Morgunblaðið - 15.06.2004, Side 23
EIN snotur setning í vikublaði úr
Feng Shui-fræðunum hefur nú velt
allstóru hlassi því nú hefur Sigrún
Vala Valgeirsdóttir, sem árið 2000
hnaut um þessa saklausu setningu,
látið drauma sína rætast með því að
opna tehús, verslun og þekking-
armiðstöð. Hjá Sigrúnu Völu snýst
reksturinn í kringum hin aldagömlu
Feng Shui-fræði, sem hún segir að
hafi hitt sig beint í hjartastað á þess-
um tímapunkti. Hún dreif sig á braut-
argengisnámskeið um stofnun og
rekstur fyrirtækja hjá Imrpu þar
sem hún lærði meðal annars að gera
viðskiptaáætlanir og stefnumótun og
bjó til fyrirtækið sitt. Feng Shui-
húsið opnaði Sigrún svo í byrjun júní
eftir þriggja mánaða þrotlausa vinnu
við að koma húsnæðinu í stand.
Það var ekki aldeilis svo að borðum
og stólum hefði verið hent inn bara
sisona, heldur þurfti að hanna allt
húsið, sem er rúmir 100 fermetra á
tveimur hæðum, með tilliti til Feng
Shui. Sérhvert rými í húsinu gegnir
ákveðnum hlutverkum og því þarf að
koma húsgögnum og hlutum fyrir
samkvæmt sérstökum viðmiðunum
og afstöðu til átta svo að skapa megi
sem best orkuflæði í vistarverunni.
Sigrún fékk Rósu Traustadóttur, sem
rekur Hugform á Selfossi, til þess að
taka út húsnæðið í byrjun, mæla fyrir
áttum og koma með ábendingar um
liti. Arkitektinn Zirene Erla teiknaði
afgreiðsluaðstöðuna, en annað varð
til í höfðinu á sjálfri athafnakonunni.
Til dæmis hannaði hún sérstök borð
fyrir tehúsið til að henta málmsvæð-
inu og voru þau smíðuð hjá Málmco.
Snýst um jafnvægi
„Maður þarf auðvitað ekki að vera
algjörlega heilagur í þessu og þarf
alls ekki að fara offari því þetta á
fyrst og fremst að vera skemmtilegt
og vonandi gagnlegt í leiðinni. Feng
Shui eru mörg þúsund ára gömul kín-
versk víðfeðm fræði, sem fara vítt og
breitt um öll svið umhverfis og mann-
lífs og lúta að því að bæta velgengni
og vellíðan. En allt sem er of, er ekki
gott. Fræðin snúast um jafnvægi. Of
mikið af öllu er ekki gott,“ segir Sig-
rún Vala.
Þó að tiltölulega stutt sé síðan
Feng Shui-fræðin urðu þekkt á Vest-
urlöndum, eru þau að heita má inn-
byggð inn í menningarheim Kínverja,
sem byggja helst ekki upp fyrirtæki
eða flytja á milli staða án þess að láta
taka húsnæðið út með tilliti til Feng
Shui. Áhrifanna gætir víða og er orðið
nokkuð algengt að fasteignasölur, þar
á meðal ein íslensk, auglýsi Feng
Shui-ráðgjöf, að sögn Sigrúnar.
