Morgunblaðið - 11.06.2004, Side 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Sundream kemur og
fer í dag. Mikael kem-
ur í dag.
Brúarfoss, Freri,
Mánafoss, Cape Eg-
mont og Pamiut fara í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 14 bingó. Hár-
snyrting, fótaaðgerð.
Farið verður í gróð-
ursetningaferð í Brú-
arlund, Hvammsvík,
15. júní, ungt fólk sér
um erfiðisvinnu, kaffi
og meðlæti, skráning í
síma 562 2571 og á
Aflagranda.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16,30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag
í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
vefnaður og frjálst að
spilað í sal. Sími
535 2760.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9–16.
45 hárgreiðslustofan
opin, kl. 9–12 aðstoð
við böðun.
Púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, kl. 10–13 verslunin
opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa með leiðbeinanda
9–16.30, opin hár-
greiðslustofan, ganga
kl. 9.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 10 hársnyrt-
ing, kl. 10–12 verslun
opin, kl. 11 leikfimi, kl.
13 „opið hús“ spilað á
spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Opið í
Garðabergi kl. 13–17
fótaaðgerðarstofan s.
899 4223.
Félag eldri borgara í
Kópavogi.
Félagsvist spiluð í
Fannborg 8 (Gjá-
bakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 14–
16 pútt á Hrafn-
istuvelli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Reykholts-
sundlaug í Þjórsárdal,
Stöng, Gjáin, Háifoss,
Búðaháls, Hrauneyjar.
Á svæðinu eru þrjú
orkuver Landsvirkj-
unar.
Á heimleið er ekið um
Landsveit.
Kaffi og meðlæti í
Hestheimum. Brottför
frá Glæsibæ kl. 9.
Leiðsögumaður: Ólaf-
ur Sigurgeirsson.
Skráning í sími
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10.30 gönguferð (ath.
breyttur tími), frá há-
degi spilasalur opinn.
Gjábakki, Fannborg 8
kl. 13.15 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga frá
kl. 9–17. Alltaf heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og búta-
saumur , kl. 10–11
pútt, baðþjónusta,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 14 bingó.
Hvassaleiti 58–60.
Grillveisla í dag kl.
17.30. Fótaaðgerðir,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10–
11 ganga, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. kl. 9–
10.30 setustofa, dag-
blöð og kaffi,
kl. 9–16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl.
9.15–14 aðstoð v/
böðun, kl. 9.15–15.30
hannyrðir, kl. 9–10
boccia,
kl. 9.30–11.30 skraut-
skrift, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13.30 sungið
við flygilinn við undir-
leik Sigurgeirs, kl.
14.30 dansað í kaffitím-
anum við lagaval Sig-
valda, rjómakaka með
kaffinu.
Vitatorg. Kl. 8.45–
11.45 smiðjan, kl. 9–16
hárgreiðsla,
kl. 9.30–10 morg-
unstund kl. 9.30–16
handmennt kl.
9.30–12.30 bókband, kl.
10–11 leikfimi,
kl. 10–16 fótaaðgerðir,
kl 13.30–14.30 bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Ferðaklúbbur eldri
borgara. Dagsferð um
Borgarfjörð 15. júní.
Ekið um Kaldadal,
Húsafell, Hraunfossar
og Reykholtskirkja
skoðuð, kaffi og með-
læti. Skráning í síma
892 3011.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn, verður í
dag kl. 10 við Malarás
og kl. 14 við Njálsgötu.
Minningarkort
Hrafnkelssjóður
(stofnað 1931) minn-
ingarkort afgreidd í s.
551 4156 og 864 0427.
Í dag er föstudagur 11. júní, 163.
dagur ársins 2004, Barnabas-
messa. Orð dagsins: Auðmýkið
yður því undir Guðs voldugu
hönd, til þess að hann á sínum
tíma upphefji yður. Varpið allri
áhyggju yðar á hann, því að hann
ber umhyggju fyrir yður.
(1. Pét. 5, 6., 7.)
Í grein sem Jónatan Þór-mundsson, prófessor
við lagadeild Háskóla Ís-
lands, skrifaði í Morg-
unblaðið í gær segir m.a.:
„Skoðanafrelsi mitt og
tjáningarfrelsi er varið
samkvæmt 73. gr. stjórn-
arskrárinnar, jafnt um
lögfræðileg efni sem önn-
ur mál. Ég vil gjarna ger-
ast þátttakandi í baráttu
fyrir auknu tjáningafrelsi,
gegn vaxandi for-
ingjaræði, gegn skoð-
anakúgun
og gegn
ritskoðun
hvers kon-
ar. Í því
felst bar-
átta gegn
lögum og
frum-
vörpum,
sem eru
til þess fallin að hefta
frelsi fjölmiðla, draga úr
fjölbreytni fjölmiðlunar
og auka skoðanakúgun.
