Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 12. júní 1994: „Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Alþýðu- sambands Íslands, misskilur hlutverk fjölmiðla, a.m.k. Morgunblaðsins, ef dæma má af grein hans hér í blaðinu í fyrradag. Í grein þessari fjallar framkvæmdastjóri ASÍ um sjónarmið, sem sett voru fram í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins fyrir viku um atvinnuleysi og skipulag vinnumarkaðarins og kemst að þeirri niðurstöðu, að sú um- fjöllun sé „alvarlegt stílbrot í þeirri viðleitni Morgunblaðs- ins að reyna að teljast til- tölulega óháður fjölmiðill“. Það er grundvallarmisskiln- ingur hjá framkvæmdastjóra ASÍ, að Morgunblaðið hafi haft uppi „viðleitni [til] að telj- ast tiltölulega óháður fjölmið- ill“. Morgunblaðið hefur aldrei haft uppi slíka tilburði. Morg- unblaðið hefur vissulega und- irstrikað þá staðreynd, að blaðið er ekki háð nokkrum stjórnmálaflokki, hvorki vegna eignaraðildar né hugs- anlegra áhrifa flokks eða flokka á ritstjórnarstefnu þess. Að því sögðu hefur blað- ið tekið mjög eindregna af- stöðu til þjóðmála og lýst skoðunum sínum tæpitungu- laust. En þær skoðanir koma einungis fram í ritstjórn- argreinum en hvorki á frétta- síðum, í vali á fréttum eða með öðrum hætti.“ . . . . . . . . . . 13. júní 1984: „Borgarstjórn Reykjavíkur hefur gert nýja samþykkt um Kjarvalsstaði og starfslaun til listamanna. Kjarni þeirra er sá, að ein- ungis þeir fulltrúar í stjórn Kjarvalsstaða, sem kjörnir eru af borgarstjórn, hafi at- kvæðisrétt um fjármál og stjórnsýslu svo og um út- hlutun starfslauna, sem stjórn Kjarvalsstaða veitir árlega til eins eða fleiri listamanna. Hins vegar hafa þeir fulltrúar listamanna, sem sæti eiga í stjórn Kjarvalsstaða, sam- kvæmt tilnefningu samtaka listamanna, málfrelsi og til- lögurétt um öll mál er varða Kjarvalsstaði og heyra undir verksvið stjórnarinnar. Enn- fremur hafa fulltrúar lista- manna atkvæðisrétt um alla ráðstöfun Kjarvalsstaða er telst til listrænnar starfsemi. […] Þessi breyting á starfs- reglum stjórnar Kjarvals- staða er bæði eðlileg og tíma- bær. Kjörnir fulltrúar eru auðvitað hinir einu, sem færir eru um að taka þær ákvarð- anir, sem varða fjármál og aðra stjórnsýslu. Allt annað er í mótsögn við lýðræðislega stjórnarhætti í landinu.“ . . . . . . . . . . 13. júní 1974: „Glöggt dæmi um hrikalegan viðskilnað vinstri stjórnar í fjármálum þjóðarinnar er ástand Vega- sjóðs um þessar mundir og sú óvissa, sem ríkir um vega- framkvæmdir á þessu sumri. Vegna þingrofs Ólafs Jóhann- essonar tókst ekki að afgreiða endurskoðaða vegaáætlun á síðasta þingi og er því eina samþykkta vegaáætlunin fyr- ir árið 1974, sem fyrir liggur, sú, er samþykkt var á þinginu 1972. Ef miðað er við þær framkvæmdir, sem þá var samþykkt að fram skyldu fara í ár skortir Vegasjóð hvorki meira né minna en 1900 millj- ónir króna til að standa undir þeim og að auki er sjóðurinn með skuldahala á eftir sér, þannig að raunveruleg fjár- þörf hans á þessu ári er 2100 milljónir.