Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 50

Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ELLAE Í ÁLÖGUM Sýnd kl. 6. Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.  Ó.H.T Rás2  SV MBL  SKONROKK Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.Sýnd kl. 8 og 10. Hvað gerist þegar tveir andstæðingar gifta sig fyrir slysni? Það verður allt vitlaust!Skemmtilegasta og rómantískasta grínmynd ársins. PIERCE BROSNAN JULIANNE MOORE Frá leikstjóra Johnny English 25.000 manns á 12 dögum!!! HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00 ELLA Í ÁLÖGUM Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 8 og10. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og10.15.Sýnd kl.4, 5.20,6.40, 8,9.20 og10.40 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Frá meistara spennunnar Luc Besson kemur Taxi 3. DVFrábær rómantísk gamanmynd sem kemur þér skemmtilega á óvart. kl. 5.50, 8.30 og 11.10. Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.  Ó.H.T Rás2  SV MBL  Kvikmyndir.com  SKONROKK 25.000 gestir á aðeins 12 dögum 25.000 manns á 12 dögum!!! Menntaskólinn við Hamrahlíð INNRITUN fyrir haustönn 2004 verður dagana 9. og 10. júní Hlutverk MH er að mennta nemendur til stúdentsprófs með áherslu á undirbúning fyrir nám í háskólum. Markmið MH er velgengni brautskráðra nemenda og að skólinn sé fyrirmynd um framsækna kennslu, góða stjórnsýslu og rækt við menningu og listir. Leiðarljós MH er að virða ólíkar þarfir einstaklinga og ganga út frá vilja nemenda til að axla ábyrgð. Áhersla er lögð á fjölbreytni í valhluta námsins og kappkostað er að kynna nemendum vinnubrögð sem tíðkast í háskólanámi. Námsbrautir eru félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut og alþjóðleg námsbraut (IB) til alþjóðlegs stúdentsprófs sem lýkur með International Baccalaureate Diploma. IB nám er 3 ára stúdentsprófsnám fyrir dugmikla nemendur. Námskipulag í MH er sveigjanlegt og býður m.a. upp á breidd í menntun, dýpkun á afmörkuðum sviðum og nám til viðbótar 140 einingum eftir því sem nemandi kýs. Nemendur sem stunda tónlistar- eða listdansnám eiga möguleika á að fá það metið inn á kjörsvið. Námstími er háður vilja og getu nemandans en er að lágmarki 3 ár að loknu grunnskólaprófi á öllum brautum. Umsóknarfrestur nýrra nemenda á haustönn 2004 er til 11. júní en æskilegt er að umsækjendur komi sjálfir í skólann og gangi frá umsóknunum dagana 9.-10. júní milli kl. 9 og 18. Upplýsingar um skólann og viðmiðunarreglur vegna innritunar nýrra nemenda má finna á heimasíðu skólans www.mh.is. Svör við umsóknum verða póstlögð í kringum 18. júní. Rektor líta svo á að hún hafi farið eins af stað og þær. Það er þó búist við því að þessi mynd eigi eftir að græða á því að vera sýnd að sumri til, þegar krakkar hafa meiri tíma til að fara í bíó. Viskusteinninn endaði í 318 milljónum dala í Bandaríkjunum og Leyniklefinn í 262 milljónum. Sérfræðingar segjast hafa orðið varir við að áhorfendur séu eldri á nýju myndinni en hinum fyrri, að þeir vaxi úr grasi samfara leik- urunum í myndinni. myndin Viskusteinninn tók 90,3 milljónir í nóvember 2001 og Leyni- klefinn tók 88,4 milljónir ári síðar. Þessi flotta byrjun er þar að auki samkvæmt útreikningum Reuters sú næst besta hjá mynd sem frum- sýnd er á föstudegi, á eftir Spider- Man sem tók inn 114,8 milljónir á einni helgi í maí árið 2002. Fanginn í Azkaban var reyndar frumsýnd í fleiri kvikmyndahúsum en forverarnir þannig að það má því HARRY Potter og fanginn í Azkab- an var frumsýnd um heim allan fyr- ir helgi. Á Íslandi sóttu myndina tæplega 14 þúsund manns að því er fram kemur í tilkynningu frá Sam- bíóunum, en skv. þeim tölum hefur engin mynd farið eins vel af stað á þessu ári. Í Bandaríkjunum fór myndin bet- ur af stað en fyrri myndirnar tvær. Myndin halaði inn