Morgunblaðið - 08.06.2004, Síða 37
Mér fannst alltaf að hin pólitíska
stefna mágs míns byggðist fyrst og
fremst á heilindum og staðfestu.
Arnljótur var að sönnu lögspek-
ingur. Hann var prófessor í laga-
deild Háskóla Íslands og síðar
hæstaréttardómari og báðum stöð-
um gegndi hann með miklum sóma.
Hann var hins vegar ekki fyrir það
að berast á, nægði líklega að vinna
sína vinnu og stóð fyllilega undir
því trausti sem þjóðfélagið bar til
hans. Þeir vissu sem þurftu að vita
að ekki þýddi að bjóða honum heið-
ursorður og krossa, það hefði verið
úr stíl við það látleysi sem hann
tamdi sér á opinberum vettvangi.
Lífið er undarlegt. Nú er hann
farinn sem alla tíð var stráksleg-
astur allra, náunginn sem var alls
ekki þurr lagaspekúlant heldur
glettinn, spaugsamur og kátur. „Æ,
pabbi, ekki þessa fimmaurabrand-
ara,“ áttu börnin hans til með að
andvarpa. Þeim var samt ekki eins
leitt og þau létu, það vissi ég. Miss-
ir þeirra er mikill, því þó heim-
ilisfaðirinn hefði verið nærri sjötug-
ur bar hann sig ekki sem slíkur,
hann var bara þessi eilífðar strák-
ur.
Ég lærði mikið af mági mínum
og er þakklátur fyrir þann vinskap
og hlýju sem hann auðsýndi mér og
börnum mínum alla tíð. Systur
minni, börnum hennar, tengda-
börnum og barnabörnum sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Sigurður Sigurðarson og börn.
Fleiri minningargreinar um
Arnljót Björnsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 37
✝ Egill Þorfinnssonfæddist á Spóa-
stöðum í Biskups-
tungum 27. desem-
ber 1913. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Garðvangi í Garði 30.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Steinunn Eg-
ilsdóttir, f. 10. júlí
l882, d. 26. júlí 1948,
og Þorfinnur Þórar-
insson, f. 20. mars
1884, d. 19. ágúst
1914. Systkini Egils
voru Hildur og Þór-
arinn, bæði látin. Fósturbróðir
Valdimar Pálsson, látinn.
Egill kvæntist 6. janúar 1940 Ást-
rúnu S. Jónsdóttur, f. 25. apríl
1910, d. 7. maí 2003, frá Neðri
Miðbæ í Norðfirði. Foreldrar henn-
1979, unnusta Ásta Kristín Victors-
dóttir. Egill og Ástrún bjuggu sín
fyrstu hjúskaparár á Ísafirði en
fluttu síðan til Keflavíkur og hefur
heimili þeirra verið lengst af á Suð-
urgötu 20.
Egill stundaði nám í Héraðsskól-
unum á Laugarvatni og Laugum í
Þingeyjarsýslu. Hann lærði skipa-
smíði í Landsmiðjunni og lauk prófi
frá Iðnskólanum í Reykjavík. Egill
vann hjá Bárði Tómassyni á Ísa-
firði, þar til að hann gerðist verk-
stjóri hjá Dráttarbraut Keflavíkur
árið 1941 og var þar til 1960. Hann
var framkvæmdastjóri Vélbáta-
tryggingar Reykjaness frá 1964 til
1995, kenndi skipateikningar við
Iðnskólann í Keflavík og var lengi
prófdómari við sama skóla. Hann
teiknaði fjölda báta sem smíðaðir
hafa verið bæði innanlands og utan.
Egill var einn af stofnendum Rot-
aryklúbbs Keflavíkur, meðlimur í
Málfundafélaginu Faxa í fjölda-
mörg ár og ýmsum öðrum félögum.
Útför Egils verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
ar voru hjónin Guð-
laug Sigríður Björns-
dóttir og Jón
Björnsson. Börn Ást-
rúnar og Egils eru: 1)
Þorfinnur, f. 26.8.
1940, d. 14.10. 1998,
maki I. Margrét Thor-
dersen, þau skildu.
Börn þeirra eru a) Eg-
ill, f. 1963, barn Stefán
Barði; b)Sigþrúður, f.
1967, maki Hjálmtýr
Baldursson, barn Vala
Margrét. Maki II.
