Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er merkilegt hvað fjöll geta stækkað mikið. Þegar lagt er upp í ferðina er Esjan miklu minni en Volkswagen Golf-skutbíll, en á áfangastað er bíllinn eins og skítur undir tánögl Esjunnar. Á bílastæðinu við tærnar eru glaðlegar konur að búa sig undir fjallgöngu. Þær hafa farið þetta áður, allt frá klukkutíma á leiðinni upp í tvo og hálfan tíma. Blaðamaður setur upp furðusvip og endurtekur spurningu sem hann fékk frá föður sínum: – Til hvers? Þær hlæja bara, en ein miskunnar sig yfir blaðamann og svarar: – Þetta er holl hreyfing. Og svo erum við að búa okkur undir lengri göngu, Laugaveginn. Það eru tuttugu bílar á stæðinu og þriðji hver bíll jeppi. Út úr einum stígur maður, sem lítur á blaðamann og kallar: – Það er ekki nóg að glápa á fjallið! Hann er líka að fara í fyrsta skipti á Esjuna, eins og blaðamaður. – Ég hef ekki þurft þess, segir hann. – Þarftu þess núna? spyr blaðamaður undrandi. – Nei, ætli ástæðan sé ekki sú að Esjan er of nálægt. Oftast er skemmtilegra að fara hinumegin við lækinn. Það er sannast sagna stutt í kyrrðina frá Reykjavík, þó borgin minni á sig í beljandi bílaumferð. Flautan gellur á þjóðveginum og fjarlægðin við stresshnúta umferð- arinnar miklu meiri en metrarnir gefa til kynna. Eftir að hafa borðað næstum allt nestið á bíla- stæðinu er loks lagt á fjallið. Fram hjá girðingar- staur með rauðan vettling og þumalinn upp, sem verður að teljast jákvæður fyrirboði, sem og heið- ríkjan, sólin og söngurinn í fuglunum. Frísklegur ungur maður heldur á vendi með alaskalúpínum. – Handa frúnni? spyr blaðamaður. – Nei, ég er með kaffisamsæti á morgun, svarar ungi maðurinn. Hann segir gönguna hafa sóst seint, því Dani hafi verið í hópnum, sem ekki sé vanur 914 metra ójöfnum. Uppi á toppnum hafi hann viljað láta taka mynd af sér fyrir ofan skýin. – Slíkar myndir eru fátíðar í Danmörku, segir maðurinn og bros- ir. Það er ólíklegasta fólk sem maður rekst á í fjallinu. Þá er gjarn- an skipst á lykilupplýsingum á mettíma. Maður sem mætir blaða- manni er kominn í lögguna, á barn og skuldar lítið. Það tala líka all- ir saman, þó að þeir þekkist ekki. Léttstíg eldri kona með göngustafi og gráhvítt hár eins og hlíðar Esjunnar að vetri skíðar nánast niður brekkuna, en gefur sér tíma til að ráðleggja blaða- manni að fara upp austan megin, í skriðunum. Hún segist ekki búin að fara nema nokkrum sinnum á Esjuna í vor. Svo leiðist par niður brekkuna. – Rómantísk ferð? – Nei, pabbi er á undan, svarar stúlkan og hlær. Hún er að fara í fyrsta skipti á Esjuna síðan hún var tíu ára. Og blaðamaður tjáir henni að þetta sé sveinsferðin hans. – Þú verður þá að gera eitthvað, – umskera þig, segir hún. – Er boðið upp á það? spyr blaðamaður hissa. – Hvassir steinar, svarar hún. Eftir því sem blaðamaður þokast lengra upp á fjallið, þá verður hann drýgri með sig. – Er þetta ykkar toppur, kallar hann á göngufólk, sem er að hvíla beinin í laut hjá stígnum. Hann er ekki jafnöruggur með sig þegar hópurinn fer fram úr honum skömmu síðar. Eins og dalalæðan sem situr makindalega norðanmegin, en ræðst skyndilega til uppgöngu á fjallið og í því kólnar mikið í hlíðunum. En nokkrum augnablikum síðar sígur hún niður aftur og gufar hreinlega upp eins og dögg