Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 35 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma PETRA FANNEY ÞÓRLINDSDÓTTIR, Álftamýri 30, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 3. júní, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 14. júní kl. 13.30. Ragnar Ingólfsson, Guðbjörg Bjarnadóttir, Ólafur Ingólfsson, Ingibjörg Svala Jónsdóttir, Guðlaug Ingólfsdóttir, Sigríður Ingólfsdóttir, Björgvin Kristjánsson, Vigdís Ingólfsdóttir, Ólafur Atli Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRIR GUÐMUNDSSON, Kleppsvegi 62, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 14. júní kl. 15:00. Arnfríður Snorradóttir, Methúsalem Þórisson, Oddný Þórisdóttir, Ragnar Karlsson, Snorri Þórisson, Erla Friðriksdóttir, Soffía J. Þórisdóttir, Baldur Dagbjartsson, Ragna B. Þórisdóttir, Gylfi G. Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, mágur og tengdasonur, PÉTUR HELGI GUÐJÓNSSON, Suðurgötu 15, Sandgerði, lést af slysaförum föstudaginn 4. júní. Jarðaförin fer fram frá safnaðarheimilinu í Sandgerði þriðjudaginn 15. júní kl. 16.00. Hrönn Hilmarsdóttir, Hilmar Pétursson, Guðrún Sif Pétursdóttir, Aðalsteinn Pétursson, Guðrún Pétursdóttir, Þóra Guðjónsdóttir, Ingvi Rúnar Sigurðsson, Óskar Guðjónsson, Líney Baldursdóttir, Laufey Guðjónsdóttir, Halldór Sveinbjörnsson, Lilja Guðjónsdóttir, Þórir Björn Hrafnkelsson, Jóhanna Sigurlaug Hilmarsdóttir, Birkir Már Ólafsson, Ágúst Hilmarsson, María Ketilsdóttir, Hilmar Ágústsson, Árný Friðgeirsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, DÓRU JÓHANNSDÓTTUR, Aflagranda 1, Reykjavík. Magnús Ragnar Gíslason, Jóhann Þór Magnússon, Lilja Jóhannsdóttir, Sigríður Dóra Magnúsdóttir, Björgvin Jónsson, Gylfi Magnússon, Hrafnhildur Stefánsdóttir og barnabörn. Ástkær frænka okkar, IDA INGÓLFSDÓTTIR forstöðukona barnaheimilisins Steinahlíðar, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju, Mosfells- bæ, mánudaginn 14. júní kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Auður Árnadóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar okkar elskulega eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR ELÍASAR EYJÓLFSSONAR prentara, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun til læknanna Ólafs Þórs og Jóns Eyjólfs og starfsfólks á B4 öldrunardeild Landspítala Fossvogi. Guð blessi ykkur öll. Ragnhildur Sigurjónsdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA HALLDÓRA ÞORVALDSDÓTTIR, Gullsmára 11, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánu- daginn 14. júní kl. 13.30. Þorvaldur J. Sigmarsson, Elín Richards, Hólmfríður K. Sigmarsdóttir, Eðvald Geirsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, GUÐMUNDUR KARL GÍSLASON, Aflagranda 27, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 15. júní kl. 13.30. Kolbrún Karlsdóttir, Gísli Ragnarsson, Friðbjörg Matthíasdóttir, Guðmundur V. Magnússon, María Matthíasdóttir, Björgvin Gíslason, Marlo Menti, Theódór Ragnar Gíslason. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR SIGURÐAR SIGURJÓNSSONAR, Fagrabæ 1, Reykjavík. Inga S. Kristjánsdóttir, Þórir Kristján Guðmundsson, Sigurbirna Oliversdóttir, Jóhanna S. Guðmundsdóttir, Guðmundur Örn Einarsson, Sigurjón Guðmundsson, Óla Friðmey Kjartansdóttir, barnabörn og barnbarnabörn. ✝ Hafdís Ríkarðs-dóttir fæddist í Reykjavík 8. maí 1936. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi þriðjudaginn 1. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Rík- arður Elías Krist- mundsson, f. 3.6. 1912, d. 5.9. 1970, og Guðrún Helgadóttir, f. 22.10. 1914, d. 23.7. 1978. Systkini Haf- kvæntur Júlíönu Ólafsdóttur, f. 27.12. 1955, og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. 2) Guðrún Ósk- arsdóttir, f. 6.9. 1957, giftist Gunn- ari Gunnarsyni, f. 18.11. 1956, þau skildu, eiga þau tvö börn og eitt barnabarn, er Guðrún núna í sam- búð með Þórarni Víkingi Gunnars- syni, f. 4.9. 