Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 31 Nánari upplýsingar um fyrirlesara Bill Scott skólastjóri og Positive Discipline ráðgjafi, USA, mun fjalla um jákvæðar kennsluaðferðir og hvernig unnt sé að leysa vandamál án árekstra og reiði. www.positivediscipline.com Jari Graves-Highsmith skólastjóri við Gardner School í USA og Jackie Taylor kennari við skólann fjalla um hvernig fjölgreindum Howard Gardner's verði best hrundið í framkvæmd í kennslustofunni. www.gardnerschool.org Edmund O'Sullivan prófessor við Torontoháskóla í Kanada og forstöðumaður Transformative Learning Center mun fjalla um transformative learning og umhverfisvæna menntun. http://tortoise.oise.utoronto.ca/~tlcentre/index.htm Ferran Casas prófessor við háskólann í Girona á Spáni og forstöðumaður Research Institute on Quality of Life mun fjalla um innihaldsríkt líf fyrir börn, svo og börn og fjölmiðla. Casas mun byggja fyrirlestra sína á nýlegum rannsóknum sínum. http://fced.udg.es/instituts/irqv/ Naoko Kakuta stofnandi International Education Resource and Innovation Center/ERIC í Japan hefur unnið að hnattrænum skilningi í menntun í meira en 20 ár í Japan. Hún mun fjalla um hvernig best sé að kenna hnattrænan skilning sem og viðvarandi þróun í átt að betri heimi. www.try-net.or.jp/~eric-net/ Sunita Gandhi stofnandi ÍMS mun fjalla um hugmyndafræðina/heimspekina á bak við ÍMS/CGE, sem og þá þróun sem nú á sér stað í GEMS (Global Education Model of Schooling) kennsluaðferðum og einstaklingsmiðaðri kennslu, einkum í stærðfræði. INNIHALDSRÍK MENNTUN Á 21. ÖLDINNI 9.-11. ágúst 2004 í Háskóla Íslands Skráning fyrir 15. júní á www.ims.is veitir afslátt. Námskeið I - Jákvæðar breytingar í skólastofunni Námskeið II - Hvað geta foreldrar gert? Íslensku menntasamtökin ses Lyngási 17, 210 Garðabæ ims@ims.is / www.ims.is Sími 544 2120/2133 - Fax 544 2119 GEMS námsefni í stærðfræði verður kynnt á báðum námskeiðum. Það er nú fáanlegt fyrir skóla til notkunar frá og með næsta vetri. Frekari upplýsingar fást hjá ÍMS. Hægt er að skrá sig á námskeiðin og fá frekari upplýsingar á heimasíðunum www.ims.is / www.globaleducationconference.org Seltjarnarneskirkja kl. 17 Hér á landi er staddur hópur ungs tónlist- arfólks frá MacPhail tónlistarskól- anum í Minneapolis í Bandaríkj- unum, til að hitta ungt tónlistarfólk í Tónskóla Sigursveins D. Krist- inssonar og spila með því á tón- leikum. Ráðgert er að íslensku nem- endurnir endurgjaldi heimsóknina og fari í tónleikaferð til Bandaríkj- anna eftir ár. Í bandaríska hópnum eru flautu- nemendur, sem læra eftir Suzuki- aðferðinni, en flytjendur á tónleik- unum eru um 90 talsins. Flutt verða verk eftir Elías Davíðs- son, Antonio Vivaldi, Tielman Sus- ato, Wilhelm Brade, Jean Courtois, George Frederich Handel, Richard Meyer og Aaron Copland. Hljóm- sveitirnar munu leika hver sitt pró- gramm en koma einnig fram í sam- eiginlegu verkefni. Stjórnendur eru Mary Halverson, Lara MacLean og Sigursveinn Magnússon. Einnig verða tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 16.30 á þriðjudag. Reykholtskirkja-Snorrastofa kl. 15 Opnuð verður sýningin Kirkju- hald á söguslóðum. Þar eru frásagn- ir og lýsingar á kirkjulegum athöfn- um notaðar til þess að varpa ljósi á siði og sögu kirkjunnar í Reykholti. Á sýningunni eru nokkrir af munum kirkjunnar svo sem höklar frá fyrri hluta 19. aldar en einnig munir sem tengjast kirkjulegum athöfnum. Þá er sagt frá veglegu brúðkaupi Egg- erts Ólafssonar í Reykholti árið 1767. Sýningin er sett upp í Finnsstofu en sem fyrr verður hægt að skoða sýn- inguna Snorri Sturluson og samtíð hans í Safnaðarsal kirkjunnar. Sólheimar, Ingustofa Sýning á verkum Sigríðar Ruthar Hjaltadótt- ur stendur yfir til 2. júlí. Sigríður Ruth er fædd 5. apríl 1938. Hún hef- ur búið á Sólheimum frá árinu 1982 og hefur tekið þátt í nokkrum sam- sýningum bæði á Sólheimum og í Reykjavík. Sýningin, sem er sölusýning, er opin alla daga kl. 14–18. Gullkornasandur undir Jökli Rúna K. Tetzschner sýnir ljóða- skreytingar í Fjöruhúsinu á Helln- um 5.