Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 53
LETTAR, sem svo óvænt tryggðu
sér keppnisréttinn á Evrópumótinu
í knattspyrnu í Portúgal, koma til
með að fá öflugan stuðning á
mótinu. Rúmlega 3.000 stuðnings-
menn lettneska landsliðsins ætla að
styðja við bakið á sínum mönnum í
Portúgal en íbúafjöldi þessa fyrrum
Sovétlýðveldis er 2,4 milljónir.
Lettar öðluðust sjálfstæði árið
1991 og er þetta fyrsta stórmótið
sem þeir leika á en þeir unnu sér
keppnisréttinn með því að slá út
Tyrki, silfurliðið frá því á HM fyrir
tveimur árum, í umspili um sæti á
EM. Lettar leika í D-riðli á Evr-
ópumótinu ásamt Þjóðverjum,
Tékkum og Hollendingum.
Þrjú þúsund
Lettar á EM PORTÚGAL, England og Grikkland eru einulöndin á EM í Portúgal sem hafa erlenda þjálf-
ara. Ekkert lið sem þjálfað er af útlendingi
hefur unnið EM, eða heimsmeistarakeppnina ef
út í það er farið og því gæti svo farið að einn
þessara þjálfara mundi skrá nöfn sín í sögu-
bækurnar.
Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari, sem
þjálfar Portúgal, leiddi Brasilíu til sigurs á HM
fyrir tveimur árum en reynir nú að leiða
heimamenn til sigurs. Svíinn Sven-Göran Er-
iksson þjálfar lið Englendinga og Þjóðverjinn
Otto Rehhagel þjálfar lið Grikklands en þeir
eru fáir sem spá því að Rehhagel verði sá mað-
ur sem verði fyrstur útlendinga til að vinna
stórmót í knattspyrnu. Aftur á móti eru taldar
góðar líkur á að Portúgalar eða Englendingar
muni gera tilkall til sigurs í keppninni.
Scolari gæti verið sá maður sem tæki Portú-
gala skrefi lengra en í síðustu keppni, en þá
töpuðu þeir fyrir Frökkum í undanúrslitum.
Fari svo að Eriksson takist ætlunarverk sitt
með enska liðið yrði það athyglisvert í ljósi ár-
angurs Englendingsins George Raynor sem
leiddi Svíþjóð í úrslitaleik HM árið 1958. Þrátt
fyrir að Svíþjóð hafi beðið ósigur fyrir Brasilíu
í þeim leik er Raynor sigursælasti erlendi
landsliðsþjálfarinn. Hollendingurinn Guus
Hiddink var nálægt því að jafna met Raynors
þegar hann þjálfaði lið Suður-Kóreu á HM
2002 en liðið komst undir hans stjórn í undan-
úrslit.
Margir aðrir þjálfarar hafa reynt og mistek-
ist. Helsta dæmið um slíkt er Serbinn Bora Mi-
lutinovic sem þjálfað hefur fimm landslið á
fimm síðustu heimsmeistaramótum. Hann þjálf-
aði Mexíkó 1986, Kosta Ríka 1990, Bandaríkin
1994, Nígeríu 1998 og Kína 2002. Þrátt fyrir
að hafa aldrei náð lengra en í fjórðungsúrslit,
með Mexíkó, hafði hann náð góðum árangri
allt þar til Kína beið afhroð í síðastu heims-
meistarakeppni.
Enginn útlendingur hefur unnið stórmót
Reuters
Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari,
þjálfari portúgalska landsliðsins.
Markverðir:
1-Ricardo Pereira (Sporting)
12-Quim Silva (Braga)
22-Jose Moreira (Benfica).
