Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
ARTHUR Boga-
son, formaður
Landssambands
smábátaeigenda,
var kjörinn for-
maður Alþjóða-
samtaka strand-
veiðimanna og
fiskverkafólks
(World Forum of
Fish Harvesters
and Fishworkers,
WFF) á aðalfundi samtakanna sem
haldinn var í Lissabon í Portúgal. Um
150 aðilar frá 35 þjóðum sátu fundinn
en Landssamband smábátaeigenda
hefur frá stofnun WFF árið 1997 tek-
ið virkan þátt í starfinu og átt sæti í
stjórn frá upphafi. Fulltrúar LS í
Portúgal voru Arthur Bogason, Guð-
rún Pálsdóttir frá Flateyri og Odd-
björg Friðriksdóttir, skrifstofustjóri
LS.
Arthur var kjörinn formaður sam-
takanna ásamt Margaret Nakato frá
Uganda en samkvæmt reglum sam-
takanna gegna karl og kona for-
mennskunni samtímis.
Á vef LS kemur fram að hlutverk
WFF er að standa vörð um rétt
strandveiða og taka þátt á alþjóðleg-
um vettvangi í þeirri umræðu sem
fram fer um málefni hafsins og fisk-
veiða. Samtökin eiga nú þegar sæti
sem óháð félagasamtök hjá FAO á
COFI fundunum (Nefnd FAO um
fiskveiðar) ásamt undirnefnd hans.
„Eins og alkunna er, hafa málefni
hafsins orðið æ fleirum hugðarefni,
en því miður er margt af því sem
kemst í hámæli víðsfjarri raunveru-
leikanum. Fiskimenn, ekki síst
strandveiðimenn, eru í augum fjöl-
margra samtaka, sem m.a. kenna sig
við umhverfisvernd, helstu óvinir líf-
ríkis heimshafanna og hafa á stefnu-
skránni að stöðva fiskveiðar – hvers-
konar. Á þessu eru vitaskuld
ánægjulegar undantekningar, en eitt
af hlutverkum WFF er að vera þarna
á varðbergi. Þá er ekki síður nauð-
synlegt fyrir strandveiðimenn hvar-
vetna að hafa alþjóðlegan málsvara
varðandi fjölmarga aðra þætti tengda
fiskveiðunum. Má þar nefna sívax-
andi kröfur varðandi öryggismál, um-
hverfismerkingar, tækjabúnað og
mengunarmál,“ segir á vef LS.
Arthur kjörinn
formaður WFF
Arthur
Bogason
SÁ HUMAR sem veiðst hefur það
sem af er humarvertíðinni hefur ver-
ið óvenjusmár, að sögn Hermanns
Stefánssonar, framleiðslustjóra hjá
Skinney-Þinganesi á Hornafirði.
Hermann segir að þótt veiði hafi ver-
ið ágæt valdi smæð humarsins því að
hann sé mun verðminni en ella.
„Hlutfallslega getur verðmunur-
inn á stærsta og minnsta humrinum
verið fimmfaldur,“ segir Hermann.
Hann segir humarinn hafa verið
mun stærri undanfarin ár. Spurður
um ástæður þess hve smár humarinn
er, segist Hermann telja að árgang-
urinn í ár sé yngri og þar af leiðandi
smærri en þeir sem veitt hefur verið
úr undanfarin ár. „Það er búið að
veiða mest af eldri og stærri árgöng-
unum,“ segir Hermann.
Skinney-Þinganes hefur verið
með fjögur skip að veiðum á vertíð-
inni og hafa skipin einkum verið á
austursvæðinu, aðallega í Breiða-
merkurdýpi.
Hermann segir mest af humrinum
hafa farið á markað á Spáni og
stærstur hluti aflans sé seldur í heilu
lagi, þó alltaf sé eitthvað um að halar
séu seldir. Hann segir Skinney-
Þinganes stefna að því að fullnýta
humarvertíðina en hún hófst 15.
mars og stendur til 16. júlí.
Róleg vertíð
Sigurður Ólafsson, skipstjóri á
samnefndum bát, tekur í sama
streng og Hermann og segir hum-
arveiðina hafa verið mjög rólega
hingað til, með smáum humri og lít-
illi veiði. Hann segist selja mest af
heilum humri, yfirleitt til Bestfisks,
sem er vinnslustöð á Hornafirði en
lítill hluti fer alltaf á fiskmarkaði.
