Morgunblaðið - 12.08.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HITAMET Í BORGINNI
Hitamet var slegið í höfuðborginni
í gær þegar hitinn mældist 24,8
gráður. Eldra metið var 24,3 gráður
og hafði staðið í 28 ár. Úrkoma
mældist hvergi á landinu í gær.
Mannabein frá miðöldum
Heilleg beinagrind sem talin er
vera frá miðöldum hefur fundist í
jörðu við bæinn Sigluvík skammt frá
Akureyri. Minjavörður Norðurlands
eystra telur að þar sem beinagrindin
fannst hafi verið kirkjugarður.
90% íbúðalán á næsta ári?
ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hef-
ur samþykkt hækkun hámarkslána
Íbúðalánasjóðs upp í 90%. Félags-
málaráðherra reiknar með breyttu
lánakerfi íbúða strax á næsta ári.
ESA telur starfsskilyrði Íbúðalána-
sjóðs ekki brjóta gegn EES-
samningnum, en sú niðurstaða kem-
ur Samtökum banka og verðbréfa-
fyrirtækja á óvart.
Stórsókn í Najaf undirbúin
Bandarískar hersveitir bjuggu sig
í gær undir að hefja stórsókn í
írösku borginni Najaf til að binda
enda á uppreisn vopnaðra stuðn-
ingsmanna sjía-klerksins Moqtada
al-Sadrs. Klerkurinn skoraði á menn
sína að berjast til síðasta blóðdropa.
Ekkert lát á manndrápunum
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch segja morð, nauðganir
og rán aukast enn í Darfur-héraði í
Súdan og saka þarlend stjórnvöld
um að hafa ráðið menn úr arabískum
vígasveitum til löggæslu í héraðinu.
Spassky biður Fischer griða
Borís Spassky hefur ritað Banda-
ríkjaforseta bréf og óskað eftir því
að bandarísk yfirvöld hætti við að
krefjast framsals Bobbys Fischers
frá Japan. Fischer sigraði Spassky í
einvígi í skák á Íslandi árið 1972.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 24
Erlent 12/13 Viðhorf 26
Höfuðborgin 17 Minningar 26/32
Akureyri 17 Dagbók 36/38
Suðurnes 18 Listir 39/40
Landið 18 Fólk 42/45
Neytendur 20 Bíó 42/45
Daglegt líf 21 Ljósvakamiðlar 46
Umræðan 22/23 Veður 47
* * *
VÍÐA er pottur brotinn hvað varðar
lausagöngu búfjár á þjóðvegum
landsins og vantar heildarstefnu í
þessum málum, að mati Kjartans
Benediktssonar, umferðarfulltrúa
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Hann segir að lausagangan ógni um-
ferðaröryggi vegfarenda.
„Það er ótrúlegt að stjórnvöld
skuli sitja aðgerðarlítil hjá þó svo að
á hverju sumri berist fréttir um slys
sem talin eru tengjast lausagöngu
búfjár og tjón af þeim sökum. Ekki
eru nema 6 ár síðan banaslys varð af
þessum völdum,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörgu. Alls hafi 696 tilfelli
verið skráð á árunum 1992–1999 þar
sem ekið var á búfé, samkvæmt upp-
lýsingum úr lokaskýrslu nefndar
sem starfaði á vegum landbúnaðar-
ráðuneytisins árin 1998–2001 og
fjallaði um þjóðvegi og búfé.
Kjartan segi að staðan í dag sé sú
að nokkrir vegkaflar hafi verið frið-
aðir fyrir ágangi búfjár og hafi Vega-
gerðin girt þá af. Ekkert sé þó fylgst
með þessum svæðum, en þó séu örfá-
ar undantekningar til, t.d. í Mýrdals-
hreppi. „Eins og þetta er á sumum
stöðum í dag, er búið að girða með-
fram vegum, en svæðunum er ekki
lokað.“ Þannig geti kindurnar kom-
ist inn á friðuðu svæðin.
Eins sé merkingum um hvar séu
friðuð svæði og hvar megi eiga von á
búfénaði ábótavant. „Þegar þú keyr-
ir inn á friðað svæði er ekkert sem
segir að þú sért á friðuðu svæði og
þegar þú keyrir út af friðaða svæð-
inu eru engar merkingar sem segja
þér að þú sért að keyra út af friðuðu
svæði og megir eiga von á búfé við
veginn,“ segir Kjartan. Hann segir
að umferðarmerki til að vara við
lausagöngu búfjár séu mjög sjaldséð
á vegum landsins, þannig hafi hann
aðeins séð eitt slíkt á leiðinni milli
Reykjavíkur og Egilsstaða á ferð
sinni á dögunum.
