Morgunblaðið - 15.06.2004, Side 24
ÞEGAR nýja vor- og sumartískan
kom í búðirnar varð ekki ósvipað
að skreppa í fataverslun og nammi-
búð. Í sumartoppum og -bolum ráða
gulir, grænir og bleikir litir ríkjum
ásamt blúndum og pallíettum, perl-
um, blómum og fiðrildum. Siffon og
önnur létt efni eru áberandi en snið
eru með ýmsu móti. Bolir sem
bundnir eru um hálsinn koma þó
sterkir inn og oft í gamaldags
sundbolasniðum.
Sykurtoppar
TÍSKA
Sumarið er tíminn eins og skáldið sagði
einhverju sinni. Fátt er betra við íslenska
sumarið en að þvælast um á Austurvelli í
ermalausum bol eða topp
og ímynda sér betra veð-
ur. Anna Pála Sverris-
dóttir fór í búðaráp.
DAGLEGT LÍF
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSAMTÖKIN Þroskahjálp
gáfu nýlega út fræðsluefni um með-
göngu og umönnun ungra barna,
sem er sérhannað fyrir seinfæra for-
eldra. Þörfin er brýn, því seinfærum
og greindarskertum foreldrum fer
fjölgandi og það efni sem í boði hefur
verið um þetta málefni, nýtist sein-
færu fólki mjög illa og því stuðlar
þetta nýja stuðningsefni að öryggi
barna þeirra.
Fræðsluefnið skiptist í þrjú rit
sem heita:
1. Meðgangan.
2. Líkamleg umönnun ungra
barna.
3. Þroski og örvun ungra barna.
Miðast þau tvö síðarnefndu við
börn sem eru 0–6 mánaða. Mikil
áhersla er lögð á hlutverk föður og
mikilvægi þess að hann sé jafn virk-
ur og móðirin í öllu sem viðkemur
umönnun barnsins.
Ekki eingöngu fyrir seinfæra
Hanna Björg Sigurjónsdóttir,
uppeldis- og menntunarfræðingur.
er verkefnisstjóri útgáfunnar og
samdi hún og hannaði efnið. „Þetta
efni nýtist einnig vel fyrir þá sem
hafa fulla greind eins og til dæmis
mjög unga foreldra, sjónskerta,
heyrnarlausa, lesblinda og erlenda
innflytjendur sem skilja íslensku
kannski ekki eins vel og innfæddir.
Þess vegna gæti þetta allt eins heitið
Fræðsluefni á einföldu máli, en ekki
eingöngu tengt við seinfæra.“ Hanna
segir það taka langan tíma að vinna
auðlesinn texta sem þarf ekki aðeins
að vera stuttur heldur líka á einföldu
máli. Tvö stafabil eru höfð milli orða,
löngum orðum er skipt með band-
striki, letrið stórt og áhersla á ein-
faldar skýringarmyndir. „Ég var í
nánu samstarfi við hjúkrunarfræð-
inga og ljósmæður sem eru sérfræð-
ingar á sviði meðgöngu og ung-
barnaverndar, en auk þess voru
félagsráðgjafar mér innanhandar og
eins talaði ég mikið við seinfæra for-
eldra sem sögðu mér hvað þeim
fannst helst þurfa að vera í svona
fræðsluefni.“
Verður endurskoðað
og bætt að ári
Hanna segir að sérhæft stuðnings-
efni af þessu tagi hafi ekki verið gert
hérlendis áður. „Og ég hef reyndar
ekki heldur séð neitt sambærilegt
efni í öðrum löndum. Fólk hefur sýnt
þessu mikinn áhuga og við sem stóð-
um að þessu erum því stolt af því að
hafa rutt brautina,“ segir Hanna og
bætir við að fræðsluefnið verði
endurskoðað að ári og betrum-
bætt eftir þörfum.
Hjá Miðstöð Mæðraverndar er
hægt að nálgast þann hluta efnis-
ins sem fjallar um meðgöngu, en
Heilsuvernd barna á Barónsstíg
sér um dreifingu til fagfólks á
tveimur seinni hlutunum um lík-
amlega umönnun og þroska ung-
barna. „Mikilvægi sérhannaðs
efnis um þessi mál fyrir seinfæra
er ekki einungis fyrir foreldrana
heldur ekki síður fyrir tilsjón-
armenn seinfærra, stuðningsaðila
þeirra og fagfólk sem þeir leita
til,“ segir Hanna og bætir við að
fyrir tveimur árum hafi Þroska-
hjálp fengið styrk frá franska fyr-
irtækinu Schneider Electronic til
að vinna að þessu verkefni og þá
hafi vinnan farið af stað. „Svo
fengum við myndarlegan styrk frá
félagsmálaráðuneytinu í fyrra á
ári fatlaðra, en auk þess studdi
Fálkinn okkur og starfsmanna-
félag Fálkans. Þessi framlög öll
urðu til þess að hægt var að ráðast
í að vinna þetta efni fyrir allt það
fólk sem þarf á því að halda.“
HEILSA| Meðganga og umönnun ungbarna
Fræðsluefni fyrir
seinfæra foreldra
Mynd úr fræðsluefninu. Jóhannes Holm teiknaði allar skýringarmyndir.
khk@mbl.is
Skær: Einlitir bolir í sterkum
litum sjást nú mikið. Þessi er
sítrónugulur með áfestan-
legu blómi úr leðri. Karen
Millen. 5.990 krónur.
Hressilegur: Hlýrabolur með inn-
byggðum brjóstahaldara svo ekki
þurfi að sjást í aukahlýra. Park.
3.490 krónur.
Smart: Dökk-
bleikur og
doppóttur, með
Charleston-
pífum og bund-
inn í hálsinn.
Fæst í Park.
3.990 krónur.
Hlýrabolur: Frá Morgan með fiðrildi
úr pallíettum en fiðrildi má sjá víða í
fatnaði og fylgihlutum sumarsins.
Gallerí sautján. 6.990 krónur.
Ljósir: Hlýrabolir úr mjúku siffon-
efni. Bleikir og bláir blúnduborðar
við hálsmál og mitti. Vero Moda.
2.490 krónur.
Hentugt: Billabong-sundtoppar sem einnig er hægt að klæðast á þurru
landi. Mynstrin eru draumur brimbrettagellunnar. Brim. 4.550 krónur.
Röndóttur: Hlýra-
laus strandbolur.
Bundinn um hálsinn
með mjóu bandi.
Gallerí sautján.
1.990 kr.
Blómlegur:
Hawaii-toppur úr
siffoni, festur
saman um háls-
inn. Fer vel við
sólarlit á kroppn-
um. Karen Millen.
10.990 krónur.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Ji
m
S
m
ar
t