Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞETTA HELST … VIÐSKIPTI ● Farþegum Iceland Express fjölg- aði um 106% í maí frá sama mánuði í fyrra. Í maí var markaðshlutdeild fé- lagsins 24% af farþegaflutningum til og frá landinu um Keflavíkurflugvöll, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Í apríl síðastliðnum fjölgaði farþeg- um Iceland Express jafnframt um meira en helming frá árinu áður. Sætaframboð félagsins jókst um helming þann 1. apríl þegar önnur Boeing 737-þota var tekin í notkun og byrjað að fljúga tvisvar á dag til London og Kaupmannahafnar. Meira en helmings fjölgun hjá Iceland Express ● KB BANKI hefur stofnað sérhæft eignastýringarfyrirtæki í Lundúnum, New Bond Street Asset Manage- ment, NBS, í sam- vinnu við hóp sér- fræðinga. Samkvæmt tilkynn- ingu frá KB banka til Kauphallar Íslands mun NBS í fyrstu vinna að því að byggja upp sérhæft skuldbréfa- og lánasafn fyrir KB banka, en auk þess stefni félagið að því að stýra sér- hæfðum sjóðum fyrir þriðja aðila. NBS mun eiga viðskipti með skulda- bréf og skuldabréfaafleiður með hátt lánshæfismat, auk veðlána. Stefnt er að því að NBS verði með tvo millj- arða evra, um 175 milljarða króna, í stýringu innan tveggja ára. Framkvæmdastjóri NBS verður Zoe Shaw, sem frá 1995 til 2003 var framkvæmdastjóri skulda- fjármögnunardeildar bankans Bankgesellschaft Berlin, BGB, og annar framkvæmdastjóra Lundú- naútibús bankans. Hún hefur einnig ritað bækur um skuldabréf og verð- bréfun (e. securitization). Fyrrum yf- irmaður Norðurlandadeildar BGB, Jorgen Mandal, verður yfirmaður eignastýringar NBS. KB banki stofnar eignastýringarfyr- irtæki í Lundúnum ● FLUGFÉLÖG í heiminum hafa sam- þykkt að stefna að því að lækka rekstrarkostnað þeirra, m.a. með því að hætta útgáfu flugmiða á pappír eigi síðar en árið 2007. Þá vilja þau einnig gera ýmsar aðrar breytingar sem gera innritun flugfarþega einfald- ari og þar með ódýrari. Þetta var sam- þykkt á fundi Alþjóðasambands flug- félaga, IATA, í Singapore, sem um 700 stjórnendur flugfélaga sóttu. Segir í frétt Reuters-fréttastofunnar að markmið flugfélaganna sé að lækka rekstrarkostnað þeirra á heimsvísu samtals um þrjá milljaðra dollara á ári, sem svarar til liðlega 210 milljarða íslenskra króna. Ætl- unin sé að ná þessu fram til að vega upp á móti háum eldsneytiskostnaði og vegna aukinnar samkeppni. Hefur Reuters eftir Giovanni Bisign- ani, forstjóra IATA, að í fyrra hafi flug- félögin í heiminum þurft að takast á við áhrif lungnabólgufaraldurs, stríðs- ins í Írak, hryðjuverka og erfiðs efna- hagsástands. Nú hafi hækkun á elds- neytisverði bæst við. Segir Bisignani að flugfélögin í heiminum hafi tapað samtals um 30 milljörðum dala eftir hryðjuverkin 11. september 2001. Samanlagður fjöldi flugfarþega á fyrsta fjórðungi þessa árs hafi hins vegar verið um 6,5% meiri en á sama tímabili á árinu 2001 og því hafi verið áætlað að flugfélögin myndu skila samtals um þriggja millj- arða dala hagnaði á þessu ári. Elds- neytishækkanir muni hins vegar koma í veg fyrir að svo verði. Flugfélög vilja lækka kostnað GENGIÐ hefur verið frá kaupum nýstofnaðs félags, Eignarhalds- félags Lyfju ehf., á öllu hlutafé í lyfjaverslanakeðjunni Lyfju hf. Samningur þess efnis var undirrit- aður síðastliðinn föstudag, 4. júní. Eignarhaldsfélagið Lyfja ehf. er dótturfélag Árkaupa ehf. Hluthafar í Árkaupum eru Kaupfélag Suður- nesja (33,3%), Vátryggingafélag Ís- lands hf. (33,3%), Íslandsbanki hf. (20%), Eignarhaldsfélagið Sam- vinnutryggingar (10%) og Kaup- félag Skagfirðinga (3,3%). Fram kemur í tilkynningu frá VÍS að eig- ið fé Árkaupa sé 1.500 milljónir króna. Greint var frá því í síðasta mán- uði að VÍS hefði keypt 100% hluta- fjár í Lyfju fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags síns og annarra fjár- festa. Seljandi var Hagar hf. Álitlegur fjárfestingarkostur Kaupfélag Suðurnesja er stærsti hluthafinn í Samkaupum hf., sem samanstendur m.a. af verslanakeðj- unni Samkaup og Nettó, og fer Guðjón Stefánsson, framkvæmda- stjóri Samkaupa, með rekstur Kaupfélags Suðurnesja. Hann segir að Kaupfélagið hafi að undanförnu fyrst og fremst verið í fasteign- arekstri auk þess að eiga stóran hlut í Samkaupum. „Það er stefna Kaupfélagsins að vera áfram í verslunarrekstri og þess vegna var það talinn álitlegur kostur að taka þátt í rekstri Lyfju,“ segir Guðjón. „Segja má að félagið sé með þessum kaupum að árétta að það vilji vera í fjölþættum versl- unarrekstri.“ Hann segir að af hálfu Kaup- félags Suðurnesja séu ekki fyrir- hugaðar breytingar á rekstri Lyfju. Kaupfélag Suðurnesja annar af stærstu hluthöfum í Lyfju Viljum vera í fjölþættum verslunarrekstri, segir framkvæmdastjóri Samkaupa           ! "# $           " %  " %  " % FYRIRTÆKIN Mentor og Marorka fengu viðurkenningar fyrir bestu markaðsáætlanirnar í verkefni Út- flutningsráðs Íslands „Útflutnings- aukning og hagvöxtur“ á föstudag. Mentor er hugbúnaðar- og ráðgjaf- arfyrirtæki á sviði kennslu og Mar- orka er hugbúnaðar- og ráðgjaf- arfyrirtæki á sviði sjávarútvegs. Í fréttatilkynningu frá Útflutn- ingsráði segir að undanfarið miss- eri hafi níu íslensk fyrirtæki tekið þátt í verkefninu en um er að ræða þróunarverkefni fyrir lítil og með- alstór fyrirtæki sem hafa áhuga á að hefja útflutning eða festa í sessi útflutning sem þegar er hafinn. 130 fyrirtæki hafa tekið þátt í verkefninu frá upphafi og hafa flest þeirra náð um 20% veltuaukn- ingu ári eftir þátttöku í verkefninu og um 25% aukningu í útflutningi. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa tekið þátt í verkefninu eru: Össur, Bakkavör, Bláa lónið og Límtré. Mentor og Marorka verðlaunuð Morgunblaðið/Golli Verðlaunum hampað Freyja Björk Gunnarsdóttir og Vilborg Einarsdóttir frá Mentor og Kristinn Aspelund frá Marorku. Í SÍÐASTA tölublaði fasteigna- blaðs breska blaðsins The Times er hús í Grjótaþorpinu í Reykjavík auglýst til sölu auk húsa á ýmsum sumarleyfisstöðum sem Bretar heimsækja, svo sem á Spáni, Flór- ída í Bandaríkjunum og víðar. Tek- ið er fram í auglýsingunni að Ice- land Express fljúgi frá Stansted-flugvelli í Englandi til Ís- lands. Ólafur Hauksson, forstöðumaður almannatengsla hjá Iceland Ex- press, segir að þetta sé ekki auglýs- ing sem fyrirtækið hafi komið á framfæri við Times. Reyndar sé ekki um hefðbundna auglýsingu að ræða, því hún sé unnin af hálfu Times út frá kynningum sem blaðinu hafi borist. Brett Gregory-Peake, hjá al- mannatengslafyrirtækinu Frank & Earnest Communications í Lund- únum, sem annast almannatengsl fyrir Iceland Express í Bretlandi, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði haft samband við Times og bent á þá möguleika sem hefðu skapast með ódýru flugi milli Ís- lands og Bretlands. Kaup Breta á fasteignum erlendis hefðu aukist mikið á undanförnum árum og blaðamenn fasteignablaðs Times hefðu einfaldlega kveikt á þeim möguleikum sem Ísland byði nú upp á í þessum efnum, með tilkomu ódýrara flugs en áður. Ísland auglýst Fjárfestingarkostir víða um heim í auglýsingunni í fasteignablaði Times. Bretum bent á fjárfestingarmögu- leika á Íslandi ALVARLEGT þunglyndi og önnur andleg veikindi valda sífellt meiri fjarvistum starfsmanna frá vinnu, og er mikilvægt að yfirmenn læri að þekkja fyrstu einkenni alvar- legrar depurðar og hvernig best sé að takast á við þunglyndi starfs- manna. Kom þetta m.a. fram á morgunverðarfundi um veikinda- fjarvistir sem haldinn var á Radis- on SAS, Hótel Sögu í síðustu viku. Åke Nygren og Marie Åsberg, prófessorar við Karolinska institu- tet í Stokkhólmi, voru meðal frum- mælenda og ræddu þau annars vegar um þátt alvarlegs þunglynd- is, ofþreytu og annarra andlegra sjúkdóma í mikilli fjölgun langra veikindaleyfa meðal sænsks launa- fólks og hins vegar til hvaða bragða megi grípa til að fækka veikindadögum af þeirra sökum. Er svo komið að kostnaður ríkisins og einkarekinna fyrirtækja af veikindaleyfum er orðinn meiri en rekstrarkostnaður alls sænska heilbrigðiskerfisins og eru andleg- ir sjúkdómar sá veikindaflokkur sem mest aukning hefur orðið í. Grípa skjótt inn í Hafa þau Nygren og Åsberg, ásamt samstarfsmönnum, unnið viðamiklar rannsóknir til að kom- ast að því hvað valdi þessari miklu aukningu. Samkvæmt viðtölum við þung- lynda starfsmenn eru það helst sex atriði sem hafa áhrif á andlega líð- an og heilsu starfsfólks á vinnu- stað. Vinnuálag, svigrúm til sjálf- stæðrar ákvarðanatöku, hlutfall vinnu og umbunar, samband við samstarfsmenn, sanngirni yfir- manna og hvort starfsmanni finn- ist hann vera að gera eitthvað sem skipti máli. Leggja þau Nygren og Åsberg áherslu á að því betur sem búið sé að starfsmönnum, og því betur sem þeim líði á vinnustað, þeim mun færri vinnudagar tapist vegna veikinda og því sé það fyr- irtækjum í hag að reyna að komast fyrir þennan vanda. Þau benda einnig á að hættuleg- ast sé ef þunglyndi eða ofþreyta þjaka sama starfsmanninn í lengri tíma áður en hann brotnar niður og tekur sér leyfi. Því sé mik- ilvægt að yfirmenn fylgist með starfsfólki og reyni að taka eftir fyrstu merkjum um depurð eða mikla þreytu. Sé gripið skjótt og vel inn í megi jafnvel koma í veg fyrir að einn einasti vinnudagur tapist. Fyrstu einkennin eru m.a. svefnleysi, pirringur, líkamlegir verkir – sérstaklega í hálsi og baki – og jafnvel minnisleysi. Takist að greina sjúkdóminn á fyrstu stigum leggja þau t.d. til að starfsmönn- um sé boðið upp á einka- eða hóp- viðtöl við sálfræðing og þeim kenndar aðferðir við slökun, s.s. jóga. Dýrari en heilbrigðiskerfið allt Andleg veikindi valda auknum fjarvistum frá vinnu, en hægt er að bregðast við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.