Morgunblaðið - 15.06.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 162. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Fóstbræður
á faraldsfæti
Héldu vel sótta tónleika í
Sankti Pétursborg | Listir
Tedrykkja
og jafnvægi
Lítið tehús við Laugaveg hann-
að í anda Feng Shui | Daglegt líf
Alþýðulög
frá miðöldum
Guðjón Rúdolf og Krauka á
Víkingahátíð | Fólk í fréttum
KB BANKI hefur gert samning um kaup á
danska fjárfestingarbankanum FIH fyrir 84
milljarða króna og eru þetta ein stærstu fyrir-
tækjakaup íslensks fyrirtækis frá upphafi.
Heildareignir FIH eru heldur meiri en heild-
areignir KB banka og samanlagðar heildar-
eignir bankanna í lok mars voru 1.366 millj-
arðar króna. Hagnaður KB banka í fyrra var
heldur meiri en FIH. Samanlagður hagnaður
bankanna það ár voru rúmir 14 milljarðar
króna.
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB
banka, segir þetta hafa verið stórkostlegt tæki-
færi fyrir KB banka. FIH hafi verið til sölu í
mjög langan tíma, en beinn aðdragandi að
kaupum KB banka hafi hins vegar verið
skammur, aðeins nokkrir dagar. Hann segir að
KB banki hafi þó fylgst lengi með bankanum og
sjálfur hafi hann þekkt fyrir bæði núverandi
forstjóra og forvera hans.
Góður og arðsamur rekstur
Sigurður Einarsson segir að engar breyt-
ingar séu fyrirhugaðar á starfsemi FIH og þar
starfi topplið. Tilgangur kaupanna sé ekki að
leita samlegðaráhrifa á kostnaðarhliðinni enda
sé reksturinn í mjög
góðu lagi og arðsamur.
Helstu kostirnir við
kaupin eru að sögn Sig-
urðar að KB banki
verður stór í Dan-
mörku, því að FIH sé
einn af þremur helstu
bönkum Danmerkur í
fyrirtækjaviðskiptum
með mjög góða sögu að
baki. Bankinn hafi mik-
il og góð tengsl við
dönsk fyrirtæki og KB
banki telji að hægt sé
að breikka vöruframboð hans verulega til þess-
ara viðskiptavina.
Spurður um næstu skref í útrás bankans
segir Sigurður að bankinn vilji nýta þau tæki-
færi sem gefist, en ómögulegt sé að segja hve-
nær næsta tækifæri gefist. Hann segir ekkert
annað skref af þessum toga í undirbúningi. „En
ef þú hefðir talað við mig fyrir fimm mánuðum
hefði ég sagt það sama. Þetta gerist svo hratt.“
Einhver stærstu fyrir-
tækjakaup Íslendinga
KB banki/12
! "
#
#$ %
!"
MARKAÐSVERÐMÆTI KB banka hækkaði
um 19,4 milljarða króna, 12,5%, í viðskiptum
gærdagsins og nam 174 milljörðum króna í
lok dagsins. Lokagengi bréfanna var 395 í
Kauphöll Íslands og hefur aldrei verið
hærra. Hækkunin kemur í kjölfar tilkynn-
ingar í Kauphöllinni fyrir hádegi í gær um
kaup KB banka á danska fjárfestingarbank-
anum FIH.
Gengi Íslandsbanka lækkaði um 0,6% í
gær og var lokagengi hans 8,25 og markaðs-
verð 82,5 milljarðar króna. Gengi Lands-
banka hækkaði um 0,6% í gær. Lokagengi
hans var 8,00 og markaðsverð 64,8 millj-
arðar króna.
Hækkun KB banka, sem vegur þungt í Úr-
valsvísitölunni, átti stærstan þátt í því að
hún hækkaði um 3,6% í gær. Lokagildi
hennar var tæplega 2.806 stig, sem er hæsta
gildi hennar frá upphafi og tæpum 33%
hærra en um áramót.
19,4 milljarða
hækkun
FORSETI Bandaríkjanna, George W.
Bush, bar í gær lof á forvera sinn í emb-
ætti, demókratann Bill Clinton, við athöfn
þar sem afhjúpað var málverk af Clinton
sem prýða mun veggi Hvíta hússins eins
og myndir af öðrum, fyrrverandi for-
setum.
„Bill Clinton sýndi ótrúlega atorku og
heillaði afar marga. Þekking hans á
stjórnmálum var djúpstæð og víðtæk,
hann hafði mikla samkennd með þurfandi
fólki og vildi fyrst og fremst horfa fram á
við, það er hugarfar sem Bandaríkjamenn
kunna svo vel að meta hjá forseta,“ sagði
Bush í ávarpi sínu.