Sigurður segist mest hafa verið að
veiðum á Hornafjarðardýpi og Lón-
dýpi en undanfarna daga hefur hann
verið í Breiðamerkurdýpi. Hann
reiknar með að veiða út vertíðina,
svo framarlega sem kvótinn klárist
ekki. „Við sjáum fram á þetta verði
rólegt það sem eftir er vertíðar,“
segir Sigurður.
Mjög róleg humarvertíð það sem af er
Lítil veiði og smár humar
Allt að fimmfaldur verðmunur á stórum og smáum humri
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Vertíð Humarinn hefur verið smár í vor og rólegt er yfir veiðunum.
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● TVEIR nýir stjórnarmenn voru kjörn-
ir í stjórn Flugleiða á hluthafafundi fé-
lagsins í gær. Þetta eru þeir Gylfi Óm-
ar Héðinsson, múrarameistari og
annar eigandi BYGG, byggingafélags
Gunnars og Gylfa, og Jón Þorsteinn
Jónsson hjá Saxhóli. Komu þeir inn í
stjórnina í stað Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar, forstjóra Baugs Group, og
Pálma Haraldssonar, framkvæmda-
stjóra Eignarhaldsfélagsins Fengs.
Baugur Group og Fengur seldu í
síðasta mánuði öll hlutabréf sín í
Flugleiðum, alls tæplega 27% hluta-
fjár, til óstofnaðs einkahlutafélags í
jafnri eigu BYGG og Saxhóls.
Skipt um tvo í
stjórn Flugleiða
● RÓBERT Melax, sem ásamt öðr-
um fjárfestum hefur samið við
Norðurljós hf. um kaup á Skífunni,
segir að Jón Ólafsson, fyrrverandi
aðaleigandi Norðurljósa, eigi for-
kaupsrétt að Skífunni eins og greint
var frá í Morgunblaðinu í fyrradag,
og það hafi legið ljóst fyrir er samið
var um kaupin. Sá forkaupsréttur
sé í gildi til 2. júlí næstkomandi.
„Við erum núna komnir vel á veg
með kostgæfnisathugun á fyrirtæk-
inu. Þetta er nokkuð flókinn rekstur
og mikið af erlendum samningum,
þannig að það hefur tekið tíma,“
segir Róbert. Hann segir að að því
gefnu að forkaupsréttar verði ekki
neytt, geri hann ráð fyrir að taka við
fyrirtækinu 2. júlí.
Róbert segir að hann fari fyrir
hópi fjárfesta, en vill ekki gefa upp
hverjir aðrir fjárfestar í hópnum
séu, það sé raunar ekki að öllu
leyti ljóst hverjir verði í hópnum.
Forkaupsréttur á
Skífunni til 2. júlí
● SEÐLABANKI Englands hækkaði
stýrivexti sína um 0,25% í gær. Eru
stýrivextirnir nú 4,5%. Í síðasta mán-
uði hækkaði bankinn stýrivextina
einnig um 0,25% en þeir hafa verið
hækkaðir alls fjórum sinnum á síð-
astliðnum sjö mánuðum.
Stýrivextir í Bretlandi
hækka um 0,25%
VÍSITALA neysluverðs fyrir júnímánuð, sem Hag-
stofan birti í gær, hækkaði um 0,77% frá síðasta
mánuði. Er það svipuð hækkun og mánuðinn þar á
undan og á það sammerkt með henni að þær voru
báðar umfram spár greiningaraðila á markaði.
Það sem helst veldur hækkun vísitölunnar nú eru
verðhækkanir á húsnæði og bensíni, en samanlagt
skýra þessir tveir liðir um ¾ hækkunarinnar.
Ársverðbólga mælist nú 3,9%, en var 3,2% í maí,
og er nálægt því að fara upp fyrir efri þolmörk
Seðlabanka Íslands, sem eru 4% verðbólga á ári.
Seðlabankinn hefur í tvígang hækkað stýrivexti
sína á einum mánuði og eru þeir nú 5,75%.
Sérfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við sögð-
ust búast við frekari hækkunum stýrivaxta, jafnvel
á næstu dögum, og sögðu slíka vaxtahækkun þegar
reiknaða inn í markaðina. Greiningardeild Íslands-
banka reiknar með því að stýrivextirnir verði komn-
ir upp í 7,5% um mitt næsta ár.
Í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka segir að
þótt hugsanlegt sé að verðbólga fari yfir 4% á næstu
mánuðum sé líklegt að um hæsta gildi á árinu sé að
ræða. Gengi krónunar hafi undanfarið verið að
hækka og bensínverð á heimsmarkaði verið að
lækka. Þá telur greiningardeildin ólíklegt að sömu
hækkanir húsnæðisverðs verði næstu mánuði.
Greining Íslandsbanka vekur jafnframt á því at-
hygli að verðbólgan hafi, það sem af er árinu, að
stórum hluta étið upp þær almennu kjarasamnings-
bundnu hækkanir sem samið var um að launafólk
fengi á þessu ári. Frá áramótum hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 2,5% en hinar almennu
kjarasamningsbundnu hækkanir hafa verið um
3,25%. Sé tillit tekið til töfluhækkana, slysatrygginga
og annarra þátta megi gera ráð fyrir að kjarasamn-
ingsbundnar hækkanir hafi verið um 4–4,5% í ár. Ís-
landsbanki segir, að eftir standi samt að verðbólgan
hafi tekið talsvert af þessum hækkunum til sín og
þannig slegið á kaupmátt launa.
Ekki raunveruleg verðbólga?
Í hálffimmfréttum KB banka í gær kveður við ann-
an tón. Segir þar að hefði verðstöðugleiki ríkt á fast-
eigna- og eldsneytismörkuðum hefði ársverðbólga að-
eins verið 1,2%. Þetta þýði að verðbólgan sé enn mjög
afmörkuð, í raun svo afmörkuð að velta megi fyrir sér
hvort verðhækkanir á þessum tveim vörutegundum
séu nógu almennar til að geta talist raunveruleg verð-
bólga. Þrátt fyrir þetta varar KB banki við því að
hættan sé samt sem áður raunveruleg. Hætta sé á að
verðbólguvæntingar hliðrist upp á við og ýmsar aðrar
hækkanir velti út í verðlagið. Fyrirtækjum landsins
sé mun hægara að hækka verð á sínum eigin vörum ef
allt annað virðist vera að hækka á sama tíma. Þá sé
hætta á því að hækkun vísitölu muni hækka launa-
kröfur og jafnvel virkja uppsagnarákvæði kjara-
samninga.
Verðbólgan nálgast þolmörk
Morgunblaðið/ÞÖK
Mest áhrif Verðhækkanir á húsnæði og bensíni
eiga mestan þátt í hækkun vísitölu neysluverðs.
HREINN Loftsson, stjórnarformað-
ur Baugs Group, segir Fjárfar ehf.
alls óviðkomandi Baugi og hvorugt fé-
lagið sé hluthafi í hinu. Hreinn segir
fráleitt að halda því fram að Baugur
hafi misnotað nafn Sævars Jónssonar
og segir að Baugur hefði heldur enga
þörf haft fyrir það.
Sævar Jónsson, kaupmaður í Leon-
ard, hefur, eins og skýrt var frá í
Morgunblaðinu í gær, sagt að nafn
sitt hafi verið misnotað af hálfu
Baugsmanna. Nafn sitt hafi komið
nálægt viðskiptum innan Baugs árum
saman án sinnar vitundar og að hann
hafi talið sig vera genginn úr stjórn
Fjárfars fyrir sex árum.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs Group, sagði í viðtali við Rík-
isútvarpið í gær, að því færi fjarri að
fjárfestingarfélagið Fjárfar hefði
gegnt lykilhlutverki í fjárfestingum á
sínum vegum. Félagið sé í umsjón
Gaums vegna skulda við Gaum.
Gaumur er stór hluthafi í Baugi.
