Morgunblaðið - 11.06.2004, Side 24
SUÐURNES
24 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Söluaðilar Sími
Vesturland / Vestfirðir
Hjólbarðaviðgerðin Akranesi 431 1777
Bifreiðaþjónustan Borgarnesi 437 1192
Dekk og Smur Stykkishólmi 438 1385
KM þjónustan Búðardal 434 1611
Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar 456 3501
Vélaverkstæði Sveins Borðeyri 451 1145
Norðurland
Kaupfélag V. Húnvetninga 451 2370
Léttitækni Blönduósi 452 4442
Pardus Hofsósi 453 7380
Hjólbarðaþjónusta Óskars Sauðárkróki 453 6474
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki 455 4570
Bílaþjónustan Dalvík 466 1062
B.H.S. Árskógsströnd 466 1810
Bílaþjónustan Húsavík 464 1122
Austurland
Dagsverk Egilsstöðum 471 1118
Réttingaverkstæði Sveins Neskaupsstað 477 1169
Sigursteinn Melsteð Breiðdalsvík 475 6616
Vélsmiðja Hornafjarðar Höfn 478 1340
Suðurland
Bifreiðaverkstæði Gunnars Klaustri 487 4630
Framrás Vík 487 1330
Þ.G.B. Hvolsvelli 487 8114
Varahlutaverslun Björns Hellu 487 5995
Bílaþjónustan Hellu 487 5353
Vélaverkst. Guðmundar & Lofts Iðu 486 8840
Gunnar Vilmundars. Laugarvatni 486 1250
Sólning Selfossi 482 2722
Hjólbarðaþjónusta Magnúsar Selfossi 482 2151
Bílaverkstæði Jóhanns Hveragerði 483 4299
Höfuðborgarsvæðið
Bæjardekk Mosfellsbæ 566 8188
Höfðadekk Reykjavík 587 5810
Gúmmívinnustofan Reykjavík 587 5588
Ísdekk Reykjavík 587 9000
Allar stærðir og gerðir
landbúnaðarhjólbarða
ÁSHOLT 2 – LYFTUHÚS
Falleg 2ja herbergja íbúð á 6. hæð
í eftirsóttu lyftuhúsi miðsvæðis í
borginni auk stæðis í bílgeymslu.
Suðursvalir og fallegt útsýni. Sér-
lega skemmtilegur aflokaður sam-
eiginlegur garður. Gott hús og ein-
staklega falleg og snyrtileg sam-
eign með 1. flokks húsvörslu.
Hentar vel einstaklingum og eldri
borgurum. Hentar einnig sérlega
vel sem orlofsíbúð í borginni. Laus
fljótlega. Frekari upplýsingar gefa
sölumenn í síma 530 1500 en
einnig má sjá 23 myndir á
www.husakaup.is. Verð 10,9 millj.
Keflavík | „Það er aðalsmerki þess-
arar gleðisveitar að gera meira grín
að okkur sjálfum heldur en öðrum og
við höfum aldrei samið alvarleg lag.
Grínið og léttleikinn virðist hafa fall-
ið fólki vel í geð. Við kvörtum að
minnsta kosti ekki,“ sögðu meðlimir
gleðisveitarinnar Breiðbandsins þeg-
ar blaðamaður truflaði þá á æfingu í
vikunni. Þeir sögðust reyndar vera
með alvarlegra móti þetta kvöldið,
þar sem þeir væru enn að ná sér nið-
ur eftir velgengni helgarinnar, þegar
þeir héldu upptökutónleika í Frum-
leikhúsinu í Keflavík. Þeir stefna á
útgáfu plötu fyrir næstu Versl-
unarmannahelgi, enda staðráðnir í
að eiga vinsælasta smellinn þá
helgina!
Breiðbandið samanstendur af
þremur breiðvöxnum Keflvíkingum,
þeim Magnúsi Sigurðssyni, Rúnari
Inga Hannah og Ómari Ólafssyni.
Þeir hafa allir þekkst frá barnæsku,
gengu í sama barnaskóla og hafa
brallað ýmislegt saman. Þeir höfðu
ennfremur starfað saman tveir og
tveir, ýmist við skemmtanir, leik eða
söng. En það má kannski segja að
það sé Ómari að þakka að þeir þrír
smullu saman. „Ég heyrði í Magga
og Rúnari skemmta á herrakvöldi
hjá körfuknattleiksdeild Keflavíkur
og fannst þeir glataðir. Það vantaði
mig í þetta band og ég stakk upp á
því að við yrðum þrír saman,“ sagði
Ómar með sínu háðska glotti og þeir
viðurkenna allir að húmor þeirra
liggi einstaklega vel saman. Það
stendur ekki á viðbót frá Rúnari.
