Morgunblaðið - 08.06.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 08.06.2004, Qupperneq 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 33 ✝ Hjörtur Guð-mundsson fæddist 13. apríl 1928. Hann lést 26. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðmundur Jó- hannesson bóndi, f. 19. okt. 1887, d. 26. maí 1959. Hansína Einarsdóttir húsmóð- ir, f. 8. júní 1892, d. 29. nóv. 1983. Hann átti heina í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd og ólst þar upp. Bræðurnir voru átta og þeir sem eru á lífi eru: Konráð, Kári, Jóhannes og Halldór. Systurnar voru fjórar og sú sem er á lífi er Ingibjörg. Hjörtur kvæntist 25. maí 1953 Guðríði Ingibjörgu Ingimundar- dóttur, f. 17. feb. 1930. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Ingimundur, f. 16. feb. 1952, viðskiptafræðingur. 2) Anna María, f. 2. okt. 1953, þjón- ustufulltrúi, giftist Herberti Guð- mundssyni – þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: Hjörtur Þór, f. 29. des. 1974; Róbert Már, f. 27. ágúst 1980; María Anna, f. 21. mars 1982. Sambýlismaður Önnu Maríu er Júlíus R. Júlíusson, búsett í Reykjavík. 3) Gunn- laugur Birgir, f. 5. feb. 1958, verkfræð- ingur, kvæntur Mál- fríði Sigurbjörgu Gísladóttur. Börn þeirra eru: Gísli Gunnar, f. 25. sept. 1983; Guðríður, f. 11. jan. 1985; Signý Lea, f. 23. feb. 1991, búsett í Hafnarfirði. 4) Alda, f. 27. ágúst 1963, við- skiptafræðingur, gift Sveini Muller. Börn þeirra eru: Berglind, f. 29. sept. 1991; Bryndís, f. 27. nóv. 1997, búsett í Danmörku. Hjörtur kom víða við í störfum sínum, var háseti og matsveinn á fiskiskipum, var matsveinn og bryti á millilandaskipum hjá Sam- bandinu og Eimskip og vann á þungavinnutækjum hjá Reykjavík- urborg. Hjörtur var matsveinn á hótelum, skólum og vistheimilum. Útför Hjartar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku afi. Mamma hringdi í mig fyrir nokkrum dögum og sagði mér að þú hefðir farið sama morgun. Alls kyns tilfinningar flugu um huga minn en ég vissi að þú værir sáttur nú sem þú hefðir farið. Síðustu daga hef ég hugsað mikið um þig og allar þær minningar sem ég á um þig sem barn mun ég ætíð varðveita. Ég vissi þegar ég kvaddi þig fyrir jól að ég væri að kveðja þig í hinsta sinn. Þó svo að þú værir veikur var húmorinn alltaf í lagi. Ég minnist allra jólanna sem þú komst til okkar og eldaðir dýrindis- mat handa okkur og alltaf var hann yndislegur og góður hjá þér. Allar sögurnar sem þú sagðir þeg- ar ég var barn voru jafnskemmtilegar og ekki var það verra að þú sagðir svo skemmtilega frá. Ég get aldrei gleymt einum jólum. Þá höfðum við verið að spila sem við gerðum svo oft, og Róbert var að leita að gleraugun- um sínum. Við Hjörtur hjálpuðum til en hvergi fundust gleraugun. Ég man ekki alveg hve lengi við leituðum en í þónokkurn tíma. Þú sast inni í eldhúsi og fylgdist með okkur. Við spurðum þig hvort þú hefðir séð þau og þú svaraðir í rólegheitunum: Þau eru á eldhúshillunni fyrir aftan ykkur. Við snerum okkur við og þarna voru þau. Ég skildi þetta ekki alveg þar sem ég hafði leitað svo oft í sömu hillu. En þú sagðir að huldufólkið hefði fengið þau lánuð fyrir son sinn sem væri að læra að lesa. Alltaf datt þér eitthvað snið- ugt í hug til að segja. Það var alltaf jafnyndislegt að hafa þig hjá okkur um jólin. Ég á eftir að sakna þess mikið. Ég mun geyma þessar minningar og sögur sem þú sagðir mér þegar ég var barn. Og svo þegar kemur að því að við Mikkel eignumst okkar eigin börn, fá þau að vita allt um Hjört langafa. Því miður fékkst þú ekki tækifæri til að hitta ástina í mínu