Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 38
SKOÐUN 38 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ HVERS vegna verða sumir kvíðnir (hræddir) í aðstæðum þar sem flestir aðrir sýna engin slík viðbrögð? Hræðsla (ótti) og stress (streita) eru tvær hliðar á sömu mynt. Viss horm- ón, m.a. adrenalín, ganga í daglegu tali undir nafninu stresshormón. Þessi hormón spýtast út í blóðið þeg- ar við verðum hrædd og gegna mik- ilvægu hlutverki. Þau búa líkamann undir skyndileg átök þegar hætta steðjar að. Þessi hormón hjálpuðu forfeðrum og -mæðrum okkar að lifa af. Þegar þau stóðu t.d. andspænis ýgu tígrisdýri eða ógnandi óvini, flæddu stresshormónin út í blóðið. Hormónin valda því að vöðvarnir spennast til að búa þá undir átök. Hjartað slær hraðar, andardrátturinn verður örari og blóðsykurinn hækkar til að auka flæði súrefnis og orku til vöðvanna. Þéttni storkuefna í blóðinu eykst og ónæmiskerfið fer í við- bragðsstöðu svo líkaminn verði undir það búinn að bregðast við áverkum og sýkingum. Líkaminn allur fer í við- bragðsstöðu og býr sig undir átök. Þegar forfeðurnir stóðu andspænis yfirvofandi hættu og streituhormónin spýttust út í blóðið var um tvennt að velja, að fljúgast á eða flýja. Óháð því hvaða leið þeir völdu brugðust þeir við óttanum og beittu líkamanum til að takast á við vandann. Streituhorm- ónin fengu því eðlilega framrás í því sem þeim var ætlað að gera. Nútímasamfélagið er fullt af meira og minna ímynduðum „tígrisdýrum“ og „óvinum“ sem ræsa streituhorm- ónin. Rauða ljósið sem tefur þig á leið- inni á mikilvægan fund sem þú ert að verða of seinn á, ógreiddu reikning- arnir sem hrynja inn um bréfalúguna, yfirmaðurinn sem gerir óréttmætar kröfur, kjarnorkuváin, erfiðleikar í fjölskyldunni, ósonlagið, „hálfvitinn sem kann ekki að keyra bíl“, verk- efnið sem þú áttir að skila af þér í gær og svo mætti lengi telja. Jafnvel kaffi og nikótín örva framleiðslu streitu- hormónanna. Á hverjum degi ræsa þessi nútíma „tígrisdýr“ og „óvinir“ streituhormónin sem spýtast út í blóðið með viðeigandi vöðvaspennu og hjartsláttaraukningu. Hvatir þínar segja þér að fljúgast á eða flýja en þú ert bundinn af samfélagsnormum og lögum sem segja þér að þú megir ekki ráðast á yfirmann þinn í vinnunni eða keyra á „hálfvitann“ sem var næstum því búinn að þröngva þér af veginum með glannalegu aksturslagi. Sömu reglur banna þér að flýja frá ógreidd- um reikningum. Þú ert fangi í veru- leika sem líkami þinn er ekki byggður fyrir. Streituhormónin sem hjálpuðu forfeðrunum að lifa af halda þér í spennitreyju og geta skaðað þig ef ekkert er að gert. Með tímanum byrja spenntir vöðv- ar að bólgna og þú finnur fyrir verkj- um í t.a.m. hnakka, kjálka eða öxlum. Önnur algeng einkenni streitu eru m.a. eirðarleysi, svefnörðugleikar, einbeitingarörðugleikar, höfuðverkur og ýgi (árásargirni). Langvinn streita leiðir oft til þunglyndis og bælir starf- semi ónæmiskerfisins sem ver okkur fyrir sjúkdómum. Einfaldasta og árangursríkasta að- ferðin til að draga úr skaðlegum áhrif- um streituhormónanna er að veita þeim eðlilega útrás. Hreyfing er lyk- illinn! Röskur göngutúr í 30–45 mín- útur á dag getur verið allt sem þarf