Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
205.000 TONNA KVÓTI
Þorskkvóti næsta fiskveiðiárs
verður 205 þúsund tonn, 4 þúsund
tonnum minni en á yfirstandandi
fiskveiðiári, samkvæmt tillögum
Hafrannsóknastofnunarinnar um
leyfilegan heildarafla á næsta ári.
Skerðingin helgast fyrst og fremst
af því að þorskurinn fær minna af
loðnu en áður. Ýsustofninn braggast
hinsvegar sem aldrei fyrr og ufsa-
stofninn er á hraðri uppleið.
Þjóðaratkvæði rætt
Rætt verður um fyrirkomulag og
undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslu
vegna fjölmiðlafrumvarpsins á ríkis-
stjórnarfundi og á fundi forystu-
manna stjórnarflokkanna með for-
mönnum stjórnarandstöðuflokkanna
í dag. Þá má gera ráð fyrir að nefnd
lögfróðra manna, sem mun undirbúa
framkvæmd þjóðaratkvæða-
greiðslunnar, verði skipuð í dag.
Hóta flugfélögum
Í yfirlýsingu, sem birt var á vef-
síðu í nafni al-Qaeda í gær, er boðað
að vestræn flugfélög verði aðal-
skotmark hryðjuverkasamtakanna á
næstunni. Í yfirlýsingunni, sem er
undirrituð „al-Qaeda á Arabíuskag-
anum“, er sagt að vestræn flugfélög
verði næstu skotmörk í „heilögu
stríði“ gegn „krossförum“.
Haukur verðlaunaður
Haukur Tómasson tónskáld hlýt-
ur tónlistarverðlaun Norðurlanda-
ráðs fyrir óperuna „Fjórði söngur
Guðrúnar“. Haukur er fjórði Íslend-
ingurinn sem hlýtur verðlaunin, en
þau nema um fjórum milljónum kr.
Skattrannsókn Gaums lokið
Skattrannsóknarstjóri hefur skil-
að Fjárfestingafélaginu Gaumi
frumskýrslu vegna skattrannsóknar
á tímabilinu 1998–2003 og hefur fé-
lagið þrjár vikur til að koma and-
mælum sínum á framfæri.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 12 Umræðan 26/27
Erlent 14/16 Minningar 32/37
Höfuðborgin 18 Bréf 40
Akureyri 18/20 Dagbók 42/43
Suðurnes 20 Kvikmyndir 48
Landið 22 Fólk 48/53
Neytendur 23 Bíó 50/53
Listir 24 Ljósvakar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Morgunblaðinu í dag fylgir „Sumar-
blaðið”.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FJÖLÞJÓÐLEG æfing sprengju-
eyðingarsveita undir heitinu „Nort-
hern Challenge“ verður haldin hér-
lendis frá 30. ágúst til 3. september.
Þetta er í þriðja skipti sem slík æfing
er haldin en Landhelgisgæslan hefur
undanfarin tvö ár skipulagt æfingarn-
ar.
Samkvæmt upplýsingum frá Land-
helgisgæslunni mun æfingin að þessu
sinni snúast um viðbrögð við hryðju-
verkasprengingum og skemmdar-
verkum. Þegar hafa sjö sveitir
sprengjusérfræðinga frá Atlantshafs-
bandalaginu tilkynnt þátttöku og hafa
meðferðis nýjustu tæki til sprengju-
eyðingar, þ.á m. eina nýjustu gerð
vélmenna sem notuð eru í þessum til-
gangi.
Æfingin verður haldin í samstarfi
við utanríkisráðuneytið og Varnarlið-
ið á Keflavíkurflugvelli. Sérstök
áhersla verður lögð á það verkefni að
tryggja hafnarsvæði gegn hugsan-
legri vá sem stafar af sprengjum og
hryðjuverkum. Yfirmennn sprengju-
deilda danska og norska sjóhersins
munu sjá um þann þátt æfingarinnar.
Viðbrögð æfð
við sprengingum
hryðjuverkamanna
Í HAUST verður efnt til íslenskrar
menningarkynningar í París og víð-
ar í Frakklandi. Þetta mun vera um-
fangsmesta menningarkynning sem
Íslendingar hafa staðið fyrir erlend-
is.
Kynningin verður tvíþætt. Annars
vegar verður vísindakynning þar
sem árangri Íslendinga á sviði eld-
fjallafræði, haffræði, jarðhitafræði,
erfðafræði, orku- og vetnisfram-
leiðslu verður lýst. Hins vegar verð-
ur efnt til margs konar viðburða á
listasviðinu; í myndlist, tónlist, bók-
menntum, leiklist og kvikmyndum.
Gert er ráð fyrir að á annað hundrað
íslenskra listamanna komi fram og
að vísindakynningin verði sú vegleg-
asta sem Íslendingar hafa efnt til.
