Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HELGINA 4. og 5. september verður
mikið um dýrðir á víkingahátíð í Hró-
arskeldu í Danmörku. Hápunktur há-
tíðarinnar verður þegar stærsta lang-
skipi heims, tæplega 30 metra að
lengd verður hleypt af stokkunum frá
nausti Víkingaskipasafnsins. Þegar
smíði skipsins lýkur í haust er áætlað
að það hafi tekið
um 24.000 vinnu-
stundir síðast-
liðin 4 ár og not-
að hafi verið
timbur úr 14 metersþykkum eik-
artrjám. Að undanförnu hafa átta
smiðir starfað við gerð skipsins.
Fyrirmyndin eru leifar Skuldelev 2,
stærsta skipsins á Víkingaskipasafn-
inu sem var langskip til hernaðar og
tók um 100 manns, þar af 60 undir ár-
um. Seglið verður 118 m2 og í góðum
byr er búist við að ná 20 hnúta hraða
og halda í við gámaskipin á heimshöf-
unum.
Gestir og gangandi geta komið og
fylgst með smiðunum fullgera lang-
skipið með verkfærum víkingatímans
í bátanaustinu við bryggjuna hjá safn-
inu. Einn tilgangurinn með smíðinni
er að læra vinnubrögð skipasmiða á
tímum víkinganna og viðhalda þeirri
verkkunnáttu. Allir verkþættir smíð-
innar eru kvikmyndaðir til að varð-
veita þá reynslu sem fengist hefur.
Árið 2007 er áætlað að sigla skipinu til
Dublin á Írlandi þar sem fyrirmyndin
var smíðuð árið 1042.
Á víkingaskipasafninu eru leifar
fimm skipa sem fundust í Roskilde-
firði árið 1962. Um það bil árið 1050
var þeim sökkt framan við innsiglingu
að höfninni til að hindra aðkomu
óvinaskipa til bæjarins.
Utan um skipin var byggt safnhús
og eru þau til sýnis alla daga. Safnið
hefur með árunum þróast í að verða
fjölbreytt skipaminjasafn og hefur
eignast ýmsar gerðir gamalla skipa,
bæði endursmíðaðra og eftirlíkinga.
Fyrir fimm árum var hafist handa
að auka mjög við starfsemi safnsins.
Gerð var eyja við vík skammt frá til að
rúma veitingastað, bátanaust og rann-
sóknastofu þar sem með hjálp tölvu-
tækni er rannsakað hvaða verkfæri
voru notuð við smíði víkingaskipanna.
Við uppgröftinn í höfninni komu
hvorki meira né minna en níu skip í
ljós, það stærsta 36 metra langt og
hefur nú Ivar Hansen verkefnisstjóri
ærið verkefni að rannsaka skipin níu
sem fundust við byggingu rannsókn-
arstofu hans.
Á vegum safnsins eru einnig farið
dag- og kvöldsiglingar auk þess sem
boðið er upp á siglinganámskeið, sem
standa yfir í 1-5 daga. Nánari upplýs-
ingar er að finna á vefsíðu safnsins:
www.vikingeskibsmuseet.dk
Morgunblaðið/Ómar
Trénaglar: Við smíði skipsins er eingöngu notast við áhöld eins og tíðkuðust á tímum víkinga. Allir verkþættir eru kvikmyndaðir.
Bátanaustið: Átta smiðir eru í fullu starfi að gera eftirlíkingu af stærsta skipinu á Víkingaskipasafninu í Hróarskeldu.
Víkingasafnið: Fyrirmyndin er hægra megin.
Bátamenning: Við höfnina.Gestirnir: Öllum er velkomið að mæta á skikkjunum og láta mynda sig á þilfari víkingaskips.
Víkingaskip
í smíðum
Rispur
Staðurinn | Hróarskelda