inn 92.7 milljónir dala fyrstu sýningarhelgina. Fyrsta Þrátt fyrir innreið Potters þá heldur Shrek 2 áfram að slá metin. Eftir helgina er myndin nú komin í hvorki meira né minna en 313,6 milljónir dala, sem gerir hana að 15. mest sóttu mynd allra tíma í banda- rísku bíói. Engin mynd hefur verið eins fljót að rjúfa 300 milljóna dala múrinn, en það hefur tekið einungis 18 daga. Næsta met í augsýn er svo að slá út Leitina að Nemó sem tekjuhæsta teiknimynd sögunnar, en það stendur í 339 milljónum dala. Harry Potter alls staðar á toppnum Stærsta frumsýning ársins Potter er vinsæll og veit af því. skarpi@mbl.is                                                                                              !  "               #$% &'$( )$ %$' *$' $# $) $& +$( ($) #$% &+&$% +)$) ,$ ++#$+ ')$+ ++$+ ++,$* '*$, %$ EYJÓLFUR Kristjánsson, eða Eyfi, mun í kvöld hefja umfangs- mikla gandreið um landið en um er að ræða sautján tónleika. Þeir fyrstu eru í kvöld á Grenivík en þeir síðustu í Reykjavík hinn 9. júlí. „Ég tek þetta í mikilli striklotu, það er alveg rétt,“ segir Eyfi í sam- tali við blaðamann. Ferðalagið er kallað „Stjörnutúr“, í höfuðið á plötu Eyfa frá því á síðasta ári, Stjörnur. „Ég ætla að leika þrjú til fjögur lög af þeirri plötu en svo að sjálf- sögðu öll gömlu góðu lögin enda eru það lögin sem fólk vill heyra og ekki ætla ég að bregðast því.“ Ferðalagið verður alger farand- söngvaraferð, Eyfi verður einn með gítarinn og svo pappakassa með diskum í, sem hann ætlar að selja. „Ég ætla að fara í gegnum allan minn feril sem lagasmiðs. Mér finnst mikill munur á því að vera að spila eigið efni og svo efni eftir aðra. Einu sinni spilaði maður hálf- gerð böll á pöbbunum, einn með kassagítarinn að þræla sér í gegn- um Stones, Bítlana og Doobie Brot- hers. Mér fannst það hrikalega erf- itt. Nú get ég haldið uppi tveggja tíma dagskrá, þar sem efnið er ein- göngu mitt. Það er alveg yndislegt. Og fólk kemur til að hlusta, ekki til að kneyfa öl og hafa söngvarann í bakgrunni.“ Eyfi segist vera búinn að spila á næstum því hverju einasta plássi á landinu. Honum teljist til að það séu bara Grímsey og Hofsós eftir. Í kvöld mun hann loks klára Greni- vík, en þar hefur hann aldrei komið fram áður. „Ég ætla svo að enda þetta í Reykjavík, á NASA, og þá ætla ég að fá góða gesti með mér og vera með smáband á bak við mig.“ Eyfi segir frá því að lokum að hann sé búinn að upphugsa næsta verkefni, sem verður ekki lítið í sniðum. „Það mun fara í gang í september 2005. Þá ætla ég að taka upp tón- leika fyrir mynddisk með stórri sveit, strengjasveit og öllu klabbinu. Ég neita að hætta fyrr en ég er bú- inn að koma lögunum mínum í þetta form (hlær).“ Eyjólfur Kristjánsson leggur land undir fót Stjörnutúr Eyfa Morgunblaðið/Jim Smart Eyfi ætlar að renna sér í gegnum allan ferilinn á komandi ferðalagi. arnart@mbl.is  8. júní, þriðjudagur. Miðgarður, Grenivík.  9. júní, miðvikudagur. Tjarnarborg, Ólafsfirði.  10. júní, fimmtudagur. Græni Hatturinn, Akureyri.  11. júní, föstudagur. Kaffi Torg, Siglufirði.  14. júní, mánudagur. Kaffi Rót, Hveragerði.  15. júní, þriðjudagur. Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn.  22. júní, þriðjudagur. Svarthvíta hetjan mín, Egilsstaðir/Fellabær.  23. júní, miðvikudagur. Valhöll/Pizza 67, Eskifirði.  24. júní, fimmtudagur. Hótel Höfn, Höfn, Hornafirði.  25. júní, föstudagur. Systrakaffi, Kirkjubæjarklaustri.  28. júní, mánudagur. Sjávarperlan, Grindavík.  29. júní, þriðjudagur. Kaffi Duus, Keflavík.  1. júlí, fimmtudagur. Prófasturinn, Vestmannaeyjum.  6. júlí, þriðjudagur. Kaffi Krókur, Sauðárkróki.  7. júlí, miðvikudagur. Árbakkinn, Blönduósi.  8. júlí, fimmtudagur. Þinghúsbar, Hvammstanga.  9. júlí, föstudagur. NASA, Reykjavík (ásamt gestum).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.