Morgunblaðið - 11.06.2004, Side 31
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 31
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar
Garðatorgi 3 • 565 6680
www.fataleiga.is
ÚTSALA
á glæsilegum
brúðarkjólum
Garðatorgi, Garðabæ - sími: 565 6550
PÆJUR OG PJAKKAR
klæðast Petipino
Nýkomið mikið úrval
af barnafötum.
Útskriftagjafi r
Leðuriðjan ehf Brautarholti 4 RVK s. 561 0060
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
ENDURBÆTTUR vefur,
www.ganga.is , var nýlega opn-
aður. Þar er meðal annars er að
finna upplýsingar um 800 göngu-
leiðir. Að sögn Páls Guðmunds-
sonar kynningarfulltrúa UMFÍ, er
vefurinn unninn í samvinnu við
Ferðamálaráð, Landmælingar Ís-
lands, sem leggja til kort af göngu-
leiðunum, ferðaþjónustuaðila og
sveitarfélög á hverjum stað. Gert er
ráð fyrir að milli 50 til 100 kort
verði kominn inn á vefinn þegar í
sumar. „Á vefnum eru grunn-
upplýsingar og lýsingar á 800
gönguleiðum auk ítarefnis, þar sem
meðal annars er vísað í nánari upp-
lýsingar í heimahéraði,“ segir
hann. „Gönguferðunum er skipt í
langar ferðir og stuttar. Stuttu
ferðirnar eru allar í alfaraleið, allar
stikaðar og léttar og taka innan við
tvær klukkustundir. Lengri leið-
irnar eru miserfiðar og er ætlunin
að merkja þær með erfiðleikastuðli
t.d. með mismörgum gönguskóm.
Þarna er að finna ótrúlega margar
gönguleiðir og er ekkert landsvæði
undanskilið.“
Í sumar mun UMFÍ dreifa 50 þús.
leiðabókum með upplýsingum um
gönguleiðir og er það þriðja árið í
röð sem það er gert. „Í bókinni eru
upplýsingar um 300 gönguleiðir,
sem allar eru merktar við upphaf
og endi,“ segir Páll. „Við skynjum
mikinn áhuga á gönguferðunum og
höfum frétt af mikilli þátttöku
gönguhópa um allt land. Við erum
ekki með nákvæma skráningu þát-
takenda en væntanlega mun það
breytast í sumar því á vefnum gefst
göngufólki tækifæri til að tjá sig
um gönguleiðirnar á sérstöku
spjallsvæði, „ferðaflugur“, á vefn-
um.“
GÖNGUFERÐIR
Morgunblaðið/Þorkell
Ganga.is: Hægt er að fá upplýsingar um 800 gönguleiðir á vefnum.
Langar og stuttar
gönguleiðir
TENGLAR
..............................................
www.ganga.is
„HVAÐ er klukkan elskan? Hana
vantar tuttugu mínútur í egglos,
flýttu þér....“ Þannig hefst frétt á
vef Berlingske Tidende um arm-
bandsúr sem gefur konum sem
bera það til kynna hvar í tíða-
hringnum þær eru staddar.
Konur þurfa bara að hafa úrið á
sér á nóttunni og það nemur þá og
greinir svita konunnar og horm-
ónamagn í honum. Þannig getur
það sagt til um egglos með allt að
fjögurra daga fyrirvara og það
getur verið gagnlegt fyrir konur
sem vilja verða þungaðar.
Úrið hefur verið á markaði í
Kanada og Bandaríkjunum í
nokkur ár og er nú komið í sölu í
Skandinavíu undir nafninu Fertil-
ité OV Monitor og seljandinn
BabyPlan er svo öruggur um
gæði vörunnar að konan fær úrið
sem kostar 1.195 danskar krónur
endurgreitt ef hún er ekki orðin
ólétt innan tíu mánaða frá kaup-
unum.
BARNEIGNIR
Tuttugu mínútur í egglos
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122