Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 52
ÍÞRÓTTIR
52 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Golfvöllurinn er nú kominn í
sumarbúning.
Þetta er mjög góður 9 holu völlur
og er staðsettur ofan Hveragerðis.
Golfskálinn er opinn virka daga
kl. 13 til 21 og kl. 10 til 21 um helgar.
Ýmis tilboð í gangi, verið velkomin.
Golfklúbbur Hveragerðis
Gufudal auglýsir:
99 krónur skilaboðin.
PATRICK Kluivert, framherji hol-
lenska landsliðsins í knattspyrnu, á
möguleika á að komast í efsta sæti
yfir markahæstu leikmenn úr-
slitakeppni Evrópumótsins frá upp-
hafi. Kluivert hefur skorað sex
mörk fyrir Hollendinga í tveimur
úrslitakeppnum EM en markahæst-
ur er Frakkinn Michel Platini með
níu mörk sem hann skoraði öll á
Evrópumótinu 1984 þegar Frakkar
urðu Evrópumeistarar á heima-
velli. Platini skoraði mörkin níu í
fimm leikjum en átta lið léku til úr-
slita á EM en eru 16 í dag.
Kluivert varð markakóngur á
EM í Hollandi og Belgíu fyrir fjór-
um árum með fimm mörk og hann
skoraði eitt mark í keppninni á
Englandi 1996. Takist honum að
skora í keppninni í Portúgal verður
hann annar knattspyrnumaðurinn í
sögu Evrópukeppninnar sem tekst
að komast á blað á þremur mótum
en Þjóðverjinn Jürgen Klinsmann
er sá eini sem afrekað hefur það.
Tekst Kluivert að komast
upp fyrir Michel Platini?
Ég ber mikla virðingu fyrir enskaliðinu og ég veit betur en
margir aðrir að það hefur vel burði
til að vinna keppnina,“ segir Henry,
sem fór heldur betur á kostum með
Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á
nýafstaðinni leiktíð, skoraði 30 mörk
og var útnefndur knattspyrnumaður
ársins á Englandi annað árið í röð.
„Englendingar komust í loka-
keppni HM með því að gjörsigra
Þjóðverja, 5:1, og þeir gerðu marka-
laust jafntefli við Tyrki á útivelli
sem tryggði þeim þátttökuréttinn á
EM. Þetta segir töluvert um styrk
enska landsliðsins. Ensku leikmenn-
irnir leika svo sannarlega með
hjartanu og ég hef lært það á veru
minni hjá Arsenal að enskir leik-
menn leggja sig 100% fram í hverj-
um leik. Hvort sem þeir eru takt-
ískir eða ekki þá gefa þeir ávallt allt
í leikinn og ég virði leikmenn sem
gera það frekar en þá sem aðeins
tala um hlutina en framkvæma þá
síður,“ segir Henry sem kemur
örugglega til með að hrella varn-
armenn Englendinga í leiknum á
sunnudaginn.
Henry segir að enska liðið sé afar
góð liðsheild og innkoma Frank
Lampards í byrjunarliðið geri ekk-
ert annað en að efla það.
„Lampard átti hreint frábært
tímabil með Chelsea og ég kaus
hann leikmann ársins.“
Michael Owen, kollegi Thierry
Henry í liði Englendinga, lét hafa
eftir sér í vikunni að Henry væri
besti framherjinn í heiminum og
þegar þessi ummæli voru hermd
upp á Henry var hann hógværðin
uppmáluð og fór lofsamlegum orð-
um um Owen.
„Ég hef dáðst að því sem hann
hefur gert því ég get ekki gert sömu
hluti og hann gerir. Ég get til að
mynda ekki beðið í vítateignum eftir
boltanum eins og hann á til að gera.
Ég þarf sífellt að vera á hreyfingu
og best líður mér að hafa boltann.
Jafnvel þótt mér takist að skora þá
líður mér ekki vel nema ég hafi spil-
að vel,“ segir Henry.
Þrátt fyrir Henry sé bjartsýnn
fyrir hönd Englendinga í keppninni
þá telur hann sitt lið vera það sig-
urstranglegasta.
„Það er ekkert hægt að fela það.
Við erum kandítatar enda með mjög
öflugt lið,“ segir Henry en hann og
félagar hans í franska liðinu eru
ekki búnir að gleyma úrslitakeppni
HM fyrir tveimur árum í Japan og
S-Kóreu þegar þeir fóru með skott-
ið á milli lappanna, töpuðu öllum
þremur leikjum sínum og skoruðu
ekki mark.
Reuters
Tveir af helstu köppum franska landsliðsins, Thierry Henry og Zinedine Zidane, teygja eftir æf-
ingu franska landsliðsins í vikunni.
Englendingar
geta unnið EM
FRANSKI framherjinn Thierry Henry segir að enska landsliðið sé
nægilega sterkt til að fara alla leið á Evrópumótinu í knattspyrnu en
Evrópumeistarar Frakka hefja titilvörn sína í leik gegn Englend-
ingum í Lissabon á sunnudagskvöld.