Morgunblaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FJÓRIR háhyrningar sáust nýlega á Hvamms-
firði, við eyna Norðurey, en sjaldgæft er að þeir
sjáist svona innarlega. Líklega hefur þarna verið
fjölskylda í skoðunarferð. Heimamenn í sveitinni
sögðust ekki hafa orðið varir við hvali áður á
þessum slóðum. Háhyrningar eru annars algeng-
ir við landið og gera sig gjarnan heimakomna
við skip sem eru á síldveiðum enda sækja þeir
mikið í síld.
Ljósmynd/Guðjón Stefánsson
Háhyrningar á Hvammsfirði
MATSFYRIRTÆKIN Moody’s og Standard &
Poor’s hafa í fyrsta sinn veitt Íbúðalánasjóði
lánshæfismat. Fær sjóðurinn sömu einkunnir og
ríkissjóður, þ.e. einkunnina Aaa hjá Moody’s, en
S&P gefur sjóðnum einkunnirnar AA+ í íslensk-
um krónum, A+ í erlendum gjaldeyri og skamm-
tímamatið A-1+.
Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði, sem send var
til Kauphallar Íslands vegna lánshæfismats
Moody’s, segir að mat fyrirtækisins byggist
einkum á öflugri ríkisábyrgð sjóðsins gegn tapi,
en einnig sé tekið tillit til þess lykilhlutverks
hans að styðja við stefnu yfirvalda í húsnæðis-
málum. Íbúðalánasjóði sé ekki ætlað að skila
hagnaði af starfsemi sinni heldur að styðja við
stefnu stjórnvalda í húsnæðismálum, einkum
hvað varðar það að stuðla að séreign íbúðar-
húsnæðis einstaklinga með bestu fáanlegu láns-
kjörum. Njóti sjóðurinn ríkisábyrgðar gegn tapi,
en ríkissjóður beri ótakmarkaða ábyrgð á öllum
fjárhagslegum skuldbindingum Íbúðalánasjóðs.
Þá segir í tilkynningu Íbúðalánsjóðs að Mood-
y’s telji að þær breytingar sem væntanlegar eru
hjá sjóðnum með útgáfu íbúðabréfa í næsta
mánuði muni leiða til ákveðinnar fyrirfram-
greiðsluáhættu. Það sé vegna þess að hin nýju
íbúðabréf Íbúðalánasjóðs, sem koma í stað hús-
bréfa og húsnæðisbréfa, verði ekki með innköll-
unarákvæði. Áhætta vegna fyrirframgreiðslu sé
takmörkuð í ljósi þess að lántaki geti einungis
nýtt sér þann valrétt þegar eign er seld, en fyr-
irframgreiðslur hafi verið um 3% í sögulegu
samhengi.
Í tilkynningu Íbúðalánastjóðs vegna lánshæf-
ismats Standard & Poor’s segir að matsfyrir-
tækið búist við því að Íbúðalánasjóður muni
halda áfram að gegna lykilhlutverki í stefnu-
mörkun íslenska ríkisins og að ekki muni draga
úr opinberum stuðningi. Þá er í tilkynningunni
haft eftir S&P: „Íbúðalánasjóður nýtur mikils
pólitísks stuðnings allra málsmetandi pólitískra
afla og því er ólíklegt að umtalsverðar breyt-
ingar verði gerðar á lagalegu umhverfi hans. Þar
af leiðandi er afar lítil hætta á að sjóðurinn verði
einkavæddur og að jafnframt verði dregið úr op-
inberum stuðningi við hann í fyrirsjáanlegri
framtíð. Íslenskir bankar hafa lagt fram kæru
gegn Íbúðalánasjóði um óeðlilega samkeppni
innan fjármálageirans hjá ESB vegna þess for-
skots sem sjóðurinn hefur vegna ríkisábyrgðar.“
Einnig er eftirfarandi haft eftir John Chamb-
ers, framkvæmdastjóra og aðstoðarformanni
nefndar um mat á sjálfstæðum ríkjum:
„Ekki er búist við því hjá Standard & Poor’s
að mögulegur neikvæður úrskurður myndi efn-
islega skaða framkvæmd stefnumörkunar
Íbúðalánasjóðs eða fjárhagslegan styrk hans. Ef
kæran ber árangur og leiðir til skipulagslegra
breytinga á stöðu Íbúðalánasjóðs gæti það hins
vegar haft áhrif á lánshæfismat Íbúðalánasjóðs.“
„Lítil hætta á að sjóður-
inn verði einkavæddur“
Moody’s og Standard & Poor’s veita Íbúðalánasjóði lánshæfismat
GUÐJÓN Rúnarsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands banka og verðbréfafyrirtækja, SBV, segir
að það komi verulega á óvart að faglegt og óháð
lánshæfismatsfyrirtæki, Standard & Poor’s, skuli
láta frá sér nokkuð sem hljóti að teljast pólitísk
ummæli um stöðu húsnæðislána á Íslandi.
Ummælin sem Guðjón vísar til eru þau sem
koma fram í tilkynningu Íbúðalánasjóðs vegna
lánshæfismats S&P, þar sem haft er eftir fyr-
irtækinu, að Íbúðalánasjóður njóti mikils pólitísks
stuðnings allra málsmetandi pólitískra afla og því
sé ólíklegt að umtalsverðar breytingar verði
gerðar á lagalegu umhverfi hans. Einnig þau um-
mæli að afar lítil hætta sé á að sjóðurinn verði
einkavæddur og að jafnframt verði dregið úr op-
inberum stuðningi við hann í fyrirsjáanlegri fram-
tíð.
