Morgunblaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 49
BIKARMEISTARAR Vals í knatt-
spyrnu kvenna fá góðan liðsstyrk í
vikunni en Katrín Jónsdóttir kemur
til landsins frá Noregi á föstudag-
inn og leikur með Hlíðarendaliðinu
fram til loka ágúst. Katrín hefur
leikið með norska liðinu Kolbotn í
rúm sex ár en hún var áður í her-
búðum Breiðabliks í mörg ár og lék
eitt tímabil með Stjörnunni.
Katrín lauk á dögunum loka-
prófum í læknisfræði frá háskóla í
Osló en hefði henni ekki tekist að
ná prófunum þá hefði hún þurft að
vera í Noregi í sumar og taka próf-
in upp á nýjan leik „Mér tókst sem
betur fer að ná prófunum og því
kem ég heim í vikunni. Ég hlakka
óskaplega mikið til að koma og
spila með Val. Ég ætla að vinna sem
minnst og njóta þess að spila fót-
bolta. Ég geri mér samt alveg grein
fyrir því að ég labba ekkert í liðið.
Ég var dugleg að æfa alveg fram í
apríl en frá þeim tíma hefur námið
tekið mikinn tíma og því er formið
kannski alveg upp á það besta,“
sagði Katrín í gær.
Katrín hefur ekki sagt skilið við
Noreg því hún heldur til Krist-
instad í lok ágúst þar sem fer í
kandídatsnám sem tekur eitt og
hálft ár. Katrín er 26 ára gömul og
er þriðji leikjahæsti leikmaður Ís-
lands með 48 landsleiki. Spurð
hvort hún sé búin að gefa landsliðið
upp á bátinn sagði hún; „Sem stend-
ur er ég ekki nógu góð til að vera í
landsliðinu. En ég ætla að sjá
hvernig þetta gengur hjá mér í
sumar og ef ég næ mér vel á strik
þá er alveg möguleiki.“
Katrín á leiðinni til Vals
CRISTIANO Ronaldo, sem fékk
dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum
gegn Grikklandi, segir að Giourkas
Seitaridis hafi látið sig falla þegar
vítaspyrnan var dæmd. „Leikmað-
urinn hljóp framhjá mér, ég reyndi
að vera ekki fyrir honum og hann
lét sig detta. Ég kom aldrei við
hann. Ég vona að stuðningsmenn
Portúgals gefi ekki upp vonina
þrátt fyrir slæm úrslit,“ sagði Ro-
naldo.
PAUL Scholes, miðjumaður
enska landsliðsins, er meiddur og
óvíst er hvort hann verði orðinn
leikfær fyrir leikinn gegn Sviss á
fimmtudag. Scholes sneri sig á
ökkla í leiknum gegn Frakklandi
og gat ekki æft með liðinu í gær og
óvíst er hvort hann geti æft í dag.
PATRICK Vieira, leikmaður
Arsenal og franska landsliðsins,
hrósaði enska liðinu eftir leikinn
gegn Englandi og viðurkenndi að
Frakkar hefðu sætt sig við jafn-
tefli. „Við hefðum orðið ánægðir
með jafntefli. Ef England spilar
eins og þeir gerðu í gær eiga þeir
góða möguleika á að fara alla leið.
Þeir spiluðu vel og Rooney var frá-
bær,“ sagði Vieira.
PATRICK Vieira var hinsvegar
ekki ánægður með hvernig Eng-
lendingar léku gegn Frökkum.
„Það var virkilega erfitt að leika
gegn Englendingum. Þeir brutu
mikið á okkur og reyndu að svindla
en við létum þá ekki æsa okkur
upp. Við sýndum þann karakter
sem þurfti til að sigra,“ sagði
Vieira.
KANADAMAÐURINN Tomasz
Radzinski hjá Everton hefur farið
fram á að verða settur á sölulista.
Radzinski, sem gekk til liðs við
Everton árið 2001 frá Anderlecht
fyrir 4,5 milljónir punda, hefur ver-
ið einn besti leikmaður liðsins und-
anfarin ár. Honum hafði verið boð-
inn nýr samningur til eins árs en
Radzinski vildi lengri samning.
