Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 47 Glæsiíbúðir í sérbýli á rótgrón- um stað þar sem ekkert er til sparað. Allar innréttingar eru frá HTH, bæði baðherbergi flísalögð með upphengd salerni, sturtu og baði, þvottahús og forstofa flísalögð og lýsing og hönnun lýsingar er frá Lúmex. Sjón er sögu ríkari. Sölumenn og byggingameistari verða á staðnum. Opið hús í Furugerði 5 frá kl. 15-17 á sunnudag Burknavellir 9 - Hf. - Einbýli Stórglæsilegt einlyft einbýli með inn- byggðum bílskúr, samtals 201 fm. Stað- setning er frábær, við hraunjaðarinn, óbyggt svæði í suður. Húsið afhendist fljótlega, fullbúið að utan, steinað með serusviði. Að innan tilbúið undir málningu, með hitalögn í gólfi, steypt loftplata (sjónsteypa). Glæsilegar teikningar á skrifstofu. Arkitekt Gunnar Páll Kristinsson. Vantar strax 1500 fm lagerhúsnæði í Reykjavík eða Kópavogi til leigu fyrir mjög traustan leigjanda. Góð lofthæð og aðkoma nauðsynleg. Nánari uppl. veitir Óskar. Óskum eftir til leigu eða kaups 50-150 fm atvinnuhúsnæði fyrir ljósmyndastúdíó. Nánari uppl. veitir Óskar. ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST 3. hæð - Glæsilegt útsýni. Vorum að fá í sölu fallega 100 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli við Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Tvennar svalir til suðurs og norðurs. Glæsilegt sjávarútsýni og til Esjunnar. Íbúðin er laus strax. ÍBÚÐIN ER TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-15. MAGGÝ SÝNIR. V. 15,9 m. 3894 Mjög falleg og mikið endurnýjuð ca 70 fm íbúð á 2. hæð í 6-býli á rólegum og góðum stað. Íbúðin skiptist í hol, stofu, eldhús, svefnherbergi og bað- herbergi. Í kjallara er sérgeymsla með hillum og sameiginlegt þvotthús. Íbúðin hefur verið endurnýjuð nánast frá grunni, m.a. gluggar og gler, gólfefni, innréttingar, rafmagn, lagnir og baðherbergi. Veggjaklæðningar, skápar, listar, gerefti o.fl. er sérsmíðað og sérsniðið að þessari íbúð, á mjög vandaðan og glæsilegan hátt. Suðvestursvalir. ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-16. Ingibjörg sýnir. V. 12,9 m. 3872 OPIÐ HÚS - Hraunteigur 15 2. hæð - Glæsileg íbúð Mjög falleg 72 fm 3ja-4ra herb. íbúð í risi í fallegu húsi við Flókagötu. Góðir kvistir eru á íbúðinni. Íbúðin er mjög björt. Falleg gróin lóð til suðurs. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-15. KRISTBJÖRG SÝNIR. V. 12,9 m. 3905 OPIÐ HÚS - Flókagata 58 Rishæð OPIN HÚS Í DAG OPIÐ HÚS - Eiðistorg 3 3. hæð - Glæsilegt útsýni SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍK SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998 FÉLAG FASTEIGNASALA ÖLDUGATA 25A - OPIÐ HÚS Í DAG WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fastsali Stórskemmtileg og falleg 80 fm 3ja her- bergja endaíbúð á 2. hæð í fjórbýlishúsi. Aðeins ein íbúð á hverri hæð. Parket á gólfum. Baðherbergi með baðkari og flísum á gólfi. Ágæt eldhúsinnrétting, marmaraflísar á gólfi í eldhúsi. Stórar suðursvalir. Sérgeymsla sem er ekki inn í heildarfermetrafjölda. Góður garður. Ör- stutt í miðbæinn. Sameign í góðu ásig- komulagi. Áhv. 2,3 m. byggsj. V. 13,9 m. (3812) OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, MILLI KL. 14:00 OG 17:00. ÓLÖF OG ALBERT MUNU TAKA VEL Á MÓTI YKKUR. Hef verið beðin að útvega hæð í vesturbænum. Æskileg staðsetning Melar, Hagar, Sörlaskjól, Faxaskjól. Sterkar greiðslur í boði. Má kosta allt að 26 millj. Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali. HÆÐ Í VESTURBÆ ÓSKAST Sólvallagata 32 A opið hús á sunnudag Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. sími 588 4477 - valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9 -17.30. Í einkasölu ca. 240 fm glæsi- legt einbýlishús á frábærum út- sýnisstað í Hæðahverfinu í Garðabæ. Um er að ræða hús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið er skemmtilega innréttað. 5 svefnherbergi. Stórar stofur með mikilli lofthæð. Fallegur frágenginn garður og stór verönd mót suðri. Innkeyrsla hellulögð með hitalögn. Þetta er hús í sér- flokki, staðsett á frábærum stað í lokaðri botnlangagötu. Verð 50 millj. Upplýsingar veitir Bárður Tryggvason í gsm 896-5221. UMBOÐSSKRIFSTOFAN Hellu hef- ur flutt sig um set og opnað nýja verslun í Laufafelli við Þrúðvang 2 þar sem samnefndur veitingastaður var áður til húsa. Að sögn eigandans, Óla Más Ar- onssonar, eru m.a. á boðstólum allar pappírs- og rekstrarvörur frá Odda auk þess sem seldir eru farsímar og aðrar símavörur, ljósmyndavörur, ritföng og margt fleira. Morgunblaðið/RAX Óli Már í nýju versluninni sem tók til starfa í apríl síðastliðnum. Verslunin Laufafell í stað veitingastaðar ♦♦♦ AÐALFUNDUR Kvenfélagsins Hringsins var haldinn fyrir nokkru í nýjum og rúmgóðum húsakynnum félagsins að Nethyl 2, Reykjavík. Starf Hringsins, starfsárið 2003– 2004, var með hefðbundnu sniði og blómlegt að vanda. Fjáröflun til styrktar veikum börnum á Íslandi fór fram með happdrætti, kaffisölu, jólabasar, kökusölu og með sölu jóla- og minningarkorta. Ýmsar gjafir og áheit bárust frá einstak- lingum, félögum og fyrirtækjum og rennur allt það fé óskert til Barna- spítalasjóðs Hringsins. Á starfsárinu, sem jafnframt var 100. starfsár Hringsins, veitti félag- ið styrk að upphæð 50 milljónir króna til búnaðar á fyrirhugaða göngudeild Barna- og unglingageð- deildar Landspítala við Dalbraut. Einnig var veittur styrkur að upp- hæð 15 milljónir króna til kaupa á íbúð sem Barnaspítali Hringsins mun nota fyrir aðstandendur veikra barna utan af landi. Sem fyrr verð- ur búnaður og uppbygging á Barna- spítalanum aðalverkefni félagsins. Í tilefni aldarafmælis Hringsins var haldin mikil veisla á Nordica Hotel í janúarlok 2004. Félagskonur komu þar saman til að fagna þess- um merka áfanga. Forseti Íslands, heilbrigðisráðherra og forstjóri Landspítala ásamt eiginkonum voru meðal boðsgesta. Hinn 19. maí 2004 var Kvenfélag- ið Hringurinn sérstaklega heiðrað með frímerkjaútgáfu. Gefið var út 100 kr. frímerki með mynd af rúm- liggjandi barni og merki Hringsins til minningar um 100 ára líknarstarf félagsins. Heimasíða Hringsins leit dagsins ljós á starfsárinu og má nú skoða hana á veffanginu www.hringurinn- .is. Tilgangurinn með heimasíðunni er að veita upplýsingar um félagið og starfsemina, bæði félagskonum og stuðningsaðilum. Stjórn félagsins verður þannig skipuð næsta starfsár: Áslaug Björg Viggósdóttir, formaður, Ragnheiður Sigurðardóttir, varaformaður, Hrönn Jónsdóttir, ritari, Elínborg Kjærnested, gjaldkeri, og Sjöfn Hjálmarsdóttir, meðstjórnandi. Í varastjórn sitja: Brynhildur Erla Pálsdóttir, Laufey Gunnars- dóttir, Margrét Birna Skúladóttir og Ragna Eysteinsdóttir. Hringurinn þakkar landsmönnum fyrir þann velvilja og hlýhug sem starfsemi félagsins hefur jafnan verið sýndur, segir í frétt frá stjórn- inni. Blómlegt starf Hringsins á afmælisári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.