Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 19
og meðal þeirra starfsgreina sem kynntar voru var iðjuþjálfun. „Ég féll fyrir starfinu um leið,“ segir Elín Ebba. „Eftir stúdentsprófið fékk ég starf sem aðstoðarmaður iðjuþjálfa á Grensásdeild og þar fékk ég áhuga á að starfa með geðsjúkum. Ég var nefnilega send í handleiðslu til Hope Knútsson, iðjuþjálfa á Kleppi, og eft- ir þau kynni var ég endanlega sann- færð. Hope var langt á undan sinni samtíð og er enn. Ég sótti svo um skóla í Noregi og komst að með góðra manna hjálp. Norðmennirnir voru eiginlega þreyttir til uppgjafar með endalausum bréfum frá mér og stuðningsmönnum mínum.“ Þegar svarið barst loks frá Noregi var Elín Ebba ferðbúin til Banda- ríkjanna, þar sem hún hafði fengið inni í skóla. Hún hélt til Noregs og þar tók á móti henni starfsmaður skólans. Elín Ebba var hins vegar húsnæðislaus, en kennarinn rakst á einn nemanda skólans, unga konu sem ákvað strax að bjóða þessari vegalausu, íslensku stúlku heim með sér. „Hún var ein með litla bróður í stóru húsi foreldra sinna, sem voru á ferðalagi og annar bróðir hennar var einnig fjarverandi. Ég veit ekki hvernig henni datt í hug að bjóða blá- ókunnugri stelpu að búa hjá sér.“ Annar bróðir þessarar gestrisnu stúlku var Jon Kjell Seljeseth, síðar eiginmaður Elínar Ebbu. Hann flutti með henni hingað til lands þegar hún var kölluð heim til starfa við stofnun dagdeildar fyrir geðsjúka við Borg- arspítalann árið 1980. Í fyrstu starf- aði hann við arkitektúr, en söðlaði síðar um, einbeitti sér að tónlistinni og hefur komið víða við á þeim vett- vangi. Þau hjón eiga þrjá stráka, 16, 14 og 8 ára. „Markmiðið með stofnun dagdeildarinnar á Borgarspítala var meðal annars að kenna fólki að lifa án lyfja. Núna, nærri aldarfjórðungi síð- ar, þykir þetta byltingarkennd hug- mynd, sem sýnir öfugþróunina í þessum málum. Tröllatrúin á lyfjum er slík að varla kemst nokkur önnur hugsun að. Ég vil taka fram, að ég er fyllilega sátt við störf lækna og hjúkrunarfræðinga í bráðaþjónustu, þar nýtist þekking þeirra allra best. Á því stigi hafa sjúklingar lítið sem ekkert við iðjuþjálfa að gera og ég vil ekkert skipta mér af bráðaþjónust- unni. Þegar henni sleppir vil ég taka við. Það er svo önnur saga, að verð- mætamatið innan heilbrigðiskerfis- ins er út í hött. Þar fá skurðlæknar hæstu launin og dýrustu tækin, en iðjuþjálfar fá brot af þessum upp- hæðum. Samt getur starf mitt og annarra iðjuþjálfa komið í veg fyrir örorku sem kostar þjóðfélagið tugi milljóna. Lág laun þýða líka að deild- irnar eru að stórum hluta mannaðar nýútskrifuðu fólki. Ég næ að laða til mín fólk, sem er reiðubúið að starfa á geðdeildinni í 1–2 ár eftir útskrift, en svo neyðist það til að leita í betur launuð störf. Og auðvitað er þjónust- an ekki eins góð og hún getur verið þegar við höfum ekki reynt fagfólk í öllum störfum. Reynt fólk með sterka sjálfsmynd er nauðsynlegt á geðdeildum. En hafi það sterka sjálfsmynd lætur það ekki bjóða sér þau lágu laun sem þykir við hæfi að greiða.“ Glufur milli ráðuneyta Elín Ebba segir að hún hafi hug- leitt hvort ekki væri réttast að sam- eina heilbrigðis-, trygginga- og fé- lagsmálaráðuneyti. „Þessir mála- flokkar tilheyra einu ráðuneyti í Noregi og víðar. Mér sýnist sem ákveðnir málaflokkar falli niður í glufu sem myndast á milli þessara ráðuneyta hér á landi og aðskilnað- urinn gerir erfitt um vik að bjóða geðsjúkum sem öðrum heildarlausn- ir. Veikindin falla undir heilbrigðis- ráðuneytið, en atvinnu- og búsetu- mál undir félagsmálaráðuneytið. Þessir málaflokkar eru oft nátengd- ir, til dæmis þarf ég að biðla jafnt til beggja ráðuneyta í málefnum geð- sjúkra. Það felst ekki mikil skilvirkni í því. Líklega þyrfti að færa verkefni á þessu sviði enn frekar til sveitarfé- laganna en nú er, þá myndu ákvarð- anir um lausnir færast nær þeim sem þurfa að nota þjónustuna.