Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 29 Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í júlí á hreint ótrúlegu verði, en nú er sumarið komið á vinsælustu áfangastöðum Evrópu og aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á fegursta tíma ársins. Munið Mastercard ferðaávísunina Síðustu sætin í sólina í júlí frá kr. 19.990 með Heimsferðum Bologna Verð frá kr. 19.990 Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 til Bologna/- Forli, 1. og 8. júlí. Netverð. Mallorca Verð frá kr. 34.995 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 7. júlí, vikuferð, nettilboð. Netverð. Benidorm Verð frá kr. 29.995 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku- ferð, stökktutilboð, 7. júlí. Netverð. Rimini Verð frá kr. 39.995 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku- ferð, 1. júlí, stökktutilboð. Netverð. Costa del Sol Verð frá kr. 39.990 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku- ferð, 7. júlí, stökktutilboð. Netverð. Barcelona Verð frá kr. 19.990 Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 til Barcelona, 1. júlí. Netverð. Portúgal Verð frá kr. 39.990 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku- ferð, 7. júlí, stökktutilboð. Netverð. Króatía Verð frá kr. 33.895 Flugsæti á mann með sköttum, beint flug á Trieste. Tryggðu þér síðustu sætin í júlí staklega fyrir nemendur skólans sem frumflutt voru á Myrkum músík- dögum í febrúar. En Tónskólinn stóð jafnframt fyrir málþingi um stöðu og framtíð tónlistarmenntunar í tilefni afmælisins. „Við vildum efla mál- efnalega umræðu um stöðu tónlistar- skólanna með það í huga að skoða okkur sjálf og bæta samstarf milli þeirra aðila sem starfa að tónlistar- menntun á höfuðborgarsvæðinu. Þetta málþing var það besta sem við gátum lagt til í tilefni afmælisins og fremur en að vera með dýra og um- fangsmikla afmælisútgáfu ákváðum við að gefa út erindin sem þar voru flutt, með von um það gæti stuðlað að áframhaldandi umræðu,“ segir Sig- ursveinn, en hann gegnir for- mennsku í Samtökum tónlistarskól- anna í Reykjavík (STÍR). Umræða um stöðu tónlistarskólanna í borginni er honum því hugleikin. „Það er fyrir atbeina sveitarfélaganna að hafin er endurskoðun á lögum um fjárhags- legan stuðning við tónlistarskóla, og óskir þeirra þarf að vega og meta af raunsæi. Ef marka má fréttir af vinnu nefndarinnar vilja sveit- arfélögin nú að ríkið fari aftur að kosta hluta tónlistarnámsins. Þetta er dálítið merkilegt í ljósi þess að fyr- ir 15 árum óskuðu sveitarstjórn- armenn eftir að fá að taka að sér tón- listarskólana og gerðu lítið úr efasemdum okkar sem töldum þátt- töku ríkisins nauðsynlega. En hvað sem slíkri greiðsluskiptingu líður er mikilvægt að standa vörð um opið og sveigjanlegt lagaumhverfi og að rétt- urinn til náms verði ekki takmark- aður frá því sem nú er.“ Hann segir óvissu ríkja í tónlist- arskólunum í Reykjavík, þar sem Reykjavíkurborg virðist standa frammi fyrir nokkrum vanda um skiptingu fjár til þeirra. „Við sem sitjum í STÍR sjáum ekki hvernig sú þróun geti haldið áfram, að skólunum sem njóta fjárstuðnings fjölgi stöð- ugt án þess að til komi meira fjár- magn. Athugun hefur sýnt að mörg- um smáum skólum fylgir óhagkvæmari rekstur, því þar fer stærra hlutfall fjármuna til stjórn- unar heldur en í stærri skólum. Auk þess stendur lítill tónlistarskóli verr að vígi í sambandi við fjölbreytni námsgreina, samleik og annað sem tengist tónlistarnámi. Þetta hefur verið okkar helsta áhyggjuefni í STÍR og við höfum reyndar unnið með borginni í vetur að tillögugerð varðandi þetta.