Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert vel gefin/n og býrð yf-
ir metnaði, sjálfsaga og fyr-
irhyggju og nærð því yf-
irleitt góðum árangri í því
sem þú tekur þér fyrir hend-
ur. Nánustu sambönd þín
verða í brennidepli á
þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að
tala við nágranna þína, systk-
ini og aðra ættingja. Þetta er
einnig góður dagur til hvers
kyns samningaviðræðna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það sem þú kaupir þér í dag
mun veita þér ánægju í lang-
an tíma.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það eru þrjár plánetur í
merkinu þínu og það dregur
athygli fólks að þér. Þú ert
einnig tilbúin/n að sýna öðr-
um athygli og hlýju í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt njóta þess að vera
ein/n með sjálfri/sjálfum þér í
fallegu umhverfi í dag. Það
hjálpar þér við að endurhlaða
batteríin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður dagur til að
njóta samvista við vini þína.
Samskipti þín við stofnanir
og hópa fólks ættu einnig að
ganga mjög vel í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver mun hugsanlega
horfa öfundaraugum á þig í
dag. Fólk tekur eftir vel-
gengni þinni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt hugsanlega fara í
gott frí eða ferðalag á næst-
unni. Þig hefur lengi langað
til að komast í burtu og þú
munt njóta þess.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fólk sýnir þér mikla velvild í
dag. Einhver gæti gefið þér
gjöf eða gert þér greiða. Það
er einnig hugsanlegt að þú
njótir góðs af velgengni maka
þíns eða náins vinar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er góður dagur til við-
ræðna við foreldra þína,
maka þinn eða mikilvæga við-
skiptavini. Það ríkir velvild
og skilningur á milli ykkar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Samstarfsfólk þitt er mjög
samvinnuþýtt í dag. Þú getur
því komið miklu í verk og
jafnvel aukið tekjur þínar í
leiðinni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú munt hugsanlega hefja
nýtt ástarsamband í dag. Að
öðrum kosti mun daður að
öllum líkindum lífga upp á
daginn hjá þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er góður dagur til að
kaupa eitthvað fallegt til
heimilisins. Þetta er líka góð-
ur dagur til að bæta sam-
skiptin innan fjölskyldunnar
enda er fólk óvenju tilbúið til
að sýna öðrum hlýhug í dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
DROTTNINGIN Í SÓLHEIMUM
Ég geymi ennþá eldinn
og æskudagsins þrótt.
Með gullinhyrndum hreinum
að heiman ek í nótt.
Með gullinhyrndum hreinum,
og hratt mig yfir ber.
Í sálu minni er söngur,
til Sólheima ég fer.
Það skiptir mestu máli
að mega koma þar.
Það var mér ungum auðna,
en önnur tvísýn var.
– – –
Stefán frá Hvítadal
LJÓÐABROT
90 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 8. júní,
er níræð Una Ólafsdóttir
Thoroddsen, hjúkr-
unarkona, Hlíf 1, Ísafirði.
95 ÁRA afmæli. Í dag,8. júní, er níutíu og
fimm ára Sigurlaug Guð-
jónsdóttir, fyrrum hús-
freyja í Fögruhlíð í Fljóts-
hlíð, nú búsett á
dvalarheimilinu Kirkju-
hvoli, Hvolsvelli. Eig-
inmaður hennar var Guð-
mundur Guðnason bóndi,
sem lést 1998. Í tilefni dags-
ins tekur Sigurlaug á móti
gestum á Kirkjuhvoli á af-
mælisdaginn, frá kl. 15–17.
VÖRNIN hefur hvítt – fær
að byrja – svo notuð sé
samlíking við skák. Þetta
forskot varnarinnar skiptir
hvað mestu máli í þremur
gröndum.
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠42
♥Á974
♦ÁG53
♣DG2
Vestur Austur
♠G853 ♠Á1096
♥85 ♥KDG106
♦864 ♦102
♣Á1085 ♣94
Suður
♠KD7
♥32
♦KD97
♣K763
Spilið er frá landsliðsæf-
ingu fyrir rúmri viku. NS
eiga 25 punkta á milli hand-
anna og fátt getur komið í
veg fyrir að þeir reyni þrjú
grönd. En sá samningur er
dauðadæmdur með hjarta
út, eins og legan er. Ef
norður verður sagnhafi
kemur auðvitað út hjarta,
en frá sjónarhóli vesturs
blasir það útspil ekki við.
Dæmi: Suður opnar á
tígli og norður svarar á einu
hjarta. Suður svarar á
grandi, norður stekkur í
þrjú. Ef austur passar mun
vestur væntanlega spila út
spaða eða laufi. En austur
gæti doblað til að biðja um
hjarta út (lit blinds), þótt
það sé vissulega ekki
hættulaust.
Allt fer þetta eftir þróun
sagna. Á einu borðinu voru
Jón Baldursson og Þorlákur
Jónsson í AV, gegn Val Sig-
urðssyni og Steinari Jóns-
syni:
Vestur Norður Austur Suður
Jón Valur Þorlákur Steinar
-- -- -- 1 tígull
Pass 2 tíglar Dobl Pass
3 spaðar Pass Pass 3 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
Valur og Steinar spila
Precision og hækkun Vals í
tvo tígla var krafa í geim.
