsins, aftasta línan, skilaði sinni vinnu með sóma og bjargaði því sem bjargað varð. Þrátt fyrir yfirburði úti á vellinum tókst Grindavík ekki að skapa sér nein afgerandi færi. KA gerði breytingar á liði sínu eftir hlé, bæði taktískar og hugarfarslegar. Enda átti liðið í fullu tré við gestina framan af seinni hálfleik og eftir lið- lega stundarfjórðung kom jöfnunar- markið. Miðvörðurinn Atli Sveinn Þórarinsson skoraði þar þriðja mark sitt í sumar. Grindvíkingar virtust slegnir út af laginu við þetta og það sem eftir lifði leiks voru heimamenn mun betri að- ilinn. Baráttan var komin í lag, Atli var færður á miðjuna og náði að binda hana vel saman. Núna voru það KA- menn sem unnu alla bolta, náðu ágæt- is samspili og pressuðu Grindvíkinga stíft. Framherjarnir fengu þar með úr meiru að moða og það skilaði sér í því að Óðinn Árnason Grindvíkingur fékk reisupassann á 79. mínútu, eftir að hafa tvívegis fengið gult spjald í við- leitni sinni við að stöðva sinn gamla félaga úr Þór, Jóhann Þórhallsson. En Grindvíkingar þéttu vörnina, Sin- isa Kekic var færður í öftustu vörn og KA náði ekki að nýta sér liðsmuninn. Sem oftast áður var miðvarðaparið og markvörðurinn sterkasti hluti KA- liðsins. Og Atli Sveinn sýndi hvað í hann er spunnið með því að vera líka eins og kóngur á miðjunni, eftir að hann var færður þangað. Að öðru leyti er miðjan aðaláhyggjuefni KA því þar er ekkert spil eða uppbygging í gangi. Sinisa Kekic var besti maður Grindvíkinga, bæði í sókn og vörn, og Óðinn var sömuleiðis traustur meðan hans naut við. Aðrir áttu góða spretti í fyrri hálfleik en voru síðri eftir hlé. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Magnús Þórisson dómari sýnir Óðni Árnasyni, leikmanni Grindavíkurliðsins, rauða spjaldið – eftir annað gula spjaldið, í bæði skiptin eftir brot á fyrrverandi samherja sínum úr Þór, Jóhanni Þórhallssyni. Grétar Hjartarson (11) og Atli Sveinn Þórarinsson fylgjast með. Sanngjarnt jafntefli GRINDVÍKINGAR gerðu sitt þriðja jafntefli í fimm leikjum þegar þeir sóttu KA heim í gærkvöld. Þetta var hins vegar fyrsta jafntefli heima- manna en þeir hefðu þurft á sigri að halda til að komast úr fallsæti. Miðað við gang leiksins geta bæði lið þó vel við unað; Grindvíkingar voru sterkari í fyrri hálfleik en KA-menn frískari eftir hlé. Valur Sæmundsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.