Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 28
LISTIR
28 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í TÍÐ fyrrverandi söngmálastjóra
þjóðkirkjunnar, Hauks Guðlaugs-
sonar, sem lét af störfum 2001, voru
haldin um 25 kóra- og organist-
anámskeið í Skálholti. Námskeiðin
voru ævinlega
mjög fjölsótt,
bæði af org-
anistum og kór-
fólki víðsvegar að
af landinu.
Nú, eftir
þriggja ára hlé,
tekur Haukur
upp þráðinn aftur.
Orgelþáttur nám-
skeiðsins verður
frá mánudeginum
9. ágúst nk. til 12. ágúst, en kórþátt-
urinn verður frá 12.–15. ágúst. Kór-
þátturinn endar með messu í Skál-
holtsdómkirkju, sunnudaginn 15.
ágúst. Einnig verður samkoma í Ara-
tungu í tengslum við námskeiðið
föstudaginn 13. ágúst.
Námskeiðið skiptist í orgelkennslu,
kórstjórn og þátt píanóleiksins í sam-
bandi við leik á orgel. Kennslan verð-
ur bæði í hóptímum og einkatímum.
Kennarar verða nokkrir þeir sömu og
fyrr á árum. Í orgelþættinum verða
m.a. kynntar nýjar aðferðir í org-
elleik og einnig í pedalspili.
Umsóknareyðublöð, sem hafa ver-
ið send organistum og prestum, send-
ist útfyllt til Hauks Guðlaugssonar
fyrir 25. júní nk., en einnig gefur
hann nánari upplýsingar í síma 552
5715.
Kóra- og organistanámskeið
hjá Hauki Guðlaugssyni
Morgunblaðið/Jim SmartHaukur
Guðlaugsson
SUMARSÝNING verður opnuð í
bóksal Þjóðmenningarhúss kl. 17 í
dag. Yfirskrift hennar er „Eddu-
kvæði“.
Á sýningunni verða fjölbreyttar
útgáfur af Eddukvæðunum en árið
1665 voru Völuspá og Hávamál fyrst
prentuð með útgáfu Snorra-Eddu í
Kaupmannahöfn. Fyrsta heildarút-
gáfa Eddukvæða kom út á árunum
1787–1828. Síðan hafa komið út
margar útgáfur á fjölda tungumála
og listamenn, fræðimenn og annað
áhugafólk sótt í kvæðin innblástur
og fróðleik.
Höfuðhandrit Eddukvæða er Kon-
ungsbók (Codex Regius) frá síðari
hluta 13. aldar sem nú er á sýningu
Stofnunar Árna Magnússonar á Ís-
landi, Handritin í Þjóðmenningar-
húsinu.
Við opnunina verður flutt stutt
ávarp og nokkur kvæðanna lesin
upp.
Sýningin „Eddukvæði“ stendur út
ágústmánuð.
Mynd eftir Jóhann Briem úr ritinu
Þrjú Eddukvæði.
Eddukvæði í Þjóð-
menningarhúsi
TÓNFÉLAGSFRÆÐILEG
könnun á sprengfjölgun kvenna-
kóra um þúsaldamótin gæti trúlega
sýnt fram á nýtilkomna yfirburða-
stöðu greinarinnar í íslenzkri sam-
kynja kórmennt gagnvart hnign-
andi veldi karlakóra, sem muna má
fífil sinn fegri. Væri vissulega fróð-
legt að rekja orsakir þessa og
kringumstæður. Í millitíðinni er
ástæða til að fagna hinni kær-
komnu viðbót við kóraflóru lands-
ins – og ekki sízt meðfylgjandi fjöl-
breytni í verkefnavali sem veitti
sannarlega ekki af, miðað við löngu
trénað lagaval flestra karlakóra.
Að uppgangur kvennakóra hafi
skert hag blandaðra kóra er hins
vegar ósennilegt, enda þjást þeir
einkum af krónískri karlaeklu eins
og dæmin sanna.
Kvennakór Garðabæjar verður
fimm ára í ár og hélt veglega vor-
tónleika fjarri heimahögum í hinni
velhljómandi Seltjarnarneskirkju í
blíðskaparveðri á dögunum við fjöl-
menna aðsókn. Meðal atriða á fjöl-
breyttri dagskrá mætti nefna yf-
irskriftarlag tónleikanna Í nótt mig
dreymdi hamingjuna eftir Gunnar
Reyni Sveinsson og hið ekki síður
heillandi Aðeins eitt blóm eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur. Krummi
Tryggva Baldvinssonar naut sín og
vel, þó tæplega eins vel og í ein-
söngsfrumútgáfunni. Spinna minni,
rammheiðið og seiðandi lag Mistar
Þorkelsdóttur, var í senn fram-
sæknast og þjóðlegast í íslenzku
deildinni og frábærlega flutt. Síðan
tóku við þrjú ensk endurreisnar-
lög, sem halda enn ferskri tilhöfð-
un og tókust ágætlega. Hlutfalls-
lega slakast var þó annars fjörugt
lútusöngslag Dowlands What if I
never speed?, er sungið var frekar
kraftlaust, sveiflusneytt og allt of
hægt af kvartett kórkvenna. Elg-
ar-lögin tvö op. 26 við undirleik pí-
anós og fiðlna voru hins vegar
bráðfalleg og furðutær fyrir síð-
rómantískan tilurðartíma sinn.