Kristín Hjartar, þau
skildu. 2) Steinunn, f.
2.9. 1948, maki Viðar Jónsson.
Börn þeirra eru a) Egill, f. 1969,
unnusta Bryndís Jónsdóttir; b)Ást-
rún, f. 1973, sambýlismaður Óttar
Hreinsson, dætur þeirra eru Eydís
Eir og Steinunn Ýr; c) Jón Viðar, f.
Það er með söknuði sem ég kveð
þig, afi minn. Það er svo margs að
minnast þegar þú átt í hlut, okkar
samverustundir voru svo margar.
Ég veit að þín verður sárt saknað af
mörgum sem hafa kynnst þér í gegn-
um tíðina. Þér líður örugglega betur
núna, kominn til ömmu sem ég veit
að þú saknaðir mikið undanfarið ár.
Góðar minningar koma fram þeg-
ar ég hugsa til alls þess tíma sem við
áttum saman, heimsóknirnar á Suð-
urgötuna, ferðirnar í sumarbústað-
inn, allar veiðiferðirnar, veiði í Brú-
aránni, landafræði og saga sem er
okkar sameiginlega áhugamál og all-
ar þær samverustundir sem við átt-
um saman. Þær voru margar veiði-
ferðirnar sem við fórum í, en ein er
mér sérstaklega minnisstæð en þá
fórum við bara tveir nafnarnir að
veiða í ánni Fáskrúð í Dölunum. Ég
var bara tíu ára og var þetta mikið
sport að fá að fara með afa að veiða
lax. Eitthvað gekk nú veiðin treglega
í fyrstu, búnir að missa tvo til þrjá
laxa áður en sá fyrsti var dreginn á
land. Við misstum eitthvað um sex til
sjö laxa en fengum fimm, þetta var
mjög eftirminnileg veiðiferð, því ég
hafði aldrei áður veitt svona marga
laxa. Þær hafa verið margar ferðirn-
ar og samverustundirnar í bústaðn-
um fyrir austan, á æskuslóðum þín-
um sem við höfum farið. Alltaf var
verið að gera eitthvað í sveitinni,
gróðursetja, setja niður og taka upp
kartöflur, grænmeti og jarðarber,
stækka bústaðinn og margt fleira
sem er lifandi í minningunni. Oft var
ég að hjálpa þér að stækka bústað-
inn, það virtist alltaf vera þörf á því
að stækka hann en ég held að það
hafi aðallega verið þörfin hjá þér fyr-
ir að hafa eitthvað fyrir stafni, þar
erum við nú líkir.
Lestur góðra bóka var eitt af
mörgum áhugamálum þínum og fór-
um við oft á bókamarkaðinn saman
til að athuga hvort ekki væri eitthvað
þar sem gott væri að eiga og lesa
þegar heim væri komið. Oft fórum
við klyfjaðir út, eitthvað sem var
óhjákvæmilegt þar sem svo mikið
var af góðum og merkum bókum á
boðstólunum að okkar mati. Þetta
voru góðar og skemmtilegar sam-
verustundir, tími sem við áttum sam-
an og munu geymast í minningunni
ásamt svo mörgu sem við tókum okk-
ur fyrir hendur, sem var nú æði
margt. Það var nú oft stutt í gam-
ansemina hjá þér og nutum við
krakkarnir þess. Gjafmildi þín og
hjálpsemi var mikil og aldrei var
neitt mál að fá hlutina lánaða, t.d.
eins og bílinn þinn og annað þess
háttar. Alltaf fylgdist þú vel með því
sem ég tók mér fyrir hendur og
spurðir ævinlega eftir því hvar ég
væri og hvað ég hefði fyrir stafni.
Ég kveð þig með miklum söknuði,
afi minn, þín á eftir að vera sárt
saknað. Ég veit að amma hefur tekið
vel á móti þér og ykkar verður
minnst um ókomna framtíð.
Hvíl þú í friði, elsku afi.
Egill Viðarsson.
EGILL
ÞORFINNSSON
Fleiri minningargreinar um Egil
Þorfinnsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
Laus kennarastaða við
Lindaskóla
• Vegna forfalla vantar stærðfræðikennara
fyrir næsta skólaár í 8. – 10. bekk. Við
skólann er unnið metnaðarfullt starf og
næsta vetur verður unnið að rannsókn-
um í sambandi við námsmat í stærð-
fræði sem styrkt er af þróunarsjóði
grunnskóla.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og Kópavogs-
bæjar.
Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um
starfið.
Upplýsingar gefur skólastjóri Gunnsteinn
Sigurðsson í síma 8617100
Umsóknarfrestur er til
14. júní 2004.
Starfsmannastjóri
Járnamaður
Vanur járnamaður getur bætt við sig verk-
efnum, helst á Hafnarfjarðarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Gerðaskóli
Eftirfarandi starfsmenn vantar næsta skólaár.
2/3 stöðu sérkennara til 11. jan. 2005 v. barns-
eignarleyfis,
1/1 staða kennara með fjölfötluðum nemanda
í 7. bekk,
60% staða stuðningsfulltrúa með nemanda
í 1. bekk,
56% staða við kaffiumsjón.
Umsóknarfrestur er til 20. júní. Frekari upplýs-
ingar gefur skólastjóri í síma 422 7020.
Fatabreytingar
Starfskraftur óskast á saumastofu í sumaraf-
leysingar strax. Viðkomandi verður að vera
vanur fatabreytingum.
Upplýsingar í síma 552 0855/899 4642.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR
Kjósarhreppur
Deiliskipulag frístundabyggðar í landi
Háls
Samkvæmt 25. gr. Skipulags- og byggingar-
laga auglýsir Kjósarhreppur nýtt skipulag frí-
stundabyggðar í landi Háls. Gert er ráð fyrir
69 frístundalóðum á 34,4 ha. svæði. Skipulagið
hangir uppi á skrifstofu Kjósarhrepps, Félags-
garði í Kjós. Tillagan er til sýnis frá 8. júní til
og með 6. júlí. Athugasemdum skal skilað til
Kjósarhrepps fyrir 7. júlí.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Kjósarhrepps.
Skaftfellingar athugið!
Sumarleyfi sóknarprest-
anna í Skaftafellsprófasts-
dæmi 2004
Austurhluti Skaftafellsprófastsdæmis:
Bjarnanesprestakall:
Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur
verður í sumarleyfi sem hér segir:
frá 7. júní til 13. júní - frá 14. júlí til 31. júlí
og frá 15. ágúst til 31. ágúst.
Sr. Einar G. Jónsson á Kálfafellsstað leysir
hann af á meðan.
Kálfafellsstaðarprestakall:
Sr. Einar Guðni Jónsson sóknarprestur verður
í sumarleyfi sem hér segir:
frá 14. júní til 12. júlí og frá 1. ágúst til
14. ágúst.
Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson á Höfn leysir hann
af á meðan.
Vesturhluti Skaftafellsprófastsdæmis:
Kirkjubæjarklaustursprestakall:
Sr. Bryndís Malla Elídóttir sóknarprestur verður
í sumarleyfi sem hér segir:
frá 1. júlí til 16. ágúst.
Sr. Haraldur M. Kristjánsson í Vík leysir hana
af á meðan.
Víkurprestakall:
Sr. Haraldur M. Kristjánsson prófastur verður
í sumarleyfi sem hér segir:
frá 14. júní til 30. júní og frá 17. ágúst til
31. ágúst.
Sr. Bryndís Malla Elídóttir á Kirkjubæjarklaustri
leysir hann af á meðan.
Haraldur M. Kristjánsson,
prófastur Skaftafellsprófastsdæmis.
Kvennaskólinn í Reykjavík
Innritun
Innritun nýnema fyrir skólaárið 2004-5 fer fram
í skólanum miðvikudaginn 9. júní og fimmtu-
daginn 10. júní kl. frá kl. 8 til 18. Innritun lýkur
föstudaginn 11. júní kl. 16.
Kvennaskólinn í Reykjavík býður bóknám til
stúdentsprófs.
Brautirnar eru þrjár:
félagsfræðabraut
málabraut
náttúrufræðibraut
Í skólanum er bekkjakerfi en þó mikið val
á 3. og 4. námsári.
Inntökuskilyrði eru samkvæmt reglugerð
menntamálaráðuneytisins. Þau eru háð braut-
arvali nemandans. Umsókn skal fylgja staðfest
ljósrit af grunnskólaprófi.
Námsráðgjafar skólans verða til viðtals innrit-
unardagana.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans,
www.kvenno.is eða í síma 580 7600.
Skólameistari.