Má í því efni nefna fjöl-
miðlalögin margumtöluðu
og frumvarp til breytinga
á lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna rík-
isins …“
Ef þessi ummæli eru réttskilin virðist Jónatan
Þórmundsson telja, að
fjölmiðlalögin „hefti frelsi
fjölmiðla“. Hvernig má
það vera og á hvaða rök-
um byggir prófessorinn
þessa skoðun sína? Í fjöl-
miðlalögunum er ekkert
að finna, sem getur heft
frelsi fjölmiðla. Þar er
hins vegar að finna
ákvæði, sem koma í veg
fyrir, að einn og sami að-
ilinn eignist alla einka-
rekna fjölmiðla á Íslandi.
Ef einn og sami aðilinn
eignaðist alla einkarekna
fjölmiðla í landinu væri
frelsi fjölmiðla í stórkost-
legri hættu. Það er barna-
skapur að halda, að blaða-
menn og fréttamenn
hefðu við slíkar aðstæður
frjálsar hendur um rit-
stjórnarlegan rekstur
þeirra fjölmiðla.
Raunar er það svo, aðallir stjórnmálaflokk-
ar hafa tekið undir það
sjónarmið, að nauðsynlegt
sé að setja lög um eign-
arhald á fjölmiðlum en
þeir hafa ekki verið á eitt
sáttir um efni þeirra.
Er Jónatan Þórmunds-son andvígur hvers
konar lagasetningu um
eignarhald á fjölmiðlum?
Finnst honum eðlilegt að
einn og sami aðili geti
eignast alla einkarekna
fjölmiðla í landinu eða tel-
ur hann tilefni til að setja
skorður í lögum við því?
Ef hann telur ástæðu til
að setja einhverjar tak-
markanir við því, hvers
konar takmarkanir úr því
að hann telur fjölmiðlalög-
in hefta frelsi fjölmiðla?
Vill hann setja takmark-
anir á það hverjir megi
gefa út dagblöð? Vill hann
setja takmarkanir á mark-
aðshlutdeild einstakra
blaðaútgáfufyrirtækja?
Vill hann setja takmark-
anir á markaðshlutdeild
einstakra ljósvakamiðla?
Hvað vill prófessorinn úr
því hann er ekki sáttur við
fjölmiðlalögin, sem nú
hafa verið sett?
STAKSTEINAR
Hvað vill prófessorinn?
Jónatan
Þómundsson
Víkverji skrifar...
Víkverji lenti í þeirri erfiðureynslu um daginn að týna
dagbókinni sinni. Í dagbókina góðu
skrifaði Víkverji allt sem var á dag-
skrá hjá honum; stefnumót úti í
bæ, tíma hjá tannlækni, heim-
ilisbókhaldið, saumaklúbba og eitt
og annað. Meira að segja hafði Vík-
verji nóterað hjá sér hvenær hann
þyrfti að skrifa þennan dálk í
Morgunblaðið.
Frá því að dagbókin dýrmæta
hvarf, að því er virðist af yfirborði
jarðar, hefur Víkverji verið eins og
það vanti á hann einhvern líkams-
part. „Ertu upptekinn þann 16.?“,
„hvenær ferðu í sumarfrí?“, „getur
þú hitt mig á þriðjudaginn?“ Vík-
verji veit hvorki haus né sporð á
tilverunni lengur, veit varla hvaða
dagur vikunnar er eða hvað hann
heitir. Auðvitað gleymdi Víkverji
þessum dálki og er því að skrifa
þessi orð eftir að lokafrestur til að
skila er útrunninn … Vonandi kem-
ur það þó ekki niður á ykkur, les-
endur góðir.
Víkverji sér þann eina kost í
stöðunni að fjárfesta í nýrri dagbók
þar sem hægt er að skrá verkefni
og stefnumót framtíðarinnar. Þann-
ig getur hann reynt að koma aftur
skikki á líf sitt, en hann hugsar enn
með söknuði til góða skipulagsins
sem nú er horfið út í veður og vind.
x x x
Maki Víkverja býr í útlöndumsem þýðir að mörgu síðkvöld-
inu er varið í símanum. Þar til ný-
lega fékk Víkverji alltaf himinháan
símreikning um hver mánaðamót
þar sem hann þurfti að súpa seyðið
af öllu masinu.
Þetta er þó ekki lengur raunin.
Víkverji komst fyrir tilviljun að því
að hægt er að kaupa alþjóðleg
símakort, t.d. Atlaskort eða Heims-
kort, og hringja til útlanda en
borga jafnmikið og fyrir símtal inn-
anlands. Kort, sem gefur kost á
rúmlega átta klukkustundum í sím-
anum við útlönd, kostar 2.000 krón-
ur og reiðir Víkverji þær af hendi
með bros á vör. Á þennan hátt hef-
ur Víkverji sparað mörg þúsund
krónur á síðustu vikum.