Varnarmenn:
13-Miguel Monteiro (Benfica)
4-Jorge Andrade (Deportivo)
5-Fernando Couto (Lazio)
15-Beto Severo (Sporting)
3-Rui Jorge (Sporting)
14-Nuno Valente (Porto)
2-Paulo Ferreira (Porto)
16-Ricardo Carvalho (Porto)
Miðjumenn:
10-Rui Costa (AC Milan)
7-Luis Figo (Real Madrid)
8-Armando Petit (Benfica)
6-Francisco Costinha (Porto)
20-Deco Souza (Porto)
19-Tiago Mendes (Benfica)
18-Maniche Ribeiro (Porto)
Sóknarmenn:
11-Simao Sabrosa (Benfica)
9-Pauleta (Paris St Germain)
17-Cristiano Ronaldo (Man. Utd)
21-Nuno Gomes (Benfica)
23-Helder Postiga (Tottenham)
Portúgal
Markverðir:
1-Antonis Nikopolidis (Panathinaikos)
12-Kostas Chalkias (Panathinaikos)
13- Theof. Katergiannakis (Olympiakos)
Varnarmenn:
5-Traianos Dellas (Roma)
18-Yannis Goumas (Panathinaikos)
2-Yourkas Seitaridis (Panathinaikos)
14-Takis Fyssas (Benfica)
4-Nikos Dabizas (Leicester City)
3-Stelios Venetidis (Olympiakos)
19-Michalis Kapsis (AEK Aþena)
Miðjumenn:
21-Costas Katsouranis (AEK Aþena)
6-Angelos Basinas (Panathinaikos)
7-Theodoros Zagorakis (AEK Aþena)
16-Pantelis Kafes (Olympiakos)
23-Vassilis Lakis (AEK Aþena)
10-Vassilis Tsartas (AEK Aþena)
17-Giorgios Georgiadis (Olympiakos)
8-Stelios Giannakopoulos (Bolton)
20-Giorgos Karagounis (Inter Milan)
Sóknarmenn:
22-Dimit. Papadopoulos (Panathinaikos)
15-Zisis Vryzas (Fiorentina)
9-Angelos Haristeas (Werder Bremen)
11-Demis Nikolaidis (Atletico Madrid)
Grikkland
Markverðir:
23-Iker Casillas (Real Madrid)
1-Santiago Canizares (Valencia)
13-Daniel Aranzubia (Athletic Bilbao)
Varnarmenn:
5-Carles Puyol (Barcelona)
6-Ivan Helguera (Real Madrid)
3-Carlos Marchena (Valencia)
2-Joan Capdevila (Deportivo)
12 Garcia Gabri (Barcelona)
15-Raúl Bravo (Real Madrid)
18-Cesar Martín (Deportivo Coruna)
22-Gutiérrez Juanito (Betis)
Miðjumenn:
21-Juan Carlos Valeron (Deportivo)
16-Xabi Alonso (Real Sociedad)
8-Ruben Baraja (Valencia)
14-Vicente Rodríguez (Valencia)
4-David Albelda (Valencia)
19-Sánchez Joaquín (Real Betis)
20-Xavi Hernández (Barcelona)
Sóknarmenn:
7-RaúlGonzález (Real Madrid)
11-Albert Luque (Deportivo)
9-Fernando Torres (Atletico Madrid)
10-Fernando Morientes (Mónakó)
17-Joseba Etxeberria (Athletic Bilbao)
Spánn
Markverðir:
1-Sergei Ovhinnikov (Lokomotiv Moskva)
12-Vyacheslav Malafeyev (St.Pétursborg)
23-Igor Akinfeyev (CSKA Moskva)
Varnarmenn:
16-Vadim Yevseyev (Lokomotiv Moskva)
17-Dmitry Sennikov (Lokomotiv Moskva)
13-Roman Sharonov (Kazan)
21-Alexei Bugayev (Torpedo Moskva)
14-Alexander Anyukov (Samara)
Miðjumenn:
4-Alexei Smertin (Portsmouth)
19-Vladimir Bystrov (St.Pétursborg)
2-Vladislav Radimov (St.Pétursborg)
20-Dmitry Loskov, (Lokomotiv Moskva)
7-Marat Izmailov (Lokomotiv Moskva)
5-Andrei Karyaka (Samara)
8-Rolan Gusev (CSKA Moskva)
22-Evgeny Aldonin (CSKA Moskva)
6-Igor Semshov (Torpedo Moskva)
10-Alexander Mostovoi (Celta Vigo)
15-Dmitry Alenichev (FC Porto)
Sóknarmenn:
9-Dmitry Bulykin (Dynamo Moskva)
3-Dmitry Sychev (Lokomotiv Moskva)
11-Alexander Kerzhakov (St.Pétursborg)
18-Dmitry Kirichenko (CSKA Moskva)
Rússland
ÍTALSKI dómarinn skrautlegi
Pierluigi Collina mun dæma opn-
unarleik EM milli Portúgals og
Grikklands. Collina, sem er 44 ára
fjármálaráðgjafi frá Bologna, er alls
ekki óvanur að dæma stórleiki en
hann dæmdi meðal annars úrslita-
leik HM árið 2002, úrslitaleik Meist-
arakeppni Evrópu 1999 og úrslita-
leik Evrópukeppni félagsliða í maí
síðastliðnum.
