Morgunblaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Njarðvík | Mikið tjón varð á húsnæði
og munum hjá tveimur fyrirtækjum í
fyrrinótt þegar eldur kviknaði í hús-
inu í Bolafæti 5 í Njarðvík. Eldurinn
kom upp í bílaverkstæði þar sem
maður var við störf en miklar
sprengingar og hættulegar urðu þeg-
ar hann komst í flugeldabirgðir sem
geymdar voru í fyrirtækinu við hlið-
ina.
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja
var kallað út klukkan rúmlega
hálftvö í fyrrinótt. Þegar slökkviliðs-
menn komu á vettvang stóðu eld-
tungur og mikill reykur upp úr þaki
hússins í Bolafæti 5. Jón Guðlaugs-
son aðstoðarslökkviliðsstjóri segir að
fljótlega hafi orðið ljóst að litlu væri
hægt að bjarga úr þessum hluta
hússins og hafi slökkviliðið lagt
áherslu á að bjarga sambyggðum
húsum og segir hann að það hafi tek-
ist.
Eldurinn kom upp á bílaverkstæði.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar er ekki fullljóst um upptökin
en rannsóknin beinist að loftpressu
sem var í gangi eða næsta nágrenni
hennar. Maður var að vinna á verk-
stæðinu og hljóp hann út eftir að hafa
reynt að slökkva eldinn. Eldurinn fór
í þakið og breiddist eftir því í
geymsluhúsnæði bílaleigu sem þar er
við hliðina. Ekki var traustur veggur
þar á milli og það vissu slökkviliðs-
menn.
Vissu ekki af flugeldunum
Mikil sprenging varð þegar eldur-
inn komst í flugeldalager sem var á
lofti geymsluhúsnæðisins. Mesti
krafturinn í sprengingunni var upp
úr þakinu en Jón segir að brak hafi
dreifst víða og meðal annars lent á
slökkviliðsmanni sem stóð við dælu-
bíl talstvert í burtu en án þess að
hann sakaði. Síðar varð önnur minni
sprenging í flugeldunum.
Til tals kom að rýma nálæg hús
vegna þessa og voru gerðar ráðstafn-
ir til að opna Njarðvíkurskóla fyrir
það en fljótlega sló það mikið á eld og
reyk að ekki var talin þörf á því.
Jón segir aðspurður að slökkviliðs-
mennirnir hafi ekki vitað af flugelda-
birgðunum og hafi þeir því verið í
meiri hættu en ella. Tekur hann fram
að alltaf stafi hætta af flugeldum, í
þeim sé mikið sprengiefni, og eigi að
geyma þá samkæmt fyrirmælum
reglna. Menn sem gangi frá þeim
með þessum hætti átti sig greinilega
ekki á hættunni.
Allt tiltækt lið Brunavarna Suður-
nesja vann að slökkvistarfi fram und-
ir morgun. Liðsauki barst frá
slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Ljóst er að tjón skiptir mörgum
milljónum. Húsnæði fyrirtækjanna
er nánast ónýtt og mestallt sem inni í
þeim var, meðal annars nokkrir bílar.
Mikið tjón varð í tveimur fyrirtækjum í eldsvoða í iðnaðarhúsnæði við Bolafót
Flugeldabirgðir sprungu
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Sprenging: Að minnsta kosti tvær öflugar sprengingar urðu í flugeldabirgðum sem voru á geymslulofti í syðri hluta hússins, við hlið bílaverkstæðisins.
Eldur laus: Eldtungurnar stóðu upp úr þaki hússins í Bolafæti 5 í Njarðvík þegar slökkvilið kom á vettvang.
Grindavík | „Þetta er fín uppskera hjá okkur
og skólanum í heild,“ sagði Alexander Veigar
Þórarinsson nemandi í Grunnskóla Grindavík-
ur. Hann og bekkjarfélagi hans, Bogi Rafn Ein-
arsson, fengu tíu í einkunn í stærðfræði á sam-
ræmdu prófunum í vor en nýlega kom fram að
aðeins örfáir nemendur á öllu landinu náðu
þessum árangri.
