Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 160. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Eins konar
árshátíð
Árni Sam hefur sótt kvikmynda-
hátíðina í Cannes í 25 ár | 20
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
ÞESSI svifvængjamaður var hátt yfir Hafravatni er
hann kom svífandi niður af Úlfarsfellinu, þaðan sem fé-
lagar hans hlaupa fram af bjargbrúnum þegar vindar
næða um fellið. Á fallega bláleitu vatninu brunuðu
menn á sjóþotum í blíðunni og með gulu svifvængj-
unum skapar myndin svolitla „sænska“ stemningu.
Morgunblaðið/RAX
Svifið hátt yfir Hafravatni
HITASTIG sjávar fyrir Norðurlandi
hefur hækkkað um allt að 5 gráður á
undanförnum árum og hefur hlýn-
unin haft mikil áhrif á lífríki hafsins.
Hlýnunin er til komin vegna sterk-
ari strauma við landið. Þannig berst
nú meira af hlýjum og selturíkari
Atlantssjó norður og austur fyrir
landið en gert hefur frá árinu 1997.
Áhrifin neikvæð og jákvæð
Áhrifin á lífríki hafsins eru um-
talsverð, bæði neikvæð og jákvæð,
en almennt eru fræðimenn sammála
um að flestar fisktegundir uni sér
betur í hlýrri sjó. Hlýrri sjór hefur
þó haft neikvæð áhrif fyrir þorsk-
stofninn. M.a. hefur loðnan hopað
undan hlýja sjónum og því hefur
þorskurinn minna æti en áður en
þorskur er afar háður loðnu í fæðu.
Þorskurinn nær ekki að bæta sér
upp loðnuskortinn og því er þorsk-
stofninn nú léttari en í fyrra. Það er
meginskýring þess að Hafrann-
sóknastofnunin hefur lagt til 4.000
tonna niðurskurð á þorskkvóta
næsta fiskveiðiárs.
Aftur á móti unir ýsan sér vel í
hlýjunni. Ýsa er ekki eins háð loðnu í
fæðu og útbreiðsla hennar hefur
aukist gríðarlega á síðustu árum. Er
nú svo komið að sjómenn norðan-
lands líta á hana sem plágu. Þá hefur
útbreiðsla ýmissa annarra tegunda
aukist til muna, s.s. skötusels sem nú
er algengur norður af landinu en var
þar afar sjaldgæfur áður. Þá finnast
tegundir á borð við lýsu og kolmunna
í meiri mæli fyrir norðan land.
Getur breyst mjög snöggt
Ekkert bendir til annars en að
ástand sjávar verði með svipuðum
hætti næstu árin en skilyrðin í sjón-
um geta þó breyst mjög snöggt og
hitastig sjávar snarlækkað, líkt og
gerðist hafísárið 1965.
Talið er að með viðvarandi hlýnun
gætu botnfiskveiðar aukist, sem og
síldveiðar. Kolmunnaveiðar myndu
að öllum líkindum vaxa en á kostnað
loðnuveiða sem aftur hlýtur þá að
hafa áhrif á þorskveiðarnar. Eins er
talið að bæði hörpuskelstofnar og
rækjustofnar myndu minnka ef
hlýnaði meira.
Hitastig hefur hækkað um nær 5 gráður fyrir norðan land
Hefur veruleg áhrif
á lífríkið í sjónum
Öngþveiti/10–11
VARLA hefur sést fugl við Kol-
beinsey í vor og sumar, enda ekkert
æti þar fyrir hann að hafa, að sögn
Óla Hjálmars Ólasonar, útvegs-
bónda í Grímsey, sem segist ekki
muna annað eins á ríflega 60 ára
sjómannsferli. Óli, sem er á mynd-
inni að ofan, segir að loðnan hafi
ekki skilað sér upp á landgrunnið
fyrir norðan land síðustu árin, eins
og hún hafi gert áratugum saman.
