Morgunblaðið - 15.06.2004, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 5, 6, 8 og 10.
Nýjasta og mest spennandi
myndin um Harry Potter er
komin í bíó. Stórkostlegt
ævintýri fyrir alla fjölskylduna
sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál
verða uppljóstruð.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás2
DV
HL Mbl
Stórviðburður ársins er kominn!
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banar i t t , r l l , r i
Sýnd kl. 5.40 og 10.
Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter
er komin í bíó. Stórkostlegt ævintýri fyrir alla
fjölskylduna sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 2
HL Mbl
Í SNERTINGU
VIÐ TÓMIÐ
Sýnd kl. 8. 2 SÝNINGAR EFTIR!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 7, 9 og 10.
Stóri salurinn kl. 6 og 9.
Árið 2001 heillaði Elling okkur uppúr
skónum. Nú er komið frábært sjálfstætt
framhald þar sem Elling fer í frí til
sólarlanda ásamt móður sinni.
Norskt grin uppá sitt besta.
Mamma hans Elling
Brad Pitt, Orlando Bloom, Eric Bana
SV MBL
Kvikmyndir.is
ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA ÓDAUÐLEGAR HETJUR
GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA AÐ EILÍFU!
Sýnd kl. 6 og 9. B.i.14 ára.
Ó.H.T Rás 2
BANDARÍSKA rokksveitin 27 ætlar að halda
þrenna tónleika hérlendis, á morgun, miðviku-
dag og fimmtudag, 17. júní. Sveitin kemur frá
Boston og höfðupaurinn er Maria Christopher,
söngkona og gítarleikari, en aðrir meðlimir eru
Ayal Naor sem spilar á hvað sem er, Neil Coulon
trymbill og Jay Cannava, gítar- og bassaleikari.
27 spila draumkennt og melódískt tilraunapopp
en hafa jafnan fylgt harðkjarnaböndum á hljóm-
leikum. 27 eru nú á mála hjá Hydra Head Re-
cords en stofnandi útgáfunnar er Aaron Turner;
leiðtogi, söngvari og gítarleikari Isis, sem líkt og
27 fara nokk ótroðnar rokkslóðir. Blaðamaður
hringdi í Mariu Christopher, þar sem hún var í
hljómsveitarútu á fullu stími í gegnum Bret-
landseyjar.
Hvernig kom það til að þið eruð að koma hing-
að?
„Það kom nú þannig til að við þekkjum fólkið í
Total Fucking Destruction vel en við erum frá
sömu borg, Boston (TFD spiluðu hér á landi síð-
asta ágúst). Við komumst svo í samband við
Sigga Pönk (Sigurð Harðarson) og hann vildi
ólmur flytja okkur inn til landsins.“
Þið eruð iðulega í undarlegum félagsskap og
hafið gefið út plötu á Relapse Records, sem gef-
ur nær eingöngu út níðþunga tónlist?
„Já, þetta er vissulega dálítið skrýtið. En þeg-
ar við sömdum við Relapse þá voru þeir að fara í
hugmyndafræðilega útþenslu hvað útgáfur sínar
varðaði. En svo – einhverra hluta vegna – erum
við alltaf hangandi með þessum harðkjarnabönd-
um og spilum oft á slíkum tónleikum. Það gerir
þetta auðvitað skemmtilegra fyrir okkur þar sem
við höfum færi á að spila fyrir breiðari hóp.“
Á ferðalagi með Isis
Þið hafið verið að túra með Isis …
„Já, það er búið að vera frábært. Við fórum
með þeim til Japan sem var alveg stórkostlegt.
Þvílíkt land!“
Meðlimir úr Isis hjálpuðu ykkur líka eitthvað á
nýjustu stuttskífunni ykkar, Let the light in, er
það ekki?
„Jú, bæði Jeff Caxide (bassi) og Aaron Turner
komu að plötunni (þess má svo geta að Maria og
Naor hjálpuðu til við síðustu plötu Isis, hina frá-
bæru Oceanic).“
Hvernig hefur 27 verið að þróast í gegnum ár-
in?