fyrir sólu. Eftir nokkurt príl nær blaðamaður upp. Hann áttar sig á því að hann er kominn í 780 metra hæð á Þverfellshorni og að Esjan er hærri en flest fjöll í sjónmáli. Og verður svolítið lofthræddur við til- hugsunina. Uppi á fjallinu situr kona með tvo göngustafi. Hún er líka lofthrædd. – Í alvöru talað, það þarf að panta þyrlu, segir hún. Ég kemst ekki niður. Þrír vanir fjallgöngumenn taka að sér að fylgja henni niður erf- iðasta hjallann, úr klettabeltinu, og koma síðan upp aftur. – Þið vitið að það eru þrjár konur eftir, segja samferðakonur þeirra hlæjandi. – Fjórar, kallar önnur. Gestabókin á fjallinu er full, þrátt fyrir að fyrsta færslan sé að- eins frá 20. maí. Um 1.600 manns sem hafa skrifað eða um 80 á dag. Að síðustu er ágætt að það komi fram að það eru 26 kílómetr- ar í Stóra-Kóngsfell frá Esjunni. Það veit enginn nema hann hafi komið á Esjuna og skoðað útsýnisskífuna. Ættingi Jóns J. Víðis, sem útsýnisskífan er helguð, réttir blaðamanni viskí á pela. Par er búið að dekka upp næsta stein, dregur fram diska og kjúkling, glös á fæti og bjór. Og það hefur verið hugsað fyrir kertaljósinu – rauðu sólsetri. Morgunblaðið/RAX Sveinsferð á Esjuna SKISSA Pétur Blöndal skoðaði heim- inn frá toppn- um ÍSLENSK stjórnvöld munu sækjast eftir því að fá betri markaðsaðgang fyrir lambakjöt og hross á fæti í Evr- ópusambandsríkjunum í samninga- viðræðum sem hefjast á næstunni við framkvæmdastjórn ESB. Viðræð- urnar munu snúast um endurskoðun á skilyrðum fyrir viðskipti með land- búnaðarafurðir en skv. EES-samn- ingnum skal slík endurskoðun fara fram reglulega í þeim tilgangi að auka smám saman frjálsræði í við- skiptum með landbúnaðarafurðir. Af hálfu Íslands verður annars vegar lögð áhersla á að auka toll- frjálsan innflutningskvóta á lamba- kjöti, að sögn Grétar Más Sigurðs- sonar, skrifstofustjóra viðskipta- skrifstofu utanríkisráðuneytisins. Kvótinn er í dag 1.350 tonn og var hann fullnýttur á síðasta ári í fyrsta sinn. Hins vegar verður lögð áhersla á það í viðræðunum að fjölga þeim hrossum sem árlega má flytja toll- frjálst til ESB-ríkjanna en slíkur inn- flutningur takmarkast í dag við 100 hross á ári. Að sögn Grétars hefur verið rætt um að fá þeim fjölgað í 500 hross. Mun Ísland jafnvel leggja til að tollar á hross verði alveg felldir niður. Vaxandi útflutningur á lamba- kjöti inn á markaði ESB „Við fylltum innflutningskvótann á lambakjöti í fyrra og hefur útflutn- ingur á lambakjöti inn á markaði Evrópusambandsins verið vaxandi. Við höfum verið að heimsækja ein- stök aðildarríki og Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra hefur tekið þetta mál upp alls staðar þar sem hann hefur komið,“ segir Grétar Már. „Við munum halda því fram að Nýja-Sjáland er með 220 þúsund tonna kvóta og það sé heldur mikið bil þarna á milli Íslands og Nýja-Sjá- lands að þessu leyti,“ segir hann. Framkvæmdastjórn ESB lýsti sig nýlega reiðubúna til að hefja samn- ingaviðræður við Ísland skv. 19. grein EES-samningsins, sem mælir fyrir um þessa endurskoðun. Er und- irbúningur viðræðnanna þegar haf- inn. „Þetta er í fyrsta skipti sem við semjum við framkvæmdastjórnina þar sem hún hefur umboð frá 25 að- ildarríkjum,“ segir Grétar Már. „Þetta verður því nýtt reynsluferli fyrir okkur þar sem þetta er öðruvísi Evrópusamband við að semja og verður bara að koma í ljós hvort það verður erfiðara við að eiga en áður,“ segir hann. Samningaviðræður að hefjast milli Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðarafurðir Sækjast eftir stærri kvóta fyrir lambakjöt og hross FRAMKVÆMDIR við færslu Hringbrautar eru nú hafnar, og hafa meðal annars í för með sér, að svonefnd gullleitarhola frá 1922 hverfur af yfirborðinu, en þar var borað eftir gulli fyrir rúmum 80 ár- um. Boranirnar báru þó ekki ár- angur á sínum tíma en fyrst var borað í Vatnsmýrinni árið 1905 í leit að köldu vatni. Fljótlega komst sá kvittur á kreik að gull væri að finna á svæð- inu og með það í huga var önnur hola boruð árið 1907 og sú þriðja árið 1922 en þá var notast við þýsk- an haglabor. Þær tilraunir báru þó engan árangur, að sögn Þorgils Jónassonar hjá Orkustofnun, en þessi hluti Vatnsmýrarinnar fékk þó fljótlega nafnið Gullmýrin. Um er að ræða svæði sem er vestan við gamla Suðurpólinn, sem eitt sinn stóð við Flugvallarveg, að sögn Þorgils. Þrátt fyrir að þýski haglaborinn sem notaður var 1922 hafi ekki komið niður á gull, átti hann hins vegar eftir að reynast Reykvík- ingum gagnlegur. Hitaveita Reykjavíkur keypti borinn árið 1928 og notaði hann í 40 ár við að bora eftir heitu vatni. „Það var hið raunverulega gull sem fannst,“ seg- ir Þorgils. Borinn er nú geymdur á Árbæjarsafni en Hitaveitan gaf safninu borinn árið 1978 eftir að hann var tekinn úr notkun. 50 metra djúp Gullholan fræga var tæplega 50 metra djúp. Nokkrir starfsmenn Orkustofnunar og Íslenskra orku- rannsókna fóru niður í Vatnsmýr- ina í vor þegar framkvæmdir við Hringbrautina voru komnar í gang vegna þess að auðséð var að holan frá 1922 myndi hverfa af yfirborði jarðar. Þorgils náði því að mynda holuna áður en mokað var yfir hana eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Ljósmynd/Þorgils Jónasson Þar sem rörið skagar út í loftið má sjá gömlu borholuna en þar var eitt sinn borað eftir gulli. Gullholan hverfur undir gatnagerð RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært 22 ára mann fyrir stórfellda líkams- árás með því að ráðast á 16 ára dreng 3. apríl með þeim afleiðingum að milta hans rifnaði og af hlaust lífs- hættuleg innvortis blæðing. Ákærði var nýkominn á reynslulausn eftir 10 mánaða afplánun 2 ára fangelsis- dóms fyrir aðra grófa líkamsárás, auk gæsluvarðhalds, þegar honum lenti saman við piltinn og situr nú í gæsluvarðhaldi. Ríkissaksóknari krefst refsingar yfir ákærða en allt að 16 ára fangelsi liggur við brotum á 218. gr. al- mennra hegningarlaga sem brot ákærða er talið varða við. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða fórnarlambinu 1,5 milljónir króna í miskabætur. Þá eru ákærði og annar maður á þrítugsaldri, ákærðir fyrir tvær lík- amsárásir sem gerðar voru 5. apríl. Í öðru tilfellinu eru mennirnir ákærðir fyrir að hafa ráðist á og barið mann sem lá í sófa í íbúð við Hverfisgötu og að lokum fyrir líkamsárás gegn konu í bíl. Tvær síðarnefndu árásirnar eru taldar varða við 217. grein hegning- arlaga sem varða allt að eins árs fangelsi. Málið var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Ákærður fyrir stór- fellda líkamsárás
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.