Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ F yrir rúmri viku sat ég við kvöldverðarborðið hér í Kabúl í húsi Handicap Inter- national ásamt íbúum hússins. Ég hafði fengið sendan lax að heiman sem vakti gríðarlega lukku og við höfðum orðið okkur úti um dýrindis hvítvín frá franska herkampinum úti við flugvöll. Handicap International er hjálpar- stofnun sem sér um að eyða ósprungnum sprengjum og jarð- sprengjum, búa til gervilimi, endur- hæfa fórnarlömb sprengjuárása og að upplýsa almenning um hættuna sem stafar af slíkum sprengjum. Allt í einu hringir síminn og unnusti minn, Seb- astian Fouquet, stekkur upp úr stóln- um og fer að ganga um gólf í mikilli geðshræringu. Ráðist hafði verið á bíl frá Læknum án landamæra og allir drepnir. Árásin var nálægt borginni Herat, á svæði sem hingað til hafði verið talið öruggt fyrir hjálparstarfsmenn. Dag- inn eftir kom í ljós að í bílnum voru fimm starfsmenn frá Hollandsdeild- inni. Um kvöldið fengum við þær sorgarfréttir að vinkona Sebastians hefði verið í öðrum bílnum. Hún hét Helene de Beir og var alveg sérstak- lega aðlaðandi stúlka og harðdugleg. Hættulegustu svæðin Það er erfitt að missa vini á svona hrottalegan hátt. Eftir því sem ég best veit þá var sprengju hent að bíln- um og svo hófu menn skothríð með AK 47-rifflum og skammbyssum. Í hópnum var líka norskur læknir sem hafði stundum tekið sér frí frá vinnunni í Noregi til að hjálpa til í sjálfboðavinnu. Næsta dag átti að vera stórt samkvæmi hjá Alþjóða Rauða krossinum en enginn var í partískapi og hætt var við samkvæm- ið. Læknar án landamæra hafa lagt niður starfsemi í landinu tímabundið á meðan þeir fara yfir stöðuna. Kandahar, Zabul, Hilmand og Uruzgan sem liggja í suður- og aust- urhluta landsins og svæðin við landa- mæri Pakistans eru talin hættuleg- ustu héruðin því þar hafa flestar árásir verið gerðar á útlendinga. Flestar hjálparstofnanir hafa lagt niður starfsemi á þessum svæðum en Sameinuðu þjóðirnar hafa ráðið til sín verktaka til að fara inn á sum svæðin til að undirbúa kosningarnar í sept- ember næstkomandi. Tveir verktakar frá Global Risk Strategies létust í árás um daginn og stundum er reynd- ar sagt að einungis séu um 50 prósent líkur á að Global-menn komist aftur til byggða. Flestir verktakarnir eru fyrrverandi hermenn á stuttum samningum með yfir milljón í mán- aðarlaun og taka áhættuna til þess að verða sér út um peninga í snatri. Ég heyrði í morgun að 11 kínversk- ir verktakar hefðu verið drepnir í árás í borginni Kunduz í norðurhluta landsins. Þetta er visst áfall því þýski NATO-herinn er á svæðinu og borgin var talin örugg. Árásarmennirnir réð- ust meira að segja inn á heimili þeirra og skiptust á skotum við verði áður en hópurinn var drepinn. Ég tók viðtal við Paul Barker fyrr í vikunni en hann hefur verið hér á veg- um hjálparstofnunarinnar CARE í alls 6 ár. CARE er mjög stór stofnun sem vinnur á fjölmörgum sviðum. Barker segir að öryggi hjálparstarfs- manna hafi verið mun meira á tímum Talibana. CARE hætti reyndar starf- semi tvisvar á tímabilinu en það var meira til að mótmæla mannréttinda- brotum fremur en að erlendir starfs- menn hafi verið í hættu. Í fyrra skipt- ið höfðu starfsmenn trúarráðuneytis- ins stoppað bíl með afgönsku konum, sem unnu fyrir CARE, og lamið þær sundur og saman. Í seinna skiptið fóru starfsmenn ráðuneytisins aftur af stað og hófu að berja þá karlmenn sem grunaðir voru um að hafa rakað sig. Talibanar tóku meðal annars yfir skrifstofu CARE um 40 kílómetra fyrir utan Kabúl og breyttu henni í fangelsi og þurfti Barker að beita mörgum brögðum í bæði skiptin til að fá allt í samt lag. Engu að síður var er- lent starfsfólk hvorki í hættu né fann til