Morgunblaðið - 08.06.2004, Side 34
MINNINGAR
34 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Geir Bjarni Jóns-son fæddist í
Merki á Norðfirði 22.
febrúar 1922. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað 3. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Jón Bjarna-
son útgerðarmaður, f.
13.12. 1880, d. 12.8.
1946, og Guðný
Björnsdóttir hús-
freyja, f. 2.1. 1883, d.
13.4. 1976. Jón var
tvíkvæntur og átti
með Halldóru Björns-
dóttur fyrri konu sinni þrjú börn;
Bjarna, f. 11.8. 1905, d. 20.7. 1912,
Svanbjörn, f. 10.8. 1906, d. 2.2.
1951, andvana fædda dóttur 8.9.
1907. Guðný átti eina dóttur áður
en hún giftist Jóni; Sigríði Stefáns-
dóttur, f. 8.12. 1903, d. 16.1. 1983.
Geir átti þrjá albræður; Halldór,
f. 15.4. 1911, d. 8.5. 1985, Óskar, f.
16.5. 1914, d. 20.8. 1914 og Óskar,
f. 18.6. 1916, d. 13.3. 1999.
Hinn 16. ágúst 1946 kvæntist
Geir eftirlifandi eiginkonu sinni,
Jóhönnu Björnsdóttur frá Greni-
vík, f. 14.8. 1921. Foreldrar Jó-
hönnu voru Björn Kristjánsson út-
vegsbóndi á Þengilbakka og Inga
Vilfríður Gunnarsdóttir kona hans.
Geir og Jóhanna eignuðust þrjú
börn. Þau eru: 1) Birna, f. 8.4. 1946,
búsett í Reykjavík, maki Ágúst
Jónsson. Eiga þau þrjú börn: Ein-
ar, f. 18.2. 1967, Guðna Kristján, f.
1.11. 1968 og Ingu Sóley, f. 1.6.
1972. Fyrir eignaðist Birna Jóhann
Geir Árnason, f. 2.12. 1965 og var
hann að mestu alinn upp af móð-
urforeldrum sínum. 2) Smári, f.
17.1. 1951, búsettur í Neskaupstað,
maki María Jórunn Hafsteinsdótt-
ir. Eiga þau tvö börn:
Orra, f. 11.3. 1980 og
Jóhönnu, f. 29.9.
1985. 3) Heimir, f.
2.6. 1954 búsettur í
Ames í Iowa í Banda-
ríkjunum, maki Lára
Birna Hallgrímsdótt-
ir. Eiga þau tvö börn:
Dagnýju, f. 8.3. 1990
og Atla Mar, f. 8.12.
1992.
Geir ólst upp á
Norðfirði og hóf
snemma að sinna öll-
um algengustu störf-
um til lands og sjáv-
ar. Hann gekk í barnaskóla í
Neskaupstað og að því námi loknu
stundaði hann sjómennsku ásamt
því að starfa sem landmaður á
vetrarvertíðum á Hornafirði og í
Sandgerði. Á árum síðari heims-
styrjaldarinnar dvaldi Geir um
tíma í Reykjavík og starfaði við
leigubílaakstur en árið 1946 flutt-
ist hann á ný til Neskaupstaðar og
þar stofnuðu þau Jóhanna heimili.
Allt til ársins 1966 starfaði Geir
sem vörubílstjóri en þá hóf hann að
gegna starfi lagermanns í loðnu-
verksmiðju Síldarvinnslunnar hf.
Hjá Síldarvinnslunni starfaði hann
til ársins 1993 en þá lauk starfsævi
hans.
Geir tók verulegan þátt í tónlist-
arlífinu í Neskaupstað og lék með-
al annars með fyrstu danshljóm-
sveitinni sem stofnuð var í bænum
en hún hóf að leika árið 1940. Hann
var einn af stofnendum Lúðra-
sveitar Neskaupstaðar og blés með
henni á árunum 1954–1969 eða á
meðan hún starfaði.
Útför Geirs fer fram frá Norð-
fjarðarkirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 14.
Eftir harðvítuga baráttu við erf-
iðan sjúkdóm lést faðir minn á
Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað sl. fimmtudag. Þrátt fyrir hin
óvægnu tök sjúkdómsins kvartaði
hann aldrei, þvert á móti ræddi hann
um jákvæða þætti mannlífsins allt til
loka og var þakklátur fyrir þá þjón-
ustu og umhyggju sem hann naut.
Engum var hann þó þakklátari en
eiginkonunni sem stóð eins og klett-
ur við hlið hans til hinstu stundar.