til að halda skaðlegum áhrifum streitu- hormónanna í skefjum en mikilvæg- ast er að þú finnir það form hreyf- ingar sem þér líkar. Sértæk hræðsla Að skilja hvers vegna sumir hræðast hluti (t.d. mýs eða köngulær) eða að- stæður (t.d. að halda ræðu í sam- kvæmi) sem eru ekki hættulegar í sjálfu sér og hvernig hægt er að þjálfa burt þennan órökrétta ótta er for- senda þess að skilja hvernig kvíði myndast og hvernig hægt er að þjálfa burt kvíða með sálfræðilegum aðferð- um. Lokaðu augunum og ímyndaðu þér að þú sjáir gula safaríka sítrónu á eld- húsborðinu heima hjá þér. Sjáðu fyrir þér að einhver þér nákominn taki upp sítrónuna og lykti af henni. Hann/hún leggur hana frá sér á skurðarbretti og sker hana í tvo helminga með eld- húshníf, tekur annan helminginn, ber hann upp að andlitinu og lyktar, ber hann svo upp að munninum og bítur í svo safinn rennur út um munnvikin. Þegar þú sérð þessa senu fyrir þér er ekki ólíklegt að þú fáir vatn í munninn. Það er fullkomlega órök- rétt að þú skulir slefa þegar þú sérð einhvern annan borða sítrónu, að ekki sé talað um að þú bara ímyndar þér að þú sjáir einhvern annan borða sítrónu. Það hafa myndast sjálfvirk tengsl (eins konar reflex) milli þess hluta heilans sem „sér“ og „skilur“ annars vegar og þeirra taugafrumna í heilanum sem örva myndun munn- vatns hins vegar. Heilinn sendir boð um að nú skuli framleiða munnvatn þótt þú bara ímyndir þér að einhver annar borði sítrónu. Þannig býr lík- aminn sig undir að þynna út þennan súra safa með munnvatni. Orð og innri myndir geta sem sagt valdið lík- amlegum viðbrögðum. Þetta gerist sjálfkrafa, jafnvel þó að þú vitir að þú ætlir ekki að borða sítrónu. Ef þú hugsar um sítrónu nokkrum sinnum eða nógu lengi skilur heilinn að lokum að ekki er von á súrum safa og hættir að senda boð um aukna framleiðslu munnvatns. Á svipaðan hátt geta sjálfvirk tengsl skapast milli óþægi- legra ógnvekjandi upplifana og nán- ast hvers sem er. Ef barn verður hrætt af einhverjum ástæðum og lítill sætur grís er fyrir tilviljun staddur í nánasta umhverfi barnsins geta myndast tengsl milli gríslingsins og óttaupplifunarinnar. Næst þegar barnið sér grís bregst líkaminn við með því að spýta stresshormónum út í blóðið með meðfylgjandi lík- amlegum einkennum sem tengjast ótta. Heilinn hefur lært að túlka grís sem eitthvað hættulegt, þ.e. vegna þess að streituhormónin flæða þegar ég sé grís hlýtur grísinn að vera hættulegur. Eftir þetta hefur barnið tilhneig- ingu til að forðast grísi og vegna þess að barnið forðast grísi fær heilinn ekki möguleika til að leiðrétta mis- skilninginn og átta sig á að grísir eru alls ekki hættulegir. Þannig viðheldur flóttinn óttanum. Að þjálfa burt misskilning Í dæminu um sítrónuna hér að ofan skildi heilinn smám saman að innri mynd af sítrónu þýðir ekki nauðsyn- lega að súr safi sé á leiðinni inn í munninn. Heilinn áttaði sig á því að engin „hætta“ var á ferðum og hætti að senda boð til munnvatnskirtlanna um að framleiða munnvatn. Á meðan barnið forðast grísi lærir heilinn aldr- ei að þeir eru ekki hættulegir. Sama gildir um konu sem er hrædd við hunda, e.t.v. vegna þess að hundur beit hana þegar hún var lítil. Hinn