Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 58
Deep Purple á Íslandi, 1971 DEEP Purple snúa aftur til Íslands undir enda þessa mánaðar, nánar tiltekið dagana 23. og 24. júní, og leika þá á tvennum tón- leikum í Laugardalshöll. Deep Purple hafa einu sinni áður komið til landsins, en það var þegar þeir héldu tónleika á sama stað, 18. júní árið 1971 og óhætt að segja að sveitin hafi þá verið á hátíndi ferils sín. Að loknum tónleikum bauð sveitin nokkr- um Íslendingum að hoppa með sér aftur til Lundúna, í sérlegri einkaflugvél sveitarinnar. Friðrik Ásmundsson Brekkan var einn af þeim sem létu slag standa. Friðrik starfar nú sjálfstætt sem leiðsögumaður og ráðgjafi en á þessum tíma var hann eins og svo margir, með hár niður á axlir og rokkþorsta á háu stigi. Þessi ævintýramennska Friðriks borgaði sig þó heldur betur því ferðin var sannanlega kostuleg. „Að loknum tónleikum hitti ég Ingiberg Þorkelsson, sem stóð fyrir tónleikunum og spurði hann mig hvort ég hefði áhuga á að koma með Deep Purple til London í einka- flugvélinni þeirra, aðra leið,“ rifjar Friðrik upp. „Það átti að fara daginn eftir. Við áttum að greiða þrjú pund ensk í tryggingargjald til þess að fá að fara með og var því snarlega bjargað. Smám saman safnaðist saman lítill hópur manna sem vildi fara með út í ævintýr- ið.“ „Samanbrotnir“ Friðrik fór með Óttari Felix, þeim mikla athafnamanni og núverandi eiganda Zonet- útgáfunnar. „Við Óttar Felix fórum saman í raun án þess að vita nákvæmlega hvernig við ættum að komast heim aftur. Þegar til Keflavíkur var komið beið okkar fjögurra hreyfla Vis- count-flugvél sérinnréttuð fyrir hljómsveit- arflutninga. Við settumst hjá Jon Lord og Ritchie Blackmore sem voru að spila póker með hrúgu af peningum uppi á borði. Fjár- hagur okkar félaganna var ekki þannig að við gætum verið með í spilinu en við fylgdumst samt grannt með. Þetta var ósköp róleg ferð, enda allir þreytttir, bæði hljómlistarmenn og rótarar og dottuðu menn hver af öðrum. Ian Gillan sat einn og var að lesa og tyllti ég mér hjá honum og sagðist hann endilega vilja koma einhvern tíma aftur til Íslands sem óbreyttur ferðamaður og skoða sig um án þess að vera í þessu hljómleikastressi og sagðist ég vona að svo yrði einhvern tímann. Hann spurði hvað við værum að gera til London og ég nefndi að þetta væri nú bara „sprell“ hjá okkur félögunum að komast í nokkra daga til London.“ Í framhaldi af þessu spurði Gillan þá fé- laga hvernig þeir ætluðu að koma sér inn í London, en lent var á Stanstedvelli, sem liggur utan við Norður-London. Þeir félagar höfðu ekki hugmynd um hvernig þeir ættu að koma sér í borgina. „Hann sagðist gjarnan vilja leyfa okkur að renna með sér inn í bæ, en hann væri að fara alveg í öfuga átt, en hann skyldi spyrja Jon Lord hvort hann myndi vilja skutla okkur. Varð það úr að Jon bauðst til þess að renna með okkur Óttar Felix til London. Það var heldur þröng vistin, því bifreiðin var af gerð- inni Jaguar E type, 12 strokka sportbíll, sem með góðu móti tekur tvo farþega og svo er hægt að troða tveimur álfum af minnstu gerð í hið svokallaða aftursæti, sem er ekki nema einhverjir tuttugu og fimm sentímetrar fyrir aftan framsætin. Þar sem útgefandi New Musical Express, sem fylgdi þeim til Íslands sat í framsætinu, þá var okkur Óttari troðið þarna á hænuprikið í eina kös alla leið frá Stansted-flugvelli inn til Sloane Square i miðborg London. Við kvöddum þessa heið- ursmenn og eftir að hafa rétt úr okkur og jafnað okkur vel eftir að hafa verið „sam- anbrotnir“ í einn og hálfan tíma fórum við að leita að gistiheimili.“ Stórborgin Friðrik lýsir því að Óttar hafi vísað veginn á gistiheimili sem hann hafði eitt sinn verið á. „Þar bjó enn sama gamla konan og hafði hýst Óttar og vin hans fyrir mörgum árum. „Yes, I remember you and the other one,“ sagði kella. Ég hugsaði ekkert út í það, hver þessi „other one“ var og spurði heldur ekki Óttar um það.“ Þeir félagar skoðuðu sig svo um í stór- borginni í nokkra daga. „Svo þegar ég greiddi hótelreikninginn leit ég á hann áður en ég stakk honum í vasann. Þar stóð herbergisnúmerið og svo efst nafnið Mr. Hendricks. Ég sagði konunni að þetta væri ekki ég, en hún sagði að Óttar héti Mr. Hendrix. Ég spurði Óttar út í þetta og þá kom í ljós að gamla konan mundi eftir því að þeir félagarnir Jimi Hendrix og Óttar höfðu gist þarna saman einhvern tíma en hún mundi ekki nema annað nafnið og setti það á reikninginn!“ Í skottinu hjá Lord Sögumaðurinn Friðrik Brekkan ásamt vini sínum, gítarist- anum Ritchie Blackmore. arnart@mbl.is Purple-menn að árita sig inn á Hótel Esju.Ritchie Blackmore og Roger Clover á Íslandi 1971. 58 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ  Ó.H.T Rás2  SV MBL  SKONROKK Sýnd kl. 5.40 og 10. 25.000 manns á 12 dögum!!! Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. PIERCE BROSNAN JULIANNE MOORE FRUMSÝNING Frábær ný gamanmynd frá höfundi Adaptation og Being John Malkovich Með stórleikurunum Jim Carrey og Kate Winslet. "stílhreint snilldarverk" HP Kvikmyndir.com Sýnd kl. 4 og 8. Sýnd kl. 3.50. ELLA Í ÁLÖGUM DV HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00 ELLA Í ÁLÖGUM Sýnd kl. 1.50 og 3.50. Sýnd kl. 1.30 og 3.30. Með ísl. tali Sýnd kl. 2.40, 4, 5.20, 6.40, 8, 9.20 og 10.40.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS DV kl. 3, 5.50, 8.30 og 11.10. Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.  Ó.H.T Rás2  SV MBL  Kvikmyndir.com  SKONROKK 28.000 manns á 16 dögum!!! FRUMSÝNING Frábær ný gamanmynd frá höfundi Adaptation og Being John Malkovich Með stórleikurunum Jim Carrey og Kate Winslet. "stílhreint snilldarverk" HP Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.