Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 9
FEÐGARNIR Bragi Kristjónsson
og Ari Gísli Bragason afhentu
veglega bókagjöf til þriggja at-
hvarfa Rauða kross Íslands fyrir
geðfatlaða í gærdag. Gestir og
starfsfólk athvarfanna Vinjar,
Dvalar og Lækjar munu njóta
þeirra ríflega 800 bóka sem af-
hentar voru í Bókavörðunni,
Klapparstíg 25–27.
Auk þessara þriggja athvarfa á
höfuðborgarsvæðinu rekur Rauði
kross Íslands Laut á Akureyri. Í
athvörfunum stendur gestum ým-
islegt til boða, til dæmis íþróttir,
myndlist og tónlist. Einnig er tefld
skák og farið í ferðalög. Nú geta
gestir sömuleiðis gluggað í mun
fleiri bækur en hingað til hafa
verið tiltækar.
Bókavarð-
an gaf
bókagjöf
Morgunblaðið/Eggert
Ari Gísli Bragason ásamt þeim Guðbjörgu Sveinsdóttur, Þórdísi Guðjóns-
dóttur og Sólrúnu Ingibergsdóttur frá Rauða krossi Íslands.
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, var
fulltrúi íslensku ríkisstjórnarinnar
á alþjóðlegri ráðstefnu í Bonn um
endurnýjanlegar orkulindir, sem
haldin var á dögunum. Ráðstefnan
var haldin í framhaldi af leiðtoga-
fundi Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun sem haldinn var í
Jóhannesarborg haustið 2002, en
þar kom fram brýn nauðsyn þess
að auka hlut endurnýjanlegra
orkulinda heims.
Ráðstefnuna í Bonn sóttu
fulltrúar um 150 þjóða og voru
þátttakendur alls um 2000.
Valgerður flutti ávarp á ráð-
stefnunni þar sem hún vakti at-
hygli á sérstöðu Íslands í orku-
málum, meðal þjóða heims, hvað
varðar hlutfall endurnýjanlegra
orkulinda. Þá ræddi hún um mik-
ilvægi jarðhitans sem endurnýjan-
legrar orkulindar. Taldi hún mik-
ilvægt að þróunaraðstoð Íslands
beindist í auknum mæli að því að
styrkja jarðhitaverkefni í fátækum
ríkjum, sem ættu kost á að nýta
jarðhita. Greindi hún frá því að
ríkisstjórnin hefði þegar samþykkt
að fela jarðhitaskóla SÞ að efna til
námskeiða í Austur-Afríku fyrir
jarðhitasérfræðinga í þessum ríkj-
um. Valgerður sagði einnig að rík-
isstjórn Íslands hefði ákveðið að á
árunum 2008–2009 verði þróunar-
aðstoð orðin þreföld að nafnverði á
við það sem hún er í dag.
Alþjóðleg ráð-
stefna í Bonn
um endurnýj-
anlega orku
mbl.is
VIÐSKIPTI
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Síðbuxur, kvartbuxur
og stuttbuxur
Sumarbolir í úrvali
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Bankastræti 14, sími 552 1555
30% afsláttur
af völdum peysum
föstudag og laugardag
Sumarjakkar
áður kr. 5.990
nú kr. 3.990
Kvartbuxur
kr. 2.990
Stærðir s-xxxl
Laugavegi 54, sími 552 5201
17. JÚNÍ-TILBOÐ Í FLASH
Silkifatnaður
Laugavegi 84, sími 551 0756
Norræna ráðherranefndin auglýsir eftir tillögum að námsefni til kennslu
í neytendafræðslu í grunn- eða framhaldsskólum. Námsefnið á að henta
til kennslu á öllum Norðurlöndunum og samsvara að lágmarki um 30
kennslustundum; kennsluáætlun þarf að fylgja með tillögu. Allir
Norðurlandabúar geta tekið þátt í samkeppninni, einstaklingar, hópar,
stofnanir, samtök, félög, útgáfufyrirtæki o.fl. Verðlaunafé nemur
100.000 dönskum krónum og fer verðlaunaafhending fram þegar þing
Norðurlandaráðs verður haldið í Reykjavík í október 2005.
Forsendur
Námsefnið á að falla að einhverju þeirra markmiða sem lýst er í
riti um neytendafræðslu, TemaNord 2000:595.
Sjá http://vefir.khi.is/ney.
Æskilegt er að námsefnið veki athygli á stöðu Norðurlanda og
styrk þeirra.
Tillögur geta verið á ýmsu formi eftir eðli verkefnisins, en ætlast
er til að þær séu á íslensku og dómnefnd sér um að þýða þá
tillögu sem tilnefnd verður af hálfu Íslands.
Ein tillaga tilnefnd
Dómnefnd í viðkomandi landi velur eina tillögu sem tilnefnd
er af hálfu þess lands.
Samnorræn dómnefnd metur tillögur allra landa og velur eina
til verðlauna.
Skilafrestur
Tillögum ber að skila í síðasta lagi 31. desember 2004, merktum:
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Norræn samkeppni - neytendafræðsla
Arnarhváli, 150 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef samkeppninnar,
http://vefir.khi.is/ney og hjá Þorláki H. Helgasyni, oddvita
samkeppninnar, thorlakur@khi.is.
Norræn samkeppni
Námsefni í neytendafræðslu
Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneyti
Ný sending af
innkaupatöskum á hjólum
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814, 551 7719.
10% staðgreiðslu-
afsláttur
fyrir eldri borgara
kr. 5.900
kr. 6.200
kr. 6.600