Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN Sýnd kl. 12, 1, 2, 3.30, 4, 5, 6.30, 8 og 10. Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter er komin í bíó.Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af! Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð.  Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2  DV  HL Mbl Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i HÁDEGISBÍÓ Í SAMBÍÓUM, KRINGLUNNI MIÐAVERÐ KR. 400 Á ALLAR MYNDIR KL. 11 OG 12 Sýnd kl. 3, 5.40 og 10. Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter er komin í bíó. Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af! Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð. Brad Pitt, Orlando Bloom, Eric Bana  SV MBLKvikmyndir.is ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA ÓDAUÐLEGAR HETJUR GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA AÐ EILÍFU!  Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2  HL Mbl Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ Sýnd kl. 8. 3 SÝNINGAR EFTIR!Sýnd kl. 3, 6 og 9. B.i.14 ára. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.Sýnd kl. 3, 4, 6, 7, 9 og 10. Stóri salurinn kl. 3, 6 og 9. Árið 2001 heillaði Elling okkur uppúr skónum. Nú er komið frábært sjálfstætt framhald þar sem Elling fer í frí til sólarlanda ásamt móður sinni. Norskt grin uppá sitt besta. Mamma hans Elling FRUMSÝNING Ó.H.T Rás 2 „ÞAÐ var alveg sama hvernig ég reiknaði dæmið, ég þurfti alltaf að selja jafnmikið af plötum til að fá fyrir mínu. Svo ég ákvað að gera þetta bara alveg sjálfur í stað þess að afsala mér réttinum að lög- unum,“ segir Jón, sem gaf á dög- unum út sólóplötu, algerlega upp á eigin spýtur, eftir að hafa vegið og metið mismunandi kosti. „Ég á stúdíó, sem er stærsti hlutinn af kostnaðinum við að gera plötu, svo ég hugsaði með mér að ég gæti al- veg eins fengið mér bara yfirdrátt og gert þetta sjálfur. Það er líka drífandinn sem ég er búinn að hafa. Ég er búinn að vera að endasend- ast um landið þvert og endilangt og gera það sem þarf til að koma þessu alla leið. Mér finnst það líka skemmtilegt.“ Tengsl við fólkið Jón fór víða um land í kynning- arferðalagi sínu og sérstaka athygli vakti að hann fór ekki aðeins á stóra þéttbýlisstaði, heldur einnig til staða eins og Grímseyjar og Borgarfjarðar eystri, en þar voru viðtökurnar sem Jón fékk hreint út sagt ótrúlegar, næstum allir íbúar byggðarlaganna komu til að heyra hann leika. „Maður trúir ekki að- sókninni á þessum stöðum. Fólkið þarna er afar þakklátt fyrir að fá músík og menningu að sunnan. Auðvitað er ég ekki fyrsti maðurinn sem fer þarna. Bubbi, KK og Maggi, Hörður Torfa og fleiri hafa allir farið þarna og spil- að. Þetta vakti kannski athygli núna af því að ég var að fara í fyrsta skipti.“ Heimasíða Jóns, www.jon.is, hef- ur löngum gegnt hlutverki mik- ilvægs samskiptaglugga hans við fólk. „Í gegnum heimasíðuna fæ ég mjög mikið af alls konar spurn- ingum og óskum og kemst í beint samband við fólk af ólíklegustu stöðum af landinu. Það hefur líka gefið mér þá tilfinningu að þar væri kannski fólkið sem langaði mest að hitta mig, fólkið sem væri lengst í burtu, að það kynni kannski mest að meta það sem ég væri að gera. Ég upplifði þetta allavega þannig því landsbyggðin tók mér rosalega vel,“ segir Jón, sem hefur að eigin sögn alltaf haft gaman að því að spjalla við áhorfendur og segja sög- ur, en hann hefur lengi starfað sem þáttastjórnandi. „Mér fannst ein- mitt mjög gaman að tengja fólk inn í textana og lögin með frásögnum og upplýsingum á milli. Ég sá Ray Davis þegar hann kom hingað og spilaði. Þá var hann að segja sögur og spila í klukkutíma. Þar fór hann í gegnum fullt af frægum lögum sem hann hafði samið eins og Lola og Waterloo sunset og tengdi þetta með sögum. Það var mjög heillandi. Ég er kannski að reyna að gera svipaðan hlut, að nýta mér vináttu mína við hljóðnemann. Þetta er bú- ið að vera mjög gaman og ég er byrjaður að bóka fleiri staði í sum- ar og haust.“ Aðsóknin var þó ekki alltaf góð og segir Jón tvisvar hafa hitt illa á, þannig hafi til dæmis úrslitakeppni American Idol, fótboltaleikur, Lionsfundur í Sandgerði og fleira haft afdrifaríkar afleiðingar á mæt- ingu. „Á þessu ferðalagi lærði ég líka að nálgast þetta allt með æðru- leysi, að ég yrði alltaf að gera góða tónleika, hvort sem það væru sex í salnum eða tvö hundruð,“ segir Jón og bætir við að honum geti ekki annað en þótt vænt um fólkið sem stendur upp frá sjónvarpinu og kemur á tónleika. „Mér finnst það mesta hól sem maður getur fengið að einhver komi sérstaklega til að horfa á mann og hlusta á það sem maður er að segja og syngja. Manni finnst meira sjálfgefið að fólk vilji koma á laugardagskvöldi, skvetta í sig brennivíni og dansa við slagarana. En að standa upp frá imbanum á þriðjudagskvöldi og kaupa sér miða og fara síðan á tón- leika og horfa á einhvern mann spila á píanó og syngja, mér finnst það bara meiriháttar ákvörðun hjá viðkomandi og maður fær álit á svona fólki.“ Að gera plötuna áreynslulaust Aðspurður hvort platan hafi blundað lengi í honum segir Jón það ekki fjarri sanni. „Maður hefur horft upp á margt fólk gera sóló- plötur og hugsað að maður gæti al- veg gert sólóplötu eins og það, en svo hef ég kannski bara miklað þetta svo fyrir mér, það er kannski ástæðan fyrir því að ég hef ekki gert þetta fyrr,“ segir Jón. „Fyrsta platan átti að vera eitthvað svo rosaleg. Manni fannst eins og hún yrði að vera eitthvert meist- arastykki. En svo breytti ég alger- lega um hugarfar og hugsaði að fyrsta platan yrði gerð eins áreynslulaust og unnt væri, að það væri ekki hægt að hanka mann á tilgerðinni. Um leið og ég ákvað að gera það sem ég kynni, að sitja og spila á píanó og syngja huggulega melódíu, þá gerði ég plötuna á tveimur vikum og leið vel með það.“ Traustir samstarfsmenn Eitt af höfuðeinkennum plötu Jóns er látlaus og einlægur söngur hans, laus við alla tilgerð og stæla. „Ég lít á sjálfan mig sem vísna- söngvara eða raulara, ég spila bara á píanó en ekki gítar. Ég er svo ánægður með hvað svona listamenn eins og Will Oldham og Damien Rice eru virtir þrátt fyrir að þeir séu ekki með einhvern hetjusöng. Með þessari plötu stend ég og fell Heiðarleg og einföld nálgun Hinn landsþekkti tónlistarmaður Jón „góði“ Ólafsson hefur nýlokið tónleika- ferðalagi sínu um landið. Svavar Knútur Kristinsson átti létt spjall við Jón um tónlistina, samstarfið og framtíðina. Jón kann vel að meta að vinna nú loks í eigin málum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.