Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Grettir Smáfólk GRETTIR, ÞÚ HENDIR ÞESSARI KÖKU EKKI FRAMAN Í MIG! ÞÚ RÆÐUR! KAKA INN Á BUXUR! AF HVERJU ER SÓLIN EKKI MEÐ SNOOZE TAKKA? LEYFÐU MÉR AÐ SNERTA TEPPIÐ... ÉG VEIT AÐ ÞETTA ER JAKKINN ÞINN... EN ÉG VERÐ BARA AÐ SNERTA HANN... ÉG VERÐ AÐ SNERTA HANN... ÉG ER AÐ BROTNA NIÐUR, SÉRÐU ÞAÐ EKKI? ÉG LIFI ÞETTA EKKI AF... LEYFÐU MÉR AÐ SNERTA JAKKANN! FARÐU BURT... ÞÚ KRUMPAR HANN BARA! Svínið mitt © DARGAUD JÆJA ADDA, ERTU BÚIN AÐ SKRIFA PÓSTKORTIÐ TIL ELSU? JÁ, ÉG ER ALVEG AÐ VERÐA BÚIN GROIN! EN ÉG ÞARF ANNAÐ KORT ÞVÍ RÚNAR VILL LÍKA SKRIFA HENNI GROIN! EN ADDA, RÚNAR KANN EKKI AÐ SKRIFA, HVERNIG HELDUR ÞÚ AÐ... ÞÚ SKILUR EKKI. HANN SEGIR MÉR HVAÐ HANN VILL SEGJA HENNI OG ÉG SKRIFA ÞAÐ GROIN! NÚ! ÚR ÞVÍ ÞAÐ ER ÞANNIG... ANDARTAK KLARA. HÚN HEFUR OKKUR AÐ FÍFLUM GROIN! GROIN, GROIN GROIN MÉR SÝNIST EKKI GRRROOOOIIINNNN! EKKI SVONA HRATT! OG MUNDU EFTIR FERÐINNI Í GÆR BÚIÐ! ÉG SET LÍKA FRÍMERKI ? ÓTRÚLEGT! ÞETTA NÆR ENGRI ÁTT! MÁ ÉG SJÁ? MÉR LÍÐUR HÁLF ILLA! ?! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. SUNDFÉLAGIÐ Ægir fór í keppn- isferð um nýliðna helgi eða 4.–6. júní. Farið var með 45 keppendur á aldr- inum 8–18 ára á Akranes. Þetta var í 16. sinn sem ÍA/ESSO mótið er haldið og alltaf fjölgar keppendum, í ár voru skráðir til leiks 306 keppendur. Öll umgjörð mótsins og aðstaða var til fyrirmyndar og ég vil nota þetta tækifæri til að þakka ÍA fólki kærlega fyrir. Mótið gekk í alla staði vel og sundfólkið okkar stóð sig með prýði. Það má geta þess hér að hópurinn hnokkar og hnátur sem eru sund- menn 10 ára og yngri stóð sig með eindæmum vel og margir unnu riðl- ana sína aftur og aftur og fengu að launum vel merkta drykkjarbrúsa. Nokkrir sundmenn náðu á þessu móti lágmarkstímum til að öðlast þátttökurétt á AMÍ (aldursflokka- meistaramót Íslands). Þau eru: Einar Sveinn Kristjánsson, Embla Sól Þór- ólfsdóttir, Karen Sif Vilhjálmsdóttir og Oddur Goði Jóhannsson. Lið ÍA var stigahæsta lið mótsins en Ægir var í öðru sæti og krakkarnir okkar voru að gera góða hluti. Það var um það talað á mótinu hversu vel heyrðist í stuðningsmönnum Ægis og hversu dugleg krakkarnir í Ægi voru að hvetja hvert annað. Það liggja miklar og strangar æfingar að baki góðum árangri og honum ber að fagna. Keppnisferðir á borð við þessa kosta sitt og ég vil nota tækifærið og þakka eftirtöldum fyrirtækjum fyrir veittan stuðning við Ægi: Mjólkurbúi Flóamanna, Selfossi, MATA, Danól, Kjarnakorni og Vífilfelli. ELÍN HANNA JÓNSDÓTTIR fararstjóri. Ægir á ÍA/ESSO Frá Elínu Hönnu Jónsdóttur: EINS og menn kann að reka minni til, var aðstaða þeirra íbúa Hrafnistu í Reykjavík sem reykja til umfjöll- unar í blöðum seinni part veturs. Það var meðal annars birt mynd af heim- ilismönnum í þáverandi reyk- aðstöðu, sem var gluggalaus lítil kompa með viftu sem truflaði heyrn- artæki þeirra sem þau nota. En hún hafði verið sett upp vegna kvartana um að heimilismenn reyktu í sameig- inlegu rými á hjúkrunardeildunum. Vakti þetta mál nokkra athygli og svo fór að yfirmenn Hrafnistu lofuðu bót og betrun. Sögðu að með end- urbótum á anddyri húsins sem stæðu til yrði bætt úr þessu, sett yrði þar upp ný reykaðstaða, með gluggum og flottheitum. Eftir þessi fögru lof- orð féll málið niður og ekkert heyrst af því síðan. Rétt er það að farið var í breyt- ingar sem nú er lokið. Anddyri Hrafnistu hefur verið tekið í gegn og er nú stofnuninni til mikils sóma. Í gær (sjómannadaginn) var hér margt um manninn og menn dáðust að hinu nýja anddyri, en á meðal okkar starfsmannanna heyrðist bara ein spurning – hvar er reykaðstaðan sem var búið að lofa fólkinu? Það er engin reykaðstaða í and- dyrinu eins og hafði verið sagt og bú- ið er að rífa þá gömlu, þar er nú hár- greiðslustofa. Meðan á þessum framkvæmdum hefur staðið hafa heimilismenn reykt í hinu fyrr nefnda sameiginlega rými, sólskýli – glerhúsi sem er setustofa á annarri hæð þar sem hjúkrunardeildirnar eru. Þar hefur fólkið pláss og útsýni og finnst þetta mikil bragarbót frá því sem var. En vandinn er að þarna eru hjúkrunardeildir og nafn þeirra eitt útskýrir hvað þar fer fram. Það þarf því ekki að orðlengja um það að þetta er til nokkurra óþæginda svo ekki sé minnst á súrefniskútana sem eru þar stundum á hverju strái. Log- andi sígaretta og súrefniskútur fara ekki saman. Áður en lesendur fara að fussa yfir því að aldraðir sjúklingar séu enn reykjandi og það inn á stofnun, vil ég minna á þrennt. 1. Þegar þetta fólk byrjaði að reykja var ekki vitað um skaðsemi reykinga eins og í dag – það þótti flott. 2. Hrafnista er ekki stofnun í þeirra skilningi heldur þeirra heimili og þ.a.l. haga þau sér eftir því. 3. Þau ráða því nú líkast til sjálf hvort þau reykja eða ekki. Var loforðið um nýja og bætta reykaðstöðu bara tilraun til að troða tappa í gatið – til að lægja þá um- ræðu sem komin var af stað? Það getur alla vega hæglega komið þann- ig fyrir sjónir. Hvar er reykaðstaðan? – og e.t.v ætti að bæta við hvar er reykað- staðan í nýja húsinu, sem var verið að vígja um daginn? Þó fólkinu sem reykir líki það vel að reykja í sólskýl- inu gengur það ekki til lengdar. Þangað kemur fólk af öllum göngum og hæðum nánast til að reykja og reyklausir flýja þaðan út. En hafa um leið engan stað til að flýja á því hér er þröngt á þingi og sólskýlið er eina notalega setustofa hjúkrunar- deildanna. Þetta kemur í veg fyrir að reyklausir geti notið þess að sitja þarna og horfa út, sérstaklega núna þegar veður er gott. Reykingar heimilismanna eiga ekki að bitna á þeim sem ekki reykja, en jafnframt eiga þeir sem reykja sinn rétt til þess. Því spyr ég enn og aftur: Hvar er reykaðstaðan góða sem lofað var? HILDUR INGA RÚNARSDÓTTIR, Hólabraut 18, 545 Skagaströnd. Fyrirspurn til Hrafn- istu í Reykjavík Frá Hildi Ingu Rúnarsdóttur, starfsmanni á Hrafnistu í Reykja- vík og stúdent við guðfræðideild HÍ:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.