„Við byrjuðum að semja á kassagítara en not-
umst svo við ýmisleg tæki og tól til að koma
þessu til skila. Notum meðal annars hljóðsmala.“
Og þetta er að falla vel í kramið hjá harð-
kjarnakrökkunum?
„Já, merkilegt nokk. Og ef eitthvað er þá fáum
við miklu meiri viðbrögð frá þeim heldur en frá
þessum dæmigerðu nýbylgjuáhorfendum.“
Fyrstu tónleikar 27 verða í kvöld á De Palace.
Með þeim spila Kimono, Future Future (nýtt
band með fyrrum Snafu-meðlimum) og Lights on
the Highway („alt.kántrí“ band sem er leitt af
Agga úr Klink). Tónleikarnir hefjast klukkan
21.00 og kostar 500 kr. inn.
Því næst leika 27 annað kvöld á Grand rokk
ásamt Changer og dönsku þungarokkssveitinni
Urkraft.
Þriðju tónleikarnir eru svo 17. júní, á hinni
svokölluðu Masters of the Universe-harð-
kjarnahátíð. Sú hátíð hefst klukkan 17.00 og fer
fram í gamla Sjónvarpshúsinu (Laugavegi 176).
Þar troða upp alls níu sveitir, m.a. Shai Hulud og
Give up the Ghost frá Bandaríkjunum.
27 með þrenna tónleika hérlendis
Hleypum ljósinu inn
www.27.vg
www.motu-fest.org
arnart@mbl.is
SVARTUR Benz, af flottustu gerð,
rennir í hlað Morgunblaðsins. Út úr
honum stíga þrír víkingar í forláta
tískuklæðnaði þess tíma, vopnaðir
fornum hljóðfærum. Einn þeirra síð-
skeggjaður, dimmeygður og með
stórkarlalega húfu á höfði. Hann
kemur kunnuglega fyrir sjónir.
Hér er á ferðinni dansk-íslenska
víkingasveitin Krauka. Hún var
stofnuð fyrir fimm árum, hefur ein-
beitt sér að flutningi alþýðulaga frá
miðöldum sem hægt er að rekja til
Íslands, Færeyja, Danmerkur og
Svíþjóðar svo eitthvað sé nefnt. Í
þessum tilgangi hafa meðlimir smíð-
að sér hljóðfæri, eitt þeirra nákvæm
eftirmynd hljóðfæris sem fannst í
gröf í Norður-Þýskalandi t.d. Bein-
flauta er m.a. brúkuð. Og þessi síð-
skeggjaði? Hér er kominn enginn
annar en Guðjón Rúdólf, sá hinn
sami og sló í gegn með laginu „ Húf-
an“ („Karekarekarekarer húfan
mín“) í fyrrasumar. Hann og félagar
hans, þeir Aksel Striim og Jens Villy
Pedersen, eru hingað komnir til að
skemmta á Víkingahátíðinni við
Fjörukrána, Hafnarfirði, sem hefst
með lúðrablæstri og söng á morgun.
Krauka slær í gegn!
Guðjón Rúdólf segir rekstur
Krauku hafa gengið ótrúlega vel,
allt frá stofnun. Eins skringilega og
það kann að hljóma virðist nefnilega
mikill markaður fyrir öllu tengt vík-
ingamenningu, víða um veröld. Vík-
ingaklúbbar eru til í Kaliforníu og
Brasilíu og fyrir stuttu léku þeir fé-
lagar í Póllandi þar sem áheyrendur
sungu með fullum hálsi – á dönsku!
„Krauka var stofnuð fyrir fimm
árum síðan, vegna víkingahátíðar
sem fram fór á Grænlandi árið
2000,“ útskýrir Guðjón. „Vegna
þessa lögðumst við í rannsóknir og
einsettum okkur að flytja þessa vík-
ingatónlist á víkingahljóðfæri.“
Meðlimir sýna mér þannig líru,
fornfálega flautu og litla beinflautu,
skorna út í bein af lambi sem eitt
sinn var víst undir tönnum Guðjóns.