óöryggis. Hermenn ekki alltaf í búningum Barker segir að ástandið hafi versnað heilmikið á stuttum tíma: „Þetta hefur í raun stigmagnast frá því í mars á síðasta ári þegar starfs- maður Alþjóða Rauða krossins var drepinn. Á síðasta ári voru 13 hjálp- arstarfsmenn drepnir en á þessu ári er talan komin hátt í 30. Það bætir ekki úr skák að hermenn og jafnvel verktakar á vegum hersins eru búnir að færa sig yfir í alls kyns starfsemi nátengda hjálparstarfinu og línurnar milli hers og hjálparstarfs eru orðnar óskýrar sem er í raun skelfilegt. Þess- ir hermenn og verktakar eru ekki allt- af í búningum til að aðgreina sig frá hjálparstarfsmönnum og keyra um á ómerktum hvítum jeppum og því erf- itt að gera greinamun á því hvort þarna fari hermenn eða hjálparstarfs- menn. Þessir verktakar aka um í borgarlegum klæðum með M16-skot- vopn og haga sér eins og hermenn. Við vitum ekkert hvaða stöðu þeir hafa og það hefur heldur ekkert verið skoðað.“ Barker segir að starfsmenn CARE reyni að gera sig hálfósýnilega í starfi og að menn keyri nú um á leigðum, ómerktum bílum. „Hér áður fyrr ók- um við um á stórum merktum jeppum með blaktandi flögg og við fundum til aukins öryggis ef menn vissu að við vorum hjálparstarfsmenn en þessu er núna öfugt farið. Um 30 þúsund Afg- anar vinna fyrir hjálparstofnanir í Kabúl. Við getum huggað okkur við að ekkert fordæmi er fyrir að eins margar stofnanir og nú hafi haldið áfram starfsemi að átökum loknum. En þessar árásir eru að verða til þess að æ fleiri eru að koma sér úr landi. Við förum hins vegar hvergi.“ Peningum dælt í kosningarnar Barker hefur miklar áhyggjur af því af hverju verið sé að þrýsta svona mikið á að hafa kosningarnar í haust og hann telur landið alls ekki undir þær búið. „Við hefðum miklu fremur átt að skapa hér stjórnvöld í ætt við það sem Afganar eru vanir eins og Jirga (afganskt þing) sem gekk mjög vel og varð til án mikilla átaka. Síðan hefðum við átt að koma á lýðræði í þrepum en fyrst og fremst að venja Afgana við hugmyndina. Einungis 43 prósent karla og 4–14 prósent kvenna eru læs. Ómældum peningum er dælt í að undirbúa kosn- ingarnar en flestir telja að skynsam- legra hefði verið að eyða peningum í enn frekari uppbyggingu. Mennta- kerfið líður svo skort á meðan því fjöl- margir kennarar eru að vinna í tengslum við kosningarnar. Flestir erlendir hjálparstarfsmenn eru farnir frá borginni Kandahar og þykir það mikið áhyggjuefni. Þetta ýtir sennilega undir enn frekari árásir Talibana ef eitthvað er því þeir telja sig vera að ná svo miklu fram með þessum árásum. Markmiðið hjá þeim er fyrst og fremst að koma á ójafn- vægi, ekki bara vegna kosninganna, heldur vegna þessa að þeir vilja öðlast völd á ný og vantar til þess leikvöll. Uppreisnarmenn eflast Sebastian og starfsmenn Handicap hafa eytt deginum í að meta ástandið og ræða við höfuðstöðvarnar í Evr- ópu. Stóra spurningin er hvort menn þurfi að leggja niður starfsemi í Kandahar. Handicap rekur sjúkra- miðstöð og gervilimaverkstæði í borginni og einungis einn til tveir út- lendingar eru þar að meðaltali á hverjum tíma. Við heyrðum frá vinum okkar í dag, Quintin og Senad, sem vinna fyrir hjálparstofnunina Prem- ier Urgence. Yfirmenn þeirra hafa ákveðið að leggja niður alla starfsemi í Kandahar. Því miður virðist sem árásir síðustu vikna séu að borga sig. Uppreisnar- mönnum hefur vaxið fiskur um hrygg og allir þessir 20 þúsund Bandaríkja- menn sem hingað eru komnir til að elta uppi Talibanana hafa engan veg- inn undan. Quintin og Senad voru síð- ustu útlendingarnir í Kandahar sem fóru reglulega út fyrir borgina og inn í þorpin til að veita alls kyns aðstoð í tengslum við vatn og mat. Þeir eru ungir og hafa ef til vill ekki