Morgunblaðið náði ekki tali af Jóni
Ásgeiri og Jóhannes Jónsson, stjórn-
armaður í Fjárfari, vildi ekki tjá sig
um málið en vísaði á Hrein Loftsson.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hlutafélagaskrá var Fjárfar ehf.
stofnað 11. nóvember 1998. Hlutafé
var tvær milljónir króna og skiptist til
helminga á milli stofnendanna
tveggja, Sigfúsar R. Sigfússonar og
Sævars Jónssonar. Sigfús var eini
stjórnarmaður félagsins, og þar með
jafnframt stjórnarformaður, og Sæv-
ar sat í varastjórn. Samkvæmt sam-
þykktum Fjárfars skyldi stjórnin,
uns annað yrði ákveðið, skipuð einum
manni og öðrum til vara.
Í lok desember 1999 er Hluta-
félagaskrá send tilkynning þess efnis
að á hluthafafundi sem haldinn hafi
verið 29. þess mánaðar, hafi í stjórn
Fjárfars verið kjörnir Helgi Jóhann-
esson lögmaður og Sævar Jónsson.
Helgi er sagður stjórnarformaður en
Sævar meðstjórnandi. Vegna ákvæða
í samþykktum um skipan stjórnar er
Sævar engu að síður skráður vara-
maður í stjórn hjá Hlutafélagaskrá. Í
tilkynningunni er sagt frá því að
heimilisfang Fjárfars hafi verið flutt í
Lágmúla 7, þar sem lögmannsstofa
Helga hafði starfsemi.
20. mars árið 2000 er tilkynnt um
að prókúruumboð Sigfúsar og Sæv-
ars hafi verið fellt niður, en Helga hafi
verið veitt prókúruumboðið.
Tæpum tveimur árum síðar, í byrj-
un mars 2002, fær Hlutafélagaskrá
tilkynningu um að Helgi hafi sagt sig
úr stjórn Fjárfars og að prókúruum-
boð hans hafi fallið niður. Mánuði síð-
ar, 5. apríl 2002, var, samkvæmt til-
kynningu til Hlutafélagaskrár,
haldinn hluthafafundur í Fjárfari, þar
sem Jóhannes Jónsson, kenndur við
Bónus, var kjörinn aðalmaður í stjórn
með prókúruumboð. Í tilkynningunni
er að öðru leyti ekkert getið um skip-
an stjórnar eða varastjórnar.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
frá Hlutafélagaskrá er Jóhannes
Jónsson stjórnarmaður og prókúru-
hafi Fjárfars og Sævar Jónsson vara-
maður í stjórn.
Helgi Jóhannesson vildi ekkert tjá
sig um aðild sína að Fjárfari í samtali
við Morgunblaðið í gær. Hann stað-
festi hins vegar að hann væri „hættur
sem skipaður verjandi Jóns Ásgeirs í
Baugsmálinu. Um ástæður þess er ég
bundinn trúnaði gagnvart skjólstæð-
ingi mínum,“ sagði hann.
Fjárfar í miðju átaka
Fjárfar hefur komið að ýmsum
fjárfestingum í gegnum tíðina. Í apríl
1999 tók félagið þátt í að kaupa 35%
hlut í 10–11 verslununum. Eigendur
Fjárfars á þeim tíma, samkvæmt
upplýsingum frá Íslandsbanka þá,
voru Eiríkur Sigurðsson og Helga
Gísladóttir, stofnendur 10–11, Árni
Samúelsson, eigandi Sam-bíóanna, og
Sævar Jónsson, og áttu allir nokkurn
veginn jafnan hlut. Mánuði síðar
keypti Baugur 10–11 og greiddi að
hluta til með hlutafé. Í árslok 1999 átti
Fjárfar 6,2% hlutafjár í Baugi. Eins
og fram kemur hér að ofan á Fjárfar
ekki hlut í Baugi nú að sögn forstjóra
Baugs.
Fjárfar kom einnig mikið við sögu í
átökum í viðskiptalífinu sem urðu um
eignarhald á Íslandsbanka, Straumi
og Tryggingamiðstöðinni á árunum
2001 og 2002. Í fréttum sem tengdust
hluta þessara viðskipta kom fram að
félagið væri í eigu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, Jóhannesar Jónssonar,
Sævars Jónssonar og fleiri fjárfesta.
Neita tengslum við Fjárfar
Hreinn Loftsson segir fráleitt að Baugur hafi misnotað nafn Sævars Jónssonar
Jóhannes
Jónsson
Sævar
Jónsson