Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 41
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 41 Sími 533 4040 Fax 533 4041 OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 16-18 Í DALSELI 23, REYKJAVÍK Vandað og gott raðhús á tveimur hæð- um ásamt rúmgóðu stæði í bílgeymslu. Stærð íbúðar 179,0 fm. Eikar innréttingar, parket, fimm svefnherbergi. Tvennar svalir. Gott útsýni. Laust fljótlega. Áhv. húsb. 5,7 millj. Verð 23,0 millj. Ólafur og Hákon sölumenn frá Kjöreign ehf, taka á móti ykkur milli kl. 16 og 18 í dag. Ármúla 21 • Reykjavík kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA jöreign ehf Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17. Um er að ræða efri hæðir 138,6 fm, auk innbyggðs bílskúrs 33,8 fm, samtals 172,4 fm. Afhendist fullbúið að utan, lóð frágengin, fullbúnar að innan en án gólfefna. Verð 23,9 millj. Neðri hæð, 124,6 fm, afhendist fullbúin að utan og lóð frágengin. Íbúð verður fullbúin að innan. Verð 20,8 millj. Í öllum sérhæðunum verður gert ráð fyrir kamínu (arni). Staðsetning á húsunum er frábær á þessum framtíðarstað - útsýni. Vorum að fá í einkasölu glæsilegar íbúðir í klasahúsi við Árbæinn (Norðlingaholt) Lækjarvað 1-11 - Norðlingaholt glæsilegar sérhæðir NÚ bíða fjölmiðlalögin úrskurðar þjóðarinnar. Kjósendur þurfa því að meta hvað þau munu hafa í för með sér. Mínar skoðanir og annarra sam- fylkingarmanna komu fram við um- ræður málsins en ég dreg fáein atriði sam- an í þessari grein. Til- gangurinn er að benda með fáeinum dæmum á ýmsa galla og óljós áhrif þessara um- deildu laga. Lagatext- inn er með skáletri til hægðarauka við lest- urinn. Tjáningarfrelsið (prentfrelsið) heft Eitt alvarlegasta ákvæði þessara laga brýtur gegn tjáning- arfrelsisákvæði stjórn- arskrárinnar. Það er í raun hið gamla ákvæði um prentfrelsi sem hefur verið barm- merki lýðræðis um aldir. Aldrei fyrr í sögu landsins hafa stjórnvöld lagt til at- lögu við þessi sjálf- sögðu réttindi sem eru fyrir alla, einstaklinga jafnt sem fyr- irtæki, en nú er það gert með eft- irfarandi hætti: Jafnframt er óheimilt að veita fyrirtæki útvarpsleyfi ef það eða fyrirtæki í sömu fyrirtækja- samstæðu er útgefandi dagblaðs, á hlut í útgefanda dagblaðs eða það er að hluta eða öllu leyti í eigu slíks fyr- irtækis eða fyrirtækjasamstæðu. Þetta þýðir að ákveði fyrirtæki sem rekur fjölmiðil að gefa út blað sem kalla má dagblað (skilgreiningin er blað sem kemur út fjórum sinnum í viku eða oftar) leiðir sú ákvörðun til þess að fyrirtækið verður svipt út- varpsleyfi og þar með því tjáning- arfrelsi sem 73. gr. stjórnarskrár- innar á að verja. Sú ákvörðun að svipta einhvern þessu frelsi er afar stór og það fordæmi sem hún setur er fullkomlega þess virði að um það verði kosið. Tækniframfarir í fjöl- miðlun gera líka þá fyrirætlan sem hér er á ferðinni (að skilja milli prent- og ljósvakamiðla) óframkvæmanlega í raun. Dæmi: Heimasíður dagblaða eru í reynd að breytast í ígildi sjón- varps, með myndsendingum og fréttaaðgangi í fjölbreytilegu formi. Höft á stór fyrirtæki Í lögunum eru þessi ákvæði: Einnig er óheimilt að veita útvarpsleyfi fyr- irtæki sem er að meira en 5% í eigu fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu í markaðsráðandi stöðu á einhverju sviði viðskipta. Þetta á þó ekki við ef ársvelta markaðsráðandi fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu á síðast- liðnu reikningsári eða eftir atvikum síðastliðnum 12 mánuðum er undir tveimur milljörðum kr. Hér á landi eru fjölmörg fyrirtæki sem hafa markaðsráðandi stöðu almennt á markaðnum eða svæðabundið. Þetta ákvæði útilokar því mjög mörg fyr- irtæki frá því að mega eiga meira en 5% í fjölmiðlum. Eigi fjölmiðlafyrir- tæki að geta sótt hlutafé á markað þurfa öflug og sterk fyrirtæki að geta fjárfest í þeim. Þessar hömlur koma í veg fyrir það. Þær munu án vafa veikja stöðu einkarekinna fjölmiðla og draga úr fjölbreyti- leika í fjölmiðlun á Ís- landi. Tveggja milljarða ákvæðið óljós stærð Til viðbótar vek ég at- hygli á því að tveggja milljarða markið er enn óljós stærð vegna þess að í umræðum á Alþingi fengust ekki viðhlítandi svör við því hvort telja ætti veltu í fjölmiðlafyr- irtækinu sjálfu með. Lagatextinn er: Telja skal með veltu móður- og dótturfyrirtækja fyrirtækja innan sömu fyrirtækjasamstæðu og fyrirtækja sem mark- aðsráðandi fyrirtækið eða fyrirtækja- samstæðan hefur bein eða óbein yfirráð yfir. Það er mín skoðun að lagatextinn sé ótvíræður og þýði að telja eigi alla veltu í fyrirtækjum sem viðkomandi á aðild að, þar með veltuna í fjöl- miðlafyrirtækinu. Hvergi er tekið fram í lagatexta eða skýringum að ekki eigi að telja veltu í fjölmiðlafyr- irtækinu með, sem augljóslega hefði átt að gera ef hún átti að vera utan við annan rekstur við mat á stærð fyrirtækisins. Ef mín skoðun er rétt hvað þetta varðar skreppur mjög saman sá hópur fyrirtækja sem getur tekið þátt í rekstri fjölmiðla. Dæmi: Ef fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu með veltu undir 2 milljörðum vill eiga 25% hlut í fjölmiðlafyrirtæki sem veltir 6 milljörðum á ári má önnur velta þess ekki fara yfir hálfan millj- arð á ári. Möguleikar á samþjöppun í nýju umhverfi Í lögunum er eftirfarandi ákvæði: Þá er óheimilt að veita fyrirtæki út- varpsleyfi ef annað fyrirtæki á meira en 35% eignarhlut í því. Sömuleiðis er óheimilt að veita fyrirtæki útvarps- leyfi ef fyrirtæki í sömu fyrirtækja- samstæðu eiga samanlagt meira en 35% eignarhlut í því. Þetta þýðir að fæst þrjú fyrirtæki mega eiga fjöl- miðlafyrirtæki en þetta þýðir einnig að samstæða þriggja fyrirtækja sem ætluðu sér að hasla sér völl í fjöl- miðlun mættu eiga alla ljósvakafjöl- miðla í landinu. Lögin koma því aug- ljóslega ekki í veg fyrir samþjöppun á ljósvakamarkaði. Það er þess vegna í meira lagi undarlegt að heyra þá sem styðja þessi lög sífellt tala um að þau komi í veg fyrir samþjöppun. Þvert á móti er líklegt að svo erfitt verði að fjármagna fjölmiðla í því umhverfi sem lögin skapa að samþjöppunin komi af sjálfu sér vegna þess að fjár- málafyrirtæki muni verða afar treg til að hætta því fé sem til þarf að reka öflugt fyrirtæki á þessu sviði. Eigi slíkt fyrirtæki að hafa kost á miklu lánsfé þarf það að vera nógu öflugt til að keppa við Ríkisútvarpið og þá verður tæplega rými á markaðnum fyrir fleiri. Ef einungis tiltölulega lítil fyrirtæki og fjárhagslega veikburða verða til staðar til að leggja fé í fjöl- miðla er erfitt að sjá að þeir geti orðið öflugir. Hugsanlegt er þó að þrjú fjárhagslega sterk fyrirtæki hættu annarri starfsemi og sameinuðust um að yfirtaka ljósvakamarkaðinn. Yrði það umhverfi líklegra til að tryggja fjölbreytni en það sem nú er? Ekki sé ég mikinn mun. Hvort það félli stjórnvöldum betur í geð færi líklega mest eftir því hverjir ættu. Getur það verið að það sé í raun aðalatriði stjórnvalda í þessu máli? Einstaklingar geta fengið útvarpsleyfi Ég vek athygli á því að í útvarps- lögum stendur að veita megi fyr- irtækjum og einstaklingum útvarps- leyfi. Forsætisráðherra fullyrti við umræður á Alþingi að það ákvæði gilti áfram. Ef það er rétt hljóta ein- staklingar sem slíkt leyfi hafa – eða fá – að vera undanþegnir þessari lagasetningu hvað eignarhald varðar að öðru leyti. Þeir gætu átt fjölmiðla- fyrirtæki 100%. Ekki fengust viðhlít- andi skýringar á því hvernig þessi lög munu hafa áhrif á rekstur ein- staklinga á fjölmiðlafyrirtæki. Varla hefur það þó verið ætlun stjórnvalda að opna leið fyrir einhvers konar fjöl- miðlaveldi í eigu einstaklings sem ekki þyrfti að hlíta sömu reglum og fyrirtæki sem rækju fjölmiðla. Svar við þeirri spurningu, hvort lögin haldi opinni leið fyrir einstakling sem ætti mikla fjármuni til að safna undir sig öllum fjölmiðlum og þá líka prent- miðlum, liggur ekki fyrir með óyggj- andi hætti. Dæmi um undarlegar tálmanir Eftirfarandi ákvæði er í lögunum: Óheimilt er að veita leyfi til útvarps til fyrirtækis sem hefur að megin- markmiði rekstur sem er óskyldur fjölmiðlarekstri. Þetta þýðir m.a. að fjölmiðlun verður að vera þunga- miðja og aðalmarkmið fyrirtækisins, það getur ekki sótt að marki styrk sinn í aðra starfsemi. Dæmi um und- arleg áhrif: Fyrirtæki sem ræki hljóðfæraverslun, hljómdiskaútgáfu eða myndbandaleigu og vildi útvarpa tónlist fengi ekki að gera það nema umfang verslunarinnar væri undir 50% af veltu þess. Þessi ákvæði virð- ast því hamla fjölbreytni sem átti þó að vera aðlalforsenda laganna að sögn stjórnvalda. Þessi lög sem nú bíða dóms þjóð- arinnar eru illa undirbúin, munu ekki þjóna þeim markmiðum um fjöl- breytni sem er forsenda setningar þeirra. Íslenskur fjölmiðlamarkaður er lítill og á honum er mest um vert að opnar séu leiðir fyrir ný fyrirtæki til að hefja fjölmiðlarekstur. Út- varpsréttarnefnd á að sjá um að rásir séu til staðar fyrir ný fyrirtæki og að eitt fjölmiðlafyrirtæki einoki ekki þá möguleika sem eru takmarkaðir. Það er hins vegar ekki líklegt að slíkt vandamál þurfi að vera til trafala nú og þegar stafrænar útsendingar sem eru innan seilingar verða til staðar þarf ekki að hafa áhyggjur af þessum vanda. Fjölmiðlalögin kollvarpa þeirri endurreisn ljósvaka- og prent- miðla sem fjárfestar hafa gengist fyr- ir. Þau munu líklega verða talin varða stjórnarskrárákvæði um atvinnu- frelsi og eignarrétt vegna þess að þau beinast sérstaklega gegn einu fyr- irtæki. Rökstuðningur þeirra sem styðja lögin um að þau tryggi hlut- lausari og fjölbreyttari fjölmiðlun er ótrúverðugur. Reglur um starfsemi fjölmiðla þurfa að vera almennar og mega ekki svipta neinn stjórnar- skrárvörðum rétti. Það gera þessi lög án nokkurs vafa. Fjölmiðlalögin Eftir Jóhann Ársælsson ’Eitt alvarleg-asta ákvæði þessara laga brýtur gegn tjáningarfrelsis- ákvæði stjórn- arskrárinnar.‘ Jóhann Ársælsson Höfundur er alþingismaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.