Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 56

Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR fréttist um lát Bents Jædigs streymdu djassleikarar á spilastaði Kaupmannahafnar til að spila og skála í minningu meistarans. Banamein hans var lifrarkrabbi. Fáir djassleikarar settu jafnmikinn svip á djasslíf borgarinnar og á Kaupmannahafnardjasshátíðinni lék hann oft á tugum tónleika. Eldsál í djassinum Það er mikill missir að Bent Jæ- dig, ekki aðeins fyrir fjölskyldu, vini og dansk djasslíf – heldur gjörvallan djassheiminn. Þótt Niels-Henning, Palle Mikkelborg og Svend Asmus- sen hafi kannski verið þekktari er- lendis, var enginn norrænn djass- leikari í jafnmiklu uppáhaldi hjá kollegum sínum um víða veröld. Það var næstum sama við hverja, sem kunnu að spila bíbopp, þú nefndir nafn Bents. Andlitin ljómuðu. Bent var einn af fremstu bíbopp-tenórsax- istum Evrópu og óefað fremstur allra Dana í þeirri tónlist. Tónn hans var voldugur, kraftmikill og tær og hugmyndaflugið frjótt. Ég kynntist Bent haustið 1973 og hélst vinátta okkar alla tíð. Hlustaði ég á hann á óteljandi tónleikum; seinast með Ted Curson í Kaupmannahöfn 2. júní árið 2000, en kvöldið áður hafði hann ásamt dönskum og íslenskum djass- leikurum djammað í sextugsafmæli Tryggva Ólafssonar málara á Amag- er, þar sem Bent bjó lengstum. Mér er minnisstætt hversu samleikur þeirra Teds var magnaður þótt lítt hafi verið æft fyrir tónleikana – þeir töluðu sama tónamál. Stundum ræddum við Bent saman í síma – beinskeytt samtöl og stutt og minn- isstætt er mér er hann hringdi eitt sinn og sagði eftir að hafa heilsað: „Ég á að spila með Art Farmer í kvöld.“ Síðan var kvatt. Ekki var síð- ur eftirminnilegt að eyða stund með honum og vinkonu hans Tove En- voldsen. Þar fóru saman tvær eldsál- ir í djassinum. Lærisveinn Gunnars Ormslevs Þeir voru óteljandi bandarísku djassmeistararnir sem gistu Kaup- mannahöfn og léku með Bent Jædig, en þar bjó hann lengstum utan á ár- unum 1957 til 1969 er hann dvaldi mestmegnis í Þýskalandi; lék þar í stórsveitum og með sólistum á borð við Albert Mangelsdorff og Chet Baker. Hann lærði á klarínett frá 13 ára aldri, en er hann var í sjóhernum og skip hans lá í Reykjavíkurhöfn kynntist hann Gunnari Ormslev sem kenndi honum undirstöðuatriðin í tenórsaxófónleik, eftir það var siglt til Englands þar sem Tubby Hayse bætti í sjóðinn; annars var Bent sjálflærður á hljóðfærið, en flautu- leik nam hann á konservatoríinu í Mannheim. Í Danaveldi lék Bent með Radioens Big Band, Ernie Wilk- ins Almost Big Band og stjórnaði kvintett með Richard Boone svo eitt- hvað sé nefnt. Síðustu þrjátíu árin hefur hann þó jafnan leikið með eigin kvartettum og tríóum með mönnum á borð við Ben Beisakow, Jesper Lundgaard, Bjarne Roswold og Ole Strenberg og má heyra það á plöt- unum Sizzlin’, The Red Lighting og Bent The Sailor. Auk þess lék Bent á fjölda platna með ýmsum djasssveit- um að ógleymdri plötu hans og Rich- ard Boone: Make Someone Happy. Á síðustu árum hafa fremstu ungdjass- arar Dana s.s. Kersten Osgood og Jonas Westergaard leikið með hon- um. ,,De helt unge var vilde med at spille med ham!“ skrifaði Mette Fanø hjá Danska djasssambandinu mér er hún tilkynnti andlát Bents. Bent Jædig lék hér fyrst, utan með Ormslev í gamla daga, á Nor- rænum útvarpsdjassdögum 1990. Hann kom aftur og blés með Jesper Thilo á RúRek djasshátíðinni 1995, bæði með Stórsveit Reykjavíkur í Ráðhúsinu og Eyþóri Gunnarssyni, Tómasi R. Einarssyni og Einari Vali Scheving í Þjóðleikhúskjallaranum. Í sömu ferð hélt Jazzvakning upp á tuttugu ára afmæli sitt á Ömmu Lú og var þá Boone/Jædig-kvintettinn endurvakinn. Richard, sem þá hafði alfarið snúið sér að söngnum og var hættur að blása í básúnu vegna lungnasjúkdóms, tók hornið með til landsins og blés nokkur lög í tilefni dagsins. Voru þessir tónleikar mikil upplifun. Bent heimsótti Ísland í síð- asta skipti 1998 er Jazzvakning minntist þess að sjötíu ár voru liðin frá fæðingu Gunnar Ormslevs. Var hann glaður að fá tækifæri til að heiðra minningu æskufélaga síns og lærimeistara. Turnar Kaupmannahafnar verða ekki umluktir sömu sveiflu á djasshátíðinni í júlí eftir að Bent Jæ- dig er allur. Það verður aldrei eins fyrir okkur, sem þekktum hann, að koma til borgarinnar. Einn af helstu töframönnum hennar er horfinn – en tónlist hans lifir svo lengi sem jarð- arbúar hlusta á djasshljóðritanir. Bíbopp-meistari Dana