Faðir minn var Norðfirðingur og
Austfirðingur í húð og hár. Málefni
Neskaupstaðar og síðar Fjarða-
byggðar áttu hug hans allan ásamt
því sem hann unni landshlutanum
sem ól hann. Á unga aldri tileinkaði
hann sér róttækar skoðanir á sviði
þjóðmála og hikaði aldrei við að op-
inbera viðhorf sín þótt ekki gerði
hann það á mannfundum eða í fjöl-
miðlum. Mörgum eru minnisstæðar
rökræður við hann um samfélags-
málefni þar sem hann hélt staðfastur
fram sínum skoðunum og færði oft
rök fyrir máli sínu með gamansöm-
um hætti. Hann gerðist félagi í Sósí-
alistaflokknum og síðar Alþýðu-
bandalaginu og starfaði þar á yngri
árum í hinni mikilvægu og lítt áber-
andi baksveit í Neskaupstað. Meðal
annars ávann hann sér gott orð sem
kosningasmali á meðan slíkir smalar
voru við lýði. Í smalamennskunni var
hann sagður hafa beitt bæði lagni og
klókindum og fékk jafnvel vonlausa
kjósendur til að kjósa rétt. Hann var
Norðfjarðarkommi og Lúðvíksmað-
ur, eins og fylgismenn Lúðvíks Jós-
epssonar voru gjarnan nefndir, og
lagði fyrst og fremst áherslu á at-
vinnuuppbyggingu og mikilvægi
góðrar lífsafkomu þegar hann ræddi
bæjarmál og þjóðmál.
Kröpp kjör einkenndu gjarnan þá
tíma sem faðir minn ólst upp á. Hann
kynntist góðu atlæti í uppvextinum
en allsnægtir voru fjarlægar. Hann
hafði alla burði til að mennta sig en
takmörkuð efni og lítill vilji komu í
veg fyrir það. Hann sagði sjálfur að
líkamleg vinna hefði átt hug sinn all-
an þegar skyldunámi lauk en mennt-
un verið fjarlægur kostur. Eins og
hjá öðrum ungum mönnum á Norð-
firði á þessum tíma leitaði hugur föð-
ur míns til sjávar; sjómennska og út-
gerðarstörf fönguðu huga hans.
Haldið var til síldveiða eða á vetr-
arvertíðir og lífið snerist um sjó og
fisk.
Á seinni árum varð föður mínum
oft tíðrætt um mikilvægi menntunar
og þá vitnaði hann gjarnan til eigin
afstöðu til skólagöngu um það leyti
sem hann lauk skyldunámi. Hann
taldi mjög mikilvægt að allir áttuðu
sig á því að menntun væri gefandi,
veitti lífsfyllingu og yki möguleikann
á því að fólk gæti gegnt áhugaverð-
um störfum. Þess vegna ætti enginn
að slá hendinni á móti þeim mennt-
unarmöguleikum sem gæfust.
Snemma bar á áhuga á bílum.
Faðir minn festi kaup á sínum fyrsta
bíl í félagi við aðra á árum heims-
styrjaldarinnar síðari og við þau
tímamót var framtíðin mörkuð; hann
hafði lifibrauð sitt af bifreiðaakstri í
yfir tuttugu ár. Það var krefjandi
starf að vera atvinnubílstjóri á Aust-
urlandi um miðja síðustu öld en ekki
fór því fjarri að bílstjórar nytu
ákveðinnar virðingar á þeim tíma.
Þegar bílstjóraferlinum lauk hóf
faðir minn störf sem lagermaður í
loðnuverksmiðju Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað. Þar þótti honum gott
að starfa enda leit hann á Síldar-
vinnsluna sem sitt fyrirtæki og á
vinnustaðnum eignaðist hann frá-
bæra félaga.
Oft vann faðir minn langan vinnu-
dag en það kom ekki í veg fyrir að
hann ætti sér áhugamál sem hann
sinnti löngum af verulegum krafti.
Áhugamál hans var tónlist og virk
þátttaka í tónlistarlífi. Snemma hóf
hann að leika á fiðlu, harmonikku og
mandólín og þegar fyrsta dans-
hljómsveitin í Neskaupstað sá dags-
ins ljós árið 1940 var faðir minn einn
þriggja hljómsveitarmanna. Og
hann var einn stofnenda Lúðrasveit-
ar Neskaupstaðar þar sem hann blés
í trompet, túbu og síðast í tenórhorn.
Í lúðrasveitinni var hann í hópi
þeirra sem mynduðu kjölfestuna,
ávallt tilbúinn til æfinga og marg-
víslegra verkefna ásamt því að vera
hrókur alls fagnaðar. Það eru margir
sem eiga ljúfar minningar frá lúðra-
sveitarárunum og mikilvægur þáttur
þeirra minninga er skemmtileg til-
svör og uppátæki bræðranna Geirs
og Óskars sem löngum sátu hlið við
hlið og blésu í tenórhornin.
Síðustu æviárin reyndust föður
mínum erfið. Heilsunni hrakaði og
hægt og bítandi lét hann undan síga.