„Það liggur fyrir að málefni Íbúðalánasjóðs eru
til skoðunar hjá ESA, Eftirlitsstofnun EFTA.
Væntanlega getur enginn sagt til um hvað út úr
þeirri skoðun kemur. Það hlýtur að eiga jafnt við
um aðila á Íslandi sem alþjóðleg lánshæfismats-
fyrirtæki. Fyrr en ESA hefur kveðið upp sinn úr-
skurð er lítið meira um þetta mál að segja. Því
koma ummæli Standard & Poor’s um húsnæðis-
lánakerfið á Íslandi verulega á óvart.“
Ummæli S&P koma
verulega á óvart
SÁ ÓVENJULEGI atburður átti
sér stað sl. laugardag að mæðgur út-
skrifuðust saman úr Kennarahá-
skóla Íslands (KHÍ) af þroskaþjálfa-
braut. Ekki er vitað til þess að slíkt
hafi gerst áður.
Unnu saman að BA-verkefni
Rósa Sigurlaug Eiríksdóttir og
dóttir hennar, Sigríður Eir Guð-
mundsdóttir, hófu nám saman fyrir
þremur árum og segir Rósa að sam-
starfið hafi gengið mjög vel. Þær
unnu saman að BA-lokaverkefni
sínu sem var rannsókn á menningu
fullorðins fólks með þroskahömlun.
„Þetta er sérlega skemmtilegt nám
og víðtækt og gefur alveg geysilega
mikla möguleika í starfi á eftir,“ seg-
ir Rósa en hún og dóttir hennar hafa
báðar ráðið sig til starfa sem þroska-
þjálfar í grunnskóla en þær gátu
báðar valið úr mörgum spennandi
starfstilboðum.Rósa Sigurlaug Eiríksdóttir og dóttir hennar Sigríður Eir Guðmundsdóttir.
Mæðgur
útskrifast
saman
KIRKJUTURNINN á Siglufjarðar-
kirkju var rannsakaður gaumgæfi-
lega í gær með tilliti til þess hvort
frekari slysahætta væri fyrir hendi,
en eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær hrundi molnaður
steinn úr turninum niður á stétt á
laugardagskvöld og þótti mikil
mildi að enginn skyldi slasast.
Steinninn sem féll niður var ann-
ar tveggja steina sem styðja við
krossinn og var það mat manna í
gær var að best væri að fjarlægja
steininn sem eftir situr og koma
fyrir annarskonar stoð í stað hans.
Siglufjarðarkirkja var byggð
1932 og er talið að tímans tönn hafi
velt steininum úr sessi.
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Steinninn sem styður við krossinn var rannsakaður vel.
Kirkjuturninn rannsakaður
LÖGREGLAN á Vík í Mýrdal
hvetur fólk til að sýna aðgæslu í
Reynisfjöru þar sem aldan get-
ur auðveldlega hrifið fólk með
sér út á sjó ef farið er of nálægt
flæðarmálinu. Mjög aðdjúpt er
á þessum slóðum og skiptir því
höfuðmáli að láta ölduna ekki
ná sér.
Reynisfjara er vinsæll áning-
arstaður ferðamanna og á
sunnudag voru nokkrir þar
staddir til að taka myndir af
Reynisdröngum þegar alda
skall á hópnum án þess þó að
illa færi. Lögreglan á Vík segir
fjöruna geta verið varasama,
ekki síst á útfallinu. Einnig
verði fólk að varast að fara á
flóði út í hellismunna í Reyn-
isfjalli.
Ógnvekjandi atburður átti
sér stað á þessum slóðum í
september 1985 þegar 22 ára
maður var hætt kominn eftir að
brimið tók hann með þeim af-
leiðingum að hann rak 2 km út
á sjó og fannst ekki fyrr en eftir
tvær klukkustundir eftir leit á
sjó og úr lofti. Ítarleg frásögn
kom í Morgunblaðinu um atvik-
ið 17. september, en það átti sér
stað að loknu ljósmyndaverk-
efni í fjörunni. Var maðurinn
kominn nokkra metra frá fjöru-
borðinu út í bylgjurnar þegar
straumurinn hreif hann með
sér út á haf.
Fara ber
varlega í
Reynis-
fjöru
SÝSLUMANNINUM á Selfossi hef-
ur borist niðurstaða réttarmeina-
fræðings vegna voðaskotsins á Sel-
fossi 15. mars sl. sem leiddi til þess
að tólf ára drengur beið bana eftir að
hafa fengið skammbyssukúlu í höf-
uðið.
Niðurstaða krufningarskýrslu
staðfestir að skot hafi hlaupið af
byssunni á stuttu færi með fyrr-
greindum afleiðingum. Málinu er
lokið af hálfu lögreglunnar að und-
anskildum þætti eiganda byssunnar
sem var fjarverandi þegar atvikið
átti sér stað. Að sögn Ólafs Helga
Kjartanssonar sýslumanns er sá
þáttur til afgreiðslu hjá lögreglu-
stjóraembættinu á Selfossi.
Skot hljóp af
byssunni af
stuttu færi