„Þeir segja hér að það komi stór-
hljómsveit fram á sjónarsviðið hér í
Keflavík á 40 ára fresti. Okkar tími
er kominn,“ og Rúnar er að vísa hér í
40 ára afmæli Hljóma í fyrra en það
ár var Breiðbandið stofnað. „Annars
var það eiginlega brúðkaup sem kom
þessu öllu af stað, brúðkaup Palla og
Pöllu,“ upplýsir Rúnar. „Samstarfs-
kona mín bað mig um að halda ræðu í
brúðkaupi systur sinnar og ég stakk
upp á því að Breiðbandið myndi
flytja hana í lögum, sem var sam-
þykkt. Atriðið kom á óvart og í fram-
haldi fór boltinn að rúlla. Ég skil
bara ekkert í því af hverju fjölmiðlar
hafa látið okkur í friði fram að
þessu.“
Sambland af
uppistandi og söng
Upphaflega höfðu félagarnir ætlað
að gefa út söngbók enda allir lunknir
texta- og lagasmiðir. Vinnan tók hins
vegar nýja stefnu í kjölfar vaxandi
vinsælda, fólk vildi heldur heyra þá
flytja lögin. Að undanförnu hefur
verið pressað stíft á þá að gefa út
plötu og nú er plata í vinnslu hjá
Geimsteini. „Við ákváðum að taka
plötuna upp á tónleikum enda næst
stemmningin best þannig. Tónleikar
okkar eru alltaf sambland af uppi-
standi og spilun, þar sem ég sé um að
tala og segja brandara,“ sagði Rúnar
og það verður að segjast eins og er
að hann var líka atkvæðamestur í
viðtalinu. Málgleðin er greinilega
hans list en allir skapa þeir þó í sam-
einingu þann létta anda sem svífur
yfir vötnunum. „Við vinnum allt sam-
an,“ sagði Ómar. „Á æfingu kemur
einhver með línu, í framhaldi verður
til lag og þannig koll af kolli hrærum
við saman góðan kokkteil. Og það er
mikið hlegið. Þú ert ekki að fá réttu
myndina af núna, við erum með al-
varlegasta móti í kvöldi, enda enn að
ná okkur niður eftir helgina.“
Síðasti vetur var annasamur hjá
Breiðbandinu, tónleikar þeirra voru
hátt í 40 og tímabilið var frjótt. Þeir
upplýstu að að jafnaði hefði orðið til
eitt lag á æfingu en sveitin kemur
saman í bílskúr skáhallt við Geim-
stein einu sinni í viku. Nágrönnunum
dettur ekki í hug að kvarta, enda ein-
göngu ljúfir tónar sem berast úr
skúrnum, frá banjói, gítar og þremur
börkum. Og þrátt fyrir sumarkom-
una ætla þeir ekki að slá slöku við,
því auk vinnunnar við plötuna, sem
er þó að mestu í höndum tækni-
manna Geimsteins, segjast þeir
verða að semja ný lög fyrir næsta
vetur, enda eigi þeir ekki vona á að
vinsældirnar minnki.
Breiðbandið vinnur að plötu vegna mikils þrýstings að sögn meðlima
Aldrei samið alvarlegt lag
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Breiðbandið: „Enginn virðist þola, er ég fer úr að ofan,“ syngja félagarnir íturvöxnu í Breiðbandinu, þeir Magnús
Sigurðsson, Rúnar Ingi Hannah og Ómar Ólafsson. Þeir eru að undirbúa útgáfu á plötu og æfa vel þessa dagana.
Reykjanesbær | Bæjarráð
Reykjanesbæjar samþykkti
samhljóða í gær tillögu for-
manns bæjarráðs um að ráða
Guðmundu Láru Guðmunds-
dóttur í stöðu skólastjóra Njarð-
víkurskóla. Tíu umsóknir bárust
þegar staðan var auglýst laus til
umsóknar. Guðmunda Lára tek-
ur við starfinu í sumar af Gylfa
Guðmundssyni sem sagði stöð-
unni lausri í vor.
Um stöðuna sóttu, auk Guð-
mundu Láru, þau Anna Margrét
Ákadóttir, Árni Þorsteinsson,
Daði Viktor Ingimundarson,
Guðmundur Skúli Stefánsson,
Guðrún Snorradóttir, Helgi Jó-
hann Hauksson, Jakob Bragi
Hannesson, Sigríður Dúa
Goldsworthy og Sigrún Birna
Björnsdóttir.