Þorlákur doblaði til að
koma hálitunum inn í
myndina og Jón hindraði
með þremur spöðum. NS
voru dæmdir í geim eftir
tveggja tígla svar Vals og
Steinar valdi auðvitað þrjú
grönd.
Með spaða út upp á ás
vinnst það spil auðveldlega,
en Þorlákur doblaði til að
VARA við útspili í spaða.
Jón lagði því af stað með
hjartaáttuna og nú voru
sagnhafa allar bjargir bann-
aðar og hann endaði tvo
niður.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Reykholtskirkju 3. apríl
sl. af sr. Geir Waage þau María Guðfinna Davíðsdóttir og
Kári Gunndórsson.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. 0–0 b5 6. Bb3
Bb7 7. He1 Bc5 8. c3 d6 9. a4
h6 10. d4 Bb6 11. dxe5 Rxe5
12. Rxe5 dxe5 13. Df3 Dd7
14. h3 0–0–0 15. Bc2 De6 16.
Be3 g5 17. Ra3 Hdg8 18.
Bxb6 Dxb6 19. axb5
axb5 20. Rxb5 g4 21.
hxg4 Hxg4 22. Ra3
Hhg8 23. Rc4 De6
24. Re3 Hf4 25. De2
Rxe4 26. Bxe4 Hxe4
27. Ha7
Staðan kom upp á
Evrópumeistaramóti
einstaklinga sem
lauk fyrir skömmu í
Antalya í Tyrklandi.
Björn Þorfinnsson
(2.345) hafði svart
gegn Baris Esen
(2.262).
27. … Hxg2+! 28.
Rxg2 28. Kxg2 hefði rakleið-
is leitt til taps eftir
28. … Hxe3+. 28. … Hxe2
29. Hxe2 Dg4 30. Hxb7
Dxe2 31. Hb4 f5 og hvítur
gafst upp. Meistaramót
Skákskóla Íslands fer fram í
vikunni og hefst föstudaginn
11. júní. Skemmtikvöld Tafl-
félagsins fer einnig fram á
þessum tíma.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 10-14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist
mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl.
13. Bridsaðstoð á föstudögum kl. 13.
Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma
511 5405. Á morgun, miðvikudag:
„Morgunstund og fyrirbænir“ í kirkjunni
kl. 11. Stund fyrir alla sem eru heimavið
og hafa tækifæri að sækja kirkju á virk-
um degi. Allir velkomnir.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl.
10-12.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í viðtals-
tímum hans.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12
ára börn í safnaðarheimilinu Strand-
bergi, Vonarhöfn frá kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8-9 ára í
dag kl. 15.30-16.30. Dagskrá fyrir 10-
12 ára (TTT) í dag kl. 17-18. Skemmti-
legar stundir fyrir hressa krakka. Æsku-
lýðsfélagið (Megas) heldur vikulegan
fund kl. 19.30-21 í kvöld. Umsjón með
starfi þessara hópa hafa Anna Hulda
Einarsdóttir og Sigríður Rún Tryggvadótt-
ir.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13-16.30 í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og
konur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, ör-
yrkjar og atvinnulausir eru velkomnir.
Spilað, spjallað og kíkt í blöðin. Samver-
unni lýkur með helgistund kl. 16. Um-
sjónarmaður Nanna Guðrún djákni. Þor-
lákur sækir þá sem vilja og ekur þeim
heim. Sími 869-1380.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10-12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni
kl. 18.30- 19.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 09.
Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari
upplýsingar á www.kefas.is
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl.
18.10.
Safnaðarstarf
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali,
GISTIHÚS
Gistihús í fullum rekstri á svæði 105
í Reykjavík til sölu
Húsnæðið er 600 fm á annarri og þriðju hæð, fullinnréttað og að
mestu leyti ný tekið í gegn. Í húsnæðinu er 75 fm húsvarðaríbúð,
8 stúdíóíbúðir og 12 tveggja og þriggja manna herbergi, tveir
morgunverðarsalir sem geta tekið 45 manns í mat.
Öll tilskilin leyfi eru fyrir hendi.
Upplýsingar gefur aðeins Dan Wiium
í síma Kjöreignar eða 896 4013.
NÝ stjórn Landakotsskóla hefur
verið skipuð en hlutverk hennar
er að aðstoða skólastjórann, sr.
Hjalta Þorkelsson, við að stuðla
að árangursríkri stjórnun skól-
ans.
Stjórnina skipa Oddný Guð-
mundsdóttir, Oddur Björnsson og
Jóhanna Long en þau eru öll fyrr-
verandi nemendur við Landakots-
skóla. Á sama tíma tók gildi, að
boði biskups Kaþólsku kirkj-
unnar, Stofnskrá um markmið,
tilhögun og stjórnun skólans.
Landakotsskóli var stofnaður
af St. Jósefssystrum árið 1898 og
er einkarekinn skóli í eigu kaþ-
ólsku kirkjunnar.
Á myndinni eru f.v.: Jóhanna
Long, séra Hjalti Þorkelsson,
séra Ágúst George, staðgengill
biskups, Jóhannes Gijsen, Reykja-
víkurbiskup, Oddur Björnsson og
Oddný Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ný skólastjórn
við Landakotsskóla