Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 54
AUÐLESIÐ EFNI 54 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Með næstum allt á hreinu Morgunblaðið/Sverrir Valgeir Guðjónsson Á HAUSTMÁNUÐUM verður frumflutt ný íslensk söngsýning á stóra sviði Broadway byggð á Stuðmanna-myndinni Með allt á hreinu. Valgeir Guðjónsson, sem lengi var einn lagahöfundur og liðsmaður Stuðmanna, verður listrænn stjórnandi sýningarinnar en hann samdi stóran hluta hinna sívinsælu laga sem hljómuðu í myndinni. Valgeir segir í samtali við Morgunblaðið að ekki sé verið að endurtaka kvikmyndina enda sé vinnuheiti sýningarinnar Með næstum allt á hreinu. Sýningin muni fyrst og fremst byggjast á tónlistinni úr Með allt á hreinu en spunnið í nýjan söguþráð. Þá muni önnur tónlist Stuðmanna einnig koma við sögu í sýningunni. ALÞINGI verður kallað saman 5. júlí til að undirbúa þjóðar-atkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að á þinginu verði ákveðið hvenær kosningin skuli fara fram. „Við höfum ekki endanlega ákveðið kjördaginn en væntum þess að það geti orðið fyrri-partinn í ágúst. Það yrði erfitt að bíða með það mikið lengur vegna stjórnar-skrárinnar.“ sagði Davíð við fréttamenn, eftir fund sem hann og Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, héldu með forystumönnum stjórnarandstöðu-flokkanna. Sá fundur stóð stutt því að Davíð sleit fundinum þegar rúmar 15 mínútur voru liðnar af honum. Davíð sagðist hafa gert það eftir að Ögmundur Jónasson, þingflokks-formaður Vinstri grænna, hefði sett skilyrði, „sem ætti að vinna eftir, um hvað mætti gera og hvað mætti ekki gera,“ útskýrði Davíð eftir fundinn. „Það er dapurlegt að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar skuli ekki vilja taka í útrétta hönd okkar um að setjast sameiginlega yfir málið og reyna að ná samkomulagi um alla þætti strax,“ sagði Ögmundur. Fjórir hæstaréttar-lögmenn hafa verið skipaðir í starfshóp ríkisstjórnarinnar til að undirbúa lagasetningu um þjóðaratkvæða- greiðsluna. Þing kallað saman í júlí Morgunblaðið/ÞÖK Forystumenn flokkanna á fundinum í Stjórnarráðinu. EIGENDUR verslunar-miðstöðvarinnar Smáralind í Kópavogi vilja reisa 10–12 hæða turn við Smáralind. Í turninum yrðu skrifstofur. Hann yrði 10–12 þúsund fermetrar að flatarmáli og myndi tengjast Smáralind. Eigendurnir hafa kynnt hugmyndir sínar skipulagsyfirvöldum í Kópavogsbæ. Kostnaður er áætlaður 1–2 milljarðar. Pálmi Kristinsson, sem er framkvæmdastjóri Smáralindar, segir að hugmyndin fari nú í gegnum hefðbundið kynningarferli. Vilja reisa 10–12 hæða turn við Smáralind Morgunblaðið/Árni Sæberg Smáralind í Kópavogi. ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik karla tryggði sér farseðilinn á heimsmeistaramótið þegar það lagði Ítalíu, 37:25, í síðari viðureign þjóðanna í íþróttahúsinu í Kaplakrika í Hafnarfirði. Íslenska liðið var aðeins einu marki yfir í hálfleik, 15:14. Í síðari hálfleik tók íslenska landsliðið öll völd á vellinum stakk ítalska landsliðið hreinlega af. Íslendingar unnu einnig fyrri leikinn, 37:31. Heimsmeistaramótið fer fram í Túnis í lok janúar og í byrjun febrúar á næsta ári. Þetta verður í 14. sinn sem Íslendingar senda lið til keppni á heimsmeistaramót í handknattleik karla en fyrst var það á meðal keppenda í Austur-Þýskalandi 1958. Þetta verður jafnframt sjöunda stórmótið í röð í handknattleik karla sem Íslendingar taka þátt í. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði flest mörk íslenska liðsins í seinni leiknum, ellefu. Ólafur Stefánsson kom næstur með sjö mörk. Snorri Steinn Guðjónsson gerði fjögur mörk og þeir Dagur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson skoruðu þrjú mörk hvor. Kvennalandslið Íslands í handknattleik tapaði fyrir Tékkum, 24:18, í síðari viðureign þjóðanna um sæti á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Ungverjalandi í lok þessa árs. Leikurinn fór fram í Tékklandi. Ísland tapaði einnig fyrri leiknum sem leikinn var hér heima, 27:26. Ísland með á HM í hand- knattleik RONALD Reagan var jarðsunginn á föstudaginn. Reagan var forseti Bandaríkjanna frá 1980 til 1988. Athöfnin fór fram í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Síðan var flogið með lík Reagans til Kaliforníu. Þar var hann jarðsettur. Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands, var við athöfnina í Washington. Reagan bjó lengi í Kaliforníu. Hann var kvikmyndaleikari áður en hann gerðist valdamikill stjórnmálamaður í Kaliforníu. Þaðan lá leiðin í Hvíta húsið. Reagan lést um síðustu helgi. Hann var 93 ára gamall. Hann hafði lengi þjáðst af Alzheimer-sjúkdómi. Bandaríkjamenn minntust Reagans í vikunni. Mikill fjöldi fólks kom að kistu hans þar sem hún var geymd í þinghúsinu í Washington. Hann var mjög vinsæll forseti. Reagan kom til Íslands árið 1986. Þá ræddi hann hér við Míkhaíl Gorbatsjov. Hann var leiðtogi Sovétríkjanna. Fundurinn í Reykjavík þykir merkilegur. Hann átti þátt í því að ljúka „kalda stríðinu“. Það stríð var á milli Vesturlanda og Sovétríkjanna sem börðust um áhrif í heiminum. Sumir segja að Reagan hafi unnið „kalda stríðið“. Sovétríkin liðu undir lok og kommúnisminn hrundi. Reagan var umdeildur þegar hann var forseti. Nú telja margir í Bandaríkjunum að hann hafi verið mjög merkilegur forseti. Samningar sem hann gerði við Sovétríkin voru mikilvægir. Aðrir segja að hann hafi aðallega hugsað um ríka fólkið í Bandaríkjunum. Reagan var fertugasti forseti Bandaríkjanna. George Bush tók við af honum og var forseti til 1993. Hann er faðir George W. Bush sem er nú forseti Bandaríkjanna. Reagan jarðsunginn Morgunblaðið/RAX Ronald Reagan, til vinstri, heilsar Míkhaíl Gorbatsjov við upphaf fundar þeirra í Reykjavík haustið 1986. Netfang: auefni@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.