Talið er líklegt að Blackburn, Ful-
ham og Portsmouth eigi eftir að
berjast um kappann sem er 31 árs
gamall.
BRUNO Cheyrou, leikmaður
enska úrvalsdeildarliðsins Liver-
pool, getur vel hugsað sér að spila
með franska liðinu Marseille. „Ég
hef ekki náð mér á strik með Liver-
pool. Marseille er mjög spennandi
kostur og það hafa góðir leikmenn
gengið til liðs við félagið að und-
anförnu,“ sagði Cheyrou.
SÆNSKI landsliðsmaðurinn
Henrik Larsson vill leika með
Barcelona á næsta tímabili en hann
er samningslaus um þessar mundir.
„Ég hef sagt við umboðsmann minn
að það séu þrjú lið sem ég get
hugsað mér að leika með á næsta
tímabili. Eitt af þeim er Barcelona
og ég vil helst spila með Barcelona
næsta vetur,“ sagði Larsson.
FÓLKKR-INGAR sækja Njarðvík-inga heim í 16 liða úrslitum
karla í bikarkeppni KSÍ en
dregið var í gær. HK fær
Reyni Sandgerði í heimsókn,
Víkingur tekur á móti KA,
Þróttur mætir Val, Fram og
Keflavík mætast, ÍBV leikur
við Stjörnuna, Fylkir og
Grindavík mætast og FH mæt-
ir Aftureldingu á Kapla-
krikavelli. Leikið verður 2.–3.
júlí.
Bikarmeistarar Vals taka á
móti Breiðabliki á Hlíðarenda
í 8 liða úrslitum í bikarkeppni
kvenna. KR fer norður í land
og leikur við Þór/KA/KS. Þá
fær ÍBV lið Þróttar í heim-
sókn, Stjarnan mætir annað
hvort Fjölni eða FH.
KR mætir
Njarðvík
grét Lára Viðarsdóttir, þrumaði í
markið eftir undirbúning Olgu. Mín-
útu síðar átti Sara Sigurlásdóttir
sendingu fyrir markið, Margrét
Lára lét boltann fara og þá kom Elín
Anna og skoraði örugglega. Þremur
mínútum síðar var það Sara sjálf
sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir
ÍBV í sumar og fimmta mark liðsins.
Síðasta markið var glæsilegt. Karen
Burke tók hornspyrnu frá vinstri,
Stjörnustúlkur skölluðu frá og Kar-
en náði boltanum aftur, brunaði upp
Strax á 5. mínútu kom fyrstamarkið og var þar að verki Elín
Anna Steinarsdóttir eftir laglegan
undirbúning Olgu
Færseth. Tíu mínút-
um síðar skoraði svo
Olga sjálf með skalla
eftir hornspyrnu frá
Karen Burke. Eyja-
stúlkur skelltu svo í fluggír og gerðu
þrjú mörk á fimm mínútum. Það
fyrsta á 28. mínútu þegar marka-
hæsti leikmaður deildarinnar, Mar-
að vítateigshorninu og lét vaða upp í
bláhornið á Stjörnumarkinu. Síðasta
mark hálfleiksins gerði Margrét
Lára og það aftur eftir góðan und-
irbúning hjá Olgu.
Síðari hálfleikur var ekki nema
þriggja mínútna gamall þegar átt-
unda mark ÍBV kom og þriðja mark
Elínar Önnu. Hún vann boltann á
miðju vallarins, brunaði upp að víta-
teig og skaut föstu skoti sem Lára
Einarsdóttir réð ekki við í marki
Stjörnunnar. Olga Færseth skoraði
svo níunda markið eftir að Karen
Burke hafði gefið háan bolta inn í
vítateig, Lára kom út úr markinu en
náði ekki að halda boltanum sem datt
beint fyrir fætur Olgu sem átti ekki í
vandræðum með að skora. Þegar tíu
mínútur voru til leiksloka fullkomn-
aði Margrét Lára þrennuna með
góðu skoti utan úr vítateig. Síðasta
mark leiksins skoraði Elene Einis-
dóttir sem kom inn á sem varamað-
ur.