lífi en ég veit þú fylgist með og passar okkur hér í Danmörku. Ég minnist þess þegar ég sagði þér um jólin að ég væri að flytja til Danmerkur í meira söngnám og hefja mitt líf þar með Mikkel. Fannst þér það í góðu lagi en spurðir hvort ég væri ekki nýkomin frá Ameríku, en það eru víst einhver ár síðan. Hvernig áttir þú að geta fylgst með öllu þessu flakki á mér? Ég get alveg endalaust rifjað upp minningar sem ég á um þig, afi minn, þær eru geymdar en ekki gleymdar. Ég er því miður stödd erlendis en hef skrifað þetta ljóð til þín afi minn: Þú farinn ert frá þessum heimi, allt er bjart og friðsælt. Þú brosir til okkar, við finnum þína nærveru, þú hefur fundið frið og ró. Þú andar léttar, þú ert horfinn á vit nýrra ævintýra. Tekið er vel á móti þér með opnum örmum. Þú kveður okkur sáttur og friðsæll. Allt er í ró. Góða nótt og sofðu vært. Þetta eru mín hinstu orð til þín afi minn. Ég elska þig af öllu mínu hjarta og mun ætíð gera. Ég á eftir sakna þín mikið, sofðu vært. Þín dótturdóttir María Anna Herbertsdóttir. Elsku afi Hjörtur, nú ertu kominn til Guðs. Við vitum að núna ertu alltaf hjá okkur og fylgist með okkur. Það er samt svo skrítið að hugsa til þess að þú sért farinn og að við eigum ekki eftir að sjá þig aftur hér. En þrátt fyrir það vitum við að þér líður vel núna. Það er svo mikið að góðum minningum sem við eigum af þér. Þú varst svo vingjarnlegur og vild- ir öllum vel. Þú varst afbragðs kokk- ur og þau voru nú ófá skiptin sem þú eldaðir fyrir okkur fjölskylduna. T.d á jólunum varst þú yfirkokkur og sagð- ir okkur hvernig best væri að elda matinn. Einnig varst þú mikill spilakall og þú varst alltaf tilbúin að spila við okk- ur systurnar þegar við komum í heimsókn til þín á Lindargötuna. Þar varstu einnig í spilaklúbbi og spilaðir við þrjár konur sem bjuggu á Lind- argötunni. Þú varst svo klár. Þú varst svo góð- ur í að finna þér eitthvað sniðugt að gera. Þú vannst mikið í höndunum. Þú smíðaðir alls konar hluti úr alls konar dóti. Þau voru mörg glæsileg verkin sem þú gerðir. Okkur fannst alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þín og leika okk- ur að smíða úr fílabeini eins og þú gerðir mikið. Svo hélstu stundum sýningar á verkunum þínum sem komu rosalega vel út og þú varst svo stoltur. Það var alltaf svo gaman að vera hjá þér. Þú fórst oft með okkur í Kolaportið. Einu sinni leigðum okkur bás og við fengum þig til að selja eitthvað af verkunum þínum. Við ætluðum sko að selja þau á 2500 kr. og þau seldust upp á engum tíma. Við sáum svo eftir á að þetta hafi verið aðeins of ódýrt. Við munum líka eftir öllum sögun- um sem þú sagðir okkur frá þinni ótrúlegu lífsreynslu. Það var svo gaman að hlusta á þig tala um þitt líf. Þú minntir okkur reyndar mikið á manninn sem fjallað var um í bíó- myndinni Big Fish, því sögurnar voru oft ævintýralegar. Þú varst trúaður, vissir að guð væri alltaf við hliðina á þér og að hann hefði hjálpað þér mikið í gegnum lífið. Samvera okkar minnkaði mikið í seinni tíð við okkur systurnar en við heimsóttum þig þegar við gátum og svo komst þú reglulega í heimsókn til okkar á Sævanginn þegar þú hafðir heilsu til. Afi, okkur þykir rosalega vænt um þig og við söknum þín mikið. Við vitum að við munum sjá þig einhvern tímann aftur og þangað til passar þú okkur. Þín barnabörn Guðríður og Signý Lea. Jæja, blessaður afi minn, þá ertu farinn yfir móðuna miklu. Svolítið skrítið að hugsa til þess að hafa þig ekki með í sunnudagsbíltúrunum, í framsætinu að borða pylsu og segja okkur systkinunum frá öllu milli him- ins og jarðar. Þú hafðir nefnilega frá ýmsu að segja enda lífsreyndur mað- ur og „sjóaður“ í orðsins fyllstu merk- ingu. Fyrir mánuði síðan þegar þú varst að flytja af Lindargötunni, var ég að hjálpa til við flutningana þegar ég rakst á fjóra fullorðna menn sem voru að ræða sín á milli. Einn þeirra spurði mig hvert erindi mitt væri og ég sagði að ég væri að hjálpa afa mínum að flytja. „Já, já, væni minn, og hver er það?