“ Þrátt fyrir að oft sé á brattan að sækja er Elín Ebba sannfærð um að breytt viðhorf til geðsjúkra og með- ferðar þeirra muni breyta því kerfi sem nú er við lýði. „Núna eru geð- sjúkir að vakna til vitundar um rétt- indi sín og áhrifamátt. Enginn þekk- ir sjúkdómana og einkenni þeirra betur en þeir sjálfir og enginn er færari um að leggja mat á hvaða þjónusta kemur þeim best. Markmið okkar, sem störfum innan heilbrigð- iskerfisins, á að vera að styðja þá til sjálfshjálpar með öllum þeim ráðum sem við búum yfir. Ég er aldrei ánægðari en þegar ég finn að mín er ekki þörf lengur. Þá er tilganginum náð.“ ing skiptir öllu rsv@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 19 Við hjálpum þér að stokka upp fjármálin – með hagstæðu fasteignaláni Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur á að skipa hópi fagfólks með víðtæka reynslu, ríka þjónustulund og sérfræðiþekkingu á öllum sviðum lánastarfsemi; viðskiptafræðingum, rekstrarfræðingum, löggiltum fasteignasölum og lögmönnum. Þessu fólki geturðu treyst Linda Bentsdóttir, lögmaður og forstöðumaður viðskiptasviðs. 50%afsláttur aflántökugjalditil 1. júlí H im in n o g h a f. Vextir frá5,4% Akureyri, en þar er skoðað hvernig erfiðleikar, áföll eða andlegt álag geta raskað venjum fólks og hindrað það í að stunda sína daglega iðju. „Iðjuþjálfar nýtast best þeg- ar þeir vinna með skjólstæðingum sínum í þeirra eigin umhverfi, hvort sem það er á heimili, í skóla eða á vinnu- stað.“ Í starfi sínu sem forstöðuiðjuþjálfi á geðsviði LSH og lektor við HA segist Elín Ebba leggja metnað sinn í að fylgjast með því besta á þessu sviði erlendis, miðla því til samstarfsmanna og nema og aðstoða sitt fólk við að hrinda nýjungum í framkvæmd. Hún heldur fyrirlestra og námskeið fyrir almenning og segir markmið sitt vera að fólk geri sér grein fyrir á hvern hátt dagleg iðja hefur áhrif á sjálfstraust, líðan og heilsu. Elín Ebba hefur sótt sér þekkingu á erlendar ráð- stefnur, en miðlar jafnframt eigin þekkingu og reynslu. Í haust mun hún til dæmis verða með tvö erindi á Evrópu- ráðstefnu iðjuþjálfa í Aþenu. Í erindunum kynnir hún rannsókn sína, „geðrækt geðsjúkra“, og könnun sem hún gerði á viðhorfum geðfatlaðra til atvinnuþátttöku. Þá mun hún stýra vinnuhópi á ráðstefnunni, þar sem hún fjallar um á hvern hátt samvinna notenda þjónustunnar og iðjuþjálfans skilaði sér í forvarnarverkefninu „geð- rækt“, sem Héðinn Unnsteinsson, fyrrverandi notandi geðheilbrigðisþjónustunnar, kom á laggirnar með því markmiði að efla geðheilsu og minnka fordóma. IÐJUÞJÁLFUN er kennd við Háskólann á Akureyri og er fjögurra ára nám. Námið er bæði bóklegt og verklegt og markmiðið með því er að búa nemendur undir að gegna margvíslegum störfum sem tengjast iðjuþjálfun innan heilbrigðis- og félagsþjónustukerfisins. Fagið er fjölbreytt og iðjuþjálfar geta valið um mörg svið; að starfa með börnum, fólki með geðræn vandamál, meta þörf og útvega hjálpartæki, eða vinna að heilsuefl- ingu á vinnustöðum, svo fátt eitt sé nefnt. „Góður iðjuþjálfi vinnur með skjólstæðingi sínum, finn- ur út hvað hann leggur áherslu á og hvað honum finnst mikilvægt. Sú iðja sem við stundum og samskipti okkar við aðra hafa áhrif á sjálfsmynd okkar og líðan. Þess vegna er iðjan og þátttaka fólks í samfélaginu alltaf í for- grunni hjá iðjuþjálfum. Nútímaendurhæfing er pólitísk, því taka verður tillit til umhverfisþátta; á hvern hátt þeir hindra eða styðja við heilsu. Þar koma til álita þættir eins og aðgengi, viðhorf og fordómar. Góður iðjuþjálfi vinnur að hagsmunabaráttu fatlaðra. Hann vinnur að því að auka hlutdeild og áhrif þeirra, er jafnréttissinni og upp- tekinn af því að allir geti tekið þátt í verðmætasköpun í samfélaginu. Það mun eflaust taka einhvern tíma fyrir ráðamenn að átta sig á að þessa sýn iðjuþjálfa á að nýta í stefnumótun heilbrigðisþjónustunnar,“ segir Elín Ebba Ásmundsdóttir. Elín Ebba kennir sálfélagslega nálgun við Háskólann á „Nútímaendurhæfing er pólitísk“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.