1956, og eiga þau tvö börn. 3) Helgi Þór Óskarsson, f. 29.11. 1961, kvæntur Arnheiði Magnúsdóttur, f. 3.11. 1960, og eiga þau tvö börn. 4) Hafþór Ósk- arsson, f. 4.8. 1963, í sambúð með Elisabet Magnúsdóttur, f. 14.8. 1962, og eiga þau tvö börn. 5) Ósk- ar Halldór Óskarsson, f. 7.9. 1970, kvæntur Nicole Óskarsson, f. 29.8. 1971. Útför Hafdísar var gerð frá Hall- grímskirkju í Reykjavík 9. júní. dísar eru Ríkey Rík- arðsdóttir, f. 28.4. 1939, Guðrún Ríkarðs- dóttir, f. 5.1. 1947, Anna Ríkarðsdóttir, f. 28.9. 1952, Guðbjörn Helgi Ríkarðsson, f. 11.2. 1935, d. 15.4. 1979. Hafdís giftist Óskari Benedikt Benedikts- syni, f. 2.11. 1935. Þau skildu. Þeirra börn eru: 1) Ríkarður Ósk- arsson, f. 17.11. 1955, Elsku mamma mín, ég mun sakna þín mikið og munt þú alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Ég þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman, bæði hér heima og í Ástralíu. Ég saknaði þín svo gríðarlega mikið þegar ég ákvað að fara til Ástralíu, sem upphaflega átti nú að verða eitt ár en urðu sex þar til við hittumst aftur. Þegar ég kom í heimsókn eyddum við jólum og áramótum saman. Á ég mjög góðar og hlýlegar minningar um þann tíma. Ég minnist sérstaklega stund- anna sem við áttum saman í Ástr- alíu þegar þú lagðir á þig þessa löngu ferð til að heimsækja mig og Guðrúnu systur og varst hjá okkur í eitt ár, og allra ógleymanlegu og skemmtilegu ferðalaganna okkar saman um Vestur-Ástralíu. Ég er svo heppinn að hafa átt þennan dýrmæta tíma með þér og lærði ég mjög mikið um þínar hugsanir og tilfinningar, ekki sem unglingur heldur fullorðinn maður og vinur. Ég man svo vel þá hugsun hjá þér að ef þú varst ekki búin að heyra frá einhverjum í fjölskyld- unni einhvern tíma, þá sagðir þú alltaf: „Engar fréttir eru góðar fréttir,“ og þú vissir að allt væri í lagi. Eins líka þegar eitthvað brotnaði óvart þá varðstu aldrei reið en sagðir alltaf: „Elskan mín, þetta eru bara dauðir hlutir.“ Þú varst alltaf svo innilega gjaf- mild, vildir allt fyrir alla gera, en áttir bágt með að þiggja frá öðrum, þú hefur alla tíð verið svo hörku- dugleg og sjálfstæð. Ég minnist allra þeirra innilegu stunda sem við áttum saman, bara þú og ég, og mun ég ávallt hafa þig í huga mér um ókomna tíð. Hvíldu nú í friði, elsku mamma mín. Þinn sonur Óskar. Nú hefur verið höggvið stórt skarð í okkar systra hóp, ein af fjórum hefur fallið frá, sú elsta, sterkasta og duglegasta. Alla tíð höfum við systurnar búið við það lán að eiga trausta, duglega stóru systur sem hægt var að leita til hvenær sem var, hvort sem var til að passa börn eða til skrafs og ráðagerða. Haddý systir hafði allt- af tíma. Dugnaður Haddýjar var einstak- ur og kom það fljótt fram þegar hún var ung og við systurnar allar á heimili foreldra okkar, þá tók hún að sér erfiðustu verkin og leið- inlegustu. Að því búnu spilaði Haddý á píanóið. Þessi fallega minning kemur upp í hugann þegar hugsað er til æskuheimilis okkar. Í þá daga var mikið farið í bíó og á heimleiðinni mátti ekki tala því þá var Haddý að reyna muna lagið úr myndinni svo hún gæti spilað það þegar heim var komið. Margar minningar koma upp í hugann þegar kemur að skilnaðar- stund, það verður tómlegt að hugsa sér tilveruna án Haddýjar. Þótt fjarlægðin hafi oft verið mikil átti hún til að hringja í tíma og ótíma og símtölin enduðu allaf eins og bréfin líka: „Megi allir Guðs englar vaka yfir þér og blessa, farðu vel með þig.“ Við systurnar eru þakklátar fyr- ir að hafa búið við þá gæfu að eiga slíka systur, sem ávallt veitti okkur stuðning. Elsku systir, blessuð sé minning þín. Megi Guðs englar vaka yfir þér og blessa þig. Hvíl þú í friði. Ríkey, Guðrún og Anna. HAFDÍS RÍKARÐSDÓTTIR Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum. Formáli minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.