fundið fyr- ir lífhræðslu en ég held að menn líti svo á að ekkert vit sé í því að senda þessa stráka út í þorpin. Sebastian heldur að ástandið eigi eftir að versna næstu vikur. Við heyr- um af árásum á útlendinga nokkrum sinnum í viku og Bandaríkjamenn standa í stríði nánast daglega við upp- reisnarhópa uppi í fjöllunum. Enn hefur ekki verið gerð árás í Kabúl á hjálparstarfsmenn en NATO er að hirða alls kyns óæskilega menn inni í borginni og hefur mjög strangt eft- irlit. Vinsæl skotmörk Góður vinur okkar, Zak Johnson sem vinnur fyrir Handicap í borginni Herat, við landamæri Írans, þarf að endurskipuleggja alla starfsemi Handicap á svæðnu. Zak er sprengju- sérfræðingur sem var í breska sjó- hernum í fjölmörg ár. Hann sér um að eyða vopnum og sprengjum og fer til þess á milli þorpa í kringum Herat. Eftir að starfsfólk Lækna án landa- mæra var drepið í síðustu viku hefur Zak þurft að fara ofan í saumana á starfseminni. Hann er eini útlending- urinn hjá Handicap í Herat en ferðast gjarnan með 20 Afgönum sem þó eru óvopnaðir. Flestir hjálparstarfsmenn eru á móti því að fá í lið með sér vopn- aða verði og Zak sagði reyndar í morgun að það væri tilgangslaust að vera að hreinsa upp jarðsprengjur og aðrar bombur þar sem menn þyrftu að vera vopnaðir. Slíkt hreinsun ætti eingöngu við á svæðum þar sem átök væru yfirstaðin. Ekki veit ég hvernig fer fyrir hjálp- arstarfinu hérna í landinu en ástandið fer versnandi og flestar hjálparstofn- anir sem vinna fyrir utan Kabúl sitja nú á fundum og ræða um það hvort menn eigi að koma sér úr landi. Seb- astian er í hálfgerðri klemmu því það er hans að meta hvort Handicap Int- ernational eigi að draga sig út úr Kandahar eða Herat. Ein kona er í Kandahar á vegum Handicap þessa stundina, Christine frá Bretlandi, sem er sjúkraþjálfari. Hún vill vera áfram og Zak vill alls ekki fara frá Herat en ef eitthvað kemur fyrir þetta fólk bera Sebastians og höfuð- stöðvarnar ábyrgðina. Hver vill bera ábyrgð á dauða eigin starfsmanna? Haldin var minningarathöfnin fyrir starfsfólk Lækna án landamæra síð- astliðinn sunnudag og flestir voru hálfsnöktandi. Það er sorglegt að hjálparstarfsmenn skuli vera orðnir svona vinsælt skotmark, fólk sem fórnar öllu til þess að hjálpa öðrum. Það er erfitt að segja til um fram- haldið en þó að margar stofnanir séu að draga sig út úr landinu er það óæskileg þróun og eins og að skvetta olíu á eldinn gagnvart uppreisnar- mönnum. Það er komin þreyta í marga erlenda starfsmenn því það tekur á taugarnar að vera sífellt á varðbergi og vita aldrei hvað er hand- an við hornið. Læknar án landamæra hafa lagt niður starfsemi í Afganistan í bili og æ fleiri eru að koma sér úr landi Árásir á hjálparstarfs- menn færast í aukana Á árinu hafa þrjátíu hjálp- arstarfsmenn í Afganistan látist í árásum og ástandið fer stigversnandi. Helen Ólafsdóttir í Kabúl er ugg- andi um fólkið sem fórnar öllu til að hjálpa öðrum. Íbúi í Kandahar býr til verkfæri úr sprengibrotum. Skortur er á hráefni og íbúar verða að nýta það sem er fyrir hendi. Þetta er ein ástæðan fyrir því að börn og unglingar hirða upp sprengjur þrátt fyrir að þau viti um skaðsemi þeirra. Reuters Óhug sló á hjálparstarfsmenn eftir að fimm starfsmenn Hollandsdeildar Lækna án landamæra létust í sprengju- og skot- árás á bíl þeirra í Badghis-héraði fyrir skemmstu. Hér er lík eins þeirra borið úr þyrlu í sjúkrabíl í Kabúl. Höfundur er stjórnmálafræðingur og vinnur að heimildamynd um Íslend- ingana í NATO á Kabúl-flugvelli. ’Það er kominþreyta í marga er- lenda starfsmenn því það tekur á taug- arnar að vera sífellt á varðbergi og vita aldrei hvað er hand- an við hornið.‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.