allur Tenórsaxófónleikarinn Bent Jædig lést í Kaup- mannahöfn aðfaranótt 9. júní á sextugasta og níunda aldursári. Hann kom þrisvar til Íslands til tónleikahalds auk þess sem hann dvaldi um tíma í Reykjavík ungur maður. Hér á eft- ir minnist Vernharður Linnet Bents Jædigs. Bent Jædig blæs í saxinn í Þjóðleik- húskjallaranum 1995. ÞEGAR ráðist er til atlögu við hefð á borð við þá sem sígildar „slap- stick“-gamanmyndir 4. og 5. áratug- arins á borð við My Girl Friday, The Piladelphia Story og Adam’s Rib skilja eftir sig, er eins gott að gera það vel og hafa eitthvað frumlegt til málanna að leggja. Annars er nefni- lega hætt við að viðbótin detti dauð niður í samanburði við snjallar fyr- irmyndirnar. Gamanmyndin Lögmál hrifningar sækir bæði uppbyggingu og innblástur til þessara gömlu góðu gamanmynda, sem skörtuðu stjörn- um á borð við Cary Grant, Katharine Hepburn og Spencer Tracy, og gengu fyrir snjöllum samtölum, beittum húmor, ódrepandi sam- keppnisanda og gagnkvæmu að- dráttarafli tveggja ómótstæðilegra fulltrúa kynjanna. Lögmál hrifningar segir einmitt frá tveimur þrjóskum sjarmörum, skilnaðarlögfræðingunum Audrey og Daniel, sem teljast meðal þeirra færustu í faginu. Leiðir þeirra liggja fyrst saman í réttarsalnum, þar sem Daniel vinnur skilnaðarmál fyrir hönd skjólstæðings síns með því að beita einkar rætnum mælskubrögð- um gegn Audrey og hennar skjól- stæðingi. Lögfræðingarnir missa sig brátt úti nokkurs konar keppni um hvor sé betri skilnaðarlögfræðingur, og fer gagnkvæm aðdáun þeirra og andúð hraðvaxandi eftir því sem hitnar í kolunum. Það er ekki erfitt að sjá hvað leik- stjórinn Peter Howitt er að reyna að gera með þessa gamanmynd, og að sama skapi jafnaugljóst hvað grein- lega vantar upp á að það takist nógu vel. Persónurnar eru vandlega út- skornar, sem sagt algjörar andstæð- ur og kómískar á sinn ólíka sérvitr- ingslega máta, en fyrir vikið kemur ekkert í skapgerð þeirra á óvart, og ástarrómansinn verður þvingaður og sjálfstýrður. Þau Julianne Moore og Pierce Brosnan hafa reyndar bæði sjarma sem til þarf í hlutverkin, en það dugar ekki til. Moore tekst að fanga athygli áhorfandans út í gegn- um myndina, en rokkar fram og aft- ur milli tjáningarríks gamanleiks og tilgerðarlegs ofleiks. Brosnan er heldur enginn Cary Grant, sem er reyndar óraunhæf krafa, en greini- lega sú fyrirmynd sem reynt er að sækja til í myndinni. Til þess að per- sóna hans gangi upp og hafi forsend- ur til að ganga í augun á hinni heillandi Audrey, þarf leikarinn að ná vandmeðförnu stigi hins ómót- stæðilega óþolandi karlmanns, en það tekst Brosnan ekki, þótt hann fari nálægt því á stundum. Ef til vill er þó miðlungsgóðu handritinu um að kenna að hvorki kómedían né ástarsagan komast á al- mennilegt flug. Sagan á tvímæla- laust sína fyndnu og krúttlegu kafla, en það er eitthvert tómahljóð í tunn- unni sem skyggir á skemmtunina. Ástarsaga með tómahljóði KVIKMYNDIR Laugarásbíó, Kringlubíó og Borgarbíó Akureyri Leikstjórn: Peter Howitt. Handrit: Aline Brosh McKenna, Robert Harling. Aðal- hlutverk: Pierce Brosnan, Julianne Moore, Parker Posey, Michael Sheen. Lengd: 87 mín. Bandaríkin, Þýskaland. New Line Cinema, 2004. Laws of Attraction / Lögmál hrifningar Rómantík í réttarsalnum: Julianne Moore og Pierce Brosnan í Lögmáli hrifningar. Heiða Jóhannsdóttir Fréttir á SMS DILBERT mbl.is NÝTT: Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Stóra svið Nýja svið og Litla svið DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes Su 13/6 kl 20 SÍÐASTA SÝNING Í VOR CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse Lau 12/6 kl 20, Lau 19/6 kl 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson Su 13/6 kl 20 SÍÐASTA SÝNING RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Í kvöld kl 20 - UPPSELT Lau 12/6 kl 15 - UPPSELT Lau 12/6 kl 20- UPPSELT SÍÐUSTU SÝNINGAR TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.30 - ÖRFÁ SÆTI Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 10.30 - FÁ SÆTI Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30 - LAUS SÆTI Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00 - LAUS SÆTI Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30 - LAUS SÆTI Lau 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30 - FÁ SÆTI í sumarsveiflu í kvöld Leikhúsgestir munið spennandi matseðil, s. 568 0878 Hljómsveit Geirmundar V.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.