Eyjastúlkur léku á als oddi í leikn-
um og verður erfitt að stöðva þær í
þessum ham. Elín Anna Steinars-
dóttir átti hreint frábæran leik á
miðjunni, vann flest návígi, skilaði
boltanum vel frá sér og skoraði þar
að auki þrjú mörk. Stjörnustúlkur
virkuðu hálfandlausar í þessum leik
og engan veginn tilbúnar í verkefnið.
Þó mátti sjá ágæt tilþrif hjá Allison
Jarrow og Lilju Dögg Valþórsdóttur.
Einstefna hjá Eyjastúlkum
EINSTEFNA er eina orðið sem hægt er að nota um leik ÍBV og
Stjörnunnar í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gær. Eyja-
stúlkur hreinlega yfirspiluðu andlausa andstæðinga sína og nið-
urstaðan var ellefu mörk gegn engu.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar frá Vest-
mannaeyjum
Ég tel að við höfum átt skilið aðsigra. Það er ekki spurning að
við vorum miklu betur undirbúnir
fyrir leikinn en Ítalir. Hinsvegar
hefðum við getað tapað leiknum ef
Thomas Sörensen hefði ekki bjargað
okkur nokkrum sinnum. Hann varði
stundum stórkostlega,“ sagði Mort-
en Olsen þjálfari Dana. Danir áttu í
fullu tré við Ítali og þeir voru miklu
meira með boltann. Bæði lið fengu
nokkur ágæt marktækifæri en
markverðir liðanna áttu stórleik og
björguðu sínum mönnum hvað eftir
annað. Bestu færi fyrri hálfleiks
komu rétt fyrir leikhlé þegar Aless-
andro Del Piero og Francesco Totti
voru ágengir upp við mark Dana en
Thomas Sörensen varði í tvígang
mjög vel. Á 53. mínútu komst Gian-
luca Zambrotta einn inn fyrir vörn
Dana en hann skaut framhjá mark-
inu. Undir lok leiksins var Jon Dahl
Tomasson nálægt því að skora en
Gianluigi Buffon, markvörður Ítala,
bjargaði frábærlega.
„Það var mjög mikilvægt að tapa
ekki fyrsta leik en ég er dáldið von-
svikinn að við skyldum ekki ná að
sigra. Við sýndum það í dag að við
getum átt í fullu tré við bestu knatt-
spyrnuþjóðir í heimi,“ sagði Thomas
Sörensen.
Giovanni Trapattoni, þjálfari
Ítala, var ekki ánægður með sína
menn og segir að þeir verði að bæta
spilamennsku sína. „Ég vona að leik-
menn mínir geri sér núna grein fyrir
því að allir leikir í Evrópukeppninni
eru mjög erfiðir. Í fyrri hálfleik léku
við alls ekki nægilega vel og Danir
stjórnuðu leiknum, en í síðari hálf-
leik spiluðum við mun betur. Við
nýttum hins vegar ekki marktæki-
færin okkar og það varð okkur að
falli,“ sagði Trapattoni eftir leikinn.
Reuters
Markvörður Ítala, Gianluigi Buffon, til hægri, og Thomas Sörensen, markvörður Dana, þakka hvor
öðrum fyrir leikinn en þeir spiluðu báðir mjög vel í gær.
Markalaust hjá
Ítölum og Dönum
ÍTALIR náðu ekki að standa undir væntingum í opnunarleik C-riðils í
Evrópukeppninni í knattspyrnu þegar þeir gerðu markalaust jafn-
tefli við Dani. Fyrir leikinn bjuggust flestir við því að Ítalir myndu
ekki eiga í miklum erfiðleikum með Dani en annað kom á daginn.
Thomas Sörensen, markvörður Dana, átti mjög góðan leik og varði
stundum frábærlega.