–30. júní. Rúna er sérfræð- ingur á Þjóðminjasafni Íslands og starfar sjálfstætt við ljóðagerð, skrautritun og skreytilist. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is DAGSKRÁ lista- og menning- arhátíðarinnar Bjartir dagar í Hafnarfirði í dag er tileinkuð útivist og hreyfingu: Frá kl. 8 Suðurbæjarlaug og Sundhöllin – frítt í sund. Ýmsar uppákomur. Kl. 9.30 Íþróttahúsið Strandgötu Fjallahjólakeppnin Hafnarfjörður- Bláa lónið. Hjóluð Djúpavatnsleið í gegnum Vigdísarvelli og Grindavík í Bláa lónið. Kl. 10–12 FH – Opið hús Starf- semi félagsins og framtíðaráform varðandi uppbyggingu Íþrótta- miðstöðvarinnar í Kaplakrika kynnt. Kl. 10 og 14 Norðurbakki Á sjó á sunnudögum. Hvalaskoðun með Húna II. Kl. 12–14 Íþróttamiðstöðin Björk Iðkendur í fimleikum verða við æf- ingar. Kl. 13.13 Byggðasafn Hafn- arfjarðar, Vesturgötu 6 Fallin spýta. Brugðið á leik. Kl. 14 Íþróttahúsið Strandgötu Hafnarfjörður dansar – Dans- íþróttafélags Hafnarfjarðar. Kl. 15 Gamla bókasafnið Skil á stuttmyndum (kvikmyndaskotum/ sketsum) sem bárust í stutt- myndakeppni. Stuttmyndirnar sýndar kl. 16–18 og dómnefnd velur verðlaunamyndirnar. Kl. 15 Hestamiðstöð Íshesta við Kaldárselsveg Fjölskylduhátíð Ís- hesta. Teymt frítt undir börnum kl. 16. Kl. 16 Tónlistarskóli Hafnar- fjarðar, Hásölum Ungir sveifla. Tónleikar Stórsveitar ásamt söng- konunni Margréti Eir Hjart- ardóttur. Kl. 16–18 Haukar – Opið hús Kl. 19 Gamla bókasafnið Djass- tónleikar með ungum djassistum, m.a. Bossasamsteypan, Spilabandið Runólfur, Dixiebandið, FÍH-bandið og Ragnheiður Gröndal. Kl. 20 Hafnarborg Ljóðatónleikar með Hönnu Dóru Sturludóttur, Lothar Odinius og Þórarni Stef- ánssyni. Þórarinn Stefánsson leikur með á píanó. Kl. 20.30 Fjörukráin Sagnakvöld – endurvakning á gömlu baðstofu- stemningunni með Sigurborgu Hannesdóttur, Inga Hans Jónssyni og Sigurbjörgu Karlsdóttur. Bjartir dagar GUÐRÚN Vera Hjart- ardóttir hlaut á föstu- dagskvöld styrk úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur, sem veittur var við opnunar- athöfn sumarsýninga Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúss. Sjóður- inn, sem stofnaður var af Erró fyrir andvirði íbúð- ar sem Guðmunda frænka hans eftirlét hon- um, veitir árlega styrk til listakvenna að upphæð 250.000 kr, og er þetta í sjöunda sinn sem veitt er úr honum. „Segja má að helsta einkenni á myndlist Guðrúnar Veru síðustu ár hafi verið sú staðreynd að hún hefur gert fígúruna að viðfangsefni sínu, og þá hefur efnismeðferð hennar einnig vakið verulega athygli, en hún hefur kosið að vinna mikið í leir í högg- myndum sínum,“ sagði Eiríkur Þor- láksson, formaður sjóðsstjórnarinn- ar, þegar hann veitti Guðrúnu Veru styrkinn. Hlýnar um hjartarætur Guðrún Vera sagði styrkinn nýtast sér mjög vel. „Hann virkar fyrst og fremst hvetjandi á mig og mér hlýnar um hjartaræturnar,“ sagði hún í sam- tali við Morgunblaðið. „Mig langar til þess að fara strax og gera miklu meira – halda áfram á minni braut.“ Að mati Guðrúnar Veru eru styrk- veitingar úr sjóðum sem þessum myndlistarmönnum afar mikilvægar. „Það er ekkert alltof mikil hvatning hér á landi, í svona litlu samfélagi er maður alltaf á byrjunarreit. Það er mikill barningur að vera myndlistarmaður og út- gjöldin oft meiri en inn- koman, þannig að það mætti vera meira af styrkjum eins og þessum og ég þakka Erró og Guðmundu bara kærlega fyrir mig. Þetta er frá- bært.“ Listakonur sem áður hafa hlotið viðurkenn- ingu úr sjóðnum eru Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurð- ardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir og Þóra Þórsdótt- ir. Styrkurinn nýtist vel Guðrún Vera Hjartardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.