Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ BREYTINGAR Í LÍFRÍKI Hitastig í sjónum við Norðurland hefur hækkað um allt að 5 gráður á undanförnum árum en það hefur bæði jákvæð og neikvæð áhrif á líf- ríkið. Ýsugengd hefur aukist en hún unir sér vel í auknum hita. Loðnan hopar hins vegar undan hlýja sjón- um og það kemur niður á þorsk- stofninum þar sem hann er afar háð- ur loðnu í fæðu. Harka í fíkniefnaheiminum Magn fíkniefna í umferð er ekki að aukast óeðlilega mikið þótt fréttir af fíkniefnamálum hafi verið tíðar að undanförnu, að mati Ásgeirs Karls- sonar hjá fíkniefnadeild Lögregl- unnar. Auknu eftirliti og samstarfi lögregluembætta og tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli, ásamt meiri við- búnaði lögreglu almennt, er fyrst og fremst að þakka. Harkan í fíkniefna- heiminum er hins vegar að aukast og vopnaburður er orðinn algengari. Áfengisneysla Íslendinga Um fjórðungur Íslendinga á aldr- inum 15–89 ára neytir ekki áfengis. Flest bindindisfólk er í yngstu og elstu aldurshópunum og sá hópur er hlutfallslega stærri á landsbyggð- inni. Þá eru konur líklegri en karlar til að neyta aldrei áfengis. Áfeng- isneysla er jafnframt algengari hjá menntuðu fólki og fólki með háar tekjur. Staða Blairs veikist Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á nú enn meir undir högg að sækja en fyrr eftir verstu útkomu ríkisstjórnarflokks úr sveitarstjórn- arkosningum sem um getur í brezkri stjórnmálasögu. Er úrslit voru kunn úr nær öllum kjördeildum lá fyrir að Verkamannaflokkurinn hefði tapað 464 fulltrúum úr sveitar- og borg- arstjórnum í Englandi og Wales. Y f i r l i t Í dag Skissa 6 Myndasögur 50 Sigmund 8 Bréf 50/51 Rispur 16 Dagbók 52/53 Listir 28/31 Staksteinar 52 Af listum 30 Þjónusta 52 Forystugrein 32 Auðlesið efni 54 Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 56 Minningar 34/37 Fólk 56/61 Hugvekja 37 Bíó 58/61 Þjónusta 46 Sjónvarp 62 Skoðun 38/45 Veður 63 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið Búum betur frá Bygg. Blaðið fylgir í Reykjavík. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hefur sent Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra bréf vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um fjöl- miðlafrumvarpið. Þar er lögð áhersla á að sveitarfélögin muni ekki greiða kostnað af framkvæmd atkvæða- greiðslunnar, sem forsætisráðherra hefur sagt að geti numið 100–200 milljónum króna. „Þessi afstaða sambandsins hlýtur að teljast afar eðlileg og eftir sem áð- ur er ekkert sem útilokar það að sveitarfélögin annist framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar þótt kostnaðurinn verði greiddur af öðr- um,“ segir í bréfinu, sem undirritað er af Þórði Skúlasyni, framkvæmda- stjóra sambandsins. Einnig er í bréf- inu vísað til tillagna og greinargerð- ar verkefnastjórnar um eflingu sveitarstjórnarstigsins, þar sem seg- ir m.a. að ábyrgð á kostnaði við fram- kvæmd forseta- og þingkosninga verði alfarið á hendi ríkisins. Þórður sagði við Morgunblaðið að sveitar- félögin hefðu lengi barist fyrir laga- breytingu um að þau þyrftu ekki að kosta framkvæmd forseta- og þing- kosninga. Ekkert stæði hins vegar í lögum hverjir ættu að fjármagna þjóðaratkvæðagreiðslu og því hefðu sveitarfélögin vakið athygli forsætis- ráðherra á stöðu mála. Þjóðaratkvæðagreiðslan Sveitarfélögin beri ei kostnað BJÖRGÓLFUR Jóhannsson, for- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, segist ekki trúa öðru en loðna finnist við landið. Útlit er nú fyrir að sumarloðnuveiðitímabilið muni ekki hefjast 20. júní eins og fyr- irhugað var þar sem loðnan hefur enn ekki fundist. Björgólfur segir að ef ekki verði af loðnuveiðum í sumar, muni það hafa mikil áhrif á atvinnu á stöðum á borð við Rauf- arhöfn og sérstaklega Siglufjörð. „Þetta mun auk þess hafa mikil áhrif á tekjur og afkomu Síldar- vinnslunar, bæði fyrir vinnslu og útgerð,“ segir hann og telur að áhrifin muni einnig koma fram á lýsismörkuðum. „Það er auðvelt að selja lýsisafurðir í dag og verð er gott. Það er mikið lýsi í sumar- loðnunni og ef engin loðna verður veidd í sumar mun það hafa mikil áhrif.“ Búist við 60 þúsund tonnum af loðnu í sumar Síldarvinnslan starfrækir fimm bræðslustöðvar; í Helguvík, Nes- kaupstað, á Raufarhöfn, Siglufirði og Seyðisfirði. Bræðslurnar á Siglufirði og Raufarhöfn taka nán- ast eingöngu við loðnu að sögn Björgólfs en á hina staðina fer síld og kolmunni auk loðnu. Björgólfur segir að tæp 40 þús- und tonn af loðnu hafi farið til bræðslu á Siglufirði í fyrra, sem hafi þýtt vinnslu í rúman mánuð fyrir sextán til átján starfsmenn þegar mest var. Milli 15 og 20 þús- und tonn af loðnu fóru í bræðslu á Raufarhöfn í fyrra en þar vinna yfir sumartímann tólf starfsmenn í bræðslunni. Björgólfur segir áætl- anir Síldarvinnslunnar fyrir sum- arið hafa gert ráð fyrir svipuðum aflatölum, um 60 þúsund tonn í heildina. Hann segist þó vera bjartsýnn á að loðnan finnist. „Ef maður er ekki bjartsýnn í sjávarútvegi, þá væri maður sennilega löngu kominn und- ir græna torfu. Ég trúi ekki öðru en loðnan finnist,“ segir Björgólfur. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar „Trúi ekki öðru en loðnan finnist“ ÍSLEIFUR VE er nú á leið ámiðin eftir að hafa landað 1100tonnum af síld í Vestmannaeyj- um. Síldin er stór og góð og- fékkst innan íslensku landhelg- innar. Helgi Valdimarsson, skip- stjóri á Ísleifi segir að þeir hafi fengið síldina í tveimur köstum um 150 sjómílur norð-austur af Langanesi og því vel innan ís- lensku lögsögunnar. „Við vor- um á leið á miðin eftir sjó- mannadaginn þegar við fundum síldina. Okkur gekk vel en síðan hefur ekkert fundist en það er alltaf af og til að fást síld inni í landhelginni.“ Hann sagði lítið að frétta af miðunum núna og telja sjó- menn að síldin sé komin inn í lögsöguna við Svalbarða. Veiddi síld innan lögsögu TÆPLEGA eitt hundrað ára gömul hlutabréf í Fossafélaginu Ísland hafa komið í leitirnar í Noregi og verið keypt til Íslands. Þetta eru fyrstu bréf þessa félags sem vitað er um hér á landi, en félagið varð til þegar fossafélögin Skjálfandi og Gigant voru sameinuð í eitt félag ár- ið 1909. Einar Benediktsson skáld var einn aðalhvatamaður og stjórn- armaður í fyrrnefnda félaginu. Freyr Jóhannesson bygginga- tæknifræðingur, eigandi bréfanna, segir að verð bréfanna verði ekki gefið upp en þau séu mikill happa- fengur. Hann viti ekki til að bréf þessa félags hafi verið til hér á landi til þessa, hvorki á söfnum né í hönd- um einkaaðila. Aftur á móti séu til nokkur hlutabréf frá öðrum fossa- félögum, svo sem Titan. Fram kemur hjá Frey að bréfin séu tvö, 500 kr. að verðgildi hvort, númer 79 og 211, og séu gefin út á frú Elísu Johnson, sem að öllum lík- indum hafi verið eiginkona Samuels Johnson, stjórnarformanns félags- ins, en hann skrifi undir bréfin ásamt öðrum stjórnarmönnum. Þá fylgi bréfunum lög félagsins í sér- stökum bæklingi. Johnson hafi verið af íslenskum ættum og afar stoltur af þeim uppruna, sem kunni að skýra áhuga hans á landi og þjóð. Hann hafi verið sagður af íslensku höfðingjakyni, bróðursonarsonur Jóns Espólíns sagnameistara og bróðursonur Gísla Kr. Johnson, há- skólakennara í Kristjaníu. Hann hafi verið í miklu vinfengi við Einar Benediktsson, að minnsta kosti í fyrstu þótt síðar hafi slest upp á vin- skapinn, og hafi heimsótt Ísland margsinnis í tengslum við virkjana- áform félagsins. Réð yfir vatnsréttindum Gullfoss Fossafélagið Ísland réð yfir vatns- réttindum í Skjálfanda og Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu. Það hafði að markmiði að virkja í Hvítá og Sog- inu og réð meðal annars um tíma vatnsréttindum Gullfoss. Markmið félagsins var fyrst og fremst virkjun Sogsfossa með stóriðju að takmarki, sölu á rafmagni til Reykjavíkur og lagning járnbrautar austur yfir heið- ar. Sótti það um sérleyfi vegna þessa árið 1917 en deilur hér innanlands urðu hins vegar til þess að ekkert varð af framkvæmdum. Seinast fréttist af félaginu sumarið 1927, tæpum tuttugu árum eftir að það var stofnað. Fram kom hjá Frey að kærkomið væri að að fá að vita ef hlutabréf í þessu eða öðrum fossafélögum leyndust einhvers staðar i fórum manna. Sögulegt gildi bréfa af þessu tagi væri ómetanlegt og oft og tíðum hefðu þau einnig mikið fag- urfræðilegt gildi. Fjárhagslegt verð- mæti ylti hins vegar á mati hverju sinni, eins og aldri bréfanna, ástandi, fágæti, eftirspurn og öðrum slíkum þáttum. Hlutabréf í Fossa- félaginu Ísland komin í leitirnar Freyr Jóhannesson með hlutabréfin í Fossafélaginu Ísland. Morgunblaðið/ÞÖK Hlutabréfin í Fossafélaginu Ísland sem gefin voru út árið 1909.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.