COLLINA segist vera mjög
spenntur fyrir leiknum. „Ég er
mjög ánægður. Þetta er í fyrsta sinn
sem ég dæmi opnunarleik á stór-
móti. Opnunarleikirnir eru mjög
sérstakir,“ sagði Collina. Þjóðverj-
inn Markus Merk mun dæma stór-
leik Englands og Frakklands.
LUIS Figo hefur sagt að hann
muni að öllum líkindum hætta að
leika með portúgalska landsliðinu
eftir EM í Portúgal. Figo, sem er
34 ára, segir að hann vilji gefa yngri
leikmönnum tækifæri og að hann
sjáifram á að vera ekki valinn sjálf-
krafa í landsliðið eins og verið hef-
ur.
LEDLEY King mun að öllum lík-
indum spila við hlið Sol Campbell í
vörninni þegar Englendingar mæta
Frökkum á sunnudag. John Terry
er meiddur og kemur í ljós í dag
hvort hann verður orðinn leikfær, ef
ekki mun King taka stöðu hans.
Upphaflega var talið að Jamie Carr-
agher myndi taka stöðu Terry en
Sven-Göran Eriksson virðist ætla
að treysta á King sem leikur í mið-
varðarstöðunni hjá Tottenham.
LANDSLIÐ Grikklands hefur
orðið fyrir töluverðum skakkaföllum
sökum meiðsla. Aðalframherji liðs-
ins Demis Nikolaidis er að stíga upp
úr meiðslum en markmaðurinn Ant-
onis Nikopolidis, varnarmaðurinn
Traianos Dellas og miðjumaðurinn
Vassilis Lakis eru allir meiddir.
Otto Rehhagel, þjálfari gríska
landsliðsins, er þó bjartsýnn á að
þeir verði orðnir klárir í slaginn á
laugardag þegar Grikkland mætir
Portúgal í opnunarleik mótsins.
JEAN-Alain Boumsong, varnar-
maður Frakklands og Auxerre, seg-
ir að vörn Englendinga sé ekki slök.
„Sumir segja að varnarleikur Eng-
lendinga sé veikleikamerki en ég er
ekki sammála því. Þeir eiga góða
menn í öllum stöðum en þó hefur
England ekki átt úrvalsmarkvörð í
töluverðan tíma,“ sagði Boumsong
en hann mun leika með Glasgow
Rangers á næstu leiktíð.
ALAN Shearer hjá Newcastle
hefur vísað þeim sögusögnum á bug
að hann sé á leiðinni til Genoa á
Ítalíu. „Ég á aðeins átta ár eftir sem
knattspyrnumaður og mitt eina
markmið er að hjálpa Newcastle við
að vinna titla, í þakklætisskyni við
aðdáendur liðsins sem eru þeir
bestu í heiminum,“ sagði Shearer.