eðlilegi ótti sem heltekur barnið þeg- ar eitthvað þvílíkt gerist færist auð- veldlega yfir á alla hunda. Eftir það forðast barnið alla hunda vegna þess að heilinn túlkar þá sem hættulega þó að flestir viti að aðeins lítill hluti hunda er hættulegur. Eins og í dæm- inu með gríslinginn verður konan sem er hrædd við hunda að umgang- ast hunda til að heilinn læri að skilja milli gæfra hunda og ýgra. Mörg nú- tíma „tígrisdýr“ eru gríslingar sem heilinn hefur lært að túlka sem hættulega. Á svipaðan hátt og heili barnsins lærði fyrir misskilning að óttast grís geta fullkomlega meinlausir ein- staklingar orðið „hættulegir“ í hug- um okkar. Dæmi um slíkt er eftirfar- andi. Hæglætis eldri maður sem aldrei gerir flugu mein svínar óvart fyrir þig í umferðinni. Stresshorm- ónin spýtast út í blóðið og þú verður hræddur. Þú veist að bílar eru ekki hættulegir í sjálfu sér og þú veist líka af fyrri reynslu að flest fólk er ekki hættulegt. Heilinn getur því auðveld- lega túlkað aðstæðurnar á þann hátt að þú hafir staðið augliti til auglitis gegnt lífshættulegum óvini. Hann var nærri búinn að drepa mig = hann er óvinur = allir óþekktir bílstjórar eru líklegir óvinir. Ljúfling- urinn sem óvart beygði fyrir þig breytist þannig skyndilega í morð- óðan fjanda og heilinn velur að túlka aðstæðurnar þannig að allir óþekktir bílstjórar séu mögulegir óvinir, svona til vonar og vara til að vera betur undirbúinn næst. Þetta sjálfvirka ferli virkaði ágætlega í frumskóg- inum hér áður fyrr en getur verið beinlínis hættulegt heilsu þinni og annarra í nútímasamfélagi. Þó heilinn geti lært fyrir mistök að túlka nánast allt sem hættulega óvini er það forsenda þess að óttinn sitji í þér að þú hafir möguleika á að forðast fyrirbærið. Þannig leiðréttist margt af sjálfu sér einfaldlega vegna þess að þú getur ekki komist hjá því að lenda í aðstæðunum og þá lærir heilinn að túlka þær upp á nýtt. Innan sálfræð- innar hafa þróast aðferðir til að að- stoða fólk við að vinna bug á (eða draga úr) órökréttum ótta og nagandi kvíða. Aðferðin er í raun sáraeinföld en þó vandmeðfarin. Hún gengur út á það að greina hvað það er sem þú ótt- ast og hjálpa þér að horfast í augu við „óargadýrið“ svo heilinn geti áttað sig á að þetta er bara lítill sætur grísling- ur. Þessi aðferð er sannreynd í fjölda viðurkenndra vísindarannsókna. Hvernig maður ber sig að í hvert skipti er háð því hvað vandamálið er flókið en kjarni málsins er að þú fáir stuðning við að takast á við það sem veldur þér ótta/kvíða í stað þess að forðast það. Að óttast ókunnuga Ótti við ókunnuga, sérstaklega hóp ókunnugra, er nokkuð algengur. Margir eiga t.d. erfitt með að standa upp í samkvæmum og segja nokkur orð eða standa upp og bera fram spurningu í fullskipuðum sal á mál- þingi. Að framan höfum við séð hvernig heilinn getur lært að túlka veruleikann á rangan hátt og hvernig sértækur ótti við hættulausa hluti þróast. Á svipaðan hátt getur heilinn lært að túlka ólíkar félagslegar að- stæður, eins og að tala fyrir framan hóp fólks, sem hættulegar ef maður hefur t.d. einhvern tíma lent í óþægi- legri lífsreynslu við svipaðar að- stæður. Ótti við að tala fyrir framan hóp fólks á margt