Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 45
FÓLK
COLIN Hendry, fyrrum lands-
liðsmaður Skota í knattspyrnu, var
í gær ráðinn knattspyrnustjóri
enska 2. deildar liðsins Blackpool.
Guðjón Þórðarson, fyrrum stjóri
Stoke og Barnsley, var einn þeirra
þjálfara sem komu til greina í
starfið en stjórn Blackpool ákvað
að gefa Hendry, sem áður lék með
Blackpool, tækifæri en þetta verð-
ur frumraun hans sem knatt-
spyrnustjóri.
NENAND Perunicic handknatt-
leiksmaður hefur gert tveggja ára
samning við þýska 1. deildar liðið
Wallau Massenheim. Perunicic
hefur leikið með liði Magdeburg
undanfarin ár en hefur komið að
litlu gagni vegna þrálátra meiðsla í
öxl. Perunicic, sem á að baki 140
landsleiki fyrir Júgóslava, hittir
fyrir hjá Wallau landsliðsmanninn
Einar Örn Jónsson en Rúnar Sig-
tryggsson, sem lék með liðinu á
nýafstaðinni leiktíð, hverfur á
braut.
GASTON Gaudion tók risastökk
upp á við á nýjum styrkleikalista
Alþjóðatennissambandsins sem
gefinn var út í gær. Argentínu-
maðurinn, sem óvænt fagnaði sigri
á opna franska meistaramótinu í
fyrrakvöld eftir æsispennandi úr-
slitaleik gegn landa sínum Guill-
erme Coria, hækkaði sig um 34
sæti og er í 10. sæti á listanum.
Hjá konunum urðu þau merkilegu
tíðindi að bandaríska tennisdrottn-
inginn Serena Williams féll af topp
tíu listanum en hún er í 11. sæti og
það er í fyrsta sinn í fimm ár sem
hún er ekki á meðal tíu efstu.
DETROIT Pistons vann óvæntan
sigur í fyrsta leik úrslitarimmunnar
við LA Lakers í NBA deildinni í
fyrrinótt. Leikið var í Los Angels en
leikmenn Pistons létu það ekki á sig
fá og unnu 87:75, en það lið sem fyrr
vinnur fjóra leiki hampar titlinum.
Það virðist vera eitthvað hjá Lak-
ers sem kallar fram bestu hliðar
Chauncey Billups, leikmanns Detro-
it. Í fyrrinótt gerði hann 22 stig, hitti
úr 8 af 14 skotum sínum og öllum
vítaskotum auk þess sem hann átti
fjórar stoðsendingar og stal bolt-
anum þrívegis. Gary Payton og Der-
ek Fisher réðu ekkert við hann og
náðu sér ekki á strik í sókn heldur,
gerðu samtals fimm stig.
Það var góður leikur allra liðs-
manna Detroit sem skóp þennan
óvænta sigur og átti vörn heima-
manna í mestu vandræðum með
jafnt lið gestanna. Átta leikmenn
þeirra gerðu fimm stig eða meira en
aðeins þrír hjá Lakers.
Detroit er nú í úrslitum í fyrsta
sinn síðan 1990 og segir Larry
Brown þjálfari að liðið væri ekki
komið svona langt nema vegna þess
að Billups leikur með því. Hann
gerði 53 stig í tveimur leikjum lið-
anna í deildinni í vetur, 33 stigum
meira en nokkur samherja hans.
„Ég veit ekki hvað þetta er með La-
kers og Billups. En hvað sem það er
þá vona ég að þetta haldi svona
áfram,“ sagði félagi hans, Corliss
Williamson.
Óvæntur sigur Pistons
gegn Los Angels Lakers
„ÞETTA er svo svekkjandi að mað-
ur á bara ekki til orð,“ sagði Hösk-
uldur Eiríksson, fyrirliði Víkinga,
vonsvikinn eftir tapið í Keflavík í
gærkvöldi.