Seinni hlutinn hófst með trúar-
söngvum; tveimur eftir Fauré og á
milli þeirra hinu kunna Til þín
Drottinn eftir Þorkel Sigurbjörns-
son í 5⁄4 er heppnaðist hvað bezt, þó
að hrífandi tenútósöngurinnn í Eitt
er orð Guðs op. 11 væri einnig eft-
irtektarverður. Af fjórum „Jónas-
arlögum“ Atla Heimis Sveinssonar
voru líflegust Heylóarvísa og Vor-
vísa og bætti meðleikur píanós,
klarínetts, fiðlna og kontrabassa
ekki litlum glansi við náttúruglað-
værðina, er síðan kórónaðist með
nýrri raddsetningu Atla á létt-
brahmskulegum smelli sínum Það
kom söngfugl að sunnan. Kórstjór-
inn söng sjálf eitt versið og minnti
þar með á hversu óþarflega langt
var síðan maður hafði heyrt í þeirri
ágætu söngkonu. Undirtektir voru
hlýjar og verðskuldaðar, enda
söngurinn nær ávallt tandurhreinn
(ef nokkuð „yfirskaut“ hann frekar
en að síga), og fallega mótaður í
hvívetna. Að ógleymdum lýtalitlum
undirleik píanistans og fyrrtaldra
hljóðfæraleikara var hljómur kórs-
ins óvenjuunglegur, og virtist sem
stendur helzt vanta aðeins meiri
fyllingu í dýpstu rödd.
Kvennakór Garðabæjar: Undirtektir voru hlýjar og verðskuldaðar, enda söngurinn nær ávallt tandurhreinn.
Æskutær
kvennakór
TÓNLIST
Seltjarnarneskirkja
Vortónleikar Kvennakórs Garðabæjar.
Helga Laufey Finnbogadóttir píanó, Sig-
urlaug Eðvaldsdóttir & Júlíana Elín Kjart-
ansdóttir fiðlur, Einar Jóhannesson klar-
ínett og Richard Korn kontrabassi.
Stjórnandi Ingibjörg Guðjónsdóttir.
KÓRTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
ÁRLEGIR Kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri verða haldnir
dagana 13., 14. og 15. ágúst í fjór-
tánda sinn í félagsheimilinu Kirkju-
hvoli. Þessi tónleikaröð hefur skipað
sér fastan sess í íslensku tónlistarlífi
yfir sumarmánuðina þar sem flutt
hefur verið síðan 1991 metnaðarfull
efnisskrá af tónlistarfólki innlendu
sem erlendu. Mismunandi efnisskrá
er á hverjum tónleikum og hafa tón-
listarunnendur komið og dvalið á
Kirkjubæjarklaustri þessa helgi.
Flytjendur í ár eru þau Sesselja
Kristjánsdóttir messósópran, Peter
Tomkins óbóleikari, Guðríður Sig-
urðardóttir píanóleikari, Pálína
Árnadóttir fiðluleikari, Þórunn Ósk
Marínósdóttir víóluleikari, Sigurgeir
Agnarsson sellóleikari og Edda Er-
lendsdóttir píanóleikari og listrænn
stjórnandi tónleikana. Það er menn-
ingarmálanefnd Skaftárhrepps og
Edda Erlendsdóttir sem skipu-
leggja þessa tónleika.
Þýsk og ensk kammertónlist
Í ár verður frönsk þýsk og ensk
kammertónlist áberandi og mun
Sesselja Kristjánsdóttir messósópr-
an m.a. syngja ljóð eftir frönsku tón-
skáldin Ravel og Pauline Viardot.
Hún mun einnig flytja ljóð eftir
Brahms fyrir messósópran, víólu og
píanó og ljóðaflokkinn A Charm of
Lullaby eftir Benjamin Britten. Pet-
er Tomkins óbóleikari mun ásamt
strengjaleikurunum flytja kvartetta
eftir Mozart og Britten. Hann mun
spila sónötu eftir Saint Saëns með
Guðríði Sigurðardóttur píanóleikara
og kvartett eftir tékkneska tón-
skáldið Martinu með Pálínu Árna-
dóttur fiðluleikara Sigurgeiri Agn-
arssyni sellóleikara og Eddu
Erlendsdóttur píanóleikara. Flutt
verður tríóið Þar eftir Olivier Kent-
ish og af stærri kammerverkum
verða flutt tríó fyrir víólu, selló og
píanó eftir Brahms þar sem Þórunn
Ósk Marínósdóttir leikur víólurödd-
ina sem upphaflega var samin fyrir
klarinett. Að lokum verður flutt eitt
glæsilegasta kammerverk tónbók-
menntana píanókvartett í Es dúr op.
