Morgunblaðið - 08.06.2004, Side 49

Morgunblaðið - 08.06.2004, Side 49
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 49 MURRAY Street, síðasta hljóð- versplata Sonic Youth (’02) er fram- úrskarandi verk, fullkomin sam- þætting á tilraunahlið sveitarinnar og þeirri hlið sem snýr að grípandi nýbylgjurokki. Sonic Nurse fylgir svipaðri línu og er svipuð að gæðum. Á mannamáli: þetta er frábær plata! Það má segja að Sonic Youth hafi orðið Sonic Youth á nýjan leik með því að bæta við sig meðlimi. Sá heitir Jim O’Rourke, tilraunadýr af lífi og sál og síðustu plötur hans hafa verið mikil snilldarverk (Eureka, Insign- ificance og I’m Happy, and I’m Sing- ing, and a 1,2,3,4). Hann hefur verið fastur meðlimur í sveitinni frá og með Murray Street. Um miðjan tí- unda áratuginn lenti sveitin nánast í sköpunarlegu gjaldþroti en er við hestaheilsu í dag og virðist O’Rourke hafa komið öðrum þræði inn í sveit- ina sem hressandi vítamínpilla. Það mun ekkert koma þér á óvart hérna, þótt þú sért ekki nema slark- fær í tónmáli Sonic Youth. Það er nánast hægt að kalla það tvöfeldni að sveit, sem hefur byggt feril sinn á því að vera tilraunakennd, sé ekki tilraunakenndari en svo, að hver nóta og hvert ískur hljómar harla kunnuglega. Þetta varnar því að þessi frábæra plata landi ekki fullu húsi í einkunn, því að tímamót eru þetta alls ekki (nokkuð sem maður býst alltaf hálfpartinn við frá Thurston og félögum. Þvílík pressa!). En svona ætla ég nú ekki að ljúka dómnum. Þetta eru í raun vangavelt- ur sem standa utan við plötuna sem slíka. Höfum það nefnilega alveg á hreinu að Sonic Youth eru ekki að endurtaka sig né endurvinna á Sonic Nurse. Það er nú það merkilega við þetta allt saman. Öllu heldur er verið að vinna á skapandi hátt, nokkuð glæsilega, úr þeim einstaka efnivið sem meðlimir hafa skapað í gegnum tíðina, þessum einstaka hljóm sem er þeirra og engra annarra. Allt í allt frábær plata frá einni merkustu rokksveit sögunnar. Tónlist Sonic gott Sonic Youth Sonic Nurse  Gæðastjórnunin hjá New York- draugunum er svo gott sem pottþétt um þessar mundir. Arnar Eggert Thoroddsen vin Kline, Christopher Plummer og Frank Langella. Verkið sem fjallar um austur-þýskan kynskipting var valið besta dramað en í því leikur Mays 40 mismunandi hlutverk. Mótleikkona Rashad Audra McDonald var valin besta auka- leikkonan og þriðja svarta leik- konan sem vann til verðlauna í ár, Anika Noni Rose, var valin besta aukaleikkonan fyrir söngleikinn Carlonie or Change. „Á þessu leikári hafa afrísk- amerískar konur fengið alvöru tæki- færi til að láta ljós sitt skína, trúlega betur en nokkru sinni fyrr,“ sagði McDonald er hún tók við verðlaun- um sínum. Idina Menzel var valin besta leik- konan í söngleik fyrir Broadway hit Wicked. Avenue Q var valinn besti söngleikurinn en þessi brúðuleiksýn- ing að hluta fékk einnig verðlaun fyrir tónlistina. PHYLICIA Rashad, sem kunnust eru fyrir að hafa leikið húsmóðurina og lögfræðinginn Clair Huxtable í gamanþáttunum um Cosby- fjölskylduna, komst í sögubækurnar um helgina þegar hún varð fyrsta svarta konan til að vera valin besta leikkonan í dramahlutverki á Tony- leikhúsverðlaununum bandarísku. Rashad fékk verðlaunin fyrir frammistöðu sína í verkinu A Rausin in the Sun. Kynnir kvöldsins, sviðs- og kvik- myndaleikarinn ástralski Hugh Jackman, var valinn besti leikarinn í söngleik, fyrir frammistöðu sína í söngleiknum The Boy From Oz. Jackman var orðinn einn virtasti leikarinn á Broadway þegar hann fór að láta til sín taka í kvikmyndum, í myndum á borð við X-mennin og Van Helsing. Besti leikarinn í dramaverki var valinn Jefferson Mays fyrir leik sinn í I Am My Own Wife. Hann sló þar við nafntogaðri leikurum á við Ke- Cosby-leikkonan í sögubækurnar Hugh Jackman söng og dansaði á hátíðinni ásamt Sarah Jessica Parker. Svartar leikkonur sigursælar á Tony-verðlaunaafhendingunni Reuters Phylicia Rashad þekkja flestir sem eiginkonu fæðingalæknisins Cliffs Huxtable úr Cosby-fjölskyldunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.