Krauka hefur á síðustu árum flækst
víða um velli og meðal annars spilað
í skólum. Ekki nóg með það heldur
hafa diskar Krauku selst vel líka.
Segir Jens. „Já, svo virðist sem
okkur hafi tekist að komast inn í
þessa heimstónlistargrensu. Við
fáum stöðugt fyrirspurnir hvaðan-
æva úr heiminum og höfum haft í
nógu að snúast, allt frá upphafi.“
Íslenskum blaðamanni leikur eðli-
lega forvitni á að vita aðeins um
sólóferil Guðjóns, en hann og Þor-
kell Atlason tónkáld stóðu að einni
bestu og undurfurðulegustu plötu
síðasta árs, Minimania, sem innihélt
áðurnefndan smell, „Húfuna“.
„Þorkell var bara að hjálpa mér að
taka til í trúbadúraskúffunni minni,“
segir Guðjón lítillátur. „Þú rétt get-
ur ímyndað þér að ég er orðinn
hundleiður á „Húfunni“ (hlær)!“
Krauka á að baki tvo hljómdiska.
Fyrri kom út 2001 og heitir Víkinga
seiður. Síðari er nýútkominn og kall-
ast Stiklur. Guðjón Rúdólf lýsir
þeim fyrri sem nokkuð hráum en
hinn nýi sé meira unninn. Krauka
treður upp nótt sem nýtan dag með-
an á víkingahátíð stendur.
Guðjón Rúdólf og Krauka á Víkingahátíð við Fjörukrána
„Karekarekare-
karer hjálmur-
inn minn?“
Morgunblaðið/Eggert
Kraukan hefur haft í nógu að snúast síðan hún var stofnuð fyrir 5 árum.
www.krauka.dk
arnart@mbl.is
HÁTÍÐIN fer fram dagana 16.
til 20. júní á Fjörukránni,
Hafnarfirði og heitir fullu nafni
Sólstöðuhátíð víkinga við
Fjörukrána.
Á meðal þess sem verður á
dagskrá:
– Lystisnekkjan Elding
– Árni Johnsen
– Víkingabandið Krauka
– Sungið við varðeld hvert
kvöld
– Hafnfirski bardaga- og
handverkshópurinn Rimmu-
gýgur
– Hinn alþjóðlegi vík-
ingahópur Jómsvíkingar
– Fjöldi handverksmanna, ís-
lenskra sem erlendra
– Víkingahópurinn Hring-
horni frá Akranesi sýnir leiki
fornmanna
– Sænski víkingahópurinn
Telge Glima
– Dansleikir
– Miðsumarblót á sunnudags-
kvöldinu.
– Víkingamarkaður
Ítarlegar upplýsingar má nálg-
ast á www.fjorukrain.is
Víkingahá-
tíðin 2004
VÆNTANLEG plata Bjarkar
kemur til með að heita
Medulla. Þetta kemur fram á
heimasíðu söngkonunnar,
www.bjork.com.
Sam-
kvæmt
Ensk-
íslenskri
orðabók
Arnar og Örlygs frá 1984 þýð-
ir enska orðið „medulla“
mergur, eins og mergur í bein-
um og jurtum, eða „innri vefur
í líffæri“.
Björk hefur fengið lista-
mannateymin M/M – sem sam-
anstanda af Mathiasi Aug-
ustyniak og Michaël Amzalag
– og Inez/Vinoodh – sem eru
Inez van Lamsweerde og
Vinoodh Matadin – til að
hanna plötuumslagið og aðra
útlitsvinnu fyrir útgáfuna.
Áætlað er að platan komi út
síðla ágústmánaðar.
Nýja Bjarkar-platan
mun heita Medulla
Mergur
í beinum