Áætlaður kostnaður
um 80 milljónir
Að sögn Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra hefur undirbúningur kynning-
arinnar staðið lengi. „Þessi ákvörð-
un var í raun innsigluð á fundi
menningarmálaráðherra landanna
árið 2001 en endanlega var það for-
sætisráðherra, Davíð Oddsson, og
forseti Frakklands, Jacques Chirac,
sem ákváðu að efna til þessarar
stórbrotnu og metnaðarfullu menn-
ingarkynningar á fundi sínum í
Frakklandi í apríl 2001,“ segir Þor-
gerður Katrín.
Ýmsir aðilar koma að undirbún-
ingi kynningarinnar en áætlað er að
kostnaður hér á landi verði í kring-
um 80 milljónir og þar af eru 50
milljónir á fjárlögum. Þar að auki
koma ótal fyrirtæki, samtök og
stofnanir að undirbúningi, bæði hér
heima og í Frakklandi.
Sveinn Einarsson verkefnisstjóri
segir það mikinn heiður fyrir Íslend-
inga að fá að vera með slíka kynn-
ingu í París. „Kynningin er byggð á
samkomulagi milli þjóðanna
tveggja. Það eru frönsk fyrirtæki,
stofnanir eða félög sem taka í fóstur
þá atburði sem við bjóðum upp á,“
segir Sveinn og bætir við að þá hafi
þeir aðilar í raun valið verkefni sem
þeir telja að eigi erindi til Parísar-
búa.
Sveinn segir jafnframt að við-
burðirnir verði á góðum og virtum
stöðum í París. T.d. verður vísinda-
sýningin í vísindasafninu í París og
lokatónleikar hátíðarinnar í Moga-
dor-tónleikahöllinni. „Það var okkar
markmið að ekki liði dagur án þess
að einn viðburður prýddi þann dag
en suma daga eru jafnvel tveir eða
þrír viðburðir svo að þetta er fjöl-
breytt og umfangsmikið,“ segir
Sveinn. Sýningin hefst 27. septem-
ber og lýkur 10. október.
Efnt verður til kynningar á íslenskri menningu í Frakklandi
Umfangsmesta menn-
ingarkynningin til þessa
Morgunblaðið/Jim Smart
Sveinn Einarsson verkefnisstjóri, Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í
menntamálaráðuneytinu, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra og Sigríður Á. Snævarr sendiherra kynntu fréttamönnum
dagskrá menningarkynningarinnar í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
TIL stendur að flytja ísjaka frá
Íslandi til Parísar í tengslum við
hina viðamiklu íslensku menning-
arkynningu sem haldin verður
þar í haust.
Að sögn Sigríðar Á. Snævarr,
sendiherra í Frakklandi, líst hlut-
aðeigandi Frökkum vel á hug-
myndina. „Þetta yrði náttúrlega
ekta ísjaki en ekki eitthvað sem
hefur verið fryst í frystihúsi.
Menn á Höfn í Hornafirði eru til-
búnir í slaginn og Jöklaferðir að-
stoða okkur við undirbúninginn.
Ístak er tilbúið að taka jakann til
Reykjavíkur og Samskip til í að
flytja hann til Parísar,“ segir Sig-
ríður og bætir við að ekki sé enn
hægt að fullyrða um hvort jakinn
rati alla leið til Parísar en að
Íslendingar séu í það minnsta
tilbúnir að taka þátt í flutn-
ingnum.
Ef allt gengur að óskum verður
ísjakanum komið fyrir við vís-
indasafnið í París en þar verður
viðamikil kynning á árangri Ís-
lendinga í ýmsum vísindagrein-
um, s.s. eldfjallafræði og erfða-
fræði.
Ísjaki fluttur
héðan til
Parísar?
BANASLYS varð
á Þingvallavegi
við Skálafellsaf-
leggjara skömmu
eftir miðnætti að-
faranótt mánu-
dags, þegar öku-
maður bifhjóls
féll af hjóli sínu
og lést samstundis. Tildrög slyss-
ins eru í rannsókn lögreglunnar og
munu hafa orðið með þeim hætti
að ökumaðurinn ók aftastur í hópi
átta bifhjólamanna þegar hann féll
af hjóli sínu á annað bifhjól og
þaðan á veginn með fyrrgreindum
afleiðingum.
Hinn látni hét Guðmundur Karl
Gíslason, til heimilis á Aflagranda
27 í Reykjavík. Hann var fæddur
27. júní árið 1979 og var ókvæntur
og barnlaus.
Lést í bifhjólaslysi
á Þingvallavegi
tjaldi og boðið upp á grillaðar pylsur
og ís handa öllum. Benedikt búálfur
kom í heimsókn og búið var að setja
upp hoppukastala. Tjaldað var í fal-
legri náttúru og gestirnir nutu ýmist
fegurðarinnar í skóginum eða
skemmtu inni í tjaldinu.
EINSTÖK börn, stuðningsfélag
barna með sjaldgæfa og alvarlega
sjúkdóma, hélt sína árlegu sum-
arhátíð í Hjalladal í Heiðmörk um
nýliðna helgi. Með hátíðinni var
botninn sleginn í formlegt vetr-
arstarf félagsins. Slegið var upp
Morgunblaðið/Golli
Gaman á sumarhátíð