„Mér fannst við stjórna leiknum
frá byrjun til enda, nema þarna rétt
í lokin þegar við færðum mann-
skapinn fram, en þar fyrir utan réð-
um við gangi leiksins.Við sköpuðum
okkur ekki færi í fyrri hálfleik og
það hefur verið galli hjá okkur í
sumar. Vörnin hjá okkur er sterk
og ætli Keflvíkingar hafi ekki átt
ein þrjú skot á markið hjá okkur.
Svo fá þeir eitt færi og skora úr því.
Þetta er alveg ferlega svekkjandi.
Það kemur að því að þetta dettur
fyrir okkur. Við höldum áfram að
berjast eins og við erum búnir að
gera í öllum leikjum, nema þeim
fyrsta, og þá er ég viss um að stigin
fara að detta inn hjá okkur. Við er-
um búnir að vera í það minnsta jafn
sterkir og mótherjar okkar í öllum
leikjunum nema þeim fyrsta. Við
höfum altént barist meira og verið
grimmari, unnið tæklingar en það
þarf víst að skora til að vinna leiki.
Það eru mörkin sem skipta máli í
þessu,“ sagði fyrirliðinn.
Þess má geta að þetta var sjöundi
sigur Keflvíkinga í röð á Víkingum
í efstu deild í Keflavík. Það merki-
lega við hina sex leikina er að í þeim
öllum gerðu heimamenn þrjú mörk,
unnu 3:1 1984, 1985 og 1988 en 3:2
1989, 1993 og 1999.
Höldum áfram að berjast
og þá koma stigin
Keflavík 1:0 Víkingur R.
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla,
5. umferð
Keflavíkurvöllur
Mánudaginn 7. júní 2004
Aðstæður:
Fínar, gola 10 stiga hiti og
flottur völlur.
Áhorfendur: 810
Dómari:
Gylfi Þór Orrason,
Fram, 4
Aðstoðardómarar:
Einar Sigurðsson,
Ingvar Guðfinnsson
Skot á mark: 4(3) - 13(6)
Hornspyrnur: 7 - 4
Rangstöður: 1 - 2
Leikskipulag: 4-3-3
Ólafur Gottskálksson M
Guðjón Árni Antoníusson
Sreten Djurovic
Haraldur Freyr Guðmundsson
Ólafur Ívar Jónsson M
Hólmar Örn Rúnarsson
Stefán Gíslason M
Zoran Daníel Ljubicic
(Jónas Guðni Sævarsson 67.)
Scott Ramsay
(Guðmundur Steinarsson 83.)
Þórarinn Brynjar Kristjánsson
Hörður Sveinsson
(Magnús Sverrir Þorsteinsson 67.)
Martin Trancík M
Höskuldur Eiríksson M
Grétar Sigfinnur Sigurðarson M
Sölvi Geir Ottesen
Steinþór Gíslason
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson
Kári Árnason
Sigursteinn Gíslason M
(Stefán Þórðarson 80.)
Stefán Örn Arnarson
(Þorvaldur Már Guðmundsson 83.)
Daníel Hjaltason
Viktor Bjarki Arnarsson M
(Egill Atlason 74.)
1:0 (71.) Keflvíkingar fengu innkast út við hornfána vinstra megin. Sretan Djuro-
vic fékk boltann vinstra megin rétt innan vítateigs og náði góðu skoti
sem Martin Tranicik varði vel og boltinn fór út í markteiginn hægra
megin þar sem Þórarinn Kristjánsson náði honum og skoraði.
Gul spjöld: Steinþór Gíslason, Víkingur R. (61.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin
Fyrri hálfleikurinn í gær var einnsá allra daufasti sem sést hefur í
íslenskri knattspyrnu í óratíma. Til
að gera langa sögu
stutta áttu Keflvík-
ingar ekki eitt ein-
asta skot að marki en
Víkingar eitt og fór
það hátt yfir markið. Gestirnir úr
Reykjavík voru mun nær því að
skapa sér færi en heimamenn, þó svo
að það tækist ekki, en leikur þeirra
var heldur markvissari ef eitthvað
var.