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. F orsetakosningar fara fram eft- ir tvær vikur. Lítið hefur far- ið fyrir þeim í þjóðfélagsum- ræðunum fram til þessa. Hefði þó mátt ætla í ljósi um- deildrar ákvörðunar núver- andi forseta Íslands fyrir skömmu, að undirrita ekki fjölmiðlalögin, að líf færðist bæði í kosningabar- áttuna og umræður um forsetaembættið. Þá ligg- ur ljóst fyrir, að nú gefst kjörið tækifæri til að ræða forsetaembættið og stöðu þess. Kjarninn í þeim umræðum, sem hófust í kjöl- far ákvörðunar forsetans um að beita 26. gr. stjórnarskrárinnar, er sá, hvort einhver völd eigi yfirleitt að fylgja forsetaembættinu. Sumir telja, að það sé eðlilegt og eru raunar þeirrar skoðunar að lesa megi stjórnarskrána á þann veg, að for- setinn hafi einhver raunveruleg völd. Aðrir líta svo á, að forsetinn eigi að vera valdalaus þjóð- höfðingi, þjóðkjörið sameiningartákn. Yfirleitt hefur verið samstaða um það, að for- seti skuli vera valdalaus og að hans megin hlut- verk sé að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Augljóst er af öllum helztu skrifum fræðimanna á sviði stjórnskipunarréttar að frá upphafi lýð- veldisstofnunar hefur verið litið svo á. Bjarni heitinn Benediktsson, fyrrverandi forsætisráð- herra, sem á sínum tíma kom mjög við sögu lýð- veldisstofnunar og átti m.a. sæti í nefndinni, sem samdi tillögurnar að lýðveldisstjórnarskránni, skýrði ástæður 26. greinar stjórnarskrárinnar í samtali við Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, í aðdraganda forseta- kosninganna 1968 með þessum orðum: „Ástæðan til þess var sú, að þegar verið var að semja frumvarpið að lýðveldisstjórnarskránni var utanþingsstjórn, sem meirihluti Alþingis undi mjög illa, þó að ekki væri hægt að ná sam- komulagi um þingræðisstjórn. Með réttu eða röngu töldu margir þingmenn, þar á meðal ég, að þáverandi ríkisstjóri hefði við skipun utanþings- stjórnarinnar farið öðru vísi að en þingræðisregl- ur segja til um. Menn óttuðust þess vegna að inn- lendur þjóðhöfðingi kynni að beita bókstaf stjórnarskrárinnar á annan veg en konungur hafði ætíð gert frá því að landið fékk viðurkennt fullveldi 1918 og þar með taka afstöðu með eða móti lagafrumvörpum, alveg gagnstætt því, sem ætlast er til í þingræðislandi, þar sem staðfesting þjóðhöfðingjans á gerðum löggjafarþings er ein- ungis formlegs eðlis. Menn vildu ekki eiga það á hættu að forseti gæti hindrað löglega samþykkt Alþingis með því að synja henni staðfestingar, heldur tæki lagafrumvarpið engu að síður gildi en vald forseta yrði takmarkað við það eitt að geta þá komið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Þetta ákvæði skýrist þess vegna eingöngu af því tímabundna ástandi, sem hér ríkti á ár- unum 1942–1944 og hefur reynslan síðan bent til að þessi varúð þingsins hafi verið ástæðulaus. Ekki er kunnugt að forseta hafi nokkru sinni komið til hugar að stofna til þess glundroða, sem af því mundi leiða, ef hann ætlaði að hindra Al- þingi í löggjafarstarfi þess.