sameiginlegt með dæminu hér að framan um hvernig ókunnugur bílstjóri breytist úr góð- látlegum eldri manni í lífshættulegan óvin. Hafi maður einhvern tíma lent í óþægilegum aðstæðum tengdum ein- hverjum ókunnugum getur heilinn auðveldlega yfirfært þessa reynslu yfir á alla ókunnuga eins og í dæminu með bílstjórann. Allir ókunnugir eru því líklegir óvinir. Líkaminn er í stöðugri varnarstöðu gagnvart ókunnugum og þegar þú stendur frammi fyrir hópi ókunnugra, þar sem ómögulegt er að fylgjast með hverjum og einum og öll athygli beinist að þér, spýtast streitu- hormónin út í blóðið til að búa þig undir hugsanlega árás. Á sama hátt og barnið forðaðist gríslinginn í dæm- inu hér að framan þá forðast sá sem óttast að tala fyrir framan hóp fólks að setja sig í slíkar aðstæður og kem- ur þannig í veg fyrir að heilinn fái möguleika til að læra að greina milli raunverulegra óvina og hættulegra aðstæðna (raunverulegra „tígris- dýra“) annars vegar og hættulausra einstaklinga eða aðstæðna („papp- írstígrisdýra“) hins vegar. Að verða ofsahræddur Óttaviðbrögð óháð raunverulegu hættuástandi geta verið svo öflug að menn verði gripnir ofsahræðslu. Kvíði – oft ástæðulaus ótti ’Ekki er allur ótti árökum reistur og hafa rannsóknir m.a. bent á að ofsahræðslu megi til að mynda rekja til ofur- næms viðvörunarkerfis líkamans.‘ Fáir þú vatn í munninn þegar þú sérð einhvern annan borða sítrónu hafa myndast sjálfvirk tengsl í heilanum, einskonar „reflex“. Morgunblaðið/Golli Á augabragði getur heilinn breytt góðlyndum ljúfling í umferðinni í hættulegan óvin sem hvatir þínar segja þér að ráðast gegn. EF STREITUHORMÓNIN spýtast stöðugt út í blóðið í langan tíma án þess að fá eðlilega útrás í hreyfingu veldur það vöðvaspennu sem getur endað með vöðvabólgu og spennuhöfuðverk. Hjartað slær örar og þú upplifir óþægilegan hjartslátt. Öndunin verður hraðari og ójafnvægi myndast milli súrefnis og koltvísýrings í blóðinu sem veldur einkennum sem flestir kann- ast við sem hafa reynt að blása upp vindsæng þ.e. umhverfið fer að hringsnúast og þú finnur jafnvel fyrir doða (ekki ósvipað náladoða) í hönd- um og fótum. Önnur einkenni sem streituhormónin geta valdið fái þau ekki eðlilega útrás eru titringur í höndum, óþægindi frá meltingarfærum (jafn- vel ógleði), óeðlileg svitamyndun, tilfinning að standa á öndinni, óþægindi í brjóstholinu og köfnunar- og svimatilfinning. Létt er að heilinn túlki þessi einkenni sem merki um að hætta steðji að sem síðan leiðir til ógnarhugsana þ.e. hugsana um að eitthvað hræðilegt sé að gerast. Mikilvægar staðreyndir Mikilvægt er að læra að greina á milli raunverulegrar ógnar (alvöru „tígrisdýra“) og ímyndaðrar ógnar („pappírstígrisdýra“). Sjálfvirk tengsl geta myndast í heilanum milli hræðsluviðbragða og meinlausra hluta og aðstæðna. Sumir fæðast með ofurvirkt viðvör- unarkerfi sem líkja má við ofurvirkan reykskynjara. Eftir dr. Ásgeir R. Helgason Streituhormónin eru til þess gerð að aðstoða okkur við að fljúgast á eða flýja. Ótti getur vaknað hjá fólki við mjög mismunandi aðstæður og þannig hræðast margir hluti eða aðstæður sem eru ekki hættulegar í sjálfu sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.