“ Ég sagði þeim að það væri hann afi minn, Hjörtur Guðmundsson. „Hjörtur Guðmundsson!“ sögðu þeir nánast allir í kór. „Ameríkufarinn?!“ sagði einn, „heimshornaflakkarinn?“ sagði annar. Ég kinkaði bara kolli, stoltur yfir því að vera afkomandi þessa fræga íbúa Lindargötunnar. Þessi viðurnefni sem festust við þig í gegn- um tíðina eru alls ekki úr lausu lofti gripin. Mér eru sérstaklega minnis- stæðar allar sögurnar sem þú sagðir mér um ævintýri þín úti í heimi, þeg- ar þú vannst sem kokkur á alls konar skipum. Þú sveipaðir sögunum þínum rómantískum blæ og glottir við þegar þú sást undrunarsvipinn skína úr augunum á okkur krökkunum. Þess- ar sögur á ég alltaf eftir að varðveita. Ég mun aldrei gleyma stundunum sem við áttum saman og ég vona, elsku afi minn, að þú hafir það gott á þeim stað sem þú ert núna. Ég kveð þig með söknuði. Gísli Gunnar Gunnlaugsson. Elsku afi, vonandi líður þér vel núna. Hvíldu í friði. Þínar Berglind og Bryndís, Danmörku. HJÖRTUR GUÐMUNDSSON  Fleiri minningargreinar um Hjört Guðmundsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Englasteinar Legsteinar Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, tengda- dóttir, systir, mágkona og frænka, SIGRÍÐUR KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR, Ásgarði 119, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 10. júní kl. 13.30. Björn Davíð Kristjánsson, Davíð Freyr Björnsson, Birna Fjóla Valdimarsdóttir, Kristján Davíðsson, Svanhildur Björnsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Jóhann Hjaltason, Alfreð Halldórsson, Elín Sigurðardóttir, Valdimar Halldórsson, Sigríður S. Hreiðarsdóttir og systkinabörn. Bróðir minn, JÓHANN SIGURÐSSON, Sörlaskjóli 13, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landakotsspítala fimmtu- daginn 20. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar Sigurðsson. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR JÚLÍUSSON, Holtsgötu 24, Sandgerði, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, miðvikudaginn 2. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Júlíus Helgi Einarsson, Eydís Eiríksdóttir, Einar Kr. Friðriksson, María Vilbogadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, EINAR ÁRNASON frá Sóleyjartungu, síðast til heimilis á Höfðagrund 19, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 5. júní. Útför hans verður gerð frá Akraneskirkju föstu- daginn 11. júní kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Halldóra Gunnarsdóttir. Elskuleg móðir okkar, SIGRÍÐUR JÓNA INGÓLFSDÓTTIR frá Borðeyri, andaðist á Dvalarheimilinu Borgarnesi laugar- daginn 5. júní. Útförin auglýst síðar. Börn hinnar látnu. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi (opa) og bróðir, GUÐMUNDUR ÁGÚSTSSON hagfræðingur, Rekagranda 5, Reykjavík, andaðist á heimili sínu laugardaginn 5. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Moníka María Karlsdóttir, Kristján Guðmundsson, Þóra Margrét Pálsdóttir, Stefán Ásgeir Guðmundsson, Védís Skarphéðinsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Haukur Valgeirsson, barnabörnin Lara Valgerður og Þór Valgarð og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.