Engin heildarstefna
„Svo virðist að ákvarðanir um
þessi mál séu háð ákvörðunum ein-
stakra sveitarstjórnarmanna og um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar en
ekkert samræmi virðist vera á milli
landshluta í þessum málum og engin
heildarstefna virðist vera til í þess-
um málum. Þegar leitað er svara
bendir hver á annan og enginn virð-
ist bera ábyrgð á þeim,“ segir í til-
kynningunni.
Kjartan segir að lögin um þetta
séu loðin. „Það sem við viljum sjá er
að það verði sett lög um þetta og
reglur og það verði tekið á þessu
máli á landsvísu og það geri þetta
bara allir á sama hátt,“ segir hann. Í
fréttatilkynningunni segir að svo
virðist sem skýrsla sem var gefin út
af landbúnaðarráðuneytinu árið 2001
um þjóðvegi og búfé liggi óhreyfð og
lítið sem ekkert sé unnið að úrbótum
í málinu og á meðan haldi slysin
áfram.
Skýrsla frá 2001 um úrbætur á lausagöngu búfjár hefur ekki leitt til breytinga
Stjórnvöld sitja aðgerðarlít-
il meðan slysin halda áfram
HÓPUR ungra sóldýrkenda safnaðist saman í kringum
þá Ríkarð Örn Steingrímsson og Guðmund Inga Rún-
arsson lögreglumenn sem gættu þess að allt færi vel
fram á ylströndinni í Nauthólsvík í gær.
Reiðhjól Lögreglunnar í Reykjavík hafa komið að
góðum notum í hlýindunum undanfarna daga.
Að sögn Karls Steinars Valssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns á lögreglan í Reykjavík fjögur hjól sem
reynt er að nota á góðviðrisdögum. Hann segir útivist-
arsvæðum í borginni hafa fjölgað og þau séu vel sótt.
Það sé einfaldlega auðveldara fyrir lögreglumenn að
vera á hjólum en bílum við löggæslu á slíkum svæðum.
Morgunblaðið/Júlíus
Sjaldséðir hvítir hrafnar. Lögreglumennirnir Ríkharður Steingrímsson og Guðmundur Ingi Rúnarsson ferðuðust um
Nauthólsvíkina og nágrenni í gær á reiðhjólum. Þeir vöktu mikla athygli í sandfjörunni innan um sóldýrkendur.
Reiðhjólin dregin fram á góðviðrisdögum
„MENN settust niður og mátu
stöðuna og ákváðu síðan að vinna í
hópum á mánudag og miðvikudag,“
sagði Finnbogi Sigurðsson, for-
maður Félags grunnskólakennara,
eftir um hálftíma langan samninga-
fund fulltrúa grunnskólakennara
og sveitarfélaga hjá ríkissátta-
semjara í gær. Engar efnislegar
umræður fóru m.ö.o. fram á fund-
inum, sem var hinn fyrsti milli
samningsaðila eftir sumarleyfi.
Næsti fundur með sáttasemjara
hefur verið boðaður á fimmtudag
að viku liðinni. Á fyrrnefndu fund-
unum tveimur á m.a. að hefja
óformlegar viðræður um vinnutíma
kennara.
Grunnskólakennarar hafa boðað
verkfall 20. september nk., náist
samningar ekki fyrir þann tíma.
Finnbogi segir það að sjálfsögðu
markmið samningsaðila að klára
málið fyrir þann tíma. Birgir Björn
Sigurjónsson, sem stýrir viðræðun-
um fyrir hönd sveitarfélaganna,
tekur í sama streng. Segir hann
einlægan vilji beggja aðila að ná
niðurstöðu svo ekki komi til átaka.
Hann segir ennfremur aðspurður í
því sambandi að góður andi hafi
ríkt á fundinum í gær.
Óformlegar
viðræður hefjast
um vinnutíma
Lést úr
hjartaáfalli
MAÐURINN
sem lést eftir að
hafa fengið
hjartaáfall og ek-
ið inn í verslun
Nóatúns við
Hringbraut í
Reykjavík á
mánudagsmorg-
un hét Pétur
Svavarsson, tannlæknir. Pétur var
56 ára gamall, fæddur 15. febrúar
1948. Hann var til heimilis að Meist-
aravöllum 15 í Reykjavík. Pétur læt-
ur eftir sig sambýliskonu, þrjú börn
og uppeldisdóttur.
LÖGREGLAN í
Hafnarfirði lýsir
eftir Ólöfu A.
Breiðfjörð Guð-
jónsdóttur,
fæddri 1974, en
ekkert hefur
spurst til hennar
síðan síðari hluta
föstudagsins 6.
ágúst sl. og þá í Garðabæ. Ólöf er 173
til 175 cm á hæð, dökkhærð og með
hár rétt niður fyrir axlir og grann-
vaxin. Ólöf eða þeir sem vita eitthvað
um ferðir hennar eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við lögregl-
una í Hafnarfirði í síma 525 3300.
Lýst eftir konu