Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 21
Seltjarnarnes | Krakkar og kenn-
arar í Mýrarhúsaskóla héldu
markaðsdag á mánudag þar sem
þau héldu tombólu, seldu myndir
eftir yngstu nemendurna, héldu
tónleika, seldu kökur og fleira.
Markmiðið með markaðs-
deginum var að safna fé fyrir vin-
askólann Namazizi Lea í þorpinu
Chirombo í Malví, og söfnuðust
rúmar 135 þúsund krónur. Pen-
ingarnir sem söfnuðust, ásamt við-
bót frá Þróunarsamvinnustofnun
Íslands, fara í að kaupa hand-
bækur, landakort og bolta sem
mun nýtast skólabörnum í Malaví
vel.
Namazizi Lea skólinn var
byggður árið 2000 af Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands og komust
það sama ár á tengsl milli skólans
og Mýrarhúsaskóla. Börn á Sel-
tjarnarnesi hafa síðan í tvígang
safnað skóladóti og öðru sem nýta
má við skólastarf og sent til
Malaví. Á móti hafa malavískir
nemendur sent Mýrarhúsaskóla
afrískt handverk, t.d. skartgripi
og útskurð, ásamt bréfum og
teikningum.
Handagangur í öskjunni: Það var mikið um að vera þegar krakkarnir í Mýrarhúsaskóla héldu markaðsdag.
Senda krökkum í vinaskólan-
um í Malaví bækur og bolta
Námskeið í Hellisgerði | Hellis-
gerði í Hafnarfirði mun iða af lífi í
sumar þegar listasmiðja barna
verður starfrækt í garðinum. Alls
verða haldin þrjú námskeið, og
hefst það fyrsta 14. júní. Þema
námskeiðana verða þrjú mismun-
andi barnaleikrit, Dýrin í Hálsa-
skógi, Ronja ræningjadóttir og
Hrói höttur. Þar munu börnin
syngja, dansa og leika við hvern
sinn fingur, sér og öðrum til
skemmtunar.
Lífrænn markaður | Árbæj-
arsafn stendur fyrir grænmet-
ismarkaði í safninu í dag milli kl.
13 og 17. Selt verður lífrænt rækt-
að grænmeti frá Akri og Engi í
Laugarási, þar á meðal tómatar,
gúrkur, kirsuberjatómarar, papr-
ikur, spínat og ýmis konar salat.
Ókeypis aðgangur er að safninu
eftir hádegi á föstudögum.
Miðborgin | Borgarverkfræðingur
mun setja upp nýjan gosbrunn í
Reykjavíkurtjörn í sumar, en tillaga
borgarstjóra þess efnis var sam-
þykkt í borgarráði í vikunni.
Björn Ingi Sveinsson borgarverk-
fræðingur segir að nú verði farið í að
útfæra nákvæmlega hvers konar
gosbrunnur verði settur í stað Gosa
gamla sem tekinn var niður á síðasta
ári.
Ekki er ljóst nákvæmlega hvenær
nýr brunnur verður tekinn í notkun,
en Björn segir að það verði vænt-
anlega einhvern tímann í sumar.
Björn segir að til greina komi að
setja gosbrunn með breytilegri
bunu, eða brunn svipaðan Gosa
nema lægri og breiðari, enda þurfti
reglulega að slökkva á Gosa þegar
vindur feykti úða yfir gesti Hljóm-
skálagarðsins.
Kostnaður við að koma upp gos-
brunni fer eftir því hvers konar
brunnur verður keyptur. Í umsögn
Garðyrkjustjóra um málið kemur
fram að tvær tegundir af gosbrunn-
um komi til greina, og á báðum teg-
undum sé hægt að velja mismunandi
hæð og lögun á gosinu. Kostar sú
minni á bilinu 400 til 500 þúsund
krónur, en sú stærri á bilinu 1,3 til
1,6 milljónir króna, miðað við inn-
kaup frá Noregi án virðisaukaskatts.
Gosbrunnur í
Tjörnina í sumar
Reykjavík | Waldorfgrunnskólinn
og leikskólar Sólstafa í Reykjavík
fögnuðu 10 ára afmæli sínu þann 6.
júní síðastliðinn. Allir nemendur
Sólstafa tóku þátt í leikuppfærslum
og söng og voru sýnd fjögur leik-
verk við góðar undirtektir. Sýning-
arnar voru litskrúðugar og
skemmtilegar og veðurguðirnir
héldu sig til hlés með rigningu þar
til dagskrá var lokið. Innritun nýrra
nemenda stendur yfir í þessari viku
og næstu og tekur Waldorfskólinn
nýjum nemendum fagnandi enda
vaxandi.
Afmælishátíð Waldorfskólans debenhams
S M Á R A L I N D
Pólóbolir
Verð 1.490 kr. - 3.990kr.
Mikið úrval!
E-kortshafar fá 2,5% endurgreiðslu
af því sem keypt er í Debenhams.