Hann sagði að Clinton hefði þurft að
berjast hart til að ná svo langt en forsetinn
fyrrverandi er kominn af fátæku fólki í
Arkansas. „Ég get sagt ykkur meira af
þeirri sögu en hún birtist senn í góðum
bókaverslunum um gjörvöll Bandaríkin,“
sagði Bush og átti við að endurminningar
Clintons, „Ævi mín“, koma út 22. júní.
Bush lofar
Clinton
Washington. AFP.
George W. Bush Bandaríkjaforseti, fjær er
Bill Clinton, fyrrverandi forseti.
Reuters
HÆSTIRÉTTUR Ísraels úrskurðaði í gær
að sveitarfélög yrðu að heimila sölu á svína-
kjöti ef meirihluti íbúanna færi fram á það.
Ákvæði eru í lögum gyðingdóms um að
neysla svínakjöts sé bönnuð. Veraldlega
sinnaðir Ísraelar fögnuðu niðurstöðunni en
bókstafstrúaðir gyðingar voru mjög ósáttir.
„Þetta er nagli í kistu hins gyðinglega
inntaks í ríkinu,“ sagði Eli Yishai, leiðtogi
Shas-flokksins, sem er flokkur bókstafs-
trúarmanna. Talsmenn veraldlega sinnaðra
flokka sögðust ekki vera að berjast fyrir því
að fólk borðaði svínakjöt. „Við berjumst fyr-
ir því að fólk hafi rétt til að borða það sem
það vill, þegar það vill og þar sem það vill,“
sagði Joseph Lapid, dómsmálaráðherra og
leiðtogi Shinui-flokksins.
Svínakjöt, sem selt er sums staðar í Ísr-
ael, er framleitt á landi í eigu ísraelskra
araba. Hafa margir Ísraelar bent á að þótt
svínakjötsneysla sé bönnuð hjá múslímum
banna þeir ekki kristnum aröbum á svæð-
um sínum í Ísrael að borða svín.
Verði leyft
að borða
svínakjöt
Jerúsalem. AP.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Sam-
taka íslamskra ríkja, (OIC), Mar-
okkómaðurinn Abdelouahed Belk-
eziz, hvatti til þess á fundi
utanríkisráðherra aðildarríkjanna,
sem hófst í Tyrklandi í gær, að þau
veittu nýrri stjórn í Írak „fjárhags-
legan, siðferðislegan og stjórnmála-
legan“ stuðning. Belkeziz, sem læt-
ur senn af störfum, gagnrýndi
einnig að sögn fréttavefjar BBC
harkalega aðildarríkin 57 fyrir að
ur öfgasinnaðra múslímahópa ætti
rætur að rekja til vanmáttartilfinn-
ingar almennings í löndunum.
„Ofstækismenn hafa gripið tæki-
færið við þessar aðstæður og framið
viðbjóðslega glæpi … við verðum
því að berjast gegn þessu ofstæki af
festu samtímis því sem við reynum
að bæta sverta ímynd íslams í heim-
inum.“
Hann sagði að miklu skipti að
þjóðir íslams tækju afgerandi af-
stöðu gagnvart lýðræði. Sú ákvörð-
un myndi ráða úrslitum um það
hvort þær yrðu áfram leiksoppar
annarra þjóða eða gerendur sem
hefðu jákvæð áhrif í heiminum.
Talið er að yfirlýsing um stuðning
við írösku bráðabirgðastjórnina
verði samþykkt á fundinum. Hins
vegar mun vera lítill áhugi í músl-
ímaríkjum á því að senda herlið til
að hjálpa Bandaríkjamönnum við að
sinna friðargæslu í Írak.
grípa ekki til róttækra samfélags-
umbóta.
Hann benti á að samanlögð þjóð-
arframleiðsla þeirra væri minni en
Frakka eða Breta. Belkeziz sagði að
sama væri hvort litið væri á mennt-
un, heilbrigðismál eða hagvöxt; alls
staðar væru ríki OIC mjög aftar-
lega á merinni. Heimur íslams væri
nú sundurklofinn og niðurlægður,
munurinn á glæstri fortíð hans og
nútímanum væri sláandi. Uppgang-
Þjóðir íslams taki sér tak
Istanbúl. AP.
HÓPUR ungs tónlistarfólks, íslensks og
bandarísks, kom við á Bessastöðum í gær og
lék nokkur lög fyrir forseta Íslands og fleiri
gesti. Bandaríski hópurinn kemur frá Minnea-
polis og kom til Íslands í þeim tilgangi að hitta
ungt tónlistarfólk í Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og spila með því á tónleikum.
Flestir nemendanna leika á strengja-
hljóðfæri en einnig eru flautuleikarar í hópn-
um. Allir nemendurnir hafa lært á hljóðfæri
eftir Suzuki-aðferðinni og í hópunum tveimur
eru tæplega 100 manns.
Morgunblaðið/Eggert
Ungt tónlistarfólk á Bessastöðum
♦♦♦