Ráðin
skólastjóri
Njarðvík-
urskóla
Kjallararokk | Efnt verður til
rokktónleika í kjallara 88-hússins
við Hafnargötu í Reykjanesbæ
næstkomandi laugardag, klukkan
20. Hljómsveitirnar Ritz, Tuco og
Antífemínistar leika. Í tilkynningu
frá 88- húsinu kemur fram að þetta
er vímulaus skemmtun og er aldurs-
lágmark.
Léttsveit með tónleika | Léttsveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar held-
ur tónleika á Tjarnargötutorgi í
Keflavík í dag, föstudag, milli klukk-
an 15 og 17. Stjórnandi er Karen J.
Sturlaugsson.
Tónleikarnir verða á útisviði og eru
liður í Kaffihátíð í Reykjanesbæ sem
hefst í dag og stendur um helgina.
Þeir eru einnig haldnir í tilefni af tíu
ára afmæli Reykjanesbæjar sem er í
dag og eru í boði bæjarins.
Léttsveitin er á förum í tónleika-
ferð til Bandaríkjanna og Bermúda
og mun hún leika hluta af efnis-
skránni sem notuð verður í ferðinni.
Sandgerði | Starfsmenn Vélsmiðj-
unnar Hamars eru að rífa verk-
smiðjuhús fiskimjölsverksmiðjunnar
í Sandgerði sem hætti starfsemi fyr-
ir rúmu ári. Húsið sem er nýlegt
stálgrindarhús verður reist á ný fyr-
ir vélsmiðju á Eskifirði.
Lengi hefur verið rekin fiskimjöls-
verksmiðju að Garðvegi 5 í Sand-
gerði. Njörður hf. eignaðist verk-
smiðjuna fyrir nokkrum árum og hóf
endurbyggingu hennar. Síðar sam-
einaðist fyrirtækið Snæfelli hf. í
Eyjafirði og síðast eignaðist Síldar-
vinnslan hf. í Neskaupstað verk-
smiðjuna. Síldarvinnslan lagði loka-
hönd á endurbygginguna en síðan
var verksmiðjunni lokað. Tækin voru
tekin niður og flutt á ýmsa staði á
landinu.
Elsti hluti verksmiðjuhússins
verður væntanlega rifinn og lýsis- og
olíutantar verða fjarlægðir. Þá munu
standa eftir mjölgeymsluhús og
þrær. Að sögn Davíðs Þórs Sigur-
bjarnasonar, eins af eigendum Ham-
ars fjárfestinga hf. sem á verk-
smiðjuhúsin, hefur ekki verið
ákveðið hvaða starfsemi verður í
þeim húsum sem eftir standa. Verið
er að kanna ýmsa möguleika á nýt-
ingu þeirra.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Hverfur: Verið er að rífa klæðninguna utan af verksmiðjuhúsinu.
Húsið rifið og flutt
austur á land
Sandgerði | Lögreglan og varn-
arliðið hafa óskað liðsinnis for-
eldra og forráðamanna barna og
unglinga til að koma í veg fyrir
óleyfilega umferð í Rockville-rat-
sjárstöðinni á Miðnesheiði. Kem-
ur þetta fram á vef Víkurfrétta.
Í fréttatilkynningu frá lögregl-
unni á Keflavíkurflugvelli kemur
fram að framtíð gömlu ratsjár-
stöðvarinnar Rockville við Sand-
gerði er óráðin. Stöðin er á at-
hafnasvæði varnarliðsins og
stendur auð, en afgirt. Aðgangur
að svæðinu og mannvirkjum á
því er óheimill enda ýmsar hætt-
ur sem leynast kunna í bygg-
ingum þar sem mikil skemmd-
arverk hafa þegar verið unnin.
Nokkuð hefur borið á óleyfilegri
umferð einkum barna og ung-
linga á svæðinu. Varnarliðið og
lögreglan á Keflavíkurflugvelli
halda uppi eftirliti svo sem kost-
ur er og hafa haft afskipti af
fólki á svæðinu. Þrátt fyrir það
hafa starfsmenn varnarliðsins
ítrekað orðið að endurnýja lása
og girðingar og negla fyrir dyr
og glugga og þá helst þar sem
börn og unglingar kynnu að geta
farið sér að voða.
Börn og unglingar
fari ekki í Rockville