„Af vestrænum þjóðum má ætla að
Bandaríkjamenn og Bretar séu
komnir einna lengst á veg í fræð-
unum. Íslendingar virðast vera nokk-
uð vel inni í málunum, en það fyrsta
sem þarf að gera ef maður ætlar sér
að lifa samkvæmt Feng Shui er að
henda öllu gömlu dóti og fatnaði, sem
ekki eru not af, laga til og hafa allt í
röð og reglu. Kínverjar segja að gam-
alt dót ríghaldi í gamlar tilfinningar,
en um leið og hreinsað sé til, leysist
úr læðingi jákvæð orka til betra lífs.“
Verðlaunate og smáhlutir
Þetta er í fyrsta sinn sem Sigrún
Vala setur á stofn eigið fyrirtæki, en
hún hefur lengst af starfað í félags-
málageiranum. Í viðskiptunum nýtur
hún stuðnings eiginmannsins Alberts
Wium Sigurðssonar og dótturinnar
Elísu Ágústsdóttur. Hún segist auð-
vitað vonast til þess að teaðdáendur
kætist vegna þessa uppátækis henn-
ar. „Hér ætla ég mér að reka fyrsta
flokks tehús með úrvali af góðu jurta-
tei. Teið flyt ég inn frá bandaríska
fyrirtækinu Golden Moon, sem selur
te frá bestu teökrum heims enda hef-
ur fyrirtækið verið verðlaunað fyrir
teið, umbúðirnar og sérstakan teketil,
sem er eitt af vörumerkjum fyrirtæk-
isins.“
Í Feng Shui-húsinu geta við-
skiptavinir valið úr fjölda tetegunda
til að taka með heim eða þeir geta
sest niður í húsinu og gætt sér á góð-
um sopa því staðurinn rúmar allt að
30 manns í sæti. Sigrún selur auk
þess Feng Shui-vörur, t.d. óróa í öll-
um stærðum, innigosbrunna, dreka,
kristalla, búddalíkneski, reykelsi,
kerti og myndir. „Allir þessir hlutir,
sem hægt er að punta með, gera and-
rúmsloftið gott og er ætlað að auka á
áhrifamátt Feng Shui. Manni líður
miklu betur að koma heim til sín og
sjá eitthvað fallegt í stað þess að sjá
hrúgu af skítugum skóm í forstof-
unni. Umhverfið getur nefnilega veitt
mannfólkinu svo mikla vellíðan,“ seg-
ir Sigrún, sem einnig veitir áhuga-
sömum ráðgjöf um fræðin og stefnir
að því að standa fyrir námskeiðum
með haustinu. Sigrún tekur að lokum
fram að þó að aðaláherslan sé á teið
geti kaffiunnendur fengið kaffi í Feng
Shui-húsinu og hollt og gott meðlæti.
FENG SHUI | Tehús ágústmánans, verslun og þekkingarmiðstöð
Ætla mér að
reka fyrsta
flokks tehús
Lítið hús við Laugaveg hefur verið hannað
í anda Feng Shui. Jóhanna Ingvarsdóttir
þáði holl ráð og engiferte hjá athafnakon-
unni Sigrúnu Völu Valgeirsdóttur.
join@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Athafnakonan: Sigrún Vala Val-
geirsdóttir er mikil áhugamann-
eskja um Feng Shui-fræðin.
Innigosbrunnar: Þykja róandi.
Feng Shui-húsið,
Laugavegi 42b,
Opið frá 7.30 á morgnana til
18.00 á kvöldin alla daga vik-
unnar.
Gamalt dót rígheldur í
gamlar tilfinningar, en um
leið og hreinsað er til
leysist úr læðingi jákvæð
orka til betra lífs.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 23
Borgartúni 28 • símar 520 7901 & 520 7900
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
ARTISAN
5 gerðir - 7 litir
stærri skál, hveitibraut fylgir
Yfir 60 ára frábær reynsla
Hellur
steinar
borðinu
skuluð þið þekkja þær
Á yfir-
HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR
Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800
Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540-6855
Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881
www.steypustodin.is
Hellur og steinar fást einnig í
verslunum BYKO
Eigum fyrirliggjandi demantsblöð
frá DIMAS í öllum stærðum
Dalvegur 16a
201 Kópavogur
Sími 544 4656
s: 894 3000 - 894 3005
Túnþökur
Ná úruþökur
Túnþökurúllur
únþökulagnir
Áratuga reynsla og þekking
580 80 80
Vilt þú auglýsa!
Þetta svæði er laust núna
hringdu í síma
midlun@midlun.is
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Gróður og garðar