Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 45
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 45 Atvinnuhúsnæði til sölu eða leigu Lágmúli - Rvík - til leigu Einstaklega glæsilegar og vel búnar skrifstofur á 3. hæð, ca 250 fm. Tölvulagnir eru í öllu rýminu með aðgengi að sér- staklega útbúnu tölvuherbergi á hæðinni. Útsýni er glæsilegt og er hæðin sjálf mjög björt og snyrtileg. Leiga/verð tilboð. Þarabakki - Mjódd - til sölu Til sölu skrifstofur á 2. hæð 142 fm. Eignin er öll hin vandaðasta. Mjög góð staðsetning. Næg bílastæði. Verð tilboð. Súðarvogur 229 fm - nýtt á skrá Til sölu/leigu skrifstofur á jarð- hæð, samtals 229 fm. Innrétt- ingar nýlegar. Húsnæðið skipt- ist í skrifstofur, fundarherb., lager, eldhús og salerni. Verð tilboð. Sigtún - 625 fm skrifstofur Einstaklega glæsileg og vel staðsett skrifstofubygging við Laugardalinn. Séraðkoma inn á hæðina utan frá, beint af bílastæðum, einnig er aðkoma að hinum umrædda eignahluta í gegnum glæsilega og mjög snyrtilega sameign sem er með lyftuhúsi. Sameiginlegt mötuneyti í sameign allra í húsinu. Rýmið skiptist í móttöku, opin rými, en einnig er búið að stúka af skrifstofur og fundarherbergi. Gólfefni eru parket og dúkur. Tölvulagnir eru í öllu rýminu með aðgangi að sérstak- lega útbúnu tölvuherbergi í kjallara. Laugavegur - 148 fm skrifstofur til leigu Nýtt á skrá. Til sölu/leigu skrif- stofur á 4. hæð í lyftuhúsi. Móttaka, 3 rúmgóð skrifstofu- herb. og fundarherb. Vandað- ar og góðar innréttingar. Góð nýting. Aðgangur að eldhúsi og wc í sameign. Tilvalið undir lögm./endursk. Verð tilboð. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Mjög glæsilegt 363 fm tvílyft einbýlishús með aukaíbúð á frábærum stað við Þverársel með útsýni til Esjunnar og með óbyggðu svæði fyrir framan húsið. Á neðri hæð fylgir 2ja herb. íbúð með sérinngangi. Timburpallur. Fallegur og gróinn garður. Hurðir, skápar og innr. eru nánast allar massífar. Glæsileg og vönduð eign á frábærum stað. Sjá myndir á eignamidlun.is. V. 39 m. 3994 ÞVERÁRSEL Vorum að fá í sölu 121 fm einbýlishús á tveim- ur hæðum auk kjallara. Auk þess fylgir 32 fm bílskúr. Húsið skiptist m.a. í tvær saml. stofur og þrjú herbergi. Húsið er að mestu leyti í upp- runalegu ástandi. V. 23,0 m. 4237 HEIÐARGERÐI Vandað um 239 fm parhús með innb. 45 fm bílskúr á mjög rólegum stað. Húsið er miðhæð, rishæð og kjallari sem er jarðhæð norðanmegin en þar er aðkeyrslan að bílskúrnum. Á mið- hæðinni er forstofa, forstofuherb., hol, stofur og eldhús. Á rishæðinni eru 4 svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er þvottaherb. m. sturtu, stórt tómstundaherb. og bílskúr sem innan- gengt er í. V. 32 m. 4241 DALTÚN - NEÐST Í FOSSVOGSDALNUM Vorum að fá í sölu 98 fm 5 herb. efri hæð í 4- býlishúsi við Kvisthaga í vesturbænum. Hæð- inni fylgir 33 fm bílskúr. Hæðin skiptist m.a. í tvær stofur og þrjú herbergi. Svalir til suðurs. Falleg gróin lóð. Húsið er mjög vel staðsett en stutt er í skóla og ýmsa þjónustu. V. 19,9 m. 4243 KVISTHAGI - MEÐ BÍLSKÚR Glæsileg 108,4 fm íbúð á 3. hæð ásamt 21,2 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í hol, eldhús með borðkrók, tvö svefnherb., þvottahús, geymslu, baðherbergi, stofu og suðursvalir. V. 17,5 m. 4246 SPORHAMRAR - NÝTT Falleg og björt 4ra herb. íbúð á 4. hæð í blokk sem teiknuð er af Sigvalda Thordarsyni. Eignin skiptist m.a. í hol, stofu, eldhús, þvottahús í íbúð, þrjú herbergi og baðherb. Blokkin lítur vel út að utan. V. 14,5 m. 4239 MEISTARAVELLIR - FALLEG ÍBÚÐ Mjög falleg og björt 3ja herbergja íbúð með yfir- byggðum svölum og bílskúr í traustu steinhúsi í vesturbænum. Eignin skiptist í hol, eldhús, baðherbergi, tvö herbergi, stofu og yfirbyggð- ar svalir. Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús. V. 16,3 m. 4119 BREKKUSTÍGUR + BÍLSKÚR Falleg 96 fm 3ja herb. íbúð innst í botnlanga á útsýnisstað með sérinngangi af svölum í Frostafold. Eignin skiptist í forstofu, hol, tvö herbergi, eldhús, baðherbergi og stofu. Sér- geymsla í kjallara og sameiginleg hjólageymsla og þurrkherbergi. V. 13,1 m. 4225 FROSTAFOLD - GLÆSILEG STAÐSETNING Mjög falleg og björt 3 herb. jarðhæð með sér- inngangi í eftirsóttu hverfi. Íbúðin skiptist í for- stofu, hol, baðherbergi, eldhús, stofu og tvö herbergi. V. 13,9 m. 3798 BERGSTAÐASTRÆTI - BJÖRT OG FALLEG Vorum að fá í sölu 59 fm íbúð á 4. hæð í lyftu- húsi. Svalir til suðausturs. Fallegt útsýni. Íbúðin er laus nú þegar. V. 8,9 m. 4242 BLIKAHÓLAR - LAUS STRAX Við höfum verið beðnir um að útvega til kaups fasteignir í útleigu með traustum leigutökum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða trausta aðila með öruggar greiðslur og koma eignir á verðbilinu frá 50.000.000 - 2.000.000.000 til greina. Áhugasamir eru beðnir um að setja sig í samband við Óskar Rúnar Harðarson lögfræðing eða Sverri Kristinsson löggiltan fasteignasala hjá Eignamiðlun.Óskar Rúnar Harðarson, lögfræðingur Sverri Kristinsson, löggiltur fasteignasali EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS ATHUGIÐ lögum verði synjað staðfestingar í framtíðinni. Óheppileg aðkoma Ólafs sjálfs að málinu Eins og áður er rakið liggur ekki fyrir hvað það var nákvæmlega sem réð ákvörðun Ólafs. Reyndar hafði hann sjálfur kallað eftir lög- um um eignarhald á fjölmiðla þeg- ar hann var á þingi 1995 og hafði sjálfur sem fræðimaður í stjórn- málafræði lýst synjunarvaldi 26. gr. stjórnarskrárinnar sem dauð- um bókstaf. Bent hefur verið á persónuleg tengsl Ólafs Ragnars við hags- munaaðila í málinu. Meðal þess sem bent hefur verið á er að for- stjóri Norðurljósa var forsvars- maður félags um framboð Ólafs til forseta og lögmaður fyrirtækisins er nú umboðsmaður Ólafs fyrir kosningarnar. Það fór ekki lítið púður í það hjá fjölmiðlum í vetur að gera ráðningu hæstaréttardómara tor- tryggilega með vísan til ætt- artengsla hans við forsætisráð- herra. Að sjálfsögðu var það ekki forsætisráðherrann sem ákvað hver skyldi verða dómari, heldur dómsmálaráðherra. En tengslin voru samt nægileg að mati fjöl- miðlanna til þess að ótal fréttum og stríðsfyrirsögnum yrði ráð- stafað í málið. En skyndilega kveður við annan tón. Nú má ekki ræða um tengsl opinberra aðila við hagsmunaaðila í þjóðfélaginu. Það þykir „ósmekklegt“ að benda á margvísleg tengsl, meðal annars fjárhagsleg, milli framboðs Ólafs Ragnars og forstjóra Norðurljósa. Skyndilega eru rannsókn- arblaðamennirnir þagnaðir. Ekki orð um það meir. Að lokum Hinn ágæti formaður ungra jafn- aðarmanna, Andrés Jónsson, skrifaði opið bréf til mín í Morg- unblaðið. Þar hrósaði hann mér fyrir að hafa ekki stutt fjölmiðla- lögin og spurði hvernig ég teldi að þeir ungu sjálfstæðismenn, sem væru andsnúnir samkeppnisregl- unum sem fram kæmu í fjölmiðla- frumvarpinu, greiddu atkvæði og hvernig SUS myndi beita sér í málinu. Um leið áréttaði hann að kosningarnar snerust aðeins um efni frumvarpsins. Fyrr í þessari grein hef ég bent á að vinir hans á vinstrivængnum eru honum ósammála um hvað sé markmiðið með væntanlegri þjóð- aratkvæðagreiðslu. Þeir líta á kosninguna sem kærkomið tæki- færi til þess að koma höggi á Dav- íð Oddsson, burtséð frá efni lag- anna. Frjálshyggjumaðurinn Gunnlaugur Jónsson sagðist í Morgunblaðsgrein myndu kjósa með lögunum þótt hann hefði mót- mælt þeim þegar þau voru til um- ræðu á þingi. Hann sagðist með því vilja styðja fulltrúalýðræðið og virða niðurstöðu Alþingis. Það blasir því við að menn hafa mis- jafnar forsendur í huga þegar þeir greiða atkvæði í komandi þjóð- aratkvæðagreiðslu. Hvorki ég sem formaður SUS, né stjórn sam- bandsins, mun gefa fólki skipanir um það hvernig það eigi að nálg- ast þetta mál. Þá hefur formaður Sjálfstæðisflokksins lýst því í Kastljósi Ríkissjónvarpsins að flokkurinn muni ekki eyða einni krónu í einhvers konar kosninga- baráttu vegna þessa máls. Um leið blasir við að nóg verður af fjár- sterkum hagsmunaaðilum og fjöl- miðlum sem munu berjast fyrir synjun laganna. Höfundur er lögfræðingur og formaður SUS. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.