Þorskmagar séu hálftómir, þorsk-
urinn sé farinn að éta undan sér í
meira mæli og éti jafnvel þara. Þá
sé meiri ýsugengd en áður, svo mik-
il að til vandræða horfir.
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
Líflaust við
Kolbeinsey
Tímaritið | Væntumþykja til augnabliksins Sláttur á kylfingum
Grill á góðum degi Atvinna | Svipaður fjöldi atvinnulausra
Eftirlitsátak í byggingariðnaði Hvað gerir landvörður?
Tímaritið og Atvinna í dag
ÓÞEKKTIR byssumenn vógu
í gærmorgun aðstoðarutanrík-
isráðherra írösku bráðabirgða-
stjórnarinnar, Bassam Qubba,
er hann var á leið til vinnu.
Sýndi tilræðið að lítið lát hefur
orðið á árásum í Írak þótt nú
styttist í valdaframsalið til
heimamanna, en hernáms-
ástandið í landinu á með því að
taka enda um næstu mánaða-
mót.
Bráðabirgðastjórninni barst
annars stuðningur úr óvæntri
átt. Moqtada al-Sadr, umdeild-
ur en áhrifamikill sjía-klerkur,
hvers fylgismenn hafa veitt
hernámsliðinu harða vopnaða
mótspyrnu á síðustu mánuð-
um, lýsti því yfir að hann væri
reiðubúinn að eiga samstarf
við nýju bráðabirgðastjórnina
ef hún reyndist fær um að
vinna að því að binda enda á
veru bandarísks herliðs í land-
inu. Kom þetta fram í ávarpi
sem lesið var fyrir fylgismenn
hans í guðsþjónustu á föstu-
dag.
„Ég styð nýju bráðabirgða-
stjórnina,“ sagði al-Sadr; „frá
þessari stundu bið ég ykkur að
taka þátt í því að opna ný tæki-
færi fyrir Írak og fyrir frið.“
Aðstoð-
arráð-
herra
veginn
Bagdad. AP.
VINSÆLDIR Ronalds Reagans
heitins birtast nú með ýmsu móti
er Bandaríkja-
menn minnast
þessa fyrrver-
andi forseta síns,
sem borinn var
til grafar á
föstudag. Til
vitnis um vin-
sældirnar er að
á uppboðs-
vefnum eBay eru
nú yfir 11.000
minjagripir um hann til sölu, þótt
víst þyki að varlegt sé að treysta
fullyrðingum seljenda um að for-
setinn vinsæli hefði farið um þá
höndum.
Ermahnappar, kúrekahattar,
golfkúlur og eftirréttaskálar með
forsetainnsigli Reagans eru meðal
muna sem á boðstólum eru. Hár-
lokkar sem seljendur fullyrða að
séu af Reagan eru í boði á eBay á
150 og 350 dali, en í gær hafði
ekkert tilboð borizt í þá.
Minning
Reagans mik-
il söluvara
San Jose í Kaliforníu. AP.
Ronald Reagan
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, á nú enn meir undir högg að
sækja en fyrr eft-
ir verstu útkomu
ríkisstjórnar-
flokks úr sveitar-
stjórnarkosning-
um sem um getur
í brezkri stjórn-
málasögu.
Er úrslit voru
kunn úr næstum
öllum kjördeild-
um í gær lá fyrir
að Verkamannaflokkurinn hefði tap-
að 464 fulltrúum úr sveitar- og borg-
arstjórnum í Englandi og Wales, en
kosningarnar fóru fram á fimmtu-
dag, samhliða kosningum til Evrópu-
þingsins. Íhaldsflokkurinn vann 263
sæti, eftir því sem fram kemur á
fréttavef BBC.
Robin Cook, fyrrverandi utanrík-
isráðherra í ríkisstjórn Blairs sem
var mjög gagnrýninn á Íraksstefn-
una, sagði kjósendur hafa veitt Blair
ráðningu fyrir að hafa gengið þvert á
vilja þeirra í Íraksmálinu.
Blair í vörn
eftir ósigur
Tony Blair
♦♦♦