Keflvíkingar mættu til leiks með
leikaðferðina 4-4-2 í stað 4-5-1 eins og
liðið hefur leikið í sumar. Þórarinn
kom inn í liðið fyrir baráttujaxlinn á
miðjunni, Jónas Guðna Sævarsson
sem var á bekknum. Hjá Víkingum
var Daníel Hjaltason kominn í liðið á
ný eftir smávægileg meiðsl.
Víkingar hófu síðari hálfleikinn af
krafti. Viktor Bjarki Arnarsson átti
ágætt skot sem Ólafur Gottskálksson
varði, en Ólafur var mikið í boltanum í
leiknum í gær og átti gjörsamlega all-
an teiginn, virkaði þó ekki mjög
öruggur fyrstu mínúturnar.
Þórarinn skoraði síðan fyrir heima-
menn á 71. mínútu og var það annað
skotið á mark Víkinga en það fyrra
var frá Sreten Djurovic sekúndubrot-
um áður. Þarna sannaðist enn og aft-
ur að það tekur ekki langan tíma að
skora mark – og það þarf ekki nema
eina sókn til þess. Þórarinn var óþarf-
lega frír eftir skot Djurovic og átti
auðvelt með að skora.
Víkingar héldu uppteknum hætti
en hvorki gekk né rak hjá þeim þegar
að markinu kom. Ólafur varði það
sem kom á markið og einu sinni var
bjargað á línu. Á lokamínútunum
gerðu Víkingar örvæntingarfulla til-
raun til að jafna og settu þá flestalla
menn sína fram. Við það fékk Magn-
ús Þorsteinsson tvö færi en tókst ekki
að nýta þau.
Það kemur að því að Víkingar
vinna leik, á því er ekki nokkur vafi.
Liðið er með sterka vörn en það vant-
ar meiri hugmyndaauðgi þegar nær
dregur marki mótherjanna. Höskuld-
ur Eiríksson og Grétar Sigurðsson
voru sterkir í vörninni, Sigursteinn
barðist mjög vel á miðjunni og Viktor
Bjarki Arnarsson átti fína spretti á
vinstri vængnum.
Keflvíkingar léku ekki vel í gær.
Ólafur Ívar Jónsson var þó duglegur í
vinstri bakverðinum og Stefán sterk-
ur á miðjunni. En það eru jú mörkin
sem skipta máli og Þórarinn sá um að
tryggja stigin þrjú.
„Ég er mjög ánægður með að fá öll
þrjú stigin því sigurinn hefði getað
lent hvorum megin sem var. En það
er nóg að skora einu sinni og halda
hreinu, það gefur þrjú stig,“ sagði
Stefán Gíslason, miðjumaður Keflvík-
inga, ánægður með stigin í gærkvöld,
en Stefán stóð fyrir sínu á miðjunni
eins og hann hefur gert í sumar.
„Við vissum að Víkingar vildu spila
svona og við duttum í að leika eins.
Við spilum best þegar við höldum
boltanum niðri og látum hann fljóta á
milli manna. Það gerðum við alls ekki
í fyrri hálfleik en náðum þessu aðeins
upp í þeim síðari.
Víkingar eru harðir, þeir berjast
vel og gefast ekki upp og við náðum
ekki því floti í leikinn sem við vildum.
Við fengum þó þetta færi og nýttum
það,“ sagði Stefán.
Keflvíkingar inn
á sigurbraut á ný
ÞAÐ er ekki spurt um sanngirni í íþróttum. Það fengu Víkingar að
reyna í Keflavík í gærkvöld þegar þeir urðu að sætta sig við enn eitt
tapið. „Sökudólgurinn“ að þessu sinni var Þórarinn Kristjánsson,
oft nefndur bjargvætturinn, og stóð hann fyllilega undir þeirri nafn-
gift í gær. Keflvíkingar voru heppnir og eru nú í öðru sæti á meðan
Víkingur situr enn í neðsta sætinu. Keflvíkingar unnu tvo fyrstu leiki
sína, gerðu síðan jafntefli og töpuðu í síðustu umferð. Nú virðast
þeir komnir á sigurbaut á nýjan leik.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar