Morgunblaðið - 08.06.2004, Side 20
AKUREYRI
20 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
FJÓRIR frumkvöðlar hafa verið út-
skrifaðir úr Frumkvöðlaskóla
Impru nýsköpunarmiðstöðvar, en
skólinn tók til starfa í október í
fyrra og eru þetta fyrstu frum-
kvöðlarnir sem útskrifast nú. Nám-
ið mun hefjast að nýju næsta haust.
Þrír af frumkvöðlunum hafa fengið
aðstöðu á Frumkvöðlasetri Norður-
lands þar semþeir munu vinna
áfram að framkvæmd viðskipta-
hugmynda sinna.
Markmið Frumkvöðlaskólans er
að brúa bilið milli hugmyndar og
fyrirtækis með því að undirbúa
nemendur undir það að takast á við
frumkvöðlastarf og rekstur fyr-
irtækis. Námið byggist á vinnustof-
um, uppbyggingu fyrirtækjalíkana,
fyrirlestrum, þjálfun, einka-
viðtölum og verkefnum sem tengj-
ast þeirri hugmynd sem hver ein-
staklingur vinnur að hverju sinni.
Skólinn stendur yfir í 28 vikur og er
m.a. farið yfir frumkvöðlafræði,
hugverkavernd, þróunarferlið,
verkefnisstjórnun, markaðsmál,
fjármál og stjórnun.
Jón Þorvarðarson fékk við-
urkenningu fyrir bestu viðskipta-
hugmyndina, Ice Cage sem er ný
lausn í fiskeldi.
Ellefu Brautargengiskonur
Við sama tækifæri voru einnig
brautskráðar ellefu konur sem tóku
þátt í námskeiðinu Brautargengi,
en það var nú haldið í annað sinn nú
í vetur. Á því eru kennd grundvall-
aratriði í fyrirtækjarekstri. Árang-
urinn þykir góður, en gert er ráð
fyrir að fyrstu nýju viðskipta-
hugmyndirnar komi til fram-
kvæmda nú í júní, tvö fyrirtæki
hafa fjölgað starfsmönnum og fjór-
um konum verið veittur styrkur úr
Kvennasjóði til að vinna að sinni
viðskiptahugmynd. Verkefnin sem
unnið var að voru fjölbreytt, ýmiss
konar heilsuráðgjöf og þjónusta,
bókaútgáfa, snyrtistofa og heilsu-
lind, listamiðstöð fyrir börn, kerta-
og glerframleiðsla, sjúkraþjálfun,
þjónusta við hestamenn og rit-
vinnsluver fyrir fjölmiðla. Júlía
Linda Ómarsdóttir hlaut við-
urkenningu fyrir bestu viðskipta-
hugmynd Brautargengiskvenna að
þessu sinni, en hún snerist um út-
gáfu heilsufarsbókar.
Brautskráning: Fyrstu frumkvöðlarnir hafa verið brautskráðir úr Frum-
kvöðlaskóla Impru, en hér eru þeir í hópi Brautargengiskvenna.
Fyrstu frumkvöðlarnir
brautskráðir
HÁSKÓLINN á Akureyri hefur gef-
ið út bókin „Aðferðafræði og rann-
sóknir í heilbrigðisvísindum“. Tveir
prófessorar við háskólann, þau dr.
Sigríður Halldórsdóttir og dr. Krist-
ján Kristjánsson eru ritstjórar hand-
bókarinnar, en höfundar efnis eru 26
talsins, allt þekktir fræðimenn hver á
sínu sviði.
Sigríður Halldórsdóttir sagði rann-
sóknir forsendu framfara á öllum
sviðum og ætti það ekki síður við um
heilbrigðisvísindi en önnur og því
mikilvægt að gefa gaum að aðferða-
færði og hvernig staðið skuli að rann-
sóknum með sem bestum hætti.
„Það er sérstök tilfinning að fá bók-
ina í hendur, enda fjögurra ára
draumur orðinn að veruleika,“ sagði
Sigríður. Hún sagðist hafa gefið út til-
raunaútgáfu árið 2001 og hefði verið
notast við hana síðan, „en nú fengum
við landsliðið í aðferðafræðikennslu
og rannsóknum til liðs við okkur og ég
er afar sátt við ávöxtinn af þeirri
miklu vinnu,“ sagði hún. Um margt
sem fjallað er um í bókinni hefur ekki
verið ritað áður á íslensku og því um
brautryðjendastarf að ræða. Flest
það sem um er fjallað í bókinni hefur
víðari skírskotun en heilbrigðisvísindi
og ættu því margir að geta nýtt sér
þetta rit.
Sigríður sagði mikið átak að koma
svo stóru verki frá sér svo vel væri, en
allt hefði gengið upp. Hún sagði Há-
skólann á Akureyri ungt en ört vax-
andi rannsóknar- og fræðasamfélag.
„Þar er þverfagleg vinna auðveld og
ávöxtur hennar er m.a. rit af þessu
tagi, en um helmingur höfunda er há-
skólafólk fyrir norðan og helmingur
fyrir sunnan,“ sagði Sigríður.
Fram hafa komið hugmyndir um að
þýða bókina á ensku og síðar jafnvel á
Norðurlandamál og gefa út erlendis.
Enda vanti slíka bók fyrir hið alþjóð-
lega fræðasamfélag. „Ég veit að þetta
rit á eftir að gagnast fjölda manns og
það er ánægjulegt til þess að hugsa að
geta t.d. stuðlað að því að fólk á Ís-
landi geti lesið um aðferðafræði,
rannsóknir og fræðimennsku á ís-
lensku,“ sagði Sigríður. Hún vinnur
nú að því ásamt öðru að skipuleggja
ráðstefnu sem haldin verður á Akur-
eyri í haust um eigindlegar rannsókn-
ir og er ætluð kennurum og nemend-
um á sviði aðferðafræði og rannsókna.
Þá kvaðst hún einnig vera með nýja
bók í sigtinu, eða bækur öllu heldur,
bæði að gera áðurnefnt rit breiðara
þannig að það höfðaði til fleiri og síð-
an sagði hún það gamlan draum að
gefa út rit um eigindlegar rannsóknir.
HA gefur út bók um heilbrigðisvísindi
Greinar eftir
26 fræðimenn
MOSFELLSBÆR mun kaupa ör-
yggishellur úr endurunnu gúmmíi
til notkunar á leikvöllum bæjarins
en samningur þess efnis var und-
irritaður nýlega milli Mosfellsbæjar
og Gúmmívinnslunnar. Samning-
urinn gildir í fjögur ár. Mosfellsbær
er fyrsta sveitarfélagið á landinu til
að gera slíkan samning við Gúmmí-
vinnsluna. Áætlað er að viðskiptin
nemi um 2,5 milljónum króna á
næstu fjórum árum og að um 14
tonn af gúmmíúrgangi fari í að
framleiða þær öryggishellur sem
um ræðir.
Mosfellsbær hefur hlotið fjölda
viðurkenninga vegna vinnu að um-
hverfismálum. Forsvarsmenn bæj-
arins telja verð á hellum frá
Gúmmívinnslunni hagstæðara en á
innfluttum hellum að því er fram
kemur í frétt um samninginn.
Fyrirtækið hefur framleitt ör-
yggishellur fyrir leikvelli í 10 ár en
90% af hráefninu í þær er fengið úr
notuðum hjólbörðum.
Kaupa öryggishellur
á leikvelli
Grindavík | Þátttaka í sjó-
mannahátíðinni í Grindavík er
orðin stór hluti af lífi margra.
Talið er að um það bil tíu þúsund
gestir hafi sótt hátíðina að þessu
sinni en hún er sem fyrr nefnd
Sjóarinn síkáti og stendur alla
sjómannadagshelgina.
Hátíðin hófst með látum á
föstudagskvöld þegar hátíðin var
sett og í kjölfarið fylgdu boxb-
ardagar. Unglingarnir í 8.-
10.bekk fengu sundlaugardiskó í
fínu veðri sem hélst alla helgina
og Kalli Bjarni sá öðrum gestum
fyrir skrallballi í Festi um kvöld-
ið. Annars var mikið að gera hjá
þeim sem sækja böllin því kvöldið
eftir voru stórdansleikir bæði í
Festi og Sjávarperlunni.
Mikil dagskrá var bæði laug-
ardag og sunnudag en hápunktur
helgarinnar í huga margra er
heiðrun aldraðra sjómanna. Í
þetta skiptið voru sjómennirnir
Ingimar Magnússon, Sigurður
Garðarsson og Einar Haraldsson
heiðraðir. Þá var sú nýbreytni að
„Perlan á öldunni“ var veitt í
fyrsta skipti en það er viðurkenn-
ing til eiginkvenna sjómanna.
Viðurkenningunar hlutu þær
Hrönn Jóhannsdóttir, eiginkona
Einars Haraldssonar og Brynhild-
ur Vilhjálmsdóttir, eiginkona Sig-
urðar Garðarssonar.
Kvennadeild björgunarsveit-
arinnar Þorbjörns afhenti Ólafi
Erni Ólafssyni bæjarstjóra tíu
björgunarvesti fyrir börnin sem
hafa hug á því að dorga niðri á
bryggju.
„Þetta held ég að hafi tekist
mjög vel en fjöldinn var svipaður
og í fyrra, um það bil tíu þúsund
manns. Dagskráin var jöfn og
þétt þannig að allir fengu eitt-
hvað við sitt hæfi“, sagði Her-
mann Magnús Sigurðsson, for-
maður Sjómanna- og
Vélstjórafélags Grindavíkur.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Heiðruð: Þrír aldraðir sjómenn og tvær sjómannskonur voru heiðruð í Grindavík, þau eru frá vinstri Ingimar
Magnússon, Einar Haraldsson, Hrönn Jóhannsdóttir, Brynhildur Vilhjálmsdóttir og Sigurður Garðarsson.
Um tíu þúsund gestir
voru á Sjóaranum síkáta
Hátíð: Mikil dagskrá var fyrir börn jafnt sem fullorðna á Sjóaranum síkáta.
Sandgerði | Sjómannadagurinn var haldin hátíðlegur í
Sandgerði í sól og blíðskaparveðri. Öldruð kona sem
misst hefur eiginmann og syni í sjóslysum var heiðruð.
Við upphaf hátíðarhaldanna var Péturs Helga Guð-
jónssonar sjómanns minnst en hann lést í umferðarslysi í
Garði síðastliðinn föstudag.
Sjómannadagsráð heiðraði Önnu Sveinbjörnsdóttir,
Önnu á Felli, ljósmóður sem búið hefur í Sandgerði í 38
ár. Anna hefur kynnst sorginni við hafið. Fyrri maður
hennar, Haraldur Kjartansson, fórst ásamt fjórum skips-
félögum á árinu 1948. Síðar giftist hún Hannesi Arnórs-
syni póst- og símstöðvarstjóra í Sandgerði sem er látinn.
Jóhann sonur hennar fórst 1986 þegar hann var að ferja
bát yfir Faxaflóa og í febrúar 2002 drukknuðu Snorri og
Matthías, synir hennar, þegar bátur þeirra fórst við
Vestmannaeyjar. Þótt Anna sé á 83. aldursári vinnur hún
við umönnunarstörf á Elliheimilinu Grund í Reykjavík.
Anna var alla tíð farsæl ljósmóðir en segist ekki hafa
tölu á þeim börnum sem hún hefur tekið á móti í þennan
heim. Hún man hún að fyrsti drengurinn sem hún tók á
móti í Sandgerði var Garðar Garðarsson skipstjóri sem á
25 ára afmælisdegi Slysavarnasveitarinnar Sigurvonar
lagði blómsveig að höfninni til minningar um drukknaða
sjómenn.
Ýmislegt var til skemmtunar gert á sjómannadaginn
og í lokum var öllum gestum boðið til mikillar grillveislu
þar sem bæjarfulltrúar sáu um glóðarsteikinguna.
Öldruð sjó-
mannskona og
móðir heiðruð
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Heiðruð: Sigurbjörg Eiríksdóttir bæjarfulltrúi heiðraði
Önnu Sveinbjörnsdóttur á sjómannadaginn.