FÓLK
Francesco er leikmaður sem mungera gæfumuninn,“ sagði Trap-
attoni eftir fyrstu æfingu ítalska liðs-
ins í Portúgal. „Ef þú lítur á ítalska
liðið undanfarin ár þá er enginn sem
jafnast á við hann. Hann er eins og
Platini þegar Frakkar sigruðu EM
1984. Totti er einn af þeim leikmönn-
um sem ráða úrslitum leikja. Hvert
einasta lið í Evrópu hefur leikmann
sem er ómissandi fyrir lið sitt. Zidane
hjá Frökkum, Beckham hjá Englend-
ingum og Rui Costa hjá Portúgölum.
Hjá Ítölum liggur ábyrgðin á herðum
Totti. Það er enginn eins og hann hér
í Portúgal,“ sagði Trapattoni sem
spáir því að hann eigi eftir að skyggja
á Zinedane Zidane. „Frakkar eru
bundnir vð fæturna á Zidane, en
Francesco er fjölhæfari en Frakkinn.
Enginn þjálfari hefur leikmann eins
og Totti innan sinna raða. Andstæð-
ingar okkar munu reyna að finna leið-
ir til að stöðva hann en hann fellur
djúpt aftur og finnur svæði auk þess
sem hann finnur alltaf framherjana
okkar,“ segir þessi litríki þjálfari.
Totti hefur fullan stuðning þjálfara
síns en hann á þó enn eftir að sýna sig
og sanna með ítalska landsliðinu og
hefur hann leikið langt undir getu á
síðustu tveimur stórmótum, einkum
þegar kemur að markaskorun. Hann
skoraði aðeins tvö mörk á EM 2000
þar sem Ítalía tapaði í úrslitaleik gegn
Frakklandi auk þess sem hann skor-
aði ekki eitt einasta mark á HM í Jap-
an og Suður-Kóreu árið 2002. Á síð-
asta tímabili hjá Róma skoraði hann
20 mörk, sem er það mesta sem hann
hefur skorað í eftstu deild á Ítalíu, og
því er kappinn til alls líklegur í Portú-
gal.
En þessi ummæli Trapattonis hafa
fallið í grýttan jarðveg hjá mörgum af
leikmönnum ítalska liðsins og er
Alessandro Del Piero sagður vera
einn þeirra. Hann átti að hafa haft eft-
ir sér að hann væri jafngóður leik-
maður og Totti þrátt fyrir að hafa átt
slakt tímabil með Juventus. Totti var
þó fljótur að gera lítð úr hrósi þjálf-
arans og sagði að hópurinn væri sam-
heldinn og yrði Evrópumeistari í
fyrsta sinn síðan 1968. „Ég er upp
með mér vegna ummæla Trapattonis,
en ég held að það séu margir aðrir
leikmenn sem skipta miklu máli. Við
erum sterkur hópur og við viljum allir
vinna. Enginn leikmaður getur unnið
leik upp á eigin spýtur. Hver leikmað-
ur hefur ákveðnu hlutverki að gegna
og ef allir vinna sína vinnu getum við
farið alla leið,“ sagði Totti.
Fyrsti leikur Ítalíu er á mánudag-
inn þegar liðið mætir Dönum.
Reuters
Giovanni Trapattoni, landsliðsþjálfari Ítala, bindur miklar vonir
við framherjann snjalla, Francesco Totti.
Enginn
sem jafnast
á við Totti
GIOVANNI Trapattoni, þjálfari ítalska landsliðsins, er sannfærður
um að Francesco Totti muni veita Ítölum jafnmikinn innblástur og
Michel Platini veitti Frökkum fyrir 20 árum. Platini leiddi Frakka,
nánast einn síns liðs, til sigurs á EM árið 1984 þar sem hann skor-
aði níu mörk og það síðast í 2:0 sigri Frakka á Spánverjum í úrslita-
leiknum.