“ Ágreiningur milli Reykjavík- urborgar og Samtaka tónlistarskóla- kennara um framkvæmd á kjara- samningi veldur ugg, að sögn Sigursveins. „Málaferli sem hafin eru til að knýja fram úrskurð eru bæði kostnaðarsöm og seinvirk, og óvissu um viðkvæm mál í svo langan tíma verður að forðast og jafna þann ágreining sem ríkir milli aðila. Al- mennt þykir okkur miður að borgin skuli ekki standa betur vörð um tón- listarskólana en raun ber vitni og sýna meiri umhyggju gagnvart því dýrmæta samstarfi um tónlist- arkennsluna sem tekist hefur á síð- ustu áratugum. Fyrst og síðast verð- ur samstarfið að byggjast á gagnkvæmu trausti og skilningi. Þetta er ein meginforsenda stöð- ugleikans sem er svo nauðsynlegur í starfi skólanna.“ Virkir þátttakendur Sigursveinn Magnússon leggur ríka áherslu á samstarf og samleik í skólastarfi sínu. „Við kennararnir er- um öll sérfræðingar hver á sitt hljóð- færi, það fylgir því að vera tónlist- armaður. En við megum passa okkur að draga ekki alltof skýrar línur milli hljóðfæra og námsgreina, vegna þess að við eigum svo margt sameiginlegt þó að sums staðar séu skilin glögg. Mikill hluti tíma okkar stjórnend- anna fer í að skapa þennan sameig- inlega vettvang, að tryggja þátttöku margra með ólík hljóðfæri í spenn- andi verkefnum. Þannig sköpum við raunverulegt skólasamfélag, því skóli er vettvangur margra sem ganga hönd í hönd að sama marki. Við vilj- um gjarnan að nemendur finni að þeir séu hluti af stærri heild, og einn- ig af tónlistarlífinu sjálfu, því það er það sem þau eru – virkir þátttak- ingamaria@mbl.is DANSLEIKHÚSKEPPNI Leik- félags Reykjavíkur og Íslenska dans- flokksins er nú haldin í annað sinn. Hér er um sérlega lofsvert framtak að ræða, gott tækifæri til að rann- saka mörk og möguleika þessara list- greina sem búa saman í Borgarleik- húsinu. Reyndar sýnist mér sem þetta sambýli sé einkar farsælt þar á bæ og þessi keppni er fráleitt eina dæmið um vel lukkað samstarf á milli dansflokksins og leikfélagsins. Það var ánægjulega afslappað andrúmsloft í stóra salnum á fimmtu- dagskvöldið, kynnarnir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir, gáfu tóninn með það. Það var mikið fagnað og talsvert hlegið, enda dagskráin eins og við var að búast fjölbreytt mjög. Það er best að taka það strax fram að undirritaður nálgast dansleikhús- ið úr leikhússáttinni og er því al- mennt séð hrifnari af þeim sýningum þar sem einkenni þeirrar listar eru í forgrunni. Það kom líka á daginn að þær sýningar sem byggðust á ein- faldri grunnhugmynd sem tókst að koma til skila höfðu mest áhrif á þennan gagnrýnanda. Aðrar, sem voru kannski frumlegar og frjóar en náðu ekki að skila innihaldi – merk- ingu – til mín, fundust mér sem því nemur lakari. Það þarf samt ekki endilega „leik- list“ til að skila þessari merkingu eins og sú sýning sannaði sem mér þótti mögnuðust: Komið og dansið: A found object, eftir Jón Atla Jónasson og Stefán Jónsson. Þeir fylltu sviðið af „venjulegu“ fólki sem dansaði síð- an samkvæmisdansa og annað slíkt meðan texta um gildi þess að dansa var varpað á vegg. Þessi sýning sam- einaði það að vera bráðskemmtileg, fullkomlega frábrugðin öllum hinum og varpa ljósi á eðlismun dans og leiklistar. Leiklist er nefnilega alger- lega háð því að á hana sé horft, hún snýst alltaf um samband leikara og áhorfanda. Dansarinn getur hins vegar verið sjálfum sér nógur, dans snýst ekki í sjálfu sér um tjáskipti nema milli þeirra sem dansa. Sýning þeirra félaganna var í vissum skiln- ingi alls ekki sýning, ekki ætluð áhorfendum. Og með því varð hún merkingarríkasta sýning keppninn- ar. Hún hreppti annað sætið. Nokkrar sýninganna náðu hreint ekki að vera skýrar á því hvað þær vildu segja, og hafa líklega ekki ætlað sér það. Þannig var um óræða og