Móðir mín stóð við hlið hans til síð-
asta dags og studdi hann með ómet-
anlegum hætti þegar áföllin dundu
yfir. Síðustu mánuðina dvöldu þau
bæði á Fjórðungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað og nutu þar frábærrar
umhyggju lækna og annars starfs-
fólks. Fyrir hönd allra aðstandenda
vil ég færa starfsfólki sjúkrahússins
innilegar þakkir fyrir þjónustuna við
föður minn.
Fyrir mína hönd og fjölskyldu
minnar vil ég þakka föður mínum
fylgdina á lífsleiðinni. Hans verður
sárt saknað, ekki einungis sem föður
heldur einnig sem félaga.
Smári Geirsson.
Það var fyrir tæpum 20 árum sem
leiðir okkar Geirs Bjarna heitins
lágu fyrst saman.
Ég flutti þá með fjölskyldu mína
til Neskaupstaðar og voru falin
mannaforráð í Loðnuverksmiðju
Síldarvinnslunnar hf. Það var ekki
auðvelt að koma á nýjan vinnustað í
framandi umhverfi með mjög tak-
markaða þekkingu á bræðsluiðnaði
og stökkva beint út í djúpu laugina.
Það sem gerði það að verkum að ég
sökk ekki heldur var bjargað voru
frábærir starfsmenn og þar á meðal
Geir Bjarni Jónsson. Hann hafði um-
sjón með lagerhaldi bræðslunnar,
keypti inn rekstrarvörur, sá um
verkfæri, greiddi úr málum fyrir við-
skiptabáta og margt fleira. Geir
Bjarni hóf störf hjá Síldarvinnslunni
í lok síldaráranna á sjöunda áratugn-
um og starfaði þar allar götur síðan
þar til hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir 1993. Hann lenti í alvarlegu
vinnuslysi árið 1969 og gekk ekki
heill til skógar eftir það, hafði skert-
an mátt í hendi og gat ekki beitt sér
af fullu afli. Það hefti hann ekki í að
sinna störfum sínum í bræðslunni
með miklum sóma og fyrir það vil ég
þakka sem og þann stuðning og vin-
semd sem hann sýndi mér og mínum.
Kæra Jóhanna, við Ingibjörg
sendum þér, börnum þínum og fjöl-
skyldunni allri okkar dýpstu samúð-
arkveðjur og biðjum þess að sá sem
öllu ræður styðji ykkur á sorgar-
stundu.
Freysteinn Bjarnason.
GEIR BJARNI
JÓNSSON
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
www.mosaik.is
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÁSGEIR JÓNSSON,
Efstasundi 92,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 29. maí,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
11. júní kl. 13.30.
Hulda Sigríður Guðmundsdóttir,
Guðmundur Páll Ásgeirsson, Anna Sjöfn Sigurðardóttir,
Margrét Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RAGNAR ÞORGRÍMUR KRISTJÁNSSON,
Höfðagötu 11,
Hólmavík,
sem andaðist sunnudaginn 30. maí, verður
jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju miðviku-
daginn 9. júní kl. 14.00.
Matthildur Sveinsdóttir,
Halldór Kr. Ragnarsson,
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Ágústa Kr. Ragnarsdóttir, Ingimundur Pálsson,
Jóhanna B. Ragnarsdóttir, Már Ólafsson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
GUNNAR EINAR LÍKAFRÓNSSON,
Hringbraut 72A,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstu-
daginn 4. júní.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 11. júní kl. 14.00.
Dóra Fanney Gunnarsdóttir, Annel Jón Þorkelsson,
Sigurlaug Kr. Gunnarsdóttir, Daníel Eyþórsson,
Gunnar Þór Gunnarsson,
Svavar Jósep Gunnarsson, Anna Bragadóttir,
Dagfríður G. Arnardóttir, Sigurvin Br. Guðfinnsson,
barnabörn og systkini.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, bróðir,
tengafaðir og afi,
GUÐMUNDUR INGIMARSSON
húsasmíðameistari,
Leirubakka 12,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi föstudaginn 4. júní.
Útförin fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi miðvikudaginn 16. júní
kl. 13.30.
Oddný Matthíasdóttir,
Guðrún Pálsdóttir,
Atli Örn Guðmundsson,
Heimir Þór Guðmundsson, Eva Rún Jensdóttir,
systkini, tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
TORFI GUÐBJÖRNSSON
hárskerameistari,
Neðstutröð 8,
Kópavogi,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut sunnudaginn 6. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Anna Marín Kristjánsdóttir,
Katrín Guðbjörg Torfadóttir, Bragi Jónsson,
Kristján Guðmundur Torfason, Bára Benediktsdóttir,
Kristbjörn Geir Torfason, Soffía Guðjónsdóttir,
Karl Gunnar Torfason, Ingveldur Teitsdóttir,
Kristleifur Gauti Torfason, Kristín Birna Angantýsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.