Nemendur í 10.bekk Grunnskóla Grindavík-
ur stóðu sig með miklum ágætum nú í sam-
ræmdum prófum. Meðaleinkunnir þeirra voru
hæstar yfir skólana á Suðurnesjum í fjórum
greinum af sex en meðaleinkunnir nemenda í
Holtaskóla höfðu betur í tveimur greinum með
minnsta mögulega mun. Glæsilegasti árang-
urinn var í stærðfræði þar sem meðaleinkunnin
var 6,8 sem er einum heilum fyrir ofan lands-
meðaltal.
Fréttaritari náði í Boga Rafn og Alexander
Veigar þegar þeir voru að gera sig klára fyrir
knattspyrnuleik. „Það var gaman í vetur, ynd-
islegur vetur. Þetta er mikill íþróttaárgangur,
bæði hjá stelpum og strákum, og ég held að það
skipti máli. Þá skiptir það líka miklu að hafa
verið á undan í námsefni síðan í 8. bekk og í vet-
ur tókum við stærðfræðiáfanga frá Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja að auki,“ sagði Bogi.
„Ég held að það skipti mestu máli að leggja
hart að sér í 4. til 7.bekk því þar er grunnurinn
lagður. Þá höfum við staðið okkur vel í stærð-
fræðikeppnunum og það veitir ákveðið sjálfs-
traust,“ sagði Alexander.
Árangur þessara krakka kemur kennurum
skólans ekki mikið á óvart en félagslegur
þroski, vinnusemi og metnaður hefur einkennt
árganginn. Áberandi er einnig sá andi sem ríkt
hefur undanfarin ár á unglingastigi þar sem já-
kvæðir straumar blandast gítarspili í frímín-
útum. Það var því vel við hæfi að Bogi Rafn Ein-
arsson, Jón Ágúst Eyjólfsson og Birgir Elíasson
tækju lagið á skólaslitum nú á dögunum.
Nemendur Grunnskóla Grindavíkur standa sig vel í stærðfræði
„Þetta er fín uppskera hjá
okkur og skólanum í heild“
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Stærðfræðingar í fótbolta: Alexander Veigar Þórarinsson og Bogi Rafn Einarsson fengu tíu í
einkunn á samræmdum prófum í stærðfræði og standa sig einnig vel í knattspyrnunni.
SLÖKKVILIÐ Brunavarna Suðurnesja var
kallað út sex sinnum vegna vélhjólaslysa og
óhappa á tæpum mánuði, frá 9. maí til 4. júní. Á
þessum tíma urðu alls þrjátíu vélhjólaslys á
landinu þannig að Suðurnesin hafa sannarlega
fengið sinn hlut af þeim, eins og bent er á á vef
Brunavarna Suðurnesja.
Slysin voru misalvarleg og aðeins í einu til-
viki var ekki talin þörf á aðstoð sjúkraflutn-
ingamanna Brunavarna Suðurnesja. Óhöppin
og slysin áttu það sameiginlegt að gerast að
kvöld- og næturlagi og fjögur þeirra urðu um
helgar.
Fyrsta óhappið varð með þeim hætti að vél-
hjólamaður féll í götuna á Njarðarbraut í
Njarðvík, rétt við Ramma-húsið. Ökumaður
var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
þaðan á Landspítala – háskólasjúkrahús í
Reykjavík. Þá missti vélhjólamaður stjórn á
hjóli sínu í hringtorginu við Faxabraut í Kefla-
vík. Hann var einnig fluttur á Heilbrigðisstofn-
unina og þaðan á sjúkrahús í Reykjavík.
Nokkrum dögum síðar gerðist það sama á
Mótokrossbrautinni við Seltjörn, ökumaður
þess hjóls var illa brotinn á legg við ökklann og
var fluttur beint á sjúkrahús í Reykjavík.
Skömmu síðar var tilkynnt um vélhjólaslys á
Fitjum í Njarðvík, á grasbalanum við göngu-
stígana. Þegar að var komið hafði ökumaður
yfirgefið hjólið og horfið af vettvangi og þurfti
því sennilega ekki aðhlynningu sjúkraflutn-
ingamanna. Í byrjun þessa mánaðar missti
ökumaður vald á hjóli sínu á Duustorgi, sá var
fluttur á HSS þar sem gert var að sárum hans.
Síðasta slysið og það alvarlegasta í þessari
hrinu var þegar ökumaður vélhjóls lést eftir að
hann lenti á bifreið á Garðbraut í Garði.
Sex vél-
hjólaslys á
mánuði