brotakennda sýningu Steinunnar Knútsdóttur og þeirra Valsdætra, Ólafar, Arnbjargar og Örnu, Sjá augu mín einsog þín, systir. Hún byrjaði vel með skemmtilegu sam- spili myndbands og leikara/dansara, en skipti of oft um stefnu til að hún héldi út. Þá voru Flugur Aðalheiðar Halldórsdóttur og X í öðru veldi eftir Rebekku Austmann Ingimundar- dóttur lítt að tala við þennan áhorf- anda, þótt síðarnefnda sýningin væri greinilega gerð af miklu hugviti og nákvæmni. Hún hafnaði í þriðja sæti. Og þó Dagur í frystihúsinu, verk þeirra Höllu Ólafsdóttur og Ilmar Kristjánsdóttur, væri sniðugt, vel sviðsett og textinn og týpurnar fyndnar, var óræðnistuðullinn nokk- uð of hár fyrir minn smekk þegar upp var staðið. Þrjár sýninganna sóttu viðfangs- efni í dægurmálin, en á skemmtilega ólíkan hátt. Detatched, hugleiðing Peter And- erson um skelfingarástand heimsins og skeytingarleysi okkar þar um, notaði það gamalkunna bragð að láta eina persónu þylja heimsósómaræðu yfir okkur meðan önnur talaði um fá- fengilega neysluhluti. Sýningunni tókst ekki að yfirvinna þessa klisju eða taka á henni á frumlegan hátt, en Gunnar Hansson bjargaði því sem bjargað varð með snaggaralegum sölumennskutöktum. Augnablik Kolbrúnar Halldórs- dóttur sótti sinn áhrifamátt í afar skýra og sterka hugmynd, að fram- lengja augnablikið þegar fyrsta sprengjan var sprengd við Kára- hnjúka, og sýna okkur bergið – túlk- að af dönsurum – vakna til lífsins og leysast upp um leið. Flott hugmynd sem skilaði sér til okkar, en dansinn sjálfur var kannski dálítið „leiklist- arnámskeiðsspunalegur“ og söngur- inn kom mér spánskt, eða kannski afrískt, fyrir sjónir og hjálpaði ekki hugmyndinni eða áhrifunum. Birna Hafstein og Sveinbjörg Þór- hallsdóttir fengu þá brjáluðu, og satt best að segja smekklausu, hugmynd að flytja síðustu daga og dauða Vaid- asar Jusiviciusar úr heimi smá- krimma og eiturlyfja yfir í gerviver- öld samkvæmisdansanna. Sniðugt, mjög vel flutt, en ekki nógu fyndið eða beinskeytt til að það réttlætti svona léttúðuga meðferð á þessum (afsakið orðbragðið) mannlega harm- leik. Sigurvegari kvöldsins var svo Bergur Þór Ingólfsson, en sýning hans, Hamlet – Superstore, fékk bæði fyrstu verðlaun frá dómnefnd og áhorfendum. Sýningin er vel að þessu komin. Áberandi skemmtileg- asta kóreógrafían fyrir leikmann eins og mig, merkingarbær án þess að vera látbraðgsleikur, kröftug og skýr. Hugmyndin var kannski ekki frumleg, grunnsagan í Hamlet flutt með merkingarlausum texta, í þessu tilfelli texta úr munni viðskiptavina matvöruverslunar, algeng æfing á leiklistarnámskeiðum. Útfærslan var hins vegar afbragð, skemmtigildið ótvírætt og alltaf ljóst hvað verið var að gera. Þetta var ánægjuleg kvöldstund. Fjölbreytnin mikil, gæðastuðullinn hár og meira að segja lökustu verkin voru aldrei leiðinleg, alla vega ekki lengi í einu. Þessi hátíð er án efa orð- in fastur liður í starfsemi Borgarleik- hússins, og fullur salur af fólki ætti ekki að letja forráðamenn hússins til að halda áfram á þessari braut. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Aðstandendur „Hamlet – Superstore“ eftir Berg Þór Ingólfsson. Meira salsa! LEIKLIST Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn Höfundar: Arna Guðný Valsdóttir, Arn- björg Hlíf Valsdóttir, Birna Hafstein, Halla Ólafsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Atli Jónasson, Kolbrún Halldórsdóttir, Ólöf Sigríður Valsdóttir, Peter Anderson, Rebekka Austmann Ingimundardóttir, Stefán Jónsson, Steinunn Knútsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Borgarleikhús- inu 10. júní 2004. DANSLEIKHÚSSAMKEPPNI Þorgeir Tryggvason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.