47 eftir Schumann þar sem Edda
Erlendsdóttir leiðir píanóröddina.
Styrktaraðilar tónleikanna í ár
eru menntamálaráðuneytið, Menn-
ingarborgarsjóður, Hótel Kirkju-
bæjarklaustur, Rarik, KB bankinn
og VÍS.
Þýsk rómantík og
frönsk fágun
FRÆNKA Charleys er klassískt
viðfangsefni áhugaleikfélaga á Ís-
landi og er enn leikið um víða ver-
öld eins og einföld leit á Netinu gef-
ur til kynna. Verkið hefur heldur
verið á undanhaldi á efnisskránum
síðustu ár sem ekki er furða;
frænkan er klárlega barn síns tíma
og menningarheims, enda gengur
vandræðagangurinn í því út á þá
ósvinnu að tveir ungir menn bjóði
til sín stúlkum sem þeir hafa auga-
stað á, án þess að virðuleg eldri
kona sé til staðar sem siðgæðis-
vörður. Verkið er jafnframt nokkuð
of langdregið núna á öld óþolin-
mæðinnar, og ekki annað að sjá á
flutningi Leikfélags Hólmavíkur en
að það byggi nokkuð á stöðluðum
týpum úr enskri yfir- og miðstétt-
armenningu aldamótanna nítján
hundruð, sem fara fyrir ofan garð
og neðan á Ströndum norður núna
upp úr aldamótunum tvö þúsund.
Góðu fréttirnar eru á hinn bóg-
inn þær að það sem bitastæðast er í
verkinu af fyndni er sígrænt: nefni-
lega karlmaður sem neyðist til að
leika konu sem hinir karlarnir taka
þegar að girnast. Ungu mennirnir
narra sem sagt fremur grunnhygg-
inn eilífðarstúdent til að bregða sér
í gervi siðgæðisvarðarins, en missa
fljótlega tökin á atburðarásinni
sem brunar sína leið að nokkuð fyr-
irsjáanlegri röð trúlofana í lokin.
Leikfélag Hólmavíkur er óvenju-
öflugt félag miðað við stærð heima-
vallarins, og ferðaglatt með af-
brigðum. Mannekla háir þeim samt
og bróðurpartur leikhópsins að
þessu sinni er að stíga sín fyrstu
skref á sviði. Leikstjórinn er einnig
á byrjunarreit, öflugur leikari í fé-
laginu til margra ára en grípur
núna í annað verkefni og ferst það
um margt vel. Sýningin er nokkuð
fumlaus, umgjörð ágætlega leyst
og búningar óvenjutrúverðugir,
fyrir utan kúrekahatt annars von-
biðla frænkunnar sem tónaði einna
helst við fremur óviðeigandi
Bourbon-viskíflöskuna í vínskápn-
um.
Það sem einna helst háir Arnari í
vinnu sinni með leikhópnum er
Akkillesarhæll flestra þeirra sem
grípa í leikstjórn með leikreynslu
sína eina að vopni; hann nær ekki
að styðja nægilega við bakið á
reynslulitlum leikurum, hjálpa
þeim til að hvíla í hlutverkum sín-
um og skila rullunum af krafti og
öryggi. Fyrir vikið er nokkuð dauft
yfir sýningunni þegar stórkanón-
urnar úr eldri deildinni eru ekki í
forgrunni. Nýliðarnir eru efnilegir
en valda því ekki að bera uppi sýn-
ingu af þessu tagi.
En sem betur fer þurfa þeir þess
ekki. Einar Indriðason, í hlutverki
Babs, gerði frænkunni óborganleg
skil, trúlega það besta sem ég hef
séð til þessa ágæta leikara. Litlu
síðri voru þeir Matthías Sævar
Lýðsson og leikstjórinn, Arnar S.
Jónsson, sem hæfilega spýtukarla-
legir vonbiðlar. Þeir Jón Gústi
Jónsson og Úlfar Hjartarson stóðu
sig síðan vel miðað við aðstæður í
stórum hlutverkum vonbiðlanna.
Það er tilhlökkunarefni þegar
þessi efnilegi leikhópur og leik-
stjórinn hafa öðlast meiri reynslu
og öryggi. Þá verður svo sannar-
lega vel þess virði að heimsækja
Hólmvíkinga, en bíða ekki eftir því
að þeir heimsæki okkur.
Sú gamla kemur í heimsókn
Þorgeir Tryggvason
LEIKLIST
Leikfélag Hólmavíkur
Höfundur: Brandon Thomas. Þýðandi: Úlf-
ur Hjörvar. Leikstjóri: Arnar S. Jónsson.
Leikendur: Arnar S. Jónsson, Einar Indr-
iðason, Ester Sigfúsdóttir, Ingibjörg
Birna Sigurðardóttir, Jón Gústi Jónsson,
Jórunn Helena Jónsdóttir, Matthías Sæv-
ar Lýðsson, Sigríður Einarsdóttir, Svan-
hildur Jónsdóttir og Úlfar Hjartarson.
Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ sunnudag-
inn 6. júní.
FRÆNKA CHARLEYS