Símnotandi þarf að slá inn lyk-
ilnúmer og hlusta á þýða rödd á út-
lenskum símsvara og fylgja leið-
beiningum til að ná sambandi, en
Víkverja finnst þetta ansi góð lausn
fyrir þá sem þurfa oft og tíðum að
hringja út fyrir landsteinana.
Fyrir vikið talar Víkverji auðvit-
að helmingi lengur í símann og
skammast sín bara ekkert þó að
stundum sé hann klukkustundunum
saman í símanum, kvöld eftir kvöld.
Á þennan hátt er hægt að halda
ástinni við og hvísla ljúfum ást-
arorðum þegar símtalið kostar ekki
meira en raun ber vitni! Það getur
verið erfitt að halda sambandi við
vini í öðrum löndum, en leikur einn
eftir að svona kort er komið á
símaborðið.
Símreikningur Víkverja hefur
lækkað um mörg þúsund krónur
frá því hann byrjaði að nota síma-
kort þegar hann hringir til útlanda.
Öðruvísi mér áður brá
EFTIR að hafa fylgst með
Alþingi og fjölmiðlasirk-
usnum er ég hissa á því
fólki sem hnýtti mest í þá
sem gerðu það gott hér áð-
ur fyrr. Oft jaðraði við öf-
undsýki og undarlegt er að
það fólk skuli nú óskapast
út af því að sett verði lög
um að einhver einn geti
ekki keypt landið og jafnvel
æðstu menn þess. Það er
mafíulykt af því ef sú verð-
ur raunin.
Guðrún Magnúsdóttir.
Tapað/fundið
Gleraugu fundust
GLERAUGU fundust 8.
júní s.l. við Hlöllabáta á
Ingólfstorgi. Gleraugun
voru í hylki undir bekk.
Starfsmaður Hlöllabáta tók
gleraugun og þau eru í
vörslu hans þar sem hægt
er að vitja þeirra.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
LJÚFIR kettlingar leita að
fyrirmyndarforeldrum.
Ólíkir að lit, skapgerð og
lögun. Áhugasamir hafi
samband við Nótt í síma
847 1635.
Vettlingur fæst gefins
VETTLINGUR er eins og
hálfs árs gamall svartur
fress. Hann leitar nú að
nýju heimili vegna flutn-
inga. Hann er einstaklega
gæfur og kelinn. Allir sem
vettlingi geta valdið eru
beðnir um að hafa samband
í síma 696 0802.
Týnd kisa
GRÍMA er eins árs
brúnyrjótt læða, eyrna-
merkt 04G83. Hún hvarf
frá Miðstræti 6, 3. júní s.l.
Þeir sem vita hvar hún er
niður komin, vinsamlegast
hringi í síma 551 6843,
898 6843 eða 862 3057.
Fundarlaun.
Þrír kettlingar
fást gefins
ÞRÍR yndislegir og kassa-
vanir kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma
699 7369.
2 kettlingar
fást gefins
TVEIR tveggja mánaða
kettlingar fást gefins, fress
og læða. Gráir að lit og
kassavanir. Upplýsingar í
síma 567 1672 eða 866 1672.
Gári fannst
á Freyjugötu
GÁRI fannst á Freyjugötu
við Óðinsgötu í Reykjavík,
þetta er karlkyns gári og er
hann grænn að lit. Upplýs-
ingar í síma 866 1185.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 skjálfa, 4 ber að, 7
kjána, 8 úrkomu, 9 for,
11 einkenni, 13 gras-
flötur, 14 snupra, 15 óm-
júk, 17 stöð, 20 reykja, 22
reiði, 23 blæs kalt, 24 ve-
sæll, 25 skynfærið.
LÓÐRÉTT
1 orða, 2 doka við, 3
kvenfugl, 4 urgur, 5 snjó-
koma, 6 hroki, 10 sælu,
12 land, 13 hryggur, 15
aftra, 16 tölum um, 18
erfið, 19 mergðin, 20
hugarburður, 21 kasta
mæðinni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 strekking, 8 föggur, 9 náðug, 10 ann, 11 skarn,
13 aurar, 15 stund, 18 saggi, 21 ónn, 22 nánös, 23 æfing,
24 brandarar.
Lóðrétt: 2 tugga, 3 ekran, 4 kenna, 5 níðir, 6 afls, 7 Æg-
ir, 12 Rán, 14 una, 15 senn, 16 unnur, 17 dósin, 18
snæða, 19 gripa, 20 Inga.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html