Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Eitt af því mikilvægasta íverkahring bíóstjórans erað sækja kvikmyndahá-tíðir og kaupstefnur; ekkieinasta til að skoða þar kvikmyndir og kaupa heldur einnig til að hitta mann og annan, treysta sambönd við gamla og góða við- skiptavini og stofna til nýrra. Allt síðan Árni Samúelsson hellti sér af krafti út í bíóbransann hefur hann sótt slíkar hátíðir og í ár stóð hann á þeim merku tímamótum að sækja þá stærstu og um margt þýð- ingarmestu 25. árið í röð, hina nafn- toguðu kvikmyndahátíð sem haldin er í smáborginni Cannes sem liðast óskipulega eftir strandlínunni Côte d’Azur, við frönsku Rívíeruna. „Þessi hátíð er að mörgu leyti frábrugðin öllum öðrum og alltaf gaman og koma hingað. Þetta er svona toppurinn á þessu öllu sam- an,“ segir Árni þar sem hann situr andspænis blaðamanni með Mið- jarðarhafssólina í augum á kaffihúsi við La Crouisette-strandgötuna. Eins konar árshátíð „Þær eru þrjár „independent“- kaupmessurnar; þessi hér í Cannes, ein í Los Angeles og ein í Mílanó. Nú stendur til að hætta við þessa í Mílanó, viðskiptin færast þá þaðan til Los Angeles, þannig að þá verða þær bara tvær eftir.“ – Er mikill munur á kaupstefnu- num í Cannes og í Los Angeles? „Já, tvímælalaust. Los Angeles snýst einvörðungu um bisnessinn á meðan Cannes er miklu stærri og viðameiri í sniðum. Hér eru t.d. stöðug boð og gleðskapur á hverj- um degi á meðan á hátíðinni stend- ur.“ – Þannig að þetta er nokkurs konar árshátíð líka? „Svo mætti segja. Bærinn fyllist líka af fólki sem í sjálfu sér hefur ekkert með kvikmyndahátíðina að gera heldur er komið til að sýna sig og sjá aðra. Frakkar streyma að frá nærliggjandi byggðum, frá Mars- eille, Nice og Monte Carlo. Allir vilja upplifa þessa stemningu sem ríkir. Hver vill líka ekki freista þess að sjá eftirlætis kvikmyndastjörnu sinni bregða fyrir? Stjörnurnar streyma hingað að og blaðamenn- irnir á eftir þeim. Þetta er mikið umstang og spennandi fyrir alla þá sem áhuga hafa á kvikmyndum.“ Kvikmyndahátíðin í Cannes er stærsta kvikmyndahátíð sem haldin er í heimi. Hana sækja ríflega 30 þúsund manns, flestir með stjörnur í augum, en ríflega þriðjungur á þó beint erindi; blaðamenn, kaupend- ur, seljendur, kvikmyndagerðar- menn, leikarar eða aðrir sem koma með einum eða öðrum hætti að kvikmyndabransanum. Árni segir hátíðina tvímælalaust bjóða upp á bestu kynningartækifæri í Evrópu fyrir stóru stúdíóin í Hollywood. Allra augu beinast að Cannes á meðan hátíð stendur og þess vegna leggur Hollywood svo mikið upp úr því að kynna stóru myndirnar sínar í Cannes, sé tímasetningin á annað borð hentug. „Stúdíóin eyða mjög miklum pen- ingum í að kynna myndir sínar hérna, eins og t.d. Troy og Shrek 2 nú í ár. Ég veit fyrir víst að Dream- Works, framleiðandi Shrek 2 og annarrar teiknimyndar sem þeir eru að kynna hér sem heitir Shark Tale, lagði ein 260 hótelherbergi, undir starfsfólk sitt og stjörnur.“ Þess má geta að nóttin á hót- elherbergi í Cannes kostar á meðan hátíð stendur eitthvað í kringum 200 evrur, eða litlar 17.500 krónur, sem sýnir vel tilkostnað hinna at- kvæðameiri á hátíðinni, en það er þó aðeins brot af heildarkostnaðin- um við kynningu á stórri kvikmynd í Cannes. Eitt af því sem markar Cannes- hátíðinni nokkra sérstöðu er að hún er allt í senn listahátíð, kaupstefna og risavaxinn blaðamannafundur fyrir stóru sumarmyndirnar. Þar er efnt til einhverrar umtöluðustu kvikmyndasamkeppni í heimi, keppninnar um Gullpálmann. Um leið ganga hundruð ef ekki þúsundir kvikmynda hvaðanæva að úr heim- inum kaupum og sölu á markaðs- torginu, þ.m.t. íslenskar myndir, en á markaðinum í ár voru sýndar ís- lensku myndirnar Opinberun Hann- esar og Kaldaljós. „Þetta eru alveg tveir heimar hérna. Við höfum þessar listrænu myndir sem eru í keppninni og op- inberri dagskrá en hér er líka myndir á markaði sem ekkert er- indi eiga í slíka keppni, svo ekki sé talað um stóru myndirnar sem eru hér einvörðungu til að næla sér í at- hygli. Þær eru líka nauðsynlegar fyrir hátíðina því í kringum þær er mikill stjörnufans.“ Viðskiptin orðin ópersónulegri Árni segir æði margt hafa breyst síðan hann kom fyrst til Cannes. Ekki aðeins hátíðin, áherslur henn- ar og umfang, heldur einnig hlut- verk hans sjálfs á hátíðinni og er- indi. „Maður var ansi blautur bak við eyrun þegar maður kom til Cannes í fyrsta skiptið. Þá var bara einn annar Íslendingur sem sótti mark- aðinn á hátíðinni, Jón Ragnarsson, bíóstjóri Regnbogans. Við vorum bara tveir bíókarlarnir og svo var Knútur Hallsson hérna, sem var með Kvikmyndasjóðinn. En upp frá því fóru þeir svo að koma íslensku kvikmyndagerðarmennirnir til að kynna fyrstu myndir íslenska bíó- vorsins, sem reyndar gekk nú ekk- ert alltof vel. Ég man eftir því þegar ég var að byrja hér innkaup á myndum að þá var samið um kaupin yfir hádeg- isverði niðri við ströndina og tekist í hendur. Síðan fékk maður samning- inn sendan eftir mánuð eða svo. Svona viðskipti þekkjast vart í dag því hérna áður fyrr voru þau mun persónulegri. Ég þekki enn nokkra frá þessum tíma sem eru eins líf- seigir og ég í þessu og koma hingað enn. Þegar við hittumst þá spyrja menn gjarnan – manstu hvernig þetta var hérna í den? með svolítilli eftirsjá.“ – En eruð þið þessir stóru í bransanum þá hættir að kaupa mik- ið inn á þessum hátíðum og ganga frá samningum? „Það hefur minnkað nokkuð en við erum enn að ganga frá samn- ingum. Þá einkum um myndir á hin- um svokallaða „independent“ mark- aði, sem eru oftast minni myndir í sniðum, framleiddar utan Holly- wood, víðsvegar um heim. En allar stóru myndirnar hérna, eins og t.d. Shrek, eru myndir sem við erum löngu búnir að ganga frá kaupum á í gegnum stúdíóin sem við erum með bein og föst við- skiptatengsl við. Þótt þær myndir séu undirstaða rekstrarins þá hafa hinar, þessar „independent-mynd- ir“, mikla þýðingu fyrir okkur. Þær auka úrvalið, stækka flóruna. Eftir að við tókum við Háskólabíói höfum við lagt sérstaka áherlsu á að finna slíkar myndir, evrópskar og öðru- vísi en þær sem framleiddar eru af Hollywood-stúdíóunum og við sýn- um reglulega í hinum kvikmynda- húsunum okkar. Auðvitað erum við að vonast til þess að þessar myndir geti orðið eitthvað, gefið okkur eitt- hvað í aðra hönd.“ Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna, hefur sótt Cannes-hátíð árlega í tuttugu og fimm ár Árni og Guðný S. Ásberg Björnsdóttir með sjálfum John Travolta, sem ósjaldan hefur prýtt hvíta tjald þeirra hjóna. Silvester Stallone varð á vegi þeirra hjóna Árna og Guðnýjar um það leyti er frægðarsól Stallone reis hvað hæst um miðbik 9. áratugarins. Þar lágu Danir í því Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Cannes, maí 2004. Árni Samúelsson fyrir framan eitt frægasta hótel borgarinnar, Carlton. Á hátíðisdögum er það klætt kynningarspjöldum fyrir kvikmyndir á borð við The Ladykillers sem Árni frumsýnir á næstu dögum. Árni, Guðný og synir þeirra Björn og Alfreð stilla sér upp ásamt frönsku stór- stjörnunni og vínbóndanum Gerard Depardieu í sólinni í Cannes. Árni Samúelsson, bíóstjóri Sambíóanna, hefur sótt kvikmyndahátíðina í Cannes á hverju ári síðustu 25 árin. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við hann þar syðra og komst að því að Árni man sannarlega tímana tvenna. Árni rakst á sjálfan Billa, hin gamalreynda David Carradine, fyrir einum tuttugu árum í anddyri Carlton-hótelsins fræga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.