Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT: Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Stóra svið Nýja svið og Litla svið DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes Í kvöld kl 20 SÍÐASTA SÝNING Í VOR CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse Lau 19/6 kl 20 SÍÐASTA SÝNING Í VOR BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson Í kvöld kl 20 - UPPSELT SÍÐASTA SÝNING Í VOR TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14 GRÍMAN - ÍSLENSKU LEIKLISTARVERÐLAUNIN Mi 16/6 kl 20 - kr. 1.500 Dansleikur innifalinn Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.30 - ÖRFÁ SÆTI Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 10.30 - FÁ SÆTI Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30 - LAUS SÆTI Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00 - LAUS SÆTI Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30 - LAUS SÆTI Lau 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30 - FÁ SÆTI Það er ekki algengt að hljóm-sveitir nái að sameina virð-ingu og vinsældir á viðlíkahátt og Beastie Boys hefur gert í gegnum tíðina, hvað þá að þeim takist að halda velli, vera skap- andi og frumlegar, jafnlengi og þeim félögum, en nú þegar ný skífa þeirra kemur út, To the 5 Boroughs, eru liðnir ríflega tveir áratugir frá því þeir stofnuðu sína fyrstu hljómsveit og átján ár frá því þeir skutust á toppinn vestan hafs. Pönkað hiphop Þótt starfsaldurinn sé orðinn lang- ur hafa þeir þremenningar í Beastie Boys, Mike „Mike D“ Diamond, Adam „MCA“ Yauch og Adam „Ad- Rock“ Horovitz, ekki sent frá sér margar breiðskífur, To the 5 Bor- oughs er sú sjötta og kemur eftir sex ára hlé, Hello Nasty kom út 1998. Ekki er það þó bara vegna þess að þeir séu lengi að vinna því þeir hafa jafnan verið vinnusamir við ýmislegt annað en hljómsveitina, rekið hljóm- plötufyrirtæki, lagt sig fram í mann- réttindabaráttu og svo má telja. Beastie Boys eru sprottnir úr New York-pönki í lok áttunda áratug- arins. Mike D var í hljómsveitinni Young Aborigines. MCA gekk til liðs við sveitina og nafnið breyttist í Beastie Boys, en sveitin spilaði einkar hart pönk. Síðar slóst Ad- Rock í hópinn og með hann innan borðs tók sveitin upp fyrstu plötuna, smáskífuna „Pollywog Stew“, sem kom út 1982. Þegar svo átti að taka upp stóra plötu var tónlistin tekin að breytast, farin að draga dám af því sem var að gerast meðal litra New York-búa, smitaðist af rappi. Rick Rubin, sem síðar varð mikill útgáfumógúll, heyrði hjá þeim félögum lagið „Cooky Puss“ og tók að sér að gera þá félaga fræga, fyrst var fækkað í henni þar til þeir voru einir eftir Mike D, MCA og Ad-Rock, keyptur á þá hiphopgalli og þeir sneru sér al- farið að hiphopi. Metsöluplatan og meistarastykkið Licensed to Ill kom út 1996 og vakti gríðarlega athygli, seldist í bíl- förmum vestur í Bandaríkjunum og ruddi nýrri tónlistastefnu braut. Tónlistin var góð og framkoma þeirra félaga ýtti einnig undir sölu á skífunni, þeir voru sífellt með læti, sí- fullir að því er virtist og höguðu sér almennt eins og bestíur. Annir við tónleikahald til að fylgja skífunni eftir seinkuðu næstu plötu, Paul’s Boutique, sem kom út 1989. Hún var enn betri tónlistarlega, sannkallað meistarastykki og með bestu plötum hiphop-sögunnar, þótt ekki hafi hún selst eins vel og platan á undan. Reyndar var vestan hafs salan svo slæm miðað við Licensed to Ill, sú seldist í sex milljón eintökum en Paul’s Boutique náði ekki milljón, að þeir sem sömdu við þá félaga um útgáfu á plötunni voru reknir frá fyr- irtækinu sem gaf hana út. Þriðja breiðskífan, Check Your Head, var talsvert öðruvísi en lítið síðri. Hún kom út 1992 og seldist mun betur en Paul’s Boutique. Ekki liðu svo nema tvö ár í fjórðu plötuna, Ill Communication, prýðis plötu, en þá tóku þeir sér svo gott frí, því vinna við fimmtu plötuna, Hello Nasty, tók þrjú ár og hún kom loks út 1998. Tímanum var vel varið því hún stenst fyllilega fyrri plötum snúning, óhemju fjölbreytt og skemmtileg plata. Biðin eftir nýrri plötu var býsna löng eftir það, en þeir voru víst upp- teknir í allskyns viðskiptum, mann- úðarstarfi og mannrétttindabaráttu og svo voru þeir að fást við músík hver í sínu lagi, Mike D með Bran Van 3000 og Ad-Rock með BS 2000. Mestur tími fór þó í vandræðagang í kringum útgáfuna sem þeir stofnuðu, Grand Royal, sem fór á hausinn með miklum harmkvælum 2001. Eftir að þeir voru búnir að greiða úr þeirri flækju hófst svo vinna við nýja skífu og To The Five Boroughs kemur svo út á morgun. Platan nýja er nokkuð dæmigerð Beastie Boys-plata, engin bylting á ferð, en ef eitthvað er er meiri áhersla á hiphop í töktum og tónlist en stundum áður. Á plötunni eru líka raftónlistarlegir kaflar, mikið um að vera og mikil partítónlist eins og þeirra er von og vísa. Varla kemur á óvart að textar á plötunni eru mjög pólitískir, þetta er og kosningaár vestan hafs, og þeir skjóta föstum skotum á hernaðarhyggju og hægri- mennsku, en einnig er lag á skífunni tileinkað New York sem samið er meðal annars til að minnast árásanna 11. september. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Beastie Boys snúa aftur Beastie Boys ruddu brautina í rappi fyrir bleik- nefja. Þeir senda frá sér nýja plötu, To The Five Boroughs, á morgun. LJÓSMYNDARINN og nátt- úruunnandinn RAX hefur verið heillaður af ægifegurð grænlenskra norðurslóða allt frá því hann hélt fyrst til fundar við nyrstu byggðir heims fyrir 15 árum. Staðsettar á breiddargráðu þar sem fimbulvetur með allt að -40 stiga gaddi ríkir 10 mánuði á ári. Í fljótu bragði virðist landsvæðið ein hrikaleg eyðimörk, en þegar betur er að gáð leynast örfáar sálir í mjallhvítu umhverfinu sem leggur til nægjusömu veiði- mannasamfélaginu nóg að bíta og brenna. Eins og alþjóð veit er Raxi með snjöllustu ljósmyndurum, skáld sem yrkir á filmu. Hann sér feg- urðina í ljósinu og skuggunum, sam- spili harðgerra frumbyggja í kulda- legri náttúru, hundunum þeirra og lífsbjörginni í lofti, láð og legi. Skilar henni til okkar í stílhreinum, svart/ hvítum listaverkum sem unun er á að horfa. Samtímis skrásetur hann hverfandi veröld manna sem lifa enn um stund á landsins gæðum líkt og forfeður þeirra frá ómunatíð. Ei- líflega tvísýna lífsbaráttuna, menn- ingu og smitandi kátínu. Framtíð veiðimannanna sér Raxi í vaxandi innrás ferðamanna. Við skynjum með honum undir- stöðu sjálfrar lífsspekinnar sem op- inberast listamanninum í kyrrð norðurslóða og eðlislægri lífsgleði íbúanna: „Við eigum aðeins eitt líf, það á að lifa því og það á að vera skemmtilegt.“ Sveinn M. Sveinsson fylgir ljósmyndaranum eftir eins og skugginn, án þess að áhorfandinn verði hans var, og færir okkur heim sérkenni þessa brátt uppgötvaða af- kima veraldar. 77° norður Kvikmyndir Regnboginn – Heimildar- og stuttmyndahátíð Heimildarmynd. Stjórnandi: Sveinn M. Sveinsson. Handrit: RAX (Ragnar Ax- elsson). Tónlist: Valgeir Guðjónsson. 30 mínútur. Plús film. Ísland. 2004. Heimur kuldans – RAX ljósmyndari á Norður-Grænlandi  Sæbjörn Valdimarsson STUTTMYNDIN Síðustu orð Hreggviðs eftir Grím Hákonarson er góðlátleg en skörp háðsádeilda á „nútímavæðingu“ hins rótgróna og virðulega dagblaðs Morgunblaðsins. Sögusviðið er fyrrnefndur fjölmiðill árið 2004 en þar á bæ fara menn ekki varhluta af stefnum og straumum í stjórnunarháttum og umbrotstísku, og er ekki laust við að ritstjórinn, Sturlaugur Johannessen (Þorsteinn Gunnarsson) eigi undir högg að sækja gagnvart áköfum og nútíma- lega þenkjandi undirmönnum sínum. Dag einn dregur til tíðinda er Hreggviður, gamall hægrimaður og fastapenni blaðsins, fær hjartaáfall og kveður þennan heim, í þann mund er öryggisverðir vilja meina honum aðgang að efri hæðum Morgunblaðs- hússins. Fáir veita reyndar fráfallinu athygli, en Sturlaugur laumast í jarðarförina og hefur erfiðar draum- farir um nóttina. Upphefst í kjölfarið kostulegt ferli þar sem Sturlaugur glímir annars vegar við ásækna og hægrisinnaða drauga fortíðar og hins vegar við markaðs- og sam- keppnissinnaða millistjórnendur sem virðast hvorki hafa heyrt minnst á kalda stríðið né skoðanaskipti um gjaldtöku í sjávarútvegi. Styrkur þessarar frumlegu mynd- ar Gríms Hákonarsonar er vel samið handrit sem felur á stundum í sér lunkna greiningu á þeirri „stofnun“ sem Morgunblaðið er í íslensku sam- félagi. Þetta tekst með því að halda sögunni á mörkum ímyndaðrar dæmisögu (t.d. í anda Jólasögu Dick- ens) og nokkurs konar skaups, þar sem tilvísanir eru tengdar markvisst við veruleika sem landsmenn og (ekki síður starfsmenn Mbl.) kann- ast skuggalega vel við. Myndin er sómasamlega útfærð, hefur yfir sér dálítinn sjónvarps- myndablæ, sem er reyndar viðeig- andi í samhengi sögunnar, sem út- færð er í nokkurs konar gaman- sömum ýkjustíl. Þar er sviðsmyndin notuð á snjallan og stundum úthugs- aðan hátt, sem eykur við háðsádeilu sögunnar. Leikararnir eru vel valdir í hlutverkin, og fara þau Þorsteinn Gunnarsson, Ívar Örn Sverrisson, Guðrún Gísladóttir, Þorsteinn Guð- mundsson og Þorvarður Helgason ágætlega með skemmtilegar persón- urnar og vel skrifuð samtölin. Þar mæðir ekki síst á Þorsteini Gunn- arssyni sem snýr persónunni Stur- laugi Johannessen upp í kostulega ýkjumynd af hefðbundinni ritstjóra- ímynd Morgunblaðsins. Hugmyndin um hinn opna lýðræð- islega tjáskiptavettvang er svo sann- arlega þanin í æsar í þessari bráð- fyndnu stuttmynd, þar sem samtíma og fortíð er stefnt í óvenjulega sam- ræðu. Fortíðarskotinn samtími Kvikmyndir Regnboginn – Heimildar- og stuttmyndahátíð Shorts & Docs Leikstjóri: Grímur Hákonarson. Stutt- mynd. Ísland. Boris Kvikmyndagerð, 2004. Síðustu orð Hreggviðs Heiða Jóhannsdóttir GOÐSAGNAKENNDI rokkarinn Morrissey hefur valdið usla meðal aðdáenda sinna í Bandaríkjunum eftir að greint var frá því að hann hefði óskað þess að Bush Banda- ríkjaforseti væri dauður. Þessi fyrrum forsprakki Smiths tilkynnti tónleikagestum í Dublin á laugardaginn að Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, væri látinn. Því næst sagði hann að hann óskaði þess að núverandi forseti, George W. Bush, hefði látist í hans stað, samkvæmt frétt er BBC hefur eftir dagblaðinu Manchester Even- ing News. Talsmaður Morrisseys segir að hann hafi einungis verið að segja áhorfendum fréttina af láti Reagans. „Það sem hann sagði næst um George Bush var algjörlega hans eigin skoðun. Hann er ófeiminn við mál er valda ágreiningi,“ sagði tals- maðurinn. Bush frekar en Reagan Reuters Morrissey er ófeiminn við að hneyksla. Morrissey veldur usla í Bandaríkjunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.