“ Líklega er ósögð saga af samskiptum Sveins Björnssonar ríkisstjóra og þingmanna fyrir lýð- veldisstofnun, sem myndi skýra þetta enn betur, ef fram kæmi. Það er augljóst af orðum Bjarna Benediktssonar, að markmiðið með 26. grein stjórnarskrárinnar var fyrst og fremst að tryggja stöðu Alþingis gagnvart forseta en ekki öfugt. Markmiðið var að koma í veg fyrir, að for- seti gæti hindrað löggjafarstarf Alþingis með því að neita að undirrita lög. Þeir sem sæti áttu í nefndinni, sem undirbjó lýðveldisstjórnarskrána, og einhverjir þingmenn a.m.k. hafa talið sig hafa ástæðu til að óttast einhverja togstreitu á milli forseta og þings. Þessi spenna í samskiptum Sveins Björnssonar ríkisstjóra og Alþingis virð- ist því hafa endurspeglast með tvennum hætti: annars vegar í þessu ákvæði stjórnarskrárinnar og hins vegar í þeirri staðreynd, að hann hlaut ekki atkvæði nokkurra lykilmanna í íslenzkum stjórnmálum við forsetakjör á Alþingi á Þingvöll- um fyrir 60 árum. Ólafur heitinn Jóhannesson, fyrrum forsætis- ráðherra, sem á sinni tíð var einn helzti sérfræð- ingur þjóðarinnar í stjórnskipunarmálum, segir að ákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar sé „óvenjulegt“ og jafnvel „einstætt“. Hann segir í riti sínu Stjórnskipun Íslands (útgáfa frá 1960) um þetta efni: „Sú skipan, sem ákveðin er með 26. gr. stjskr. er óvenjuleg eða jafnvel einstæð. Eru skoðanir skiptar um það, hversu heppileg hún sé. (Og vís- ar þar til rits Björns Þórðarsonar, forsætisráð- herra utanþingsstjórnarinnar umdeildu, Alþingi og konungsvaldið – innskot Mbl.).Er óneitanlega einkennilegt að frumvarp skuli þegar fá lagagildi þrátt fyrir staðfestingarsynjun forseta. Er og á það bent að þjóðaratkvæði sé löggjafaraðili, sem ekki eigi að leita til, nema mikið liggi við eða um sé að tefla meginatriði í lagasetning. Eins og 26. gr. stjskr. er úr garði gerð þarf varla að reikna með lagasynjun en ef til kæmi yrði sjálfsagt óhjá- kvæmilegt að setja lög um þjóðaratkvæða- greiðsluna. Væri sjálfsagt að sett væru almenn lög um það efni.“ Ástæður þessa „óvenjulega“ og „einstæða“ ákvæðis stjórnarskrárinnar skýrast vel í tilvitn- aðri frásögn Bjarna Benediktssonar. Undanfarnar vikur og mánuði hafa sumir lög- spekingar haldið mjög að þjóðinni þeim kenn- ingum, að í stjórnarskránni felist meira vald fyrir forseta en hingað til hefur verið talið. Má það merkilegt teljast að þeir hinir sömu skuli alger- lega ganga fram hjá þessum útskýringum Bjarna Benediktssonar á sínum tíma, sem þó hljóta að teljast heimildir, sem ástæða er til að styðjast við þegar þetta ákvæði stjórnarskrárinnar er túlkað. Ákvæði, sem sett er inn til þess að koma í veg fyrir, að forseti geti hindrað störf Alþingis, er nú notað til hins gagnstæða. Í þessu ljósi þarf eng- um að koma á óvart, þótt hafnar séu umræður um nauðsyn þess að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins til þess að engin hætta sé á að hún verði misnotuð og mistúlkuð í framtíðinni á þann veg, sem nú hefur verið gert. Staða forsetans í stjórnskipun Íslands Tilraunir nokkurra einstaklinga til þess að skýra ákvæði stjórnarskrárinnar á þann veg, að forseti Íslands hafi meira vald í sínum höndum en hingað til hefur verið tal- ið, eru í raun óskiljanlegar. Í þeim felst viðleitni til að draga úr stöðu og valdi Alþingis, sem á sér meira en þúsund ára sögu. Þeir sem þannig tala vilja, að því er virðist, færa vald frá Alþingi til forsetans. Hvers vegna og til hvers? Alþingi er grundvöllur stjórnskipunar okkar og hefur verið frá stofnun þess. Hins vegar hafa ýmsar atlögur verið gerðar að stöðu Alþingis í langri sögu þess. Hvað gengur þeim mönnum til, sem vilja rýra stöðu Alþingis, þar sem sitja þjóðkjörnir þing- menn? Vilja þeir taka upp hið bandaríska stjórn- skipulag, þar sem forseti hefur mikil völd? Hvaða rök væru fyrir því? Myndu þeir, sem nú tala á þann veg, að það eigi að auka vald forsetans, vera sömu skoðunar ef forsetinn, sem nú situr á Bessastöðum héti Davíð Oddsson en ekki Ólafur Ragnar Grímsson? Ólafur Jóhannesson lýsir stöðu forseta Íslands með þessum orðum í riti sínu, Stjórnskipun Ís- lands: „Í stjórnarskránni er forseta í orði kveðnu fengið mikið vald. Af öðrum stjórnarskrárákvæð- um og stjórnarvenjum hér á landi leiðir, að í reyndinni er vald forseta oftast nær lítið. Venju- lega er hluttaka forseta í löggjöf og stjórnar- framkvæmdum aðeins formsatriði þannig að hann hefur raunverulega engin áhrif á efni laga eða stjórnarathafna. Frá því geta þó verið und- antekningar t.d. að því er varðar stjórnarmynd- anir og þegar aðstæður eru óvenjulegar.“ Í riti sínu víkur Ólafur Jóhannesson að ýmsu orðalagi stjórnarskrár, sem við fyrstu sýn gæti gefið til kynna, að forseti hefði mikið vald en seg- ir síðan: „Sé litið á þessi ákvæði stjórnarskrárinnar ein út af fyrir sig, mætti ætla, að vald forseta væri mikið. Þess er þó að gæta að í öðrum stjórn- arskrárákvæðum er mjög dregið úr valdi forseta. Þannig segir í 13. gr. stjskr. (sem Þór Vilhjálms- son hefur vitnað til í sínum túlkunum á 26. grein- inni – innskot Mbl.) að forseti láti ráðherra fram- kvæma vald sitt og samkvæmt 19. gr. stjskr. veitir undirskrift forseta undir löggjafaramál og stjórnarerindi þeim gildi er ráðherra ritar undir með honum.“ Í þessu felst væntanlega að undirskrift forseta skiptir engu máli ef undirskrift ráðherra vantar. Ólafur Jóhannesson segir enn fremur: „Ráðherra ber ábyrgð á stjórnarframkvæmd- um öllum, 14. gr. stjskr., en sjálfur er forseti ábyrgðarlaus, 11.gr. stjskr. Er af þessum ákvæð- um ljóst að forseti getur lítt beitt valdi sínu til já- kvæðra athafna og ákvarðana nema með atbeina ráðherra. Öðru máli gegnir að vísu um synjanir. Forseta er formlega heimilt að neita að sam- þykkja eða staðfesta stjórnarathafnir eða lög og þarf eigi til þess atbeina neins ráðherra. Hann verður ekki þvingaður til þessara athafna. Hins vegar gætu slíkar synjanir hans leitt til árekstra við ráðherra og orðið til þess að ráðherra segði af sér. Gæti þá svo farið, að forseti yrði í vandræð- um með myndun ríkisstjórnar ef meirihluti þings stæði með ráðherra sem gera mætti ráð fyrir. Samkvæmt þessu getur forseti yfirleitt ekki STJÓRNARMYNDUNAR- UMBOÐ LÚÐVÍKS Gagnrýni Morgunblaðsins á sín-um tíma á þá ákvörðun dr.Kristjáns Eldjárns, þáverandi forseta Íslands, að veita Lúðvík Jós- epssyni, formanni Alþýðubandalags- ins, umboð til stjórnarmyndunar sum- arið 1978 kom lítillega til umræðu á fundi Sagnfræðingafélags Íslands og Félags stjórnmálafræðinga sl. mið- vikudag. Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur lýsti þeirri skoðun á fund- inum, að ákvörðun Kristjáns hefði verið rétt. Sagnfræðingurinn upplýsti að einn helzti ráðgjafi forsetans á þeim tíma hefði verið Baldur Möller og að Krist- ján Eldjárn hefði skrifað í dagbók sína: „Baldur er á því, að ekki geti komið til mála annað en að veita Lúðvík næsta tækifæri. Allt sem hann sagði um þetta kom alveg heim við mínar hugsanir: Jafnvel þótt forseti vildi ganga fram hjá honum væri það fjarri öllum leikreglum í lýðræðisríki að sniðganga svo gróflega næststærsta stjórnmálaflokk landsins.“ Þetta eru fróðlegar umræður eins og við má búast. En var gagnrýni Morgunblaðsins á þessum tíma ósann- gjörn? Nei. Alþýðubandalagið var arftaki Sam- einingarflokks alþýðu-Sósíalista- flokks. Þessir tveir flokkar höfðu frá upphafi barizt gegn grundvallaratrið- um íslenzkrar utanríkis- og öryggis- málastefnu, sem var grundvallarþátt- ur í stjórnmálabaráttunni um fjögurra áratuga skeið. Þessir flokkar lágu undir sterkum grun, sem síðar hefur verið staðfestur með vísan í sögulegar og skriflegar heimildir, um að njóta beins og óbeins stuðnings frá Sovét- ríkjunum og að einhverju leyti frá Austur-Þýzkalandi. Þegar Lúðvík Jós- epsson fékk umboð til að mynda ríkis- stjórn á Íslandi voru aðeins fjögur ár liðin frá því að einhverjum hörðustu stjórnmálaátökum frá lýðveldisstofn- un hafði lokið, þegar vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar gafst upp við að segja upp varnarsamningnum við Bandaríkin. Öll er sú saga rakin í merkri bók eftir dr. Val Ingimundar- son, sem út kom fyrir nokkrum árum. Lúðvík Jósepsson sem formaður Al- þýðubandalagsins gat ekki notið trausts mikils meirihluta þjóðarinnar til þess að mynda ríkisstjórn á Íslandi á þeim tíma, sem hann fékk umboð til þess. Kristján heitinn Eldjárn taldi þetta ómaklega gagnrýni, eins og fram kem- ur hjá Guðna Th. Jóhannessyni, og lét þá skoðun í ljós við Matthías Johann- essen, ritstjóra Morgunblaðsins á þeim tíma. Þrátt fyrir þann skoðana- mun voru samskipti hans og Morgun- blaðsins alla tíð vinsamleg. Það getur verið erfitt fyrir unga sagnfræðinga nútímans að setja sig inn í andrúm kalda stríðsins. Það verða þeir þó að gera til þess að geta lagt hlutlægt mat á mál eins og þetta. Lúðvík Jósepsson, sem var að mörgu leyti vel metinn stjórnmálamaður, ekki sízt meðal fólks í atvinnulífinu, hefði aldrei getað myndað ríkisstjórn á Íslandi á þessum tíma – hvað þá kom- ið fram sem slíkur í samskiptum við Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin! Hvað sem þessum sjónarmiðum líð- ur er ástæða til að fagna því, að sagn- fræðingar okkar eru að draga saman margvíslegan fróðleik og upplýsingar um stjórnmálaátök og viðburði í sögu lýðveldisins fyrstu áratugina. Þeir eru að vinna ómetanlegt starf, sem full ástæða er til að auðvelda þeim eins og kostur er. Og jafnframt fróðlegt